Dagblaðið - 13.12.1980, Blaðsíða 4

Dagblaðið - 13.12.1980, Blaðsíða 4
4 DAGBLADIÐ. LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 1980. LEIF LARSEN Shetlands-Larsen var Iræknasti hermaöur Shetlandsey|aher- delldarlnnar, sem var aö mestu eklpuð landflátta Norðmönnum. Eftir innrás Þjóðverja í Noreg og þegar norski herinn hafði gefist upp fyrir ofureflinu, sameinuðust Norðmenn um að gera óvin- inum hersetuna sem erfiðasta. Einn þessara hraustu föðurlands- vina var Leif Larsen. Hann.yfirgaf Ncreg og fór til Bretlands. Þar komst hann í hina ‘rægu Shetlandseyja-herdeild, sem hafði aðsetur á Shetlandseyjum, og var að mestu skipuð landflótta Norðmönnum, en undir stjóm Breta. Verkefni herdeildarinnar var að aðstoða nsðanjarðarhreyfinguna í Noregi. Þeir fluttu vopn og njósnara til Noregs og landflótta Norðmenn frá Noregi. Þeir höfðu aðeins til afnota litla fiskibáta, sem þeir urðu að sigla á yfir Norðursjó í gegnum víglínu óvinanna að ströndum Noregs. Þeir urðu fyrir árásum flugvéla og varðbáta og margir týndu lífinu. Þessi bók segir frá Norðmanni, sem varð ein mesta striðs- hetja síns föðurlands, ofurhuganum Leif Larsen, sem hlaut fleiri bresk heiðursmerki en nokkur annar erlendur hermaður í siðari heimsstyrjöldinni. Bók þessi hefur náð metsölu hvarvetna sem hún hefur verið gefin út, enda sönn og ógnþrungin lýsing á þrekraunum Norð- manna í heimsstyrjöldinni siðari. HAGPRENT H F. - BÓKAFORLAG Jólagföfbarnsins Þetta er 5. árið sem viö bjóðum þessi vönduðu úr. l-^i Verð 19.500 Skífa i blá- brún- græn V'|' Kaupin eru beztjþar sem þjónustan er mest Skífa rauð- blá- græn i ■ 15 steina skólaúr fyrir stelpur og stráka. ■ Vatnsvarin, höggvarin og óslítanleg fjöður. ■ 1 árs ábyrgð. Skífa Indíáni Hjóla skautam. Fótboltam. Svissnesk gæði ■ Merkið tryggir gæðin. Póstsendum Úr og skartgripir Jón og Óskar Laugavegi 70, sími 24910 Fyrsta lagafrumvarpið vegna bankaverkfallsins Afhenda megi vöru án bankastimplunar A fimmtudag var lagt fram á Alþingi fyrsta frumvarpið sem segja má að snert haft bankamannaverk- fallið. Er í því lögð til sú breyting á lögum um tollskrá að ekki sé nauðsynlegt að fá bankastimpil til þess að fá vöru tollagreidda. , {greinargerð segir að bankastimpl- unarskyldan hafi verið tekin upp í tollskrárlög 1976 og þá hafi verið bent á að um væri að ræða óeðlilega hagsmunagæzlu fyrir erlenda aðila, sem ætti fá eða engin fordæmi erlendis. í bankaverkfallinu nú hafi komið upp staða sem engan hafði órað fyrir við setningu tollskrárlag- anna. Vörur fást ekki tollafgreiddar þó fyrir liggi sönnuð heimUd seljanda vörunnar að vöruna megi afhenda án greiðslu í banka. Flutningsmenn eru Albert Guð- mundsson, Friðrik Sophusson, Matthías Mathiesen, Árni Gunnars- son, Sverrir Hermannsson og Birgir ísl. Gunnarsson. - A.St. Bankamenn slá tvær flugur i einu höggi —baka kleinur, gera hreint, mála, veggfóðra ogveiða rjúpu Bankastjórinn á Eskifirði, Árni T. Jensson, er sá eini sem vann í bankan- um í verkfallinu. Hann þurfti að sinna skuldbindingum gagnvart erlendum aðUum, bankaábyrgðum og slíku, einnig öryggisgæzlu. Þó að mikið