Dagblaðið - 13.11.1980, Síða 18
18
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1980.
Veðrið
Spáð er áframhaldandi noröanátt
og frosti um aiit land. Dáiítili élja-
gangur á Norður- og Austuriandi.
Bjart verður sunnaniands og vestan.
Ktukkan 6 var norðnorðaustan 3,
heiöskirt og -3 stig í ReykjavBc,
noröaustan 6, hálfskýjað og -2 stig á
Uufuskálum, norðaustan 4, létt-
skýjað og —4 stig á Galtarvita, norö-
vestan 8, snjókoma og —6 stig á
Akureyri, norðan 6, snjóél og —6 stig
á Raufarhöfn, norðnorðvostan 8,
snjókoma og —3 stig á Dalatanga,
norðnorövestan 7, léttskýjaö og —2
stig á Höfn og norðnorðaustan 6,
heiðskfrt og -3 stig á Stórhöfða.
i Þórshöfn var slydduél og 2 stig,
skýjaö og —4 stig ( Osló, alskýjað og
—3 stig í Stokkhólmi, skýjað og 4 stig
í London, þoka og við frostmark f
Hamborg, hátfskýjað og við frost-
mark ( Paris og lóttskýjað og 11 stig í
Lissabon.
Amllát
Jóhanna íslelfsdóttir er lézt 6. nóvem-
ber sl. fæddist 9. september 1887 á
Katanesi á Hvalfjarðarströnd. For-
eldrar hennar voru Valgerður Einars-
dóttir og ísleifur ísleifsson. Eftir ferm-
ingu gerðist Jóhanna vinnustúlka hjá
Ólafi Finsen lækni, síðan réðst hún til
Jónatans Þorsteinssonar i Reykjavík og
loks gerðist hún bústýra hjá Pétri Jóns-
syni verzlunarmanni. Árið 1953 fluttist
hún að Sjafnargötu 9 og bjó þar næstu
22 árin, eða þar til hún var lögð inn á
hjúkrunarstofnun.
■ ryggvi Metánsson húsameistari, sem
lézt 5. nóvember sl., fæddist 9. desem-
ber 1900. Foreldrar hans voru Stefán
Sigurðsson og Sólveig Gunnlaugsdóttir
Tryggvi stóð að mörgum merkum
byggingum í Hafnarfirði, svo sem St.
Jósefsspítala, barnaskólanum við
Lækinn og Flensborgarskóla. Tryggvi
og Guðjón Arngrimsson húsasmíða-
meistari störfuðu saman við húsbygg-
SKHMUTGgRÐ RÍKISIISSj
Ms. Coaster Emmy
fer frá Rvik 18. þ.m. vestur um
land til Akureyrar og snýr þar viö.
Ms. Hekla
fer frá Reykjavík 20. þ.m. austur
um land til Vopnafjarðar og snýr
þar við.
Ms. Esja
fer frá Reykjavlk 21. þ.m. vestur
um land I hringferð.
Viðkomur samkv. áætlun.
ingar um alllangt skeið, m.a. byggðu
þeir Hjúkrunarheimilið Sólvang. Árið
1940 kvæntist Tryggvi Dagbjörtu
Björnsdóttur. Áttu þau einn kjörson.
Stefán Brynjólfsson sjómaður, sem lézt
5. nóvember sl., fæddist 8. apríl 1893
að Mosvöllum í önundarfirði. For-
eldrar hans voru Kristin Ólafsdóttir og
Brynjólfur Davíðsson. Stefán stundaði
sjómennsku mestan hluta ævi sinnar,
síðast starfaði hann hjá Bæjarútgerð
Reykjavíkur. Árið 1922 kvæntist
Stefán Guðfinnu Arnfinnsdóttur.
Eignuðust þau 5 börn.
Hulda Forberg lézt í Greensboro N. C.,
USA, miðvikudaginn 12. nóvember sl.
Helga Jóhannsdótlir frá Sveinatungu,
tii heimilis að Skúlagötu 74, lézt
þriðjudaginn 11. nóvember sl.
Gunnar Theódór Gunnarsson lézt af
slysförum í Þýzkalandi 10. nóvember
sl.
Tryggvi Stefánsson byggingameistari,
Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá
Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 14.
nóvember kl. 14.
Kalmann Sigurðsson sem lézt 5.
nóvember á Landakotsspítala verður
jarðsunginn föstudaginn 14. nóvember
kl. 14 frá Kirkjuvogskirkju í Höfnum.
Bjarni Eyjólfur Marteinsson sem lézt á
Hrafnistu 6. nóvember verður jarð-
sunginn frá Hafnarfjarðarkirkju
mánudaginn 17. nóvember kl. 14.
Ólöf Jónasdóttir frá ísafirði verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju föstu-
daginn 14. nóvember kl. 15.00.
Jósefina Jóhannsdóttir verður jarð-
sungin frá Fossvogskirkju föstudaginn
14. nóvember kl. 13.30.
