Dagblaðið - 20.10.1980, Síða 36

Dagblaðið - 20.10.1980, Síða 36
„FRAMBOÐ KJARTANS ER MJÖC ÆSKILEGT’ — segir Vilmundur Gylfason — Jón Baldvin á uppleið „Ég tel framboð Kjartans mjög æskilegt. Ég er þeirrar skoðunar að Kjartan hafi varla getað annað eins og málum er nú háttað,” sagði Vil- mundur Gylfason er blaðamaður DB spurði hann, hvort hann teldi fram- boð Kjartans Jóhannssonar æskilegt fyrir Alþýðuflokkinn. ,,Ég vísa á bug öllum hugmyndum um að Kjartan sé með framboði sinu að gera sig sekan um einhvern ódrengskap. Lýðræðislegar kosning- ar geta ekki verið annað en já- kvæðar. Þrátt fyrir itrekaðar tilraunir hefur Alþýðuflokkurinn ekki tekið þeim breytingum sem kosningafyrir- komulagið hefur gert. Þótt Alþýðu- flokkurinn njóti nú fylgis nærfelit fimmta hvers kjósanda í landinu eru aðeins 150 fulltrúar á flokksþinginu. Skipulag flokksins hefur að hluta til yfirbragð klíkunnar. Þetta er ekki ólíkt vandamál og brezki verka- mannaflokkurinn hefur átt við að glima. Ef þetta væri heilbrigt ættum við að vera með 1000 manna flokks- þing,” sagði Vilmundur. Aðspurður hvort hann hygðist styðja Kjartan sagðist Vilmundur líta á sig sem traustan flokksmann en , ,þarna kunna að vegast á per- sónulegir hagsmunir og langtíma- hagsmunir flokks og lands,” sagði hann og kvaðst vera að vega málin. Það var sl. föstudag að Kjartan Jóhannsson varaformaður Alþýðu- flokksins gekk á fund Benedikts Gröndal, formanns flokksins, og tilkynnti honum að hann hygðjst bjóða sig fram gegn honum við for- mannskjör á flokksþingi Alþýðu- flokksins um næstu mánaðamót. Báðir hafa þeir Benedikt og Kjartan lýst þvi yfir að ekki sé um neinn málefnaágreining þeirra á milli að ræða. Kjartan segir að fyrir sér vaki einungis að fram geti farið lýðræðis- legt val. DB hafði tal af alþingis- mönnunum Árna Gunnassyni, Karli Steinari Guðnasyni og Sighvati Björgvinssyni, en þeir reyndust ófá- anlegir til að tjá sig um framboð Kjartans á þessu stigi. Um helgina voru kosnir fulltrúar Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur á þing Alþýðuflokksins um næstu mánaðamót. Flest atkvæði hlutu Eggert G. Þorsteinsson 140, Jón Baldvin Hannibalsson 131, Gylfi Þ. Gislason 128, Sigurður E. Guðmundsson 124 og Bjarni Guðna- son 124. -GAJ. Sundasamtökin: Mótmælaskilti af hjúpað í gær ,,Það merkilega við þetta er hin gifurlega þátttaka og undirtektir sem þetta hefur fengið,” sagði Magnús Óskarsson nýkjörinn formaður Sunda- samtakanna í gær. Samtökin voru stofnuð til þess að berjast gegn byggingu skrifstofuháhýsis Sambands islenzkra samvinnufélaga sjávarmegin við Kleppsveginn. „Við sprengdum utan af okkur félagsheimilið Þróttheima í gær þar sem komu 300 manns til að mótmæla byggingunni.” Fólkið hélt síðan að fyrirhuguðum byggingarstað, þar sem afhjúpað var mótmælaskilti. Stjórn hinna nýju samtaka skipa 11 menn. -JH/DB-mynd Gunnar Örn. Fundarhöld í verkalýðsfélögum: Gengið f rá formsatriðum — vegna verkfallsboð- unar 29. október Verkalýðsfélögin