hafi verið tekið út fyrir verkfall var enn mikið eftir af seðlum þegar verkfallinu lauk. Bankafólkið hjálpaði mökum sínum við hreingerningar og bakaði kleinur, málaði og veggfóðraði (þó ekki með peningaseðlum) íbúðir sínar. Sumir karlmennirnir fóru á rjúpnaveiðar. Ég er ekki hlynnt verkföllum en ég held að bankafólkiö slái þarna tvær flugur í einu höggi. Bankafólki var lofað snemma á árinu .’79 3% hækkun á kaupi, út af því er þetta verkfall. Loforð skulu standa hvað sem Ólafs- lögin segja. Annað er að margir segja sem svo að bankar megi fara í langt verkfall, þetta sé engin vinna sem innt sé þar af hendi. En ég held að bankaþjónustan sé alveg ómissandi. -Regína, Eskifirði. Greiðsla námslána dregst vegnaverk- fallsbanka- manna Talsverður hópur námsmanna fær ekki námslán sín nú í desember vegna bankaverkfallsins. Talsmaður Lána- sjóðs islenzkra námsmanna sagði i gær að ekkert væri hægt aö borga út af desemberlánum, sem afgreiða átti á biiinu frá 1 .—15. desember. Þetta á bæöi við námsmenn hér heima og er- lendis. Rólegt hefur verið á skrifstofu lánasjóðsins undanfarna daga. Eflaust gera margir námsmenn sér ekki grein fyrir því aö sjóðurinn er opinn, en hann er í húsi Lands- bankans aö Laugavegi 77. Stúdentar hafa ekki boriö sig illa við sjóðinn, þótt suitarólin herðist. • JH Eskrfjörður: Hólma- tindurer kostaskip Hólmatindur hinn nýi togari kom til Eskifjarðar fimmtudagsmorgun- inn 11. des. úr fyrstu veiðiferðinni með 95 tonn af mjög góðum þorski sem veiddist á Vopnafjarðargrunni. Voru þá liðnir réttir sjö sólarhringar frá því skipiö lagði úr höfn til veiða. Að sögn Arnbjarnar Magnússonar skipstjóra reyndist Hólmatindur mjög vel í alla staði. Sagði hann vinnuaðstöðu og aðbúnað góðan alls staðar i skipinu. Mikill munur væri á nýja og gamla Hólmatindi aö flestu leyti. Hraðfrystihús Eskifjarðar keypti Hólmatind, en skipiö kom til landsins 8. september í haust. Skipið fór strax í slipp á Akureyri til breyt- inga og lagfæringa. Hólmatindur er 498 tonn að stærð og keyptur frá Frakklandi. - Regina, Eskifirði. DAUDUR MINKUR BEK> VID DAGBLAÐSDYRNAR Þegar menn komu til vinnu á af- greiðslu Dagblaðsins einn morgun nú í vikunni lá kvikindi þetta við dyrnar, steindautt. Þarna var greinilega kom- inn föngulegasti minkur en orðsending fylgdi hinum látna engin. Það er þvi ekki hægt að segja hvað orðið hefur minknum að fjörtjóni eða hvað hann var að vilja inn í höfuðborgina. Feldur-' inn á dýrinu var fallegur og glansandi og líktist hann þannig meira mink úr búi en villimink. Ekkert skal þó fullyrt í þeim efnum. - JH / DB-mynd Sigurður Þorri. MiðstjómASÍ: SKIPTAR SKODANIR UMGERVASONI Skiptar skoðanir voru meðal mið- stjórnarmanna Alþýðusambandsins á fimmtudag, þegar fundur var haldinn til að ræða mál Gervasonis. Meirihlut- inn stóð að því að greiða kostnað við för lögmanns Gervasonis, Ragnars Aðalsteinssonar, til Danmerkur til að kanna stöðu mála ef Gervasoni yrði sendur til Danmerkur. Karvel Pálmason var meðal þeirra, sem töluðu í gær gegn þvi, að ASÍ bæri þennan kostnað. . HH

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.