Dagblaðið - 16.12.1980, Blaðsíða 27
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1980.
43
-GSE
VERKALÝDSHREYFINGIN: RÍKI í RÍKINU - sjónvarp kl. 22,45:
Samskipti aðila vinnumarkaðaríns
Jón Baldvin Hannibalsson ritstjóri er
umsjónarmaöur umræðuþáttar um
verkalýðshreyfinguna í sjónvarpi í
kvöld. Þeir sem taka þátt í umræðun-
um eru: Ásmundur Stefánsson forseti
ASÍ, andófsmaðurinn, málvísinda-
maðurinn og öskukallinn Guðmundur
Sæmundsson og Sigurður Líndal próf-
essor sem fjallað hefur mikið um
vinnulöggjöfina. Inn í umræðurnar er
skotið viðtölum við ýmsa menn sem
tengjast þessum málum. Rætt verður
við Vilmund Gylfason sem lagt hefur
fyrir Alþingi frumvarp um starfs-
greinafélög. Guðjón Jónsson, for-
maður málm- og skipasmiða, er
spurður um afstöðu hans til frumvarps-
ins. Einnig er rætt við Baldur
Guðlaugsson lögfræðing, fyrrverandi
framkvæmdastjóra Vinnuveitendasam-
bandsins. Lýsir hann reynslu sinni af
samskiptum vinnuveitenda og verka-
?ýðs þegar hann var framkvstj. VSÍ.
Jön Baldvin sagði að það væru aðal-
lega þrjár spurningar sem hann leitaði
svara við. Þær væru: Er verkalýðs-
hreyfingin fyrst og fremst bitbein
stjórnmálaflokka? Er skipulag vcrka-
lýðshreyfingarinnar úrelt? og Eru
samskipti aðila vinnumarkaðarins,
verkalýðs, vinnuveitenda og ríkisvalds,
eins og bezt er á kosið eða er hægt að
koma þeim í betra horf?
Væri hægt að koma málefnum þeirra fyrir á haganlegri hátt?
Jólagetraun Dagblaðsins 1980
IV.HLUTI
Vinningarnir í Jólagetraun Dag-
blaðsins að þessu sinni eru með glæsi-
legasta móti. Fyrstu verðlaunin eru
Nordmende myndsegulbandstæki að
verðmæti rúmlega 1.5 milljón
króna. önnur og þriðju verðlaun eru
nýútkomin myndabók Halldórs
Péturssonar listmálara. Hvor um sig
kostar um 39 þúsund krónur.
Heildarverðmætið nær því rúmlega
sextán hundruð þúsundum, svo að til
mikils er að vinna að þessu sinni.
Getraunin að þessu sinni er fólgin í
því að geta upp á nöfnum íslenzku
jólasveinanna. Daglega birtist ein
jólasveinamynd eftir Halldór Péturs-
son og þrir möguleikar á nafni. Þátt-
takendur eiga siðan að strika undir
það nafn, sem þeir telja réttast, skrifa
nafnið sitt á seðilinn og þegar allir tíu
hafa birzt á að senda þá til Dagblaðs-
ins, Síðumúla 12, 105 Reykjavík og
merkja umslagið „Jólagetraun”.
Skilafrestur er til 30. desember, svo
að rétt er að benda þátttakendum á
að flýta sér að koma úrlausnunum í
póst.
Jólasveinninn, sem nú er kynntur,
heldur sig aðallega I eldhúsum innan
um mataráhöldin. Ef afgangar verða
að málsverði loknum á hann það til
að næla sér í leifarnar, áður en
vaskað er upp. Hvað skyldi hann
heita þessi matgráðugi þokkapiltur?
NAFN
HEIMILI...........................................................
