Dagblaðið - 30.12.1980, Blaðsíða 21

Dagblaðið - 30.12.1980, Blaðsíða 21
20 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1980 c Iþróttir iþróttir Sþróttir Iþróttir Iþróttir „Leikmaður, sem ég mundi hafa f þýzka landsliðinu” —segir Vlado Stenzel um Þorberg Aðalsteinsson. Sigurður Sveinsson ein mesta stórskytta sem Stenzel hefur séð lengj í desemberhefU íþróttablaösins sem nýlega er komifl út, er itarlegt viðtal við Vlado Stenzel, Júgóslavann, sem verið hefur landsllðsþjálfari Vestur-Þýzkalands mörg undanfarin ár með frábærum árangri. ViðtaUð er að mestu um Stenzel sjálfan en hann kemur þó Iftlllega inn á fslenzkan hand- knattlelk. Þar eru höfð eftir honum athyglisverð ummæll um tvo islenzka leikmenn, Þorberg Aðalsteinsson, Viking og Sigurð Sveinsson, Þrótti. Stenzel segir i vlðtalinu. „Reynslan sýnir að lslendingar eru verðugir andstæðingar hvaða toppþjóðar í handknattleik sem er og ekki má vanmeta þá. Handbolti er ykkar þjóðaríþrótt og efniviður hjá ykkur mikUl. Fyrir leikina (landsleiki íslands og Vestur-Þýzkalands í Laugar- dalshöU í nóvember, innsk. DB) hér hafði ég mestar áhyggjur af Þorbergi Aðalsteinssyni. Ég man eftir honum úr 21 árs landsUði ykkar fyrir tveimur til þremur árum. Þá skoraði hann níu mörk gegn minu landsliði. Hann er leikmaður, sem ég myndi hafa í þýzka iandsliðinu. Sigurður Sveinsson er í dag ykkar athygUsverðasti leikmaður og ein mesta stórskytta, sem ég hef séð lengi. Islenzka landsliðið skortir stöðugleika og þegar hann verður til staðar skipar íslenzka landsliðið sér á bekk meðai átta beztu landsiiða heims.” Svo mælti sá frægi maður Vlado Stenzel, þjálfari og einvaldur heims- meistaranna i handknattleik, um islenzkan handknattleik i viðtali sinu Þorbergor Aflalsteinsson — kæmist f þýzka landsliðið hjá Stenzel. MÉR ÞYKIR ÞVÍ BETRA SEM ÉG ER SKAMMAÐUR MEIRA HRESSAR KONUR VERÐLAUNAÐAR BÖRN 0G GLERAUGU WKW l.tbl.43.árj>. l.jan. 1981. V'erö 18 nvkr. Nýrsvarturrisitil Grindavíkur Grindviklngar eru að fá nýjan körfuknattleiks- mann i llfl sitt i stafl Fricella, bandariska leik- mannsins af ftölskum ættum, sem afl undanförnu hefur leikifl mefl lifli Grindvikinga f 1. deild. Fricella hélt heim f jólafri nokkru fyrir jól og kemur ekld aftur. Nýi leikmaðurinn er bandariskur blökkumaður, Alex Gilbert afl nafni. Er frá Indiana og er 2.04 metrar á hæð. Það var Danny Shouse, leikmaflur Njarðvikinga, sem var milligöngumaflur Grind- vikinga i sambandi vifl ráðningu Gilbert Áður höfðu Grindvíkingar reynt að fá Mark Holmes til liðs við sig en urðu aðeins of seinir. Holmes haffli ráflið sig áfram i Argentfnu tveimur dögum áflur en Grindvfkingar leituflu til hans. Mark Holmes lék áflur með Grindvfkingum. handbolta í Keflavík Hraflmót f handknattleik verflur háð f nýja i- þróttahúsinu í Keflavfk á gamlársdag, 31. janúar. Þátttökulifl eru þrjú, Keflavík, unglingalandslið íslands, leikmenn 18 ára og yngri og ungiingalands- Ufl Íslands, leikmenn 21 árs og yngri. Mótið hefst Id. 13.00 og leiktíminn er 2x20 minútur. Liflin leika öll innbyrðis og mótinu lýkur sama dag. Svíarvoruíbasli með Frakka Sviar lentu i hinu mesta basli mefl franska lands- liflifl i handknattleik i úrsUtaleiknum f Tournio de France i siðustu viku i Frakidandi. Frábær markvarzla Heim-leikmannsins Hellström lagfli öðru fremur grunn að sigri sænska landsliðsins, 16—15, eftir að staðan f hálfleik haffli verifl 8—8. Svfar höfðu þó forustu f leiknum nær allan timann,Frakkar jöfnuðu af og til og hraði þeirra i leiknum var mjög mikill. Of mikill á stundum. Svf- þjóð komst f 13—10 i siflari hálfleiknum en Frakkar jöfnuflu i 14—14. Svfar skoruðu næstu tvö mörk 16—14 og þá var sigurinn i höfn þó svo Frakkar skoruðu siflasta markifl i leiknum. Danny Augustsson var mjög sterkur í vörn Svfa. í sókninni var Ribendahl beztur. Hann mun leika hér með Lugi 18. janúar i Evrópuleiknum gegn Viking. Augustsson var markhæstur Svia mefl 5 mörk, þar af fjögur úr vitaköstum. Ribendahl skorafli þrjú, Göran Bengtsson, Christer Magnusson og Mikael Ekdahl tvö hver, Basti Rasmussen og Peter Olofsson eitt hvor. Markhæstir hjá Frökkum voru Seriner og German með