Dagblaðið - 12.12.1980, Qupperneq 11
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1980.
I
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
Philippe Junot í Womens Own:
Karólína daðraði við aðra karlmenn
— Þegar menn ná góðum árangri í
viðskiptalífinu, er nauðsynlegt að
eiginkonan hrósi þeim. Það gerði
Karólína aldrei. Það kom henni ekki
við. Þannig er hún uppalin. Þegqr kona
og karl eru gift eiga þau að dást að
hvort öðru og styðja hvort annað.
Glaumgosinn og viðskiptamaðurinn
Phillippe Junot ræðir um hjónaband
sitt og Karólínu af Monaco i banda-
ríska blaðinu Womens Own fyrir
skömmu, þar sem hann segir meðal
annars þetta hér á undan.
— Það var mjög erfitt að vera með
henni, segir hann ennfremur. —Ef hún
sá mynd af mér i slúðurdálkum
blaðanna með öðrum kvenmanni var
hún fljót að ná sérí karlmann til að gera
4
Karólina og fyrrverandi maður hennar, Philippe Junot — hann hefur alltaf haft gott
auga fyrir fallegu kvenfólki.
Kaupmannahöfn:
Nýr aðalinngang-
ur í Tívolí
Hið vinsæla Tívolí í Kaupmanna-
höfn fær bráðlega nýjan aðalinngang.
Þegar Tívolíið verður opnað aftur 1.
maí nk. verður aðalinngangur þess
fluttur frá Vesterbrogade, þar sem
hann hefur verið í áraraðir, að núver-
andi Louis Tussaud' vaxsafni við
H. C. Andersen Bouleva.'d. Þar með
rætist gamall draumur um að
Tívolíinngangurinn snúi að Ráðhús-
torginu.
Tívolí keypti þessa gömlu byggingu
við H.C. Andersen Boulevard fyrir
þremur árum. Upphaflega var húsið
byggt undir listasafn. Breytingar á
húsnæðinu eru í fullum gangi. Ein
meginástæðan fyrir breyttum inngangi
að Tívolí er sögð vera að gamli
inngangurinn er að drukkna í há-
hýsum.
V&æF&ZééÆf,* ■v - :. .4«.
H.C. Andersen horfir ytlr hinn nýja inngang 1 Ivolisins I Höfn.
Finnskur herra alheimurí líkamsrœkt
Finni, Vestur-Þjóðverji, Englending-
ur og Austurríkismaður voru fyrir
skömmu valdir herra alheimur, hver í
sinum flokki. Kenpnin um
heimsmeistaratitlana í líkamsrækt fór
fram í Manilla á Filippseyjum. Alls
tóku 76 karlar frá 34 löndum þátt í
keppninni.
Finninn, sem vann i milliþyngdar-
flokki, heitir Jorma Raty og er
Skandinavíumeistari í líkamsrækt.
Hann er 33ja ára gamall og rekur
heilsurækt í Helsinki. Landi hans,
Keijo Reiman varð þriðji í léttþunga-
vigtarflokki.
Japaninn Osamu Usui var meðal þátt-
takenda i heimsmeistarakeppninni í
líkamsrækt. Hann vann ekki neinn
titil, en virðist þó hafa tekið vítaminin
sín og próteinduftið samvizkusamlega
að undanförnu.
mig afbrýðisaman. Hún tók upp á alls
kyns uppátækjum. Hún reyndi ekki að
láta hlutina ganga eðlilega, en vildi að
allt færi fram eftir hennar höfði.
Orðið málamiðlun held ég að hún
þekki alls ekki. Það eina sem ég óskaði
eftir var að við fengjum tíma saman að
vera ein og leysa vandamálin. Þegar við
giftum okkur vissi ég ekkertum hjóna-
band. Núna veit ég hvað ég á að forðast
ef ég gifti mig aftur, segir Junot. Ég vil
til dæmis vera einlægari og velja mér
stúlku sem ekki er aðeins að hugsa um
sjálfasig.
Um sína fyrrverandi tengdafor-
eldra, segir Junot. Það voru heilmikil
vandamál, sem fylgdu þeim, en annars
varþetta ágætisfólk.
— En um leið og þau uppgötvuðu
að Karólína var óhamingjusöm
þyrlaðist allt upp.
Nyttúdit
léttara
yfirbragð
Nú höfum við breytt útliti Eddustólsins.
Með nýjum örmum hefur stóllinn léttara
yfirbragð.
Höfum auk þess fjölbreytt úrval af öðrum
gerðum skrifstofustóla.
STÁLIÐJANhf
SMIÐJUVEGI 5, KÓPAVOGI, SÍMI 43211
Sönn saga um ástir
rússneskrar leikkonu og
amerísks sjóHðsforingja
og leit dóttur þeirra að
föðurnum, sem hún hafði
aldrei séð.
Bókin fjallar um áform
Hitlers að ræna hertoga-
hjónunum af Windsor
í síðustu heimsstyrjöld.
VIKTORIA FY0DDR0VA
QÚTTIR
FLOTAFORINGJANS
HASKEL FRAHKEL
BÆKUR 1980
CABOLYN KEENE
Alltaf jafn viðburðaríkar
og spennandi.
sem
drengjum geðjast að.
MíRRI
VIK
Hugþekkar og smellnar
telpusögur.
Fn»t h)n bóhaölum.
PRENTSMIÐJAN LEIFTUR HF.
IIÖFHATÚNI 12 - SÍMI 17554