Dagblaðið - 16.12.1980, Blaðsíða 17
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1980.
33
Helgi fer
í göngur
eftir Svend Otto S.
Almenna bókafélagið hefur sent frá sér
nýja barnabók eftir danska teiknaranu
og barnabókahöfundinn víðkunna
Svend Ottó S. Þessi gerist á 'lslandi og
heitir Helgi fer í göngur.
Bókin er kynnt þannig á kápu:.
Árið 1979 gaf AB út eftir hann (Svend
Otto S.) barnabókina Mads og Milalik.
sögu frá Grænlandi og hlaut hún miklar
vinsældir hinna ungu lesenda hér sem
annars staðar. Síðastliðið sumar dvaldist
Svend Otto S. um tíma á Íslandi (á
Sifrastöðum í Skagafirði). og birtist nú
sú barnabók sem til varð í þeirri ferð.
Svend Otto S. er mikill náttúru- og
dýraunnandi eins og vel kemur fram i
bókinni um Helga, skagfirzka strákinn.
sem lendir I ævintýrum i
göngunum. .. "
Því mábæta við að þessi barnabók um
ísland hefur á þessu ári verið gefin út á
mörgum tungum Evrópu og verður hún
góð Íslandskynning meðal ungra lesenda
viðsvegar.
Bókin er íslenzkuð af Sigrunu Ástriði
Eiríksdóttur. Hún er sett I Prentsmiðj-
unni Odda og prentuð í Danmörku.
IstandisdfSæas
Icelandic Saga
and Manuscripts
fslenzku
fornritin
á ensku og þýzku
lceland Review hefur senl l'rá sér
vandaða bók I máli og myndum um is-
lenzku handritin og fornsögurnar. Bók-
in er gefin samtimis út á ensku og
þýzku og heitir enska útgáfan lcelandic
Sagas and Manuscripts, en sú þýzka
Islándische Sagas und Handschriften.
Höfundur bókarinnar er dr. Jónas
Kristjánsson. forstöðumaður Stofnunar
Árna Magnússonar i Reykjavík. í texl-
anum fjallar hann ýtarlega um uþp-
runa handritanna. efni þeirra og varð-
veizlu auk þess sem hann greinir frá
mikilvægi þeirra og sérstöðu. ekki
aðeins fyrir Íslendinga heldur einnig i
alþjóðlegum skilningi. 1 bókinni eru
tugir litmynda af texta og skreytingum
í mörgum merkustu handritanna sem
varðveitzt hafa.
Bókin um handritin og fornsögurnar
kom upprunalega út hjá Bókaforlaginu
Sögu fyrir áratug, en er löngu uppseld
og ófáanleg. Nýja útgáfan er aukin og
endurbætt, auk þess sem útliti hefur
verið breytt til samræmis við aðrar
bækur lceland Review. Þá kemur bók-
in nú i fyrsta sinn út á þýzku.
Þetta er vegleg gjöf til vina erlendis.
þjóðleg og fræðandi um helgasta
menningararf okkar.
Prófessor Alan Boucher þýddi bók-
ina á ensku, en þýzku þýðinguna gerði
dr. Hubert Seelow. Setning og filriiu-
vinna fór frarn hjá Prentstöfu Guð-
mundar Benediktssonar. en litprentun i
Englandi.
Bókin er 96 siður.
ISLENZKAR
rÓNMENNTIR
Kvíeðakig. ftirsaga þcírra
bvgging og f lutningsháttur
HalIgrtnturHclgiwon
Íslenzkar
tónmenntir
eftir dr. Hallgrím Helgason
Bókaútgáfan Örn og Örlygur hf. hefur
sent frá sér bókina íslenzkar tónmennt-
ir. eftir dr. Hallgrím Helgason. Með
riti þessu er lagður grundvöllur að
fræðilegum tónmenntum Islands ntcð
grundvallarrannsóknum á þeirri elztu
hljómandi arfleifð. Sem íslendingar
hafa átt og ástundað allt til vorra daga.
Eyrir rit þetta hlaut Hallgrimur
Helgason doktorsgráðu við háskólann í
Zúrich i Sviss árið 1954. Er rit þetta
fyrsta músikvisindalegl rit á háskóla
stigi sem samið er af Íslendingi og þvi
um brautryðjandaverk að ræða.
í formála bókarinnar segir höfundur
m.a.:
„Við Íslendingar höfum löngum
verið hreyknir af fornbókmenntum
okkar. Þar hefir skerfur okkar til sam-
félags þjóðanna verið viðurkenndur.
En menning er fjölstrengja harpa. og
tjóar lítt að knýja aðeins einn þeirra.
Strengur tónmennta hefur of lengi
legið í þagnargildi. Afleiðing er þjóð-
menningarlegt andvaraleysi, skeytingar
leysi um þjóðleg verðmæti og þar af
leiðandi skortur á menningarlegri sjáli'-
stæðisstefnu. sem m.a. kemur l'ram i
gagnrýnislausri upptöku lánslaga eftir
ýmsa erlenda höfunda. undir yfirskini
tónsettra islenzkra öndvegisljóða.
Þannig deyr út ekta þjóðlegur lifandi
arfur."
Aðalkaflaheiti rilsins eru: Galdra
ljóð. Edduljóð, Dróttkvæði. Eornir
dansar. Uppruni rimna. Þjóðfélagslcgt
gildi þeirra og Eormfræði rimnalaga.
Bókin íslenzkar tónmenntir er gefin
úl í 599 tölusettum eintökum sem
árituð eru af höfundi. Bókin er sett.
prentuð og bundin hjá Waldheim-
Eberle i Vínarborg.
