Dagblaðið - 13.11.1980, Blaðsíða 1
t
t
t
6. ÁRG. — FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1980 — 258. TBL.
RITSTJÓRN SlÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI ll.-AÐALSÍMI 27022.
Stórfelldar ásakanir um
smygl hreyfa ekki „ kerfið 99
— „en við munum ekki ganga með lokuð augun f ram hjá þessu,” sagði dómsmálaráðherra í morgun
„Við munum ekki ganga með
lokuð augun framhjá þessu, en það
er fyrst og fremst tollgæzlustjórinn
sem er framkvæmdaaðili i þessu
máli,” sagði Friðjón Þórðarson
dósmmálaráðherra í morgun, er Dag-
biaðið spurði hvað yfirvöld hefðu
gert í framhaldi af tillöguflutningi sr.
Lárusar Guðmundssonar í Holti um
varnir gegn eiturlyfjaflóðinu.
I viðtali við Dagblaðið vegna til-
lögunnar sagði sr. Lárus m.a. „Ég er
alveg ófeiminn að segja að ég horfi
upp á þetta gifurlega áfengissmyg! úti
á landi. . . þvi miður sér maður
stundum frammámenn byggðarlaga í
þessum erindagjörðum.” Síðar isama
viðtali áréttaði sr. Lárus ásakanir
sínar og sagði: „Ég veit um áfengis-
smygl í stórum stíl á litlu hafn-
irnar.”
Baldur Möller ráðuneytisstjóri
sagði i gær, að tollgEezlustjóri ætti
frekar að fjalla um þessi mál og það
væri frekar í verkahring ríkissak-
sóknara en ráðuneytis að hafa frum-
kvæði um könnun. Enginn vænir sr.
Lárus um fleipur.
Þórður Björnsson ríkissaksóknari
kvaðst ekki hafa heyrt um málið.
Hver gengur þarna niður... Skólavörðustíg svo þungt hugsiY Kannski er hún að hugsa umjafn
rétti kynjanna íframhaldi af jafnréttiskönnun, sem fram fer í höfuðborginni þessa dagana.
DB-mynd: Gunnar Örn.
„Ég kemst ekki yfir það að lesa öll
dagblöð alltaf og enginn hefur vakið
athygli mína á málinu fyrt en nú.”
Ríkissaksóknarinn taldi að ráðu-
neytinu bæri að aðhafast eitthvað.
Ráöherrann sagði svo í morgun að
hann hefði ekki komið því við að
sitja Kirkjuþingið i heild, en hefði
þar átt sérstakan fulltrúa. Einnig
hefði hann haldið boð fyrir kirkju-
þingsmenn en enginn hefði rætt
þessar alvarlegu ásakanir við sig.
„En það er sjálfsagt að skoða þetta
og við göngum ekki meðlokuð-tugun
framhjá þessu, þó tollgæzlustjórinn
eigi að hafa framkvæmdavaldið.”
Tollgæzlustjórinn var ekki við í
morgun.
-A.St.
Valdatafl íValhöll:
Geir manna-
sættir, en
Gunnar rekst
illa \ flokki
„Flokkshollur hefur Gunnar ekki
verið nema í hófi og oft hefur hann
tekið ákvarðanir, er gengið hafa þvert á
stefnu samherja hans í Sjálfstæðis-
flokknum. Hefur mörgum gramizt hve
illa hann rekst í flokki, en sjálfurtelur
hann að sér beri að taka ákvörðun
hverju sinni í samræmi við sína eigin
sannfæringu.”
„Sátta- og einingarstarf einkennir
Geir Hallgrímsson sem stjórnmála-
mann og stundum virðist sem hann vilji
ekki láta sverfa til stáls og mæta
mönnum af þeirri hörku sem stundum
er lífsnauðsynleg, einnig í þágu eining-
arinnar.”
Þessar klausur um foringjana Geir
Hallgrímsson og Gunnar Thoroddsen
eru teknar af handahófi úr bók Anders
Hansens og Hreins Loftssonar, Valda-
tafl í Valhöll. Er þar fjallað um innan-
„ALVARLEGAR
MISSAGNIR”
— um suma atburði,
segirGunnar
Thoroddsen
„Ég hef ekki lesið bókina, að-
eins blaðað í henni. í henni er
margvíslegur fróðleikur og höf-
undar hafa lagt mikla vinnu í
verkið. Þeir áttu marga samtals-
fundi með mér og ég veitt þeim
fúslega upplýsingar og svaraði
fyrirspurnum,” sagði dr. Gunnar
Thoroddsen forsætisráðherra um
Valdatafl í Valhöll.
„Við fljótan yfirlestur virðist
mér að það sem byggt er á samtöl-
um mínum og höfunda komist
yfirleitt rétt og vel til skila. Hins
vegar eru alvarlegar missagnir um
suma atburði úr lífi mínu og
starfi sem þeir spurðu ekki um.
Ýmsar þær villur hefði verið unnt
að lagfæra og leiðrétta ef þess
hefði verið óskað.”
-ARH.
flokksátök sjálfstæðismanna undan-
farna áratugi og sérstaklega vegna
myndunar rikisstjórnar Gunnárs
Thoroddsens.
Ferill Gunnars og Geirs í stjórn-
málum er rakinn í stórum dráttum frá
upphafi og jafnframt tæpt á sögu
annarra forystumanna Sjálfstæðis-
flokksins og flokksins sjálfs.
Höfundar bókarinnar eru flokks-
bundnir s álfstæðismenn og segjast
rekja valdataflið „hlutlaust án þess að
setja sig í dómarasæti.” Vafalaust eru
skiptar skoðanir á því hvort sú full-
yrðing standist, en víst er að þar eru
mörg atvik dregin fram í dagsljósið sem
áður hafa Iegið í þagnargildi. Og búast
má við að með tilkomu bókarinnar
færist enn líf í umræðu á opinberum
vettvangi um innri mál Sjálfstæðis-
flokksins. -ARH.
„Hefathuga-
semdirvið
bókina”
— segir Geir
Hallgrímsson
„Ég hef ekki myndað mér
heildarskoðun á bókinni, enda
hef ég aðeins haft tíma til að
fletta henni og grípa niður í
einstaka kafla,” sagði
Geir Hallgrímsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, um Valda-
tafl í Valhöll.
„Frá sumu er rétt skýrt, en ég
hef athugasemdir við annað. Ég
vil ekki leggja dóm á bókina fyrr
en ég heflesiðhanabeturyfir.”
Anders Hansen og Hreinn
Loftsson segja í formálsorðum að
bókinni að „það er ekki leyndar-
mál að höfundar hafa átt marga
og langa fundi með þeim Gunnari
Thoroddsen og Geir Hallgríms-
syni, þar sem um viðfangsefnið
hefur verið fjallað.
-ARH.