Dagblaðið - 12.12.1980, Síða 27
Útvarp
Sjónvarp
LANDSINS MESTA LAMPAÚRVAL
Jó/aseríur ogfftaðar perur
Hclfii jólanna má ekki gieymast í öllu tilstandinu.
INNAN STOKKS OG UTAN
—útvarp kl. 15,00 föstudag:
JÓLAHALD OG
KRISTIN TRÚ
„Fjallað verður um kristna trú og
jólahald,” sagði Árni Bergur
Eiríksson. Árni Bergur stjórnar þætti
um fjölskylduna og heimilið í útvarpi
í dag. „Farið er í Vogaskóla og
nokkrir nemendur sjöunda bekkjar
teknir tali, þetta er sá árgangur sem á
að fermast næsta vor, og meðal
spurninga, sem ég legg fyrir þau, er
hvort þau ætla að fermast og hvers
vegna, hvað þeim finnst um jólahald
og hvort þeim finnast jólin öðruvísi
en þegar þau voru yngri. Rætt er við
trúarbragðakennara krakkanna, Jón
Ingva Valdimarsson. Siðan fæ ég
fólk til mín og við ræðum um jóla-
hald og skoðanir manna á stöðu
kristinnar kirkju. Þau sem koma eru
Úlfar Kristmundsson, Álfheiður
Ingadóttir, Gunnar Eyjólfsson og
Gústaf Níelsson.”
Þessi þáttur Árna Bergs ætti að
verða til að minna fólk á það hvers
vegna við höldum jól og mörgum
finnst að ekki veiti af, þvi ástæða
jólahalds vill oft gleymast í hama-
ganginum sem fylgir jólaundir-
búningi. -GSE.
Opið tiikl. 6
iaugardag
Póstendum
LJÓS & ORKA
Suðurlandsbraut 12
simi 84488
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1980.
Séra Sigurjón Guðjónsson fyrrum prófastur.
DB-mynd: Sig. Þorri.
í SÓREY—útvarp kl. 21,40 föstudag:
Heimsókn á fornt
menningarsetur
Séra Sigurjón Guðjónsson fyrrum
prófastur flytur í kvöld erindi sem hann
nefnir í Sórey. Sórey er friðsæll smá-
bær á miðju Sjálandi í Danaveldi. ,,Eg
dvaldist þarna í 3 daga fyrir þrem árum
síðan, hjá góðum kunningja mínum,”
sagði Sigurjón. „Þetta er friðsæll og
forn menningarstaður. Ég var þarna að
heimsækja kunningja minn Anders
Malling en hann er merkastur danskra
sálmaskálda. Ég ræði við Malling um
staðinn ogsögu hans”Þarna er frægur
skóli og dómkirkja og þar eru margir
merkir menn grafnir. „Má þar frægan
telja Ludvig Holberg, sem ekki er
óþekktur á íslandi. Holberg er
höfundur leikrits sem Þjóðleikhúsið er
að sýna um þessar mundir en það er
Könnusteypirinn pólitíski. Þarna er
einnig grafinn eitt frægasta skáld
Dana, B. Severin Ingemann.”
Af frægum Islendingum sem dvalizt
hafa i Sóery má nefna Jónas Hallgríms-
son. Jónas kom til Sórey sumarið 1843
og var til vors 1844. Hann var þama í
góðu yfirlæti hjá Japetus nokkrum
Steenstrup sem var lektor í Sóreys
Akademi. Þess er sérstaklega getið í
heimildum að Jónasi hafi liðið vel i
Sórey, og þar orti hann mörg sin yndis-
legustu kvæði svo sem Dalavísu,
Sláttuvísu og Ég bið að heilsa. -GSE.
Önnur og þriðju verðlaun jólagetraunarinnar eru heldur ekki af verri
'endanum. I tilefni af þvi, að Halldór heitinn Pétursson listmálari
teiknaði myndirnar af jólasveinunum þótti við hæfi að veita bók með
úrvali mynda hans i önnur og þriðju verðlaun. Þær kosta hvor um sig
um fjörutiu þúsund krónur. DB-mynd: Þorri.
Jólagetraun DB1980
1. HLUTI
Tilveran er full af jólasveinum. Þá
má finna um allan heim, likt og gráa
ketti (ef ekki jólaketti). Nokkrir
þeirra eru þó ekki á ferli nema í
siðasta mánuði ársins og geta því
kallazt hinir einu sönnu jólasveinar.
Nú á síðari árum hefur sú skoðun
verið alls ráðandi að jólasveinar þeir,
sem hvað mest eru áberandi í desem-
ber, séu góðir og dreifi jólagjöfum
tvist og bast. Þessi skoðun er til
komin vegna útlenzks jólasveins, sem
heitir Sánkti Kláus og er víst bezta
skinn. En íslenzku jólasveinarnir eru
sannkölluð hrekkisvín og steliþjófar.
Ekki liggur alveg ljóst fyrir, hversu
margir íslenzku jólaveinarnir eru.
Sumir telja að þeir séu 9 og leggja til
grundvallar visuxrðin Jólasveinar
einn og átta ofan koma af fjöllunum.
Aðrir segja að þeir séu þrettán tals-
ins. Dagblaðið ætlar sér ekki að
leggja neinn dóm á þetta þrætumál,
heldur birta á næstu dögum myr.dir
af tíu íslenzkum jólasveinum. Jóla-
getraun blaðsins að þessu sinni er
nefnilega i því fólgin að geta upp á
réttum nöfnum jólasveinanna.
Myndirnar af jólasveinunum eru
eftir Halldór heitinn Pétursson list-
málara. Það þótti því við hæfi að
veita í verðlaun til tveggja þeirra, sem
geta upp á öllum nöfnunum réttum,
eintök af glænýrri myndabók Hall-
dórs, sem Prenthúsið gefur út nú
fyrir jólin. Hvor bók um sig er að
verðmæti um fjörutíu þúsund
krónur.
Fyrstu verðlaunin eru heldur ekki
af verri endanum frekar en fyrri dag-
inn í jólagetraunum Dagblaðsins.
Þau eru myndsegulband af Nord-
mende gerð frá Radíóbúðinni. Verð-
mæti tækisins er 1.525.700 krónur.
Þá er ekki eftir neinu að bíða með
að hefja leikinn. Fyrsti jólasveinninn
sem birtist er jafnan fyrstur ofan úr
fjöllum og til byggða. Hann er
straurfættur, karlgreyið og stinnur
eins og tré, eins og Jóhannes úr
Kötlum lýsir honum í kvæði sínu um
íslenzku jólasveinana. Hvað heitir
hann:
Stígvélaði kötturinn
Steingrímur
Stekkjastaur
Slrikið undir það nafn, sem ykkur þykir líkleyasl. Klippið síðan mynd-
ina og lausnina út op geymið með þeim nlu, sem á eftir koma. Þepar síð-
asti jólasreinninn hefur birzt á Þorláksmessu, setjið þá allar lausnirnar í
umslag oy merkið það:
Dagblaðið „Jólagetraun"
Síðumúla 12 105 Reykjavík
Skilajrestur á jólagetrauninni er til 30. desember.