Dagblaðið - 16.12.1980, Qupperneq 16

Dagblaðið - 16.12.1980, Qupperneq 16
32 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1980 rÚnýtu" seðlarnir fóru aftur í umferð Fyrir helgina þegar bankaverkfall- ið var yfirvofandi varð seðlaþurrð víða í peningastofnunum og varð Seðlabankinn að tjalda öllu til sem hægt var. Meira að segja var farið í úrkastið sem átti eftir brenna og það sent aftur í bankana. Fengu gjaldker- arnir því seðlabúnt merkt ónothæft i kassana. Það verður því dálagleg hrúga sem kemur inn aftur þegar verkfallinu lýkur og nýja myntin hefur innreið sýna. Sannkallaður morgunhani — Hvenær ferð þú á fætur á morgnana? — Þegar fyrstu sólargeislarnir falla á svefnherbergisgluggann minn. — Þú ert þá sannkallaður morgunhani. Þú ert á fótum fyrir allar aldir! — Ég læt það nú allt vera. Svefn- herbergisglugginn minn snýr mót vestri. Jafnrétti Og svo voru það rauðsokkurnar sem voru að lagfæra orðalag vegna ákvæða um jafnrétti „Síðan skapaði Guð manninn og það voru fyrstu mis- tökin sem Hún gerði.” SATT, Jazzvakning og Vísnavinir eftia til sameiginlegra tónleika Þrír tónlistarklúbbar, SATT, Jazz- vakning og Vísnavinir hafa tekið höndum saman um fjölbreytt skemmtikvöld í veitingahúsinu Klúbbnum annað kvöld. Þá verður Verðlaun í samkeppni um gang- stéttarbiðskýli fyrir Strætisvagna Reykjavíkur voru afhent í hófi á .laugardaginn, eins og Dagblaðið sagði frá í frétt í gær. Voru þá samankomnir arkitektar, forystu- menn Reykjavíkurborgar og fleiri gestir. Tillögurnar 12 sem bárust í samkeppninni voru til sýnis og gest- irnir veltu ákaflega vöngum yfir kost- um þeirra og göllum og dreyptu á tári af hvítvíni og sérríi. Birna Björnsdóttir innanhússarki- tekt og Gunnar Torfason byggingar- verkfræðingur áttu verðlaunatillög- una. Samstarfsmaður þeirra var Sten jólaprófum víðast hvar lokið, svo að skólanemar ættu með góðri samvizku að geta slett úr klaufunum. Þeir sem koma fram eru félagar úr Visnavinum, jasskvartett Guðmund- Haugaard. Um tillöguna sagði dóm-' nefnd: „Tillagan uppfyllir allar þær kröf- ur sem dómnefnd gerði til gang- stéttarbiðskýUs á einfaldan og afar aðlaðandi hátt. Einfalt og stílhreint útlit skýlis gerir það að verkum að það mun lífga upp á umhverfí borgarinnar.” Guðfinna Thordarson arkitekt átti tillöguna sem fékk 2. verðlaun. Um hana sagði dómnefnd: „Höfundi hefur tekizt mjög vel að uppfylla kröfur dómnefndar um gangstéttarbiðskýli. Grunneining ein og sér er afar aðlaðandi.” ar Ingólfssonar, hljómsveitin Steini blundur, Mezzoforte og loks nýstofn- uð hljómsveit Bobby Harrisonar. I síðasttöldu hljómsveitinni eru auk Bobby Jóhann G. Jóhannsson og gítarleikarinn Gus Isadoar, sem vakið hefur athygli fyrir góða túlkun á lögum Jimi Hendrix, eins og segir í frétt frá aðstandendum skemmti- kvöldsins. Trlóið leikur því að sjálf- sögðu nokkur Hendrixlög. Hljómsveitin Steini blundur kynnir lög af nýrri hljómplötu Magnúsar Þórs Sigmundssonar, Gatan og sólin. Mezzoforte mun væntanlega einnig leyfa gestum að heyra efni nýju plöt- unnar sinnar, í hakanum. í jasskvartett Guðmundar Ingóifs- sonar eru auk hans sjálfs Gunnar Hrafnsson bassaleikari, Björn Thorarensen gitarleikari og Guð- mundur Steingrímsson jasstrommari.; Gestur kvöldsins verður sá víð- kunni Jakob Magnússon. -ÁT- Spáð í strœtóskýli Friðjón mœtti einn á jólakon- sertinn öllum ráðherrum ríkisstjórnarinn- ar voru sendir tveir boðsmiðar