vitt og breitt um landið eru um þessar mundir að ganga frá nauðsynlegum formsatriðum vegna verk fallsboðunar Alþýðusambandsins 29. október. Mörg félög sem hafa ekki afgreitt heimild til stjórna og trúnaðar- mannaráða til að boða verkfall héldu fundi um helgina og önnur halda fundi í kvöld. Verða félögin að tilkynna i síðasta lagi á morgun um þátttöku í allsherjarverkfallinu í lok mánaðarins. Að öðru leyti er tíðindalitið af samningavigstöðvum. í Karphúsi sátta- nefndarmanna við Borgartnn hefur verið efnt til funda í deilu llugmannar félaganna um starfsaldurslista um helgina. Engir fundir eru boðaðir í deilu Alþýðusambands og Vinnuveit- endasambands. „Við höfum formlega farið fram á þríhliða viðræður við ASÍ og ríkið og væntum skjótra svara. Á það verður að reyna hvort raunveru- legur samningsvilji er fyrir hendi,” sagði Þorsteinn Pálsson framkvæmda- stjóri Vinnuveitendasambandsins í morgun. -ARH. Stykkishólmur: Húsið brann meðan íbúarnir voru í frfi Mikið tjón varð er eldur kom upp í einbýlishúsi að Sundabakka 7 í Stykkishólmi um fjögurleytið á laugar- dag. Eigendur hússins höfðu farið til Reykjavíkur á fimmtudag en ná- grannar urðu varir við reyk og gerðu slökkviliðinu viðvart. Upptök eldsins voru í olíufylltum rafmagnsofni sem stóð i barnaherbergi hússins. Er talið líklegt að hitastillir hans hafi bilað og ofninn hitnað. Tvö lítil göt fundust á ofninum og vætlaði þar út olía. Húsið er mikið skemmt eftir brunann, veggir og innbú sótugt og loftklæðning sviðnuð. Þá þurftu slökkviliðsmenn að rjúfa þakið til áð • ••• -ELA. Eigendur hússins að Sundabakka 7 i Stykkishólmi, Jónas Steinþórsson og Guðrún Gunnlaugsdóttir. Á meðan þau óku Kerlingarskarð á leið heim úr Reykjavik barðist slökkviliðið við að ráða niðurlögum eldsins á heimili þeirra. Á innfelldu myndinni má sjá hvar slökkviliðsmenn rjúfa þakið til að ná til eldsins. DB-myndir Ólafur H. Torfason, Stykkishólmi. Mann tók út af loðnubát á miðunum — fannst ekki þrátt fyrir mikla leit Það slys varð á loðnumiðunum út af Vestfjörðum aðfaranótt laugardagsins að einn skipverja af Náttfara RE 75 féll fyrir borð. Var leit þegar hafin og tóku þátt i henni bæði Náttfari og fleiri bátar. Leitin varð árangurslaus. Náttfari hélt til Akureyrar og verða sjópróf varðandi slysið þar. Loðnuflotinn var allur á miðum um helgina og var veiðisvæðið út af Vest- fjörðum, hérna megin við miðlinu til Grænlands. Gott veður var á miðunum en krap i sjónum vegna kulda. 13 bátar fengu 9400 tonn á laugardag og 17 skip tilkynntu 10500 tonna afla á sunnudag. -A.St. Flugleiðafrumvarpið: „í SAMRÆMIVKJ STEFNU 0KKAR” — segir Ólafur Ragnar Grímsson „Þingflokkur Alþýðubanda- lagsins hefur lýst yfir stuðningi við þetta frumvarp. Eitt aðalatriðið í frumvarpinu að okkar mati er, að skilyrði fyrir ríkisábyrgðinni er að fullt veð fáist svo að tryggt sé að ef félagið geti ekki staðið í skilum komi það ekki niður á skattborgurunum,” sagði Ólafur Ragnar Grimsson al- þingismaður er