Dagblaðið - 30.12.1980, Qupperneq 17

Dagblaðið - 30.12.1980, Qupperneq 17
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1980 INNLENDUR ANNÁLL '80 Tveir islenzkir starfsmenn banda- ríska hersins urðu fyrir óskemmtilegri reynslu í Rockville-herstöðinni. Þar umkringdu hermenn íslendingana og beindu að þeim byssum. Þeir voru færðir upp að vegg og urðu að bíða með handleggi fyrir ofan höfuð. Eftir nokkurn tíma var mönnunum sleppt. Atvikið var kært til lögreglu, sem vísaði málinu til utanríkisráðu- neytisins. Ráðuneytið mótmælti at- vikinu síðar. Þrír rækjubátar fórust er ofviðri gekk yfir Vestfirði og með þeim sex menn. Tveir menn voru á hverjum báti. Bátarnir voru Vísir, Gullfaxi og Eiríkur Finnsson. Ofviðri þetta laskaði fjóra aðra báta og slösuðust sjómenn í látun- um. Bandariskur áhugamaður um hval- friðun dró upp seðlaveskið og vildi borga íslendingum milljón dollara ef þeir hættu hvalveiðum. Landinn vildi ekki þiggja milljónina og hélt áfram að drepa hvali. Marz Eldgos voru tíð á árinu. Byrjunin var gos við Leirhnjúk 16. marz.Gosið var nákvæm eftirlíking umbrotanna í september árið 1977. Gosið stóð stutt, en þunnfljótandi hraun þakti talsvert svæði. En Krafla hafði ekki sagt sitt síðasta orð. Jafnréttið verður stöðugt meira og merki þess sáust í marz. Þá ól verðandi sýslumaður Strandamanna barn. Sýslu- maðurinn er fyrsta konan, sem gegnir sýslumannsembætti, Hjördís Hákonar- dóttir. Apríl Hundruða milljóna kr. tjón varð á Akureyri er skipasmíðastöðin Vör eyði- lagðist í eldi. Eldurinn var mjög magn- aður og réð slökkvilið ekki við neitt. I húsinu var 30 tonna bátur, vörubifreið og traktorsgrafa og brann allt saman. Endurnýjun strætisvagna Reykja- víkur og Kópavogs stendur fyrir dyrum. Nýir vagnar voru boðnir út og vildu margir selja. Flestir fyrri vagna eru af gerðunum Volvo og Benz, en nú vildu Ungverjar selja mörlandanum Ikarusvagna. Þeir voru til muna ódýrari en þeir fyrrnefndu, en sumir efuðust um gæðin. Úrslit urðu þau að borgarstjórn Reykjavíkur og bæjar- stjórn Kópavogs ákváðu að kaupa nokkra Ikarusa til reynslu með öðrum vögnum. Sovétmaðurinn Kupreitshik sigraði á 9. Reykjavíkurskákmótinu. Margeir Pétursson stóð sig bezt þeirra íslend- inga sem þátt tóku í mótinu en hann varðió.—7.sæti. Lúxusvændi í Reykjavík? Lúxusvændi stundað á Norðurlanda- þinginu í Reykjavik sagði í frétt dönsku fréttastofunnar Ritzau og danska blaðsins Extra bladet. Fréttin, sem barst um öll Norðurlönd, var komin frá fréttaritara Ritzau á íslandi, Borg- þóri Kærnested. Þar sagði að sýninga- stúlkur í Módelsamtökunum hefðu boðið blíðu sína í veitingahúsinu Holly- wood fyrir okurfé meðan þing Norður- landaráðs stóð í Reykjavík. Extra bladet sagði síðan að fréttin væri mistök fréttaritarans. Borgþór sagðist hins vegar standa við frétt sína en neitaði að gefa upp heimildarmenn. Ólafur Laufdal veitingamaður í Holly- wood fór fram á rannsókn lögreglu á áburðinum og Módelsamtökin kröfð- ust þess að nöfn sýningarstúlknanna yrðu hreinsuð. Flugleiðamenn voru á ríkisstjórnar- fundum dag eftir dag og vildu ríkis- ábyrgð á lán strax. Ríkisstjórnin