Dagblaðið - 13.12.1980, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 13.12.1980, Blaðsíða 6
7 Hver viU? Ég leita að lifandi og jafnframt krefjandi starfi. Hefi ágæta menntun og fjölþætta reynslu, m.a. í stjórn fiskvinnslu. Tungumálakunnátta. Góð meðmæli. — Er í sima 34129. Bifreið stolið Aðfaranótt sl. miðvikudags var bifreiðinni R-57558, sem er rauður Volkswagen 1300 árg. 1974, stolið frá Barónsstíg 61. Þeir sem einhverjar uppl. gætu gefið um þennan bíl eru vinsamlega beðnir að hringja í síma 11018 eða láta lögregl- una vita. ólatilboð Seljum í dag á stórlækkuðu verði REIÐHJÓL og aukahluti. Verð frá kr. 89.500 — nýkr. 895,00 Takmarkað magn. Einnig úrval vandaðra leikfanga. Bíla- og hjólabúðin sf Kambsvegi 18 — Sími 39955 Barnabókakynning hjá Eymundsson Klukkan 2 til 4 á laugardag mun HJALTIRÖGN V ALDSSON leikari lesa úr eftirtöldum bókum: Píla Pína eftir KRISTJÁN FRÁ DJÚPALÆK Fjörulalli eftir JÓN VIÐAR GUÐLAUGSSON Vinur dýranna eftir GUÐLAUG GUÐMUNDSSON Höfundar verða í verzluninni á sama tima og árita bœkurnar. BÓKAVERZLUN SIGFÚSAR EYMUNDSSONAR AUSTURSTRÆT118 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 1980. Saksóknari vísar frá kæru á hendur Guðlaugi Bergmundssyni blaðamanni: Gerí ráð fyrír að höfða mál á hendur Magnúsi Einarssyni —segir Guðlaugur Bergmundsson ,,Ég fékk bréfið á miðvikudags- kvöld og fór úr bænum strax á fimmtudagsmorgun svo ég hef ennþá ekkert rætt þetta mál við lögfræöing minn. Ég veit ekki einu sinni hvort hann hefur fengið afrit af því,” sagði Guðlaugur Bergmundsson blaða- maður á Helgarpóstinum i samtali við DB í gær. Rikissaksóknari hefur sent lög- reglustjóra bréf þar sem vísað er frá kæru á hendur Guðlaugi. Eins og kunnugt er af fréttum var Guðlaugur handtekinn í miðbænum í haust, þar siem hann var við störf, og honum gefið að sök að hafa truflað og tafið Guðlaugur Bergmundsson blaðamaður: Ánægður með bréf rikissaksóknara. Mynd: Helgarpósturinn. Magnús Einarsson aðstoðaryfirlög- regluþjónn. störf lögreglumanna, auk þess sem hann hafi haft uppi móðganir. í bréfi saksóknara segir m.a. að það sem fram hefur komið i rannsókn málsins þyki eigi vera nægilegt eða liklegt til að veita fullgilda sönnun fyrir því að kærði hafi gerzt sekur um brot gegn 106. og 108. grein hinna almennu hegningar- laga nr. 19, 1940. Því eru eigi laga- rök, samkvæmt 115. gr. 1. mgr. laga nr. 74 1974, til þess að höfða opinbert mál á hendur ákærða, Guð- laugi Bergmundssyni, fyrir hegning- arlagabrot. „Saksóknari hefur tekið einu réttu ákvörðunina í málinu, að mínu áliti. Mér finnst full ástæða til að gera eitthvað i þessu máli, svo þeir komist ekki upp með að stinga mönn- um inn án þess að láta þá svara til saka,” sagði Guðlaugur. I ,,Ég geri fastlega ráð fyrir að höfða mál á hendur Magnúsi Einars- syni. Sá maður lét skapsmuni sína ráða í stað skynseminnar. Hins vegar veit ég ekkí hvernig það kemur til með að ganga, ég þekki ekki prósessinn í þessum