íþróttir
íslandsmótið
í körfuknattleik
I immiudagur 13. nóvcmbcr.
Iþrótuihús Kcnnaraháskólans.
ÍS-DMFN IJrvalsdcild kl. 20.00.
Aðaifundir
Sjálfstæðisfélag
Akraness
hcldur aðall'und sinn. finiimudagmn 13. nóvcmbcr.
nk. kl. 20.30 i Sjáll'stæóishúsinu aó Hciðargcrði 20.
Fundarefni:
1. Vcnjulcg aðallundarsiörl'.
2. Öiinur mál.
Samkomur
Freeportklúbburinn
Fundur i Bústaðakirkju i kvöld kl. 20.30. Cicstur fund
arinsTómas Hclgason prófcssor.
AD KFUM
Fundur i kvöld kl. 20.30 að Amtmannsstig 2b. Skirnin
að skilningi Lúters. sr. Arngrimur Jónsson. Allii
karlmenn vclkomnir.
m
I
GÆRKVÖLDI
„MINN STÍLL”
,,Ég hef minn eigin stíl,” segir
Kjartan Jóhannsson, nýkjörinn for-
maður Alþýðuflokksins. Útvarps-
hlustendur máttu í gærkvöldi geta sér
til um hvers stíllinn væri. Þá mætti
Kjartan á „beinni línu”.
Jú, Kjartan var nokkuð
skörulegur. Hann sagði greinilega
hver stefna hans væri í ýmsum
málum. Líklega hefðu ekki verið eins
skýr svörin hjá fyrirrennara
Kjartans, Benedikt Gröndal. Bene-
dikt er venjulega fyrst og fremst
„diplómatískur” og vill hafa alla
góða.
En það er líka þægilegt að vera í
stjórnarandstöðu eins og Kjartan er
nú. Stjórnarandstæðingar segja oftar
satt um ástandið en stjórnarliðar.
Þegar sömu menn setjast í stjórn
umhverfast þeir, fara að verða
diplómatískir og hagræða sann-
leikanum. Andstaðan getur sagt
skorinort í hvert óefni er komið og
lofað úrbótum, til dæmis til handa
öryrkjum og öldruðum.
Kjartan minntist á að holskefla
væri að ríða yfir i efnahagsmálum.
Hann sagði að fiskiskipaflotinn væri
of stór og betra að brenna peningun-
um en að kaupa fleiri skip. Hann
sagði að það væru villimannlegar
aðferðir að ungt fólk sliti sér út eins
og nú væri til að eignast íbúð. Fyrir-
tæki ættu að njóta sín „með eðlileg-
um hætti”. Alþýðuflokkurinn væri
þó vinstri flokkur og róttækastur
allra flokka landsins. Alþýðubanda-
lagið væri á hinn bóginn ihaldssamt.
Svona er nú þægilegt að vera í stjórn-
arandstöðu við núverandi aðstæður.
Sjónvarpsþátturinn Árin okkar
mun hafa verið góður, en lítið hef ég
af honum séð. Þátturinn um meðferð
kjöts og matreiðslu er þarfur, enda
hugsa íslendingar æ meira til þess að
ekki dugi bara að setja matinn í pott
og sjóða og sjóða.
Kjartan Jóhannsson.
Frá Guðspekifélaginu
I kvöld kl. 21.00 vcrður Páll Skúlason mcð crindi.
..Viðhorf til ódauðlcika sálariiinar.” iDögun). Hug
lciöingkl. 18.10. Öllumopið.
Hjálpræðisherinn
Almcnn samkoma i kvöld kl. 20.30. Allir hjartanlcga
vclkomnir.
Grensáskirkja
Almcnn samkoma vcrður i sal'nadarhcimilinu i kvöld
kl. 20.30. Allir hjartanlcga vclkomnir.
Rladelfía
Almcnn samkoma i kvöld kl. 8.30. Ungt l'ólk talarog
syngur.
Samhjálp
Samkoma vcrður i Hlaðg:' 'ark kv jld kl. 20.30.
Uill'crð frá Hvcrfisgölu 44.1 _u.00. Allir vclkomnir.
Safnaðarfélag
Ásprestakalls
Fundur verður haldinn nk. sunnudag 16. nóvember
að Norðurbrún I aö lokinni mcssu scm hclst kl. 14.00.
Kaffi og spilaö vcrður bingó.
Pípulagningasveinar
Fúlagsfundur i Svcinafclagi pipulagningamanna.
verður haldinn. aö Hótcl Loftlciðum fimmludaginn
13. nóv. '80 kl. 20.00.
F'undarefni: Staða i vmmingamálum. Hcimild til
yinnustöðvunar.
Umræðufundur
um gúanórokk
Umræðufundur um dægurlagatcxta. gúanórokk o. II.
vcrður haldinn á vegum félags bókmenntafræðincma
nk. finimtudagskvöld 13. nóv. kl. 20.30 i stofu 301
Árnagarði. Frummælcndur vcrða Árni Björnsson.