ákvað að veitaFlugleiðum skilyrta ríkisábyrgð fyrireinum milljarði gegn því m.a. að Flugleiðir segðu upp samningunum við Seabord og viðhaldið kæmi heim. Þá átti að skipa eftirlitsmann með rekstri Flugleiða. Flugleiðaforingjarnir voru ekki par ánægðir með skilyrðin og allt sat viðsama. Dagblöðin tóku sig saman um skepnuskap 1. apríl og varð það til þess að margir hlupu apríl. Blöðin skýrðu frá þvi að á boðstólum væru 300 japanskir útsölubílar fyrir spottprís, eða hver á aðeins 2.2 milljónir króna. Bílar þessir voru sagðir útbúnir fjöl- mörgum nýjungum, m.a. tölvustýrðum hemlum. Það stöðvaði þó ekki æsta kaupendur, sem þeystu í Hafnarfjörð til þess að kaupa hina nýju Mihitzubila. Var þeim vorkunn, því það fylgdi frétt- inni að allir bankastjórar og útibús- stjórar Landsbankans fengju þessa nýju og glæsilegu vagna. Pörupiltar af unglingaheimilinu í Samningar tókust milli Islendinga og Norðmanna I Jan Mayen málinu. Myndin var tekin á lokastigi samningaviðræðnanna i Osló er Ólafur Ragnar Grlmsson sendi Frydenlund utanrikisráðherra Noregs tóninn fyrir „dirty trick”—bolabrögð undir það siðasta. Á myndinni eru einnig Eyvind Bolle sjávarútvegsráðherra Noregs og Ólafur Jóhannesson utanríkisráðherra. DB-mvnd Sigurjón Jóhannsson. Ivan Rebroff dvaldi hér á landi um tfma við söng, át og drykkju. Hann lét heldur vel að flugfreyju Flugleiða Birnu Pálsdóttur við komuna hingað. DB-mynd Ragnar Th. íslendingar og Norðmenn þrefuðu um skiptingu landhelginnar við Jan Mayen. Norskir ráðherrar komu til við- ræðna hér á landi. Ólafur Jóhannesson utanríkisráðherra og Frydenlund utan- ríkisráðherra Noregs höfðu að margra mati gert með sér „prívatsamning” og lagði Ólafur áherzlu á að samningur þessi yrði samþykktur. Það varð þó ekki, enda andstaða mikil gegn samningsdrögunum. Ákveðið var að íslendingar færu til viðræðna i Noregi í maí. Dagblaðið og barþjónar efndu til keppni um bezta óáfcnga drykkinn. Það voru engir aðrir en drykkirnir ógn- vekjandi og beinasni sem sigruðu. Stórsöngvarinn Ivan Rebroff dvaldi hér á landi i nokkuð langan tíma, söng, drakk og át. Jötunn þessi hefur vöxt til þess að gera allt þetta á sama tíma. Hjá honum var hákarl og brennivín efst á óskalistanum og mun honum hafa orðið að óskum sínum. Þrír menn fórust með 15 tonna báti við Vestmannaeyjar. Á bátnum voru feðgar og félagi þeirra. Mennirnir voru allir úr Reykjavík. Sjómannadeila stóð lengi mánaðar- ins á Vestfjörðum og stöðvuðust m.a. allir Vestfjarðatogararnir. Dagblaðið var enn á vaktinni og fann stolna gripi. Nú voru það helgigripir sem stolið var úr Fríkirkjunni í Reykja- vik. Ókunnur maður hríngdi í blaðið og sagði munina falda I öskutunnu á Norðurstíg. Við athugun fundust grip- irnir þar. Kópavogi gerðu óskunda í Stykkis- hólmi. Þeir brutust inn og stálu skipa- rakettum frá björgunarsveitinni. Slíkri rakettu skutu þeir síðan á loft, en ekki vildi betur til en svo að hún fór inn i gegnum glugga á barnaheimilinu. Mildi var að ekki hlutust af slys. Prump og f ret í útvarpinu Yfir páska heyrðist prump og fret i ríkisútvarpinu. Það voru þó ekki búk- hljóð útvarpsmanna, sem