málum. Ég er ánaégður með bréf ríkissaksóknara, hann gerir vitnaskýrslur ómerkar að einhverju leyti. Annars mun ég hafa samband við lögfræðing minn út af þessu máli strax á mánudag,” sagði Guðlaugur. -ELA. Stór- hækkað gjaldá sælgæti oggos- drykki — á aðfæra ríkissjóði 3.400 milljóniráári Lagt hefur verið fram á Alþingi stjórnarfrumvarp um sér- stakt vörugjald á sælgæti og gos- drykki. Ergjaldið ýmist 10% eða 30% og er lagt á tollverð. Vörugjald á þessar tegundir var áður lagt á magn vörunnar. Þetta nýja gjald á að færa ríkissjóði 3.4 milljarða króna í tekjur og telja fróðir menn að þarna sé verið að finna tekjustofn í stað aðlögunargjaldsins sem nú hverfur af tekjuliðum rikissjóðs. Gjaldið mun hækka sælgæti um 7—9% og gosdrykki um 23— 26%. Gert er ráð fyrir að vörugjald af suðusúkkulaði hækki úr 20,80 kr. á kiló í 350 krónur. Gjaldið á kiló af át- súkkulaði hækkar úr 45,60 í 370 kr. Vörugjald á gosdrykkjum hækkar úr 16 kr. á lítra í 92—120 krónur, á öli úr 14—16 krónum í 130 krónur. Vörugjaldið leggst bæði á innflutta framleiðslu og innlenda. -A.St. Samkomulagnáðist: Flugmenn og Fokk- erar til Líbíu ,,Það hefur staðið 1 stappi með leigu á tveimur Fokkervélum til Líbíu vegna deilna við flugmenn,” sagði Sveinn Sæntundsson biaðafulltrúi Flugleiða i samtali við DB. ,,En i vikunni náðist samkomulag. Fyrri Fokkerinn fer utan í dag með þremur flugstjórum og vélamanni. Með seinni vélinni fara tveir flugsljórar og vélantaður. íslenzkur flugstjóri flýgur vélunum rneð erlendum flug- manni. Það er mikið framboð af flug- vélum og flugmönnum á alþjóða- markaði þannig að lciga nú er ekki eins ábatasöm og áður en þetta er þó þáttuT í viðleitni Flugleiða til að afla fleiri verkefna. Það stendur ekki tii að fækka vélum í innanlandsflugi þrátt fyrir leiguflugið í Libiu. Flugleiðir hafa keypt TF-Sýr, Land- helgisgæzluvélina. Hún er tilbúin i farþegaflug, var m.a. talsvert notuð af Flugleiðum i surnar. Þá á að reyna að fá leigða frá Bandaríkjunum Fokker-vél, sem Flugleiðir seldu þangaö fyrr á þessu ári.” -JH. NY VÖRUGEYMSLA □MSKIPS í HÚSI VERZLUNARINNAR Eimskipafélagiö hefur tekið á leigu húsnæði undir vörugeymslu á harla óvenjulegum stað í bænum fyrir slika starfsemi — eða 3200 fermetra á jarðhæð i Húsi verzlunarinnar í nýja miðbænum. Um áramót þarf Eimskip að rýma það húsnæöi sem félagið hefur um árabil haft á leigu í Hafnarhúsinu og A-skála við Reykjavikurhöfn, enda tekur þá Hafskip við hús- næðinu skv. samningi Eimskips og Hafskips við Reykjavíkurhöfn. Eimskip rýmir nú einnig vöru- geymsluna i miðskála í Tollstöðvar- húsinu. Til að leysa geymsluþörf félagsins hefur Eimskip tekið áður- greint húsnæði í Húsi verzlunarinnar á leigu. Leigutíminn er frá 1. desember sl. og út næsta ár. Félagið getur framlengt samninginn í sex mánuði eftir það. Nýja vörugeymslan hefur fengjð nafnið V-skáli. Þar verður Svanberg Ólafs- son verkstjóri. -ÓV.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.