F'ysteinn Þorvaldsson og Silja Aðalsteinsdóltir.
Almennar umræður vcrða á cftir.
Kvennadeild
Slysavarnafélags
íslands í Reykjavík
Fundur verður haldinn fimmtudaginn 13. nóvcmbcr i
húsi Slysavarnafélagsins. Grandagaröi. kl. 20
Skcmmtiatriði og kaffi. Konur. fjölmennið.
Tsikyrmingar
Hvað er Baháí trúin?
Opið hús á Óðinsgötu 20 öll fimmtudagskvöld frá kl.
20.30. Allir vclkomnir.
fw Pív llp tSIi
h 'ggl .r. ye&tá
Si jp
HjnRMII 1, IM |r-y* i
Foreldraráðgjöfin
(Bamaverndarráð íslandsl Sálfræðileg ráðgjöf fyrir
forcldra og börn. — Upplýsingar i sima 11795.
Frá Mígrenisamtökunum
Skrifstofutimi Migrcnisamtakannacrcinu sinni i viku.
kl. 17—19 á miðvikudögum.
Hvaða erindi á ungt fólk inn í
stjórnmálaflokkana?
Þcssari spurningu mun Vilmundur Gylfason alþingis
maður svara á opnum fundi. scm Félag ungra jafn
aðarmanna á Akurcyri stendur fyrir i kvöld. 13. nóv.
Fundurinn vcrður haldinn aðStrandgötu 9. annarri
hæð. og hcfst klukkan 20. Fundurinn vcrður öllum
opinn.
Vilmundur vcrður málshcfjandi á fundinum og
mun svara fyrirspurnum fundargesta.
Ungt fólk cr sérstaklega hvatt til að mæta á lundin
um. en i upphafi fundar vcrður sérstaklega kynnt þátt
taka ungra jafnaðarmanna i alþjóðlcgu samstarfi.
Utivist á útimarkaði
á Lækjartorgi
Útivist verður á útimarkaðnum á Lækjartorgi á morg
un frá kl. 11.30—19.30. Útivistarfólk sclur siðustu
happdrættismiðana. ferðabækur ásamt skrautstcinum
o.fl. Dregið verður i happdrættinu laugardaginn 15.
nóvember nk. Félagar i Útivist mæti til starfa. Vcgfar
cndur. komið við og leggið Útivist lið til aðgera Bása
skála við Þórsmörk ibúðarhæl'an.
Basar og flóamarkaður
Kirkjufélag Digranesprestakalls heldur basar og flóa
markað i Safnaðarheimilinu við Bjarnhólastig laugar
daginn 15. nóv. kl. 15. Vcrður þar hægl að gera góð
kaup á kökum og ýmiss konar munum. fatnaöi o.l'l.
o.fi. Ennfrcmur vcrða seld þar jólakort lclagsins.
Ágóði rcnnur mcðal annars til hjúkrunarhcimilis
aldraðra i Kópavogi.
Móttaka á gjöfum vcrður nk. föstudagskvöld kl.
5—10 og laugardagsmorgun frá kl. 9—12 i Safnaðar
hcimilinu.
Kökur cru mjög vcl þegnar.
■
Jgáíi
GEIMGIÐ
GENGISSKRÁNING F0,«.man„,
Nr. 217. — 12. ríóvember 1980. gjakjayn.
Einingkl. 12.00 Kaup Saia Sala
1 Bandarfkjadolar 585.50 566.80 623.48
1 SteHingspund 1352.10 1366.20 1490.72
1 Kanadadottar 478.35 479.45 527.40
100 Danskar krönur 9681.95 9704.25 10874.68
100 Norskar krónur 11275.05 11300.05 12431.05
100 Sssnskar krónur 13168.00 13198.30 14518.13
100 Finnsk mörk 15031.85 15066.45 16573.10
100 Franskir frankar 12837.70 12867.20 14153.92
100 Balg. frankar 1847.50 1851.70 2038.87
100 Svlssn. f rankar 32997.80 33073.70 38381.07
100 Gyllini 27378.40 27441.30 30185.43
100 V.-Þýzk mörk 29700.60 29768.90 32745.79
100 Lirur 62.66 82.80 69.08
100 Austurr. Sch. 4198.70 4206.30 4828.93
100 Escudos 1090.85 1093.15 1202.47
100 Pesetar 748.50 748.20 823.02 '
100 Yen 285.93 268.54 293.19
1 írskt pund 1109.55 1112.05 1223.26
1 Sérstök dráttarráttindi 720.04 721.70
• Breyting frá stðustu skráningu. Sfmsvarí vegna gengisskráningar 22190.
Hlutavelta
Nýlega héldu þessar þrjár vinkonur hlutavehu að Hjallalandi 5 til ánóðafyrir Styrkt-
arféluy lamaðra oy fatiaðra. Ágóðinn var 15.000 kr. Þœr heitafrá vinstri: Mjöll Jnns-
dóttir, Svanhildur Harðardóttir ofi Guðrán Margrét Eysteinsdóttir.