Dagblaðið - 30.12.1980, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 30.12.1980, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1980 3 ER FRIDJÓN OF VANUR NEI- KVÆÐUM ÁKVÖRDUNUM? —Getur hann ekki breytt til? Forvitin skrifar: Með sjálfri mér hef ég reynt að réttlæta eða finna skýringu á þeirri ákvörðun Friðjóns að reka Gerva- soni úr landi. Mér líkar ekki að þurfa að skammast mín fyrir að vera íslendingur og bið því stuðningsmenn Friðjóns um að svara nokkrum spumingum og hjálpa mér að finna skýringu. Það er búið að skrifa svo mikið um þær þrjár ástæður sem Friðjón gaf í upphafi og rekja þær niður í botninn svo þær eru ekki lengur neinar ástæður. Það sem siðast heyrist aðal- lega er það að maður sem hefur brotið af sér i sinu heimalandi geti ekki fengið hæli hér. Nú flýr fólk sitt heimaland oft vegna þess að það getur ekki lifað við þau lög sem þar eru í gildi. Ef Rússi flýði frá Rúss- landi, gæti hann þá ekki fengið hæli hér? Hann verður jú að brjóta rúss- nesk lög því það er bannað að fara frá Rússlandi án þess að hafa leyfi stjórnvalda. Friðjón sagði i sjónvarpi að hann tæki neikvæðar ákvarðanir um líf manna á hverjum degi. Ég veit ekki hvort það sé ein af ástæðunum. Er maðurinn orðinn það vanur að taka neikvæðar ákvarðanir að hann getur hreint ekki breytt til þó hann hafi ástæðu til þess? Ef svo er, er þá maðurinn ekki óhæfur til að gegna þessu starfi? Mig langar líka til að vita hvers vegna Danir eru betur færir um að taka á móti Gervasoni en við. Eru þeir í betri aðstöðu til þess? Nú eru þeir ekki lengur skyldugir til þess þar sem Gervasoni hefur fengið atvinnuleyfi hér. Fólk skrifar um það í blöðin að Gervasoni og Guðrún Helgadóttir hafi staðið t því að æsa fólk upp i þessu máli. Ég vildi gjarnan fá skýr- ingu því mér skilst að Friðjón eigi mesta sök á því. Ef hann hefði gefið fólki viðunandi skýringu (ef hún er til) á sinni ákvörðun þá hefðu þessi læti aldrei orðið. Endursýnið Innrásina Páll hringdi: Ég skora á sjónvarpið að endur- sýna myndina um innrásina í Tékkó- slóvakíu. Hún var sýnd á óheyri- legum tíma þegar margir voru að sinna jólaundirbúningi. Ég var einn af mörgum sem misstu af þessari mynd en ég hef heyrt marga tala um að hún hafi verið mjög góð. Skammar- legfram- komaút- varpsins —ófyrirgefanlegt ranglæti gagn- vartsjúklingum Þorleifur Guðlaugsson (9691—4520) skrifar: Ég vil vekja athygli á skammarlegri framkomu Ríkisútvarpsins gagnvart þeim sem reyna að koma á framfæri kveðjum í óskalagaþætti sjúklinga. Það var á afmælisdegi útvarpsins, laugardaginn 20. desember 1980 að óskalagaþátturinn átti að vera að venju. En hann var nær þurrkaður út af dagskránni. Síðan var endurtek- inn þáttur með negratónlist. Hefði ekki verið hagkvæmara að láta hann detta út af dagskránni og leyfa sjúklingum að fá sinn þátt, svona rétt fyrir jólin? Mér finnst þetta ófyrirgefanlegt ranglæti gagnvart sjúklingum og mjög lítillækkandi fyrir dagskrár- stjórn Ríkisútvarpsins. Ég tek fram að ég er ekki sjúkling- ur og hef ekkert á móti negratónlist i útvarpinu. Skemmti- þátturinn hrein auglýsing Stefán Guðmundsson, Skipasundi 19, hringdi: Ég vil lýsa vanþóknun minni á dagskrá sjónvarpsins laugardaginn 20. des. sl. Fyrir utan það að dag- skráin var hundieiðinleg og ætti alls ekki heima á laugardagskvöldi þá tel ég að síðasti dagskrárliðurinn, sem var þáttur með hljómsveitinni Brimkló, hafi verið hrein og kláraug- lýsing i formi skemmtiþáttar, aug- lýsing fyrir plötur, sem Hljómplötu- útgáfan h/f hefur nýlega sent frá sér. Varla er hægt að hugsa sér meiri auglýsingu rétt fyrir jólin og er þetta ekki í fyrsta skipti sem Hljómplötu- útgáfan fær svona auglýsingu hjá sjónvarpinu. Spurning dagsins Hvað er þér minnis- stæðast frá árinu 1980? Ómar Ragnarsson fréllamaður, Sjón- varpinu: Það var þegar ég sá upphaf Kröflugoss i sumar. Ég var þá að gera allt annað en að fara í gos þegar ég frétti að gufur væru farnar að koma upp. Ég fór á staðinn og sá þá gosið byrja. Helgi Pélursson fréllamaður, Útvarp- inu: Forselakosningarnar í vor og ánægjulegar niðurstöður þeirra unt leið og þa:r höfðu vissar afleiðingar fyrir mig. Ég skipli um slarf og það varð mjög gleðilegl fyrir ntig. Morgunblaðinu: Tilkoma nýrrar rikis- stjórnar sem við erum enn að biða eftir að laki til hendi. Af persónulegum al- burðum er mér minnisslæðast þegar ég þrammaði með 20 kg á bakimi úr Fljótsdal yfir Lónsöræfi i Hornafjörð i þessu dásantlega jöklakuli, grjóti og bleylu og naul hverrar minúlu af okkar hrikalegu fóslurjörð. Guðjón Friðriksson blaðamaður, Þjóðviljanum: Stjórnarmyndun Gunn- ars Thoroddsen og forsetakosning- arnar. Hvorl iveggja merkilegt og óvænt, sljórnarmyndunin vegna klofn- ingsins i Sjálfslæðisflokknum og for- seiakosningarnar vegna þess að kona var kjörin. í upphafi ársins hefði maður ekki gelað ímyndað sér að Gunnar yrði forsælisráðherra og Vigdís forseli, jafnvel þóll maður helði beitt imyndunaraflinu. Guðmundur Árni Slefánsson blaða- maður, Helgarpóslinum: Þróun efna- hagsmálanna og þær „draslisku" ráð- slafanir sem gerðar hafa verið i slagn- um við verðbólguna. Auk þess hinn mikli fjöldi boðbera válegra líðinda. sem skoiið hafa upp kollimtm. Fn horfum með bjarisvni fram á við. Guðjón Einarsson Ijósmyndari, Tim- anum: Minnisstæðust er mér sú viður- kenning sem blaðaútgefendur hafa sýnt á starfi ljósmyndara. í Sviþjóð segja þeir að Ijósmyndin sé númer eitt, fyrir- sögnin númer Ivö og greinin númer þrjú.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.