Hrifsur
eftir Bergþóru Ingólfsdóttur
Nýlega kom á markað Ijóðabókin
Hrifsur eftir Bergþóru lngólfsdóttur.
Þetta er fyrsta ljóðabók höfundar en
áður hefur hún flutt Ijóð sin i ýmsum
menntaskólum. Ljóð Bergþóru bera öll
svip nútimaljóðsins, formið er frjálst og
myndmálið rikulegt. Tjáning hennar er
þó opnari og persónulegri en menn
eiga að venjast. Hún leggur áherzlu á
að skilja og greina eigin tilfinnignar
sem jafnframt spegla þann veruleika
sem hún hrærist í. Höfundur gefur
bókina út en Letur fjölritaði. Mynd-
skreytingu annaðist Margrét Einars
dóttir.
Blátt áf ram
— Ijóð eftir Guömund A.
Finnbogason
Innihald bókarinnar er rösklega 200
vísur, sem hafa orðið til við ýmis tæki
færi á síðastliðnum 20 árum. Þetta cr
fyrsta Ijóðabók Guðmundar A. Einn
bogasonar og gefur hann bókina út sjálf
ur. Guðmundur býr á Hvoli i Innri
Njarðvik.
Fyrir tveimur árum kom út eflir Guð-
mund bókin Sagnir af Suðurnesjum. sem
var gefin út af Setbergi. Birzt hefur eflir
Guðmund A. Finnbogason efni i Lesbók
Morgunblaðsins og einnig hefur hann
ritaðgreinar í dagblöðog timarit.
Sálmasöngbók
til kirkju- og heimasöngs i
samantekt þeirra Sigfúsar
Einarssonar og Páls isólfs-
sonar
Sálmasöngbók þeirra Siglúsar Einars-
sonar og Páls ísólfssonar cr nú al'tur
fáanleg í bókaverzlunum. 1 þessari bók.
sem kom fyrst út 1936 og hefur komið
út I 4 útgáfum, eru lög við Sálmasöng-
bókina og við Passiusálma Hallgrims
Péturssonar.
Þegar þeir Sigfús og Páll sendu
þessa bók frá sér fyrst bættu þeir i
liana allmiklu safni af lögum við aðra
og nýrri sálma en þá voru i Sálmabók
inni svo að þessi bók er enn i lullu
gildi. |ró að Sálmabókin hafi verið
endurskoðuð. Alls eru 390 lög i bók-
inni.
Sálntasöngbókin er 153 bls. og gel'in
út af Bókaverzlun Siglúsar Eymunds
sonar.
Kristnar
hugvekjur
Prestafélag lslands hefur gefið út Kristn
ar hugvekjur eftir íslenzka kennimenn.
fyrra bindi: Frá aðventu til hvitasunnu.
Höfundar eru alls 28 og ritar hver þeirra
hugvekjur fyrir eina viku kirkjuársins.
Æviágríp og mync^höfundar fylgir hug-
vekjunum.
Höfundunum er það öllum sameigin
legt að þeir eru landsþekktir kennimenn
og hafa þjónað sem sóknarprestar og
sálusorgarar vítt og breitt um byggðir
íslands. Kristnar hugvekjur eru 232 bls.
á stærð. prentuð í Hagprenti.
Ég vil líka fara í
skóla
eftir Astrid Lindgren
Hjá Máli og menningu er komin úl bók
handa yngstu lesendunum eftir hinn
kunna barnabókahöfund Astrid Lind-
gren. Þessi bók heitir Ég vil líka fara
i skóla og segir frá Lenu sem er fimm ára
og fær að fara með bróður sínum i skól-
anneinndag.
Fallegar litmyndir eru á hverri síðu i
bókinni og þær hefur llon Wikland gert
en hann er kunnur fyrir myndskreyt-
ingar sinar á bókum. m.a. eftir Astrid
Lindgren. Bókin Vist kann Lotta
næstum allt. sem kom út fyrir ári hjá
Máli og menningu, er einnig gerð i sam-
einingu af þeim Astrid Lindgren og llon
Wikland. Ásthildur Egil'son þýddi báðar
bækurnar.
Ég vil lika fara i skóla er um 30 bls.
Prentstofa G. Benediktssonar annaðist
setningu og filmuvinnu. en bókin er
prentuð i Brctlandi.
Áskriftarsími
Eldhúsbókarinnar
24666
ELDHÚSBÓKIN
I rcsjugUlii 14
KOMMÓÐUR
Litír: fura, tekk
b r d. h V e rð N ý k r.
Þriggja skúffu 80 cm 40 cm 46 cm 42.600. 426,-
Fjögurra skúffu 80 cm 40 cm 71 cm 49.500. 495,-
Fimm skúffu 80 cm 40 cm 86 cm 55.700, 557,-
Sex skúffu 80 cm 40 cm 101 cm 63.700. 637,-
Takmarkaðar birgðir á þessu hagstæða verði. Eirtnig
fyririiggjandi spegiar, kertastjakar og ýmsar smíða-
járnsvörur.
8537-5997
Háteigs vegi 20 Sími 12811
Opiö laugardag 10—18
ICOMl
15%
afsl^
auk góðra greiðslukjara
á KONi höggdeyfum í:
MAZDA 616
MAZDA818
MAZDA929
VOLGA
framan
framan/aftan
framan/aftan
framan/aftan
Tilboð þetta giidir til áramóta
meðan birgðir endast
Tilboð sem enginn eigandi ofantaldra
brfreiða hefur efni á að hafna.
SMYRILL HF.
ÁRMÚLA 7 - REYKJAVÍK - SÍMI84450.