bárust út í loftið, heldur bilun I tæknibúnaði út- varpsins. Tæknibúnaðurinn batnaði þó fyrir jól, er ríkisútvarpið komst í stereóá 50áraafmælinu. Þá var ófremdarástand á Vita- og hafnarmálaskrifstofunni í Kópavogi. Þar var skrifstofufólkið á músa- og rottuveiðum og vinnudagurinn hófst á því að hreinsa sklt úr áðurgreindum kvikindum af bókum og skjölum. Maí Ingólfur ferðaskrifstofukóngur í Út- sýn tilkynnti að hann hygðist gefa ferðaskrifstofu sína Lista- og menn- ingarfélagi íslands, sem stofnað yrði til þess að reka ferðaskrifstofuna. Ekki Einum Fokker Flugleiða var nauðlent snilldarlega á Keflavíkurfluevelli vegna bilunar I hjólabúnaði. Engan sakaði og vélin skemmdist tiltðlulega litið.DB-mynd Ragnar Th. var annað vitað í árslok en Ingólfur ætti enn Útsýn. Kosningabarátta forsetakosninganna var fyrir alvöru hafin og sáust brosandi frambjóðendur víða á fundum með alþýðunni. Birtar voru fjölmargar vinnustaðakannanir, þar sem fram kom styrkur frambjóðenda. Reyndust Guðlaugur og Vigdís víðast efst. Einn frambjóðandinn var kominn fram enn, en það var Rögnvaldur Pálsson málara- meistari. Hann féll þó úr, áður en kom að aðalslagnum, þar sem honum tókst ekki að afla nægilega margra meðmæl- enda. Kaupmaður fullyrti í samtali við DB, að hingað til lands ætti sér stað stórfellt smygl á nautakjöti frá Argentínu. Sagt var að íslenzki stofninn annaði alls ekki eftirspurn eftir góðum vörum og að verzlanir og veitingahús væru I föstum viðskiptum. Blaðsöludrengur fékk í hendur falsaðan þúsundkall og var honum komið í hendur rannsóknarlögreglu. Þúsundkallar verða nú jafngildi aðeins 10 króna og er ekki víst hvort falsarar leggja sig niður við þær upphæðir. Landinn trúir augsýnilega á hjálp framliðinna. Það fékk Sigurrós hug- læknir á Hverfisgötunni að reyna. Viðtal birtist við hana um huglækn- ingar í DB og eftir það var gestagangur hjá henni ótrúlega mikill. Þá barst henni mikill fjöldi bréfa og voru ósk- irnar hinar fjölbreytilegustu. Vigdís með naumt forskot Dagblaðið efndi til skoðanakönn- unar um fylgi forsetaframbjóðend- anna. Þar kom fram að Vigdís hafði naumt forskot á Guðlaug, en Álbert kom þar talsvert aftar. Pétur rak síðan lestina. íslendingar og Norðmenn gerðu með sér samning um Jan Mayen og lauk þar margra vikna samningaþófi þjóðanna. Kveðið var á um loðnuveiði þjóöanna á svæðinu og nefnd manna um nánari skiptingu landgrunnsins. Ekki voru allir ánægðir með úrslitin, en Alþingi samþykkti samninginn. Elisabet Traustadóttir, sautján ára Reykjavíkurstúlka og nemandi í MH, var kosin fegurðardrottning íslands. Áður hafði hún verið kosin ungfrú Reykjavík, ogungfnj Útsýn þannig að vart verður fegurð hennar dregin í efa. Pylsuvagninn setti heimsmet í kvart- mílukeppni. Vagninn rann skeiðið á 2 mínútum og 50 sekúndum og hefur heimsmetabók Guinness staðfest heimsmetið. Rúta valt á Vaðlaheiði með 21 far- þega. Fjórtán farþeganna voru fluttir á sjúkrahús, en enginn slasaðist lífs- hættulega. Bíllinn valt vegna þess að hjól fór undan honum. Listahátíð, hin sjötta í röðinni, var

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.