Stríkid undir þaö nafn, sem ykkur þykir llklegast. Klippið siðan mynd-
ina op lausnina út og peymið með þeim níu, sem ú eftir koma. Þepar sið■
asti jólasveinninn hefur birzt á Þorlúksmessu, setjið þá allar lausnirnar I
umslag op merkið það:
Dagblaðið „Jólagetraun"
Síðumúla 12 105 Reykjavík
Skilafrestur ájólagetrauninni er til 30. desember.
Fyrsti vinningurinn I Jólagetrauninni að þessu sinni er
Nordmende myndsegulbandstæki að verðmæti
1.525.700 krónur. Það er gert fyrir svonefnt VHS
kerft, sem um áttatlu prósent allra myndsegulbands-
tækja í Evrópu og Bandarikjunum hafa. Óátekin
sextiu minútna löng spóla i tækið kostar nú 21 þúsund
krónur. Að sögn forráðamanna Radióbúðarinnar, sem
hefur umboð fyrir Nordmende tæki, er taisvert um að
fólk kaupi myndsegulbandstæki til jólagjafa — alla
vega standa Nordmende tækin stutt við þegar nýjar
sendingar koma. Upptökuvélin sem sést á myndinni
fylgir ekki með. Slikar eru þó til sölu og kosta um
hálfa aðra milljón króna.
Pottasleikir
Pálmi á Akri
Pétur sjómaður
Akureyri, höfuðstaður Norðurlands, um jólaleytið.
NÚ ER HANN ENN Á N0RÐAN
—útvarpkl. 22,35:
Menningarstarf-
semi á Norðurlandi
„Fjallað verður um menningar-
samskipti á Norðurlandi,” sagði
Guðbrandur Magnússon, umsjónar-
maður þáttarins Nú er hann enn á
norðan, sem er í útvarpi kl. 22.35 í
kvöld. Haldin var ráðstefna á vegum
Fjórðungssambands Norðurlands
helgina 5.—7. des.á Hótel Varðborg,
Akureyri. Aðalmál ráðstefnunnar
var „hvernig hægt væri að samræma
menningarstarf í fjórðungnum.”
Guðbrandur ræðir við framsögu-
menn á ráðstefnunni . Talað er við
Kristin G. Jóhannsson, Örn Inga,
Einar Njálsson, Pétur Þórarinsson og
Sturlu Bragason. Þeirri spurningu er
m.a. varpað fram hvað þeir telji
brýnast að aðhafzt sé I menningar-
málum fjórðungsins. Einn þessara
manna, Kristinn G., er formaður
Félags- og menningarmálasambands
Norðurlands og stóð hann fyrir þess-
ari ráðstefnu. Guðbrandur sagði að
það hefði verið á döfinni dálítið lengi
að halda ráðstefnu um þessi mál, vit-
að væri um listamenn víða um
fjórðunginn, myndlistarmenn, tón-
listarmenn og leikstarfsemi, sem ekki
færu utan sinnar heimabyggðar,
en væri full ástæða til að fleiri fengju
að njöta þeirra. Til er sjóður sem
ætlað er að styðja starfsemi af þessu
tagi, en ekki er nýttur. Á ráðstefn-
unni var stofnuð samstarfsnefnd til
að sjá um að þessi mál væru færð I
betra horf. Einnig flytur Steinar Þor-
steinsson norðlenzkan pistil. Steinar
er formaður neytendasamtakanna á
Akureyri og fjallar hann um
neytendamál. -GSE.
TAMNINGAR
Get tekið að mér tamningar og þjálfun á hrossum. Uppl. í
síma 99-4592.
Pétur Gunnar Pétursson
Hveragerði.
LAMPA-
og skermamarkaður
5 0n0/ft AFSLATTUR
ÆAM /O TIL 21. DESEI
HEIMAEY SÍM114220
DESEMBER
AUSTURSTRÆTI 8
Samhjálp auglýsir:
Samhjálparplatan
fœst í afgreiðs/u
Samhjálpar
Hverfisgötu 42.
Opið kl. 13-18.
Sendum í póstkröfu um allt
land. Símar 11000 — 66148.
Utvarp
Sjónvarp