Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 13.12.1980, Qupperneq 17

Dagblaðið - 13.12.1980, Qupperneq 17
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 1980. 17 Halldór Pétursson Prenthúsið hefur gefið út bók með myndum eftir Halldór Pétursson. Hér er um að ræða samantekt á því sem þessi fjölhæfi listmálari fékkst við um dagana. í uppsetningu Péturs, sonar lista- mannsins. Texta ritar Indriði G. Þor- steinsson. Halldór Pétursson byrjaði snemma að teikna og klippa út myndir. Hann var ekki nema þriggja ára gamall þegar lista- maðurinn i honum sagði til sín og það með góðum árangri, eins og dæmi er um i þessari bók. En þótt listamannsauga Halldórs Péturssonar væri næmt á tilbrigði mannlífsins. eins og það birtist í einstaklingum sem voru og eru frægir i þjóðlifinu á árunum fyrir strið og síðar, eru ekki síður mikilsverðar þær myndir sem birtar eru i bókinni af atburðum og hreinum myndverkum. þar sem hestar. land og menn fylla myndflötinn. Vegna hæfileika Halldórs að muna fyrirmyndir er i þessari bók eflaust að finna fjölda mannamynda sem fyrirmyndir hafa ekki hugmynd um að hann hafi teiknað. í æsku átti Halldór heinia við Landakots- lúnið, sem þá var miklu stærra en nú. Þar hafði hann hesta fyrir augunum dag hvern og það er eins og þessi æskukynni hans af hestinum hafi fylgt honum alla tíðsíðan. Auðvitað var list Halldórs fjölbreytileg. þótt hann sé þekktastur fyrir gamanmyndir sinar. Hann var einn af hæfustu mannamyndamálurum landsins, hann lýsti -bækur og sótti efnivið sinn í þjóðsögur. Myndverkabók Halldórs er frábrugðin likum bókum, sem hér hafa komið út, að því leyti að hún spannar ævisögu hans í texta og myndverkum. A fimmta hundrað mynda eru í bókinni, fjölmargar í litum. Aftast er að finna ágrip texla á ensku og þýzku. Bóndi er bú- stólpi — eftir Guðmund Jónsson Ægisútgáfan hefur gefið út bókina Bóndi er bústólpi, Guðmundur Jónsson sá um útgáfuna. Þessi bók er viðleitni til að halda á lofti minningu framfara- manna í búskap og félagsmálum. Hér er fjallað um Dag Brynjúlfsson í Gaul- verjabæ, Davið Þorsteinsson á Arn- bjargarleik. Gest Einarsson á Hæli. Guðjón Guðlaugsson á Ljúfustöðum. 'Jónatan J. Líndal á Holtastöðum. Kristin Indriðason á Skarði, Ólaf Berg- sveinsson í Hvallátrum, Ólaf Bjarnason i Brautarholti, Pál Pálsson á Þúfum, Sandafeðga, Sigmund Jónsson á Hamra- endum og Þorstein Þorsteinsson á Húsa- felli. Bóndi er bústólpi er 256 bls. Ljóð úr lífs- baráttunni — eftir Birgi Svan Ljóð úr lífsbaráttunni heitir nýútkomin Ijóðabók eftir Birgi Svan. Hann hefur áður sent frá sér þrjár Ijóðabækur og vöktu tvær þeirra mikla athygli: Hrað- fryst Ijóð og Nætursöltuð ljóð. 1 bókinni Ljóð úr lifsbaráttunni er brugðið upp myndum úr lífi reykvískrar sjómannafjölskyldu. Drengurinn og for- eldrarnir, amnian og nágrannarnir — allt er þetta lifandi fólk, sem mun „hrífa lesandann með sér inni miskunnarleysi hversdagslífsips, inní drauma og erjur. sorg og gleði” eins og segir á bókarkápu. Sviðið er i vesturbænum; það er litazt urn við höfnina. kikt inn í frystihús og smiðjur, spjallað við rakarann. verzlað við brotajárnsalann og tekið eftir Pétri Hoffmann þar sem hann mundar öxina góðu. Ljóð úr lífsbaráttunni er pappírskilja. 