Dagblaðið - 13.12.1980, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 13.12.1980, Blaðsíða 1
6. ÁRG. — LAUGARDAGIIR 13. DESEMBER 1980 - 283. TBL. , RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 1-2. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVE8HOLTLU.—AÐALSÍMI 27022. Víkingursló Tatabanya útíEvrópukeppninni þrátt fyrir tap í Ungverjalandi: Þorbergur skoraöi sigur- markið eftirað leiktímalauk „Víkingur er kominn í 3. umferð Evrópubikarsins, keppni meistara- liða, í handknattleik. Þorbergur Aðalsteinsson skoraði 22. og síðasta rnark Víkings úr aukakasti eftir að leiktímanum var lokið. Það nægði okkur, þó svo Tatabanya sigraði í leiknum, 23-22. Víkingur skoraði fleiri mörk en Ungverjarnir á útivelli en jafntefli, 43-43, varð í báðum leikjunum. Það var geysileg stemmn- ing í íþróttahöllinni á meðan á leikn- um stóð, troðfull höll og leiknum var sjónvarpað beint. Áhorfendur studdu vel við bakið á sínum mönn- um enda leit lengi vel út fyrir stærri sigur Tatabanya. Hins vegar risu áhorfendur á fætur og klöppuðu fyrir Víkingum þegar leiknum var lokið. Það var stór stund fyrir okkur — en leikmenn Tatabanya voru niðurbrotnir. Ég sá tvo leikmenn liðs- ins grátandi i leikslok,” sagði Rós- mundur Jónsson, fararstjóri Víkings, þegar DB náði tali af honum í íþróttahöllinni í Tatabanya tveimur mínútum eftir að leiknum lauk. Afrek Víkingsliðsins er mikið — í fyrsta sinn sem íslenzkt lið slær „austantjaldslið” út í Evrópukeppni. Fyrri leik Vikings og Tatabanya í Laugardalshöll lauk með sigri Vík- ings, 21-20. Því jafnt, 43-43, en Vík- ingur skoráði tveimur mörkum meira i Tatabanya en Ungverjarnir í Laugardalshöll. „Þetta var geysilega góður leikur hjá Víkingsliðinu hér í Tatabanya. Það unnu allir saman sem einn maður — sigur liðsheildarinnar að Víkingur hefur náð því ótrúlega af- reki að komast áfram eftir að hafa dregizt gegn jafn-sterkum mótherjum og Tatabanya,” sagði Rósmundur ennfremur. Gangur leiksins var í stuttu máli: Tatabanya skoraði tvö fyrstu mörk- in. Páll Björgvinsson skoraði fyrsta mark Víkings, 2-1. Tatabanya komst í 3-1, 4-2 og 5-3 en Vikingur jafnaði í 5-5 með mörkum Árna Indriðasonar, Steinars Birgssonar og þorbergs, tvö. .lafnt 6-6, siðan 8-6 fyrir Ungverja. í hálfleik var staðan 11-9 fyrir Tata- banya og siðasta mark sitt í f.h. skor- uðu Ungverjar beint úr aukakasti eftir að leiktíma lauk. í s.h. komst Tatabanya í 12-9, síð- an 14-10 og þriggja til fjögurra marka munur fyrir Tatabanya, 16- 12, 17-13, 18-14, 19-15, 20-16, hélzt og þegar átta mínútur voru eftir stóð 22-18. Þá skoraði Þorbergur tvívegis, 22-20. Tatabanya komst í 23-20 en Páll og Þorbergur skoruðu tvö sið- ustu niörk leiksins — Þorbergur sitt eftir að leiktíma lauk með miklu þrumuskoti. Mörk Víkings skoruðu: Þorbergur 9, Páll 6/2, Guðmundur Guðmunds- son 3, Árni 2 og Steinar 2. Vikingar héldu frá Ungverjalandi í morgun og koma heim í kvöld eftir eina fræki- legustu för islenzks íþróttaflokks er- lendis. Það mun vekja gífurlega at- hygli í Evrópu