að tónleikunum Jólakonsert ’80, sem haldnir voru á dögunum til styrktar félagasamtökunum Vernd. Aðeins einn lét sjá sig, Friðjón Þórðarson dómsmálaráðherra. Friðjón notaði ekki einu sinni boðsmiða sinn, heldur greiddi aðgangseyri. öllu fjölmennara var af ráðherrum á Jólakonsertinn í fyrra. Ekki mun það þó nauðsynlega hafa verið vegna meiri hlýhugar fyrir málefninu sem þá var styrkt en nú. Þá voru kosning- ar á næsta leiti og stjórnmálamönn- um því mikið í mun að láta sjá sig þar sem fleiri en tveir eða þrír voru sam- ankomnir. Þrennt kemur til greina —• Jæja, Ólafur litli, hvað ætlar þú nú að verða þegar þú verður stór? — Ég ætla annaðhvort að verða læknir, myndhöggvari eða glugga- þvottamaður. — Og hvað af þessu þrennu langar þig helzt til að verða? — Skiptir ekki máli, svo lengi sem ég get skoðað berar stelpur. kvöld er hljómsvertin Mezzoforte. Hún kynnk eö sjátisögðu tónlistina á nýrri LPplötu sinni, íhekanum. DB-mynd: Einar Ólason. Thordarson erkitekt hreppti 2. veriHeun aö upphæö kr. 900 þúsund. Á stólnum viö hHÖ hennar er Sken ef tiHögunni sem færði henni verölaun. Þrjár nýbylgjuhljómsveitir halda hljómleika: Barðir til róbóta Ekki er annað aösjáen tillögumar hafi vakiö óskipta athygH þeirra er voru viöstaddir verðlaunaafhend- inguna. Hár má sjá Hilmar Björns- son arkitekt lengst til vinstri (bróö- ur sigurvegarans i samkeppninni, Birnu Björnsdóttur), Ingimar Hauk Björnsson arkitokt (höfund oinnar tillögunnar), Þorbjörn Broddason lektor og Sigurð G. Tómasson sem báðir eru borgarmálapólitikusar fyrir Alþýðubandalagið. Maöurinn sem beygir sig niður til að líta betur á Skan af einni tillögu mun vera Gunnar Eydal skrifstofustjóri Egill Skúli Ingibergsson borger- stjóri var mættur á staðinn og er hór á tali viö Ólaf Jensson fram- kvæmdastjóra, sem var trúnaöar- maöur dómnefndar keppninnar. íslenzku nýbylgjuhljómsveitirnar þrjár, sem eitthvað kveður að, hafa tekið höndum saman um að efna til hljómleika. Þeir verða haldnir annað kvöld í Gamla bíói undir yfirskrift- inni Barðir til róbóta. Hljómsveitir þessar eru að sjálf- sögðu Utangarðsmenn, Fræbbblarnir og Þeyr. „Við ætlum að reyna að vanda til þessara tónleika eins og hægt er,” sagði Guðni Rúnar Agnarsson, sem hefur manna mest unnið að undir- búningnum. „Við verðum að stækka svið bíósins dálítið til að hljómsveit- irnar rúmist uppi á þvi með góðu móti. Allar eiga þær góða spretti í sviðsframkomu, svo að rúmast verður vel um þær.” — Miðað er við að dagskrá hverrar hljómsveitar verði um fjörutíu mínútur. Guðni Rúnar sagði að aðgöngu- miðinn að hljómleikunum kostaði fimm þúsund krónur. „Upphaflega ætluðum við að selja inn á 4999 krönur, en féllum fljótlega frá því,” sagði hann. „Við gátum ekki með nokkru móti haft miðaverðið lægra. ■ Þó að uppselt verði á hljómleikana fá hljómsveitirnar lítið sem ekkert í sinn hlut.” Utangarðsmenn, Fræbbblarnir og Þeyr hafa allar nýverið sent frá sér hljómplötur. Plata Utangarðsmanna, Geislavirkir, kom út fyrir nokkrum vikum og hefur fengið mjög lofsam- lega dóma víðast hvar. Plötur hinna hljómsveitanna tveggja voru væntan- legar á markað um síðustu helgi. Þær hafa báðar tafizt verulega vegna handvammar í skurði. -ÁT- mönnum og Þey. Fræbbblemir eru eJzte sterfendi n ýb ylgjuhljóms veitin hárálandi, hinar tvœr komu fram á sjónarsvlðið á þessu ári. DB-mynd: Sig. Þorri.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.