blaðamaður DB innti hann álits á Flugleiðafrumvarpinu. „Jafnframt eru sett fram frekari skilyrði, s.s. sala hlutabréfa tii starfs- fólks. Þetta tvennt teljum við afar mikilvægt. Ennfremur teljum við mikilvægt að almannavaldinu er tryggður meiri réttur til áhrifa á stjórnarstefnu fyrrtækisins með aukningu hlutafjár ríkisins úr 6% i 20%,” sagði Ólafur Ragnar. Hann sagðist telja það meginat- riðið að tryggt væri að hugsanlegum halla á rekstri fyrirtækisins yrði ekki velt yfir á skattborgarana. Það væri í samræmi við stefnu Alþýðubanda- lagsins. -GAJ. frjálst, óháð dagbJað MÁNUDAGUR 20. OKT. 1980, Heimspekideild Háskóla íslands: Höskuldur settur prófessor Ingvar Gíslason menntamála- ráðherra hefur ákveðið að dr. Höskuldur Þráinsson verði skipaður prófessor í nútímamálfræði í heim- spekideild Háskólans, en sú staða hefur verið laus í á annað ár. Áður gegndi henni dr. Halldór Halldórsson. Umsækjendur um prófessors- stöðuna voru auk dr. Höskuldar þeir Baldur Jónsson dósent og dr. Kristján Ámason. Samkvæmt úrskurði dóm- nefndar þriggja manna sem til voru kvaddir stóð valið á milli Höskuldar og Baldurs. Á deildarfundi í heimspeki- deild hlaut Höskuldur 17 atkvæði (hreinan meirihluta) en Baldur 10 at- kvæði. Erindið fór síðan fyrir mennta- málaráðherra og hefur verið beðið ákvörðunar hans i nokkrar vikur. -ARH. Bankamennfelldu samningana: Ný stef na mótuð í dag Félagar i Sambandi íslenzkra banka- manna felldu í síðustu viku bráða- birgðasamning þann sem undirritaður var 3. október síðastliðinn. Talin voru atkvæði á laugardaginn og kom þá i Ijós að 1181 sagði nei, 778 sögðu já og auðir seðlar og ógildir voru 84. Um 60% þeirra sem afstöðu tóku voru þannig á móti samningnum en 40% með. Vilhelm G. Kristinsson fram- kæmdastjóri SÍB sagði t morgun að haldnir hefðu verið kynningarfundir á öllum vinnustöðum um þessa samninga og hefði á þeim komið fram nokkur gagnrýni á einstök atriði i þeim. Því hefði fyrirfram verið ljóst að tvísýnt yrði hvort þeir næðu fram eða ekki Úrslitin komu mönnum þannig ekki alveg í opna skjöldu. í hádeginu í dag er stjórnarfundur í SÍB en i kvöld fundur formanna allra aðildarfélaga sambandsins. Reiknað er með að þeir verði þá búnir að funda innan sinna stjórna og verður þá stefnan mótuð upp á nýtt. -DS. Sexinnbrot um helgina — stórfelldar skemmdir á húsi í Kópavogi Sex innbrot voru framin á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Málin eru i rannsókn og ekki var vitað í morgun hverju stolið var alls staðar. Miklar skemmdir voru unnar á Bústað við Þinghólsbraut í Kópavogi. Aðrir staðir sem heimsókn þjófa fengu voru Járnsteypan við Ánanaust, .hús AA- samtakanna i Tjarnargötu 5, Efnalaug Hafnarfjarðar, þar sem brotinn var upp peningaskápur, Vélsmiðja Hafnar- fjarðarogSanitas. -A.St. LUKKUDAGAR: 19. OKTÓBER 10845 Muiinette kvörn 20. OKTÓBER 11095 Sharp vasatölva m/klukku og vekjara. Vinningshafar hríngi ísíma 33622.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.