Dagblaðið - 13.11.1980, Page 16
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1980.
16
fleira „
FOLK
Diskótekiö Þor-
gerður heitir
r 1 ../» K • K
i hofuðið
Þorgerði
Þegar ferðadiskótekið Þorgerður í
Vestmannaeyjum varð eins árs á
dögunum þótti eigandanum, Ragnari
Sigurjónssyni, rétt að heimsækja
nöfnu diskóteksins og gefa henni
blómvönd í tilefni dagsins. Nafnan er
Þorgerður á Múla í Eyjum.
„Fyrirtækið hét áður Barón, en
það nafn þótti ekki nógu gott. Ég
fékk því leyfi hjá Steini Ingvarssyni
eiginmanni Þorgerðar til að nefna
það í höfuðið á henni,” sagði
Ragnar.
Þorgerður á Múla á stórar ættir í
Vestmannaeyjum og margir kunnir
Eyjamenn rekja ættir sínar til
hennar. Ragnar Sigurjónsson hefur
r
áMúla
því ekki valið nafnið af verri end-
anum, þegar hann þurfti að gefa
diskótekinu heiti.
Að sögn Ragnars er Þorgerður
eina ferðadiskótekið í Eyjum og því
nóg að gera, — oft tveir dansleikir
um hverja helgi, sem hann leikur á.
m-------------►
Ragnar Sigurjónsson og Þorgerður
á Múla moð blómvöndinn, sem
hún fókk i tílefni af eins árs af-
mæli diskóteksins Þorgerðar.
Ljósm: Gallerí Landlyst
íslenzkar rollur
með hala?
í nýlegu tölublaði Politiken er birt
auglýsing þar sem kostir íslenzku
ullarinnar til ótal margra hluta eru
dásamaðir. Hins vegar er lítið sam-
ræmi í texta auglýsingarinnar og
myndskreytingunni sem birt er með.
Rollan, sem myndin er af, er
nefnilega bæði berkollótt og með
hala.
(Jlfaldinn og
blaðamaðurinn
— Segðu mér, Bragi. Hver er
munurinn á úlfalda og blaðamanni?
— Það veit ég ekki.
— Úlfaldinn getur unnið í tvær
vikur án þess að drekka. Blaða-
maðurinn getur drukkið í tvær vikur
ánþess aðvinna.
Skógarhögg
í Sahara
Og svo var það íslendingurinn,
sem sótti um vinnu við skógarhögg í
Kanada. íslendingur, já, sagði verk-
stjórinn. Hefur þú nokkuð fengizt
viðskógarhögg áður?
Jú, jú, svaraði íslendingurinn. Ég
vann við það í Sahara-skóginum.
Sahara skóginum? át verkstjórinn
upp eftir honum. Er það ekki
eyðimörk?
Jú, svaraði íslendingurinn hinn
brattasti. Hún er það núna!
Þrymskviða Sigurðar Arnar
sýnd á teiknimyndahátíð
í Portúgal nú í mánuðinum
Það eru fleiri kvikmyndir en Óðal
feðranna og Land og synir, sem
kynntar eru erlendis í þessum næst-
síðasta mánuði ársins. Teiknimynd
Sigurðar Arnar Brynjólfssonar,
Þrymskviða, verður sýnd á teikni-
myndahátiðinni International
Animated film Festival CINANIMA
80 í Portúgal, sem haldin verður í
Portúgal dagana 19.-23. nóvember.
Þrymskviða var sýnd víða um land
í sumar ásamt heimildarkvik-
myndinni Mörg eru dags augu.
Myndin tekur sautján mínútur i
sýningu. Hún er fyrsta teiknimyndin
sem gerð er hér á tslandi. Að sögn
höfundar ber að lita á hana sem
tilraunaverk og undanfara þess að
Úr Þrymskviðu.
Sigurður öm Brynjótfsson mynd-
listarmaður, höfundur handrits
Þrymskviðu og teiknari hennar.
Hann sá einnig um kvikmyndun,
klippingu og hljóðsetningu ásamt
öðrum.
gerðar verði islenzkar teiknimyndir
sambærilegar erlendum.
Vinna við Þrymskviðu hófst árið
1976 og lauk í mai í vor, mánuði áöur
en hún var frumsýnd i Regnboganum
í Reykjavík. Hafði þá gengið á ýmsu.
Meðal annars eyðilagðist öll fyrsta
kvikmyndatakan, svo að mynda varð
allt verkið uppá nýtt.
Guðmundur Árnason, útgefandi
og höfundur laga á piötunni Það
vex eitt btóm. Til vinstri er
Guðmundur Benediktsson sem
syngur og leikur á ýrrús hljóðfæri á
piötunni.
Margir þeirra, sem fóru á tónleika
hljómsveitarinnar Platters veltu fyrir
sér þjóðerni söngkonunnar Reginu
Koco. Hún var ekki þeldökk á hör-
und eins og karlpeningurinn i
Platters, ekki hvít, heldur einhvern
veginn mitt á milli.
Regina mun vera að einum fjórða
hluta indíáni, fjórðungur kemur frá
Vestur-Indíum og helmingurinn sem
eftir er er þýzkur. Útkoman er allra
lögulegasta stúlka með prýðisgóða
söngrödd.
Velblönduð
söngkona
Vísnavinur
sendirfrá
sér tveggjá
laga plötu
Guðmundur Árnason Vísnavinur
sendir á næstunni frá sér tveggja laga
hljómplötu, sem ber nafnið Það vex
eitt blóm. Auk þess að semja bæði
lögin og leika á gítar á þeim, gefur
Guðmundur plötuna út sjálfur.
Það vex eitt blóm fyrir vestan
nefnist lagið á A-hlið plötunnar. Það
er samið við ljóð Steins Steinars. Með
Guðmundi leika i því Kaktus-
mennirnir Árni Áskelsson trommu-
leikari, Helgi Kristjánsson
bassaleikari og Guðmundur Bene-
diktsson, sem leikur á hljómborð og
gítar og syngur auk þess lagiö. Með í
laginu leikur einnig Kristinn Svavars-
son saxófónleikari Brimklóar.
Á B-hliðinni er hljóðfæralag. Með
höfundi í því leika Karmel Russel á
selló, Reynir Sigurðsson á vibrafón,
Gísli Helgason á tenór-blokkfiautu
og Helgi Kristjánsson á bassa og
gítar.
Platan Það vex eitt blóm er
væntanleg á markaðinn þann 18.
nóvember.
FÓLK