að íslandsmeistararnir sigruðu Ungverjalandsmeistarana. - hsím. Það er sagt að jólin séu hátíð barnanna. I þeirra augum eru jólin œvintýri, jólasveinar koma af fjöUunum og útlit borga og bceja breytist. Á morgun kl. 16 munu jólasveinar skemmta á þaki Kökuhússins við Austurvöll og að lokinni þeirri skemmtun mun verða kveikt á Oslóar-jólatrénu. — Þessi börn voru að virða fyrir sér lifandi jólatré sem stend- ur við Melatorg en borgaryfirvöld hafa skreytt það smekklega. - KMU / DB-mynd Einar Úlason. Gjafavöru- og listmunaverzlanir í Reykjavík opnar á morgun: Óþolandiaðein tegund verzlana getieinokað — segir formaður Félags gjafavöru- og listmunaverzlana „Það hefur verið vandræðamál með þessa reglugerð, hún er úrelt og hefur ekki verið framfylgt. Söluturnar hafa ákveðinn vörulista, sem þeir fara eftir, en blómabúðaeigendur hafa einungis tekið sér það bessaleyfi að selja gjafavörur. Við höfum unnið að þessu máli Iengi í samvinnu við Kaupmannasamtökin og munum halda því áfram,” sagði Árni Jónsson, for- maður Félags gjafa- og listmunaverziana, i viðtali við DB. Á ntorgun hafatólf gjafa- og listmunaverzlanir opið hjá sér frá kl. 13—18 til þess að vekja athygli á að blóntabúðir séu margar hverjar fárnar að byggja af- komu sína á sölu gjafavara, grænntetis og jafnvel hús- gagna. Blómabúðir hafa opið til 22 öll kvöld og allar helgar, segir í fréttatilkynningu sem félagið sendi frá sér. Á sínum tíma var þessi lengri opnunartími heimilaður vegna lélegs gevmsluþols viðkomandi vara, enda byggðist heimildin ,i >ölu á lifandi plöntunt, garðplöntum að vori til og jólatrjám i desember. „Okkur þykir ófært að ein tegund verzlana skuli hafa hreina einokunaraðstöðu. Það verður síðan að koma í ljós hvort lögreglustjóraembættið vill gera eitthvað, en það hefur að okkar mati ekki staðið í stykkinu við að framfylgja þessari reglugerð,” sagði Árni Jónsson. -ELA. Þungfært á Hellisheiði í gær: Lögreglan treysti sérekki yfir Hálka og hríð a Hellisheiði gerði mörgum bílstjóran- um erfitt um vik í gær. Er líða tók á daginn fór að verða erfitt um allan akstur á heiðinni — svo slæmt að lögregl- an á Selfossi treysti sér ekki yfir með fullorðna konu úr Hveragerði. Hún hafði dottið og handleggsbrotnað. Gera varð að meiðslum hennar á Selfossi. - ÁT Tíu mín- útna þögn íminn- ingu Lennons — klukkan sjö íkvöld Yoko Ono, ekkja Johns Lenn- on, hefur mælzt til þess við aðdá- endur manns sins að þeir minnist hans nteð tíu mínútna þögn á morgun, sunnudag. Hún hefst klukkan nítján að íslenzkum tíma. John Lennon var sent kunnugt er af fréttum myrtur aðfaranótt síðasta þriðjudags. Jarðarför hans fór fram í kyrrþey á mið- vikudaginn. Bítillinn. fyrrverandi er syrgður sárlega um allan heim. Yoko Ono stakk upp á þessari stuttu minningarþögn til að allir aðdáendur hans gætu voltað honum sameiginlega virðingu sína. Ono sagði að hún og Sean sonur þeirra myndu vera með öll- um aðdáendum í anda á meðan athöfnin stæði yfir. - ÁT DAGARHLJÓLA

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.