Dagblaðið - 12.12.1980, Side 5
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1980.
5
Árgerö 1981 komin Silfurlínan frá Crown
■
CROWN - 6100, árgerð 1981
Magnari: 32 vött, sam er hressilegt og nóg fyrir
flesta. Tveir tónbreytar fyrir bassa og hátónar,
þannig að þér getið stillt hljóminn að vild.
Útvarp: Þrjár útvarpsbylgjur. Langbylgja, mið-
bylgja og FM-stereobylgja með stereoljósi sem
gefur til kynna stereoútsendingu. Útvarpið er
mjög langdrœgt
Segulband: OSC-rofi.
Takki fyrir spóluval eftir þvi hvort notaðar eru
venjulegar spólur (normai) eða krómdioxið
(CR02), þannig að upptakan verði sem bezt.
Biðtakki gefur þér möguleika á að stöðva
spóluna sem snöggvast. Autostopp, þegar
bandið er komið á enda þá stöðvast mótorinn
sjálfvirkt. Þetta hindrar óþarfa tog á bandið. Inn-
byggð spólugeymsla ofan ð tœkinu fyrir þær
spólur sem mest eru notaðar.
Plötuspilari: Hálf-sjálfvirkur, settur af stað með
vökvalyftu, er fer sjálfvirkt af plötunni, þegar
henni lýkur. Plötuspilarinn er beit-drifinn en það
tryggir nákvæman snúningshraða. Kristal-tón-
haus sér um að upptakan af plötunni er kristal-
tær. Vökvalyfta, sem lyftir arminum upp og
leggur niður, en lyftan er notuð til þess að setja
arminn út á plötuna og færa arminn til á plötunni
þegar skipt er um lag á hljómplötunni.
Tveir hraðar: 33 snúningar fyrir stórar plötur, 45
snúningar fyrír litlar plötur.
Hátalarar: Tveir hátalarar fylgja og eru þeir í stil
við tækið, silfurlítir og svartir að framan.
Stœrð: Breidd: 60 cm, hæð: 10,5 cm, dýpt: 42,5
cm.
Greiðslumöguleikar:
1 Staðgreiðsla, en þá kostar tækið
gkr. 421.800
Nýkr. 4.218
2 Lánskjör. Útborgun aðeins 150 þ. og
eftirstöðvar á 3 mánuðum. Kjör sem
flestir ráða við.
Nýkr. 1.500 Sendum í póstkröfu
Verð: Gkr. 444.000
Nýkr. 4.440
VERSLIÐ
SÉRVERSLUN
MEÐ
LITASJÓNVÖRP
OG HLJÓMTÆKI
SKIPHOLTI 19 SlMI 29800
ELÍN
ALBERTSDÓTTIR
Reynum að gefa út
öðruvísi blað — blað
fyrir allan aldur
—segir Hildur Einarsdóttir ritstjóri
framundan? Þráinn Eggertsson skrifar.
Viðtal er við Jón Ragnarsson í Regn-
boganum og margt lleira,” sagði
Hildur.
— Er ekki erfitt að koma með blað á
markaðinn núna, er hann ekki þegar
mettaður?
,,Ég veit ekki. Það verður að koma í
Ijós. Við erum að reyna að gefa út
fallegt blað, öðruvisi blað en áður
hefur komið út, blað sem er með lesmál
fyrir alla og ef slíkt blað gengur ekki út
þá finnst mér það merkilegt,” sagði
Hildur ennfremur. „Við höfunt unnið
að þessu öllu sjálfar, heima hjá okkur,
því við viljum halda verðinu i lágmarki.
Núna erum við að dreifa blaðinu i
verzlanir.”
Ritstjóri NÚNA er Hildur Einars-
dóttir. Birna Sigurðardóttir er auglýs-
ingastjóri. Útlit annaðist Bjarni D.
Jónsson og Valgerður Þ. Jónsdóttir.
Verð blaðsins er I500krónur.
- ELA
Birna Sigurðardóttir auglýsingastjóri og Hildur Einarsdóttir ritstjóri með sitt nvja
blað — NÚNA.
DB-mynd: Sig. Þorri.
,,Það má segja að einlægur áhugi
okkar hafi komið þessu blaði út,”
sagði Hildur Einarsdóttir fyrrum rit-
stjóri tízkublaðsins Lifs og Birna
Sigurðardóttir auglýsingastjóri er þær
litu inn á ritstjórn til okkar í gær með
splunkunýtt blað þeirra sem hlotið
hefur nafnið NÚNA. ,,Við völdum
þetta nafn Vegna þess að okkur þótti
það i samræmi við efni blaðsins. Þaðer
að segja að það sem við skrifum það er
að gerast núna,” sögðu þær stöllur.
NÚNA er óvenju hressilega teiknað
blað, með fjölbreyttu efni og auglýs-
ingum. „Viðleggjum áherzlu á að aug-
lýsingarnar séu glæsilegar og með
stórum myndum. Því auglýsingar segja
fólki oft margt sem ekki kemur fram i
fréttum,” sagði Hildur. „Við höfum
fengið fólk með margs konar sérþekk-
ingu á málefnum til að skrifa greinar
fyrir okkur. Alls eru það I3 manns sem
skrifa í fyrsta blaðið.”
NÚNA er 80 síður, prentað á dag-
blaðapappír í sömu stærð og lesbók
Morgunblaðsins. „Við ætlum að gefa
blaðið út annan hvern mánuð. Blaðið
er ætlað fyrir alla aldursflokka. Og við
reynum að hafa efni við allra hæfi. Má
nefna efni eins og viðtal við Ragnar
Kjartansson annan af tveimur for-
stjórum Hafskips. Inga Laxness
spjallar við Jóhannes Helga rithöfund.
Rætt er við Dóru Bergmann fatahönn-
uð um þróun tízkunnar. Er kreppa
KATHRYN KUHLMAN
Ennþá gerast
kraftaverk
Eftir sama höfund og
ÉGTRÚIÁ
KRAFTAVERK
VlkurútgAfan
Þessi bók er eftir sama höfund
og Ég trúi á kraftaverk, sem
kom út fyrir nokkrum árum og
seldist upp á skömmum tíma.
Ennþá gerast kraftaverk er
athyglisverð bók, sem vekur
fólk til umhugsunar.
Víkurútgáfan
NUNA-nýtt
„magasín"
blaðá
markaðinn: