Dagblaðið - 13.12.1980, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 13.12.1980, Blaðsíða 2
2 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 1980. „Hann er sagður hagur á tré, ég er viss um að hann bjargar sér i nvju landi,” segir A.S. Stokkseyringar Árnesingar □ Vandlátir verzla hjá okkur. □ Vorum að taka upp mikið úrval leik- fanga og annarrar gjafavöru á góðu verði. □ Tilboð okkar i desember er 20% afslóttur af öllum kjötvörum í kœliborði. □ Nýjar kjötvörur daglega. □ Verzlið í jólamatinn tímanlega. □ Opið alla daga til kl. 22, laugardaga og sunnudaga líka. □ Þið pantið. — Við sendum heim, eða komið og sannfærizt. Við bjóðum ykkur velkomin. Stokkseyri Sími 3206 VID SEGJUMST VERA KRISTIN —en hvar er okkar kristna hugarfar? A.S. skrifar: Nú þegar jólin nálgasl verður okkur hugsað til frelsarans enda eru haldin jój til að minnast fæðingar hans. Forystukona í verkalýðshreyfing- unni tók svo til orða um daginn að franskir skipbrotsmenn á Meðal- landssandi hefðu.aldrei verið krafðir um vegabréf um leið og þeir komu volkaðir í land. Þjóðin tók vel á móti þeim, veitti þeim góðan beina. í hvaða sambandi nefndi hún þetta? Jú, hingað kom til lands franskur maður, langþjáður flótta- maður, búinn að vara það hálft sitt líf. Hann bað hér um hæli sem flótta- maður, því það var hann vissulega. Af hverju? Því hann neitar að bera vopn, neitar að þurfa að standa frammi fyrir þeim móguleika aö verða e.t,v. manni að bana. Það finnst öllum hræðilegt ef maður er drepinn. Nú ber svo við að ráðherra og sumt fólk í landinu ærist ef veita á honum hæli. ,,Burt með hann,” hrópar fólk- ið. Minnir þessi afstaða okkur ekki á faríseana í Biblíunni og afstöðu þeirra til Jesú? Þrátt fyrir þennan hræsnitón dó æskan ekki ráðalaus. Hún, einu sönnu auðæfi þessa lands, tók af- stöðu með kristnidómnum og hugar- fari hans. í þvi augnamiði minnti hún dómsmálaráðherra á tilveru sína með veru sinni næturlangt í húsnæði hans. Hvers vegna? Hún berst gegn vopnagný og hermennsku í hvaða mynd sem er. Hún skilur þrá Gerva- sonis, vonir hans og óskir um frelsi, betri heim til handa öllum án tillits til þjóðernis eða litarháttar. Verum okkur ekki til skammar! Bregðumst ekki æskunni og vonum hennar! Sýnum nú kristið hugarfar í verki, veitum manninum hæli. Hann er sagður hagur á tré, ég er viss um að hann bjargar sér i nýju landi. Minnumst þess að hér kom rúss- neskur flóttamaður fyrr í sumar. Við tókum honum opnum örmum. Hann neitaði líka að beygja sig undir lands- lög sem honum þóttu ógeðfelld, rétt eins og Gervasoni lítur á herskyldu- lög síns lands. Hvers vegna ætti af- staða okkar að vera önnur til Gerva- sonis? Verum heil í afstöðu okkar, látum eitt yfir alla ganga. Gefum okkur þá jólagjöf að veita honum hæli hér sem flóttamanni! Raddir lesenda Friðjón Þórðarson: Auðvitað hefur þú samúð með Gervasoni — Leyfðu mannúðarsjónarmiðinu að ráða að jaðri við eintrjáningshátt. Gerðir þínar í Gervasoni-málinu bera vissulega keim af því. Staðfastur stjórnmálamaður á þrátt fyrir allt að geta hlustað á rök andstæðinga sinna og hann á að virða skoðanir almennings. Þú mundir hljóta virð- ingu mína óskipta í annað sinn ef þú létir ekki möppudýrið í dóms- málaráðuneytinu og tréhestana i út- lendingaeftirlitinu segja þér hvað þú átt að gera. Þeir eru sízt betri þrýstihópuren aðrir. Á mínu heimili dáðust allir að víðsýni þeirri sem þið Gunnarsmenn sýnduð er þið tókuð til ykkar ráða og mynduðuð þessa ríkisstjórn, sem margt gott er um og nýtur vinsælda meðal þjóðarinnar eins og skoðana- kannanir sýna. Friðjón, áfram með víðsýnina — auðvitað hefur þú samúð með Gervasoni eins og aðrir. Leyfðu mannúðarsjónarmiðinu að ráða. Stuðningsmaður rikisstjórnarinnar gekkst til liðs við þessa ríkisstjórn skrifar: sem nú situr. Þú varðst meiri maður í Kæri Friðjón Þórðarson. mínum augum við það. En sjálfstæð Mér fannst þú sýna djörfung er þú hugsun má ekki fara út í þær öfgar, Friðjón! Leyfðu mannúðarsjónarmiðinu að ráða. DB-mynd: Bj. HERERBOKIN! ATJAN KONUR, ferill þeirra og framtak í nútímahlutverkum SKUGGSJÁ BÓKABÚD OL/VERS STE/NS SE Hin síðari ár hefur ört stækkandi hópur kvenna gengið lítt troðnar leiðir menntunar og sérhæfðra starfa, andlegra sem verklegra. Hér segj'a 18 konur sögu sína og sanna góðan árangur athafna, sem án efa hefur á stundum reynt á þolið og kostað erfiði. Afrek þeirra mun verða öðrum fyrirmynd og hvati á braut mennta og starfsvals. — Þetta er tímabær bók í þjóðfélagi, sem ört breytist, verður æ sérhæfðara og flóknara. Gísli Kristjánsson ritstýrði og bjó til prentunar. Fríða Á. Sigurðardóttir: ÞETTA ER EKKERT ALVARLEGT Hér er bók, sem enginn unnandi fagurs skáldskapar má láta framhjá sér fara ólesna. Hér fer saman skilríkt og fagurt mál, ótvíræð frásagnarlist, lífsskilningur og samúð með því fólki, sem frá er sagt. Hér tekst galdur góðrar sagnalistar. — Ahugaverðari höfundur en Fríða Á. Sigurðardóttir hefur ekki sent frá sér frumverk um langt árabil.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.