124 blaðsiður. Útgefandi er Leiftur. Vertu góður við mig eftir Hans Hanssen Lystræninginn hefur sent frá sér ungl- ingabókina Vertu góður við mig eftir danska rithöfundinn Hans Hanssen i þýðingu Margrétar Aðalsteinsdóttur og Vernharðs Linnets. Saga þessi er sjálf- stætt framhald af Sjáu sæta naflann minn. sem út kom í fyrra og hlaut miklar vinsældir. Vertu góður við mig fjallar um samband Lenu og Klás eftir að þau koma heim úr skólaferðalagi þvi sem sagt er frá I Sjáðu sæta nafl- ann minn. Höfundi tekst einstaklega vel að draga úþp mýnd af tilfinningalífi unglinganna og innbyrðis samskiptum þeirra. Öll frásögnin er eðlileg og hispurslaus, enda er Hans Hansen einn vinsælasti unglingabókahöfundur Norðurlanda. Bækurnar um Klás og Lenu eru þrjár og mun lokabindið koma út á íslenzku á nassta ári. Vertu góður við mig er sett og um- brotin i Leturval og prentuð í Prentval. SAMA ÚRIÐ MEÐ TVÖ ANDLIT AA81 býður upp á: Klukkutíma, mín., sek., mánaðardag, vikudag. Sjálfvirka dagatalsleiðréttíngu um mánaðamót Að hægt sé að hafa tvo tíma samtímis. Niðurteljara frá 1. mín. tilklst Vekjara. Hljóðmerki á hálfum og heilum tíma. Rafhlöðu sem endist í ca. 18 mánuði. Árs ábyrgð og viðgerðarþjónustu. Erhögghettog vatnshelt. Gkr. 96.700.- Nýkr. 967,00.- M—1200 býður upp á: • Klukkutima, min., sek. • Mánuð, mánaðardag, vikudag. • Vekjara með nýju tagí alla daga vikunnar. • Sjálfvirka dagatalsleiðréttingu um mánaðamót • Bæði 12 og 24 tima kerfið. • Hijóðmerki á klukkutima fresti með „ Big Ben" tón. • Dagatalsminni með afmælislagi. • Dagatalsminni með jólalagi. • Hiðurteljara frá 1 min. til klst. og hringir þegar hún endar á núlli. • Skeiðklukku með millitima. • Rafhlöðu sem endist i ca. 2 ár. CASIO verfl á úrum er frá gkr. 39.950 til 96.700. CASIO vasatölvur frá gkr. 18.900 BANKASTRÆTI8 SÍMI27510 CASIO-UMBOÐIÐ • Árs ábyrgð og viðgerðarþjón- ustu. • Er högghelt og vatnshelt. G.kr. 96.700.- Nýkr. 967,00.- Astrid Lindgren er einn vinsælasti barnabókahöfundur sem nú er uppi. Henni hafa hlotnast fjölmörg alþjódleg verðlaun og viðurkenningar og hún er eini barnabókahöfundurinn sem hefur verið orðuð við Nóbelsverðlaun. Mál og menning hefur gerst útgefandi Astrid Lindgren á íslandi. Enn eru fáanlegar tvær fyrstu bækurnar um Emil í Kattholti. Bróðir minn Ljónshjarta og Víst kann Lotta næstum allt. Og nú í haust gefum við út þrjár nýjar bækur. Barnabækur eftir Astrid Lindgren MAddin eftir Astrid Lindgren V A Madditt Madditt er ný sögu- persóna eftir Astrid Lind- gren sem íslenskir les- endur hafa ekki áður kynnst, sjö ára stelpa sem er engum lík þó að hún minni stundum á Emil í Kattholti. Eins og hann hefur Madditt verið kvik- mynduð og notið mikilla vinsælda. Þýðandi Sigrún Árnadóttir. Almennt verð kr. 8.890. Félagsverð kr. 7.560. Ég vil líka fara í skóla Gullfalleg myndabók fyrir yngri börnin og skemmti- leg saga um Lenu litlu sem fékk að fara í skólann með bróður sínum einn dag. Myndir eftir llon Wikland. Þýðandi Ást- hildur Egilson. Almennt verð kr. 4.940. Félagsverð kr. 4.200. Enn lifir Emil í Kattholti Hér er þriðja bókin — og sú skemmtilegasta— um Emil í Kattholti frum- prentuð á íslensku. í þess- ari bók er sagt frá ýmsum skammarstrikum Emiis, en líka frá því þegar hann drýgði dáð sem allir Hlyn- skógabúar glöddust yfir. Þýðandi Vilborg Dag- bjartsdóttir. Almennt verð kr. 8.890. Félagsverð kr. 7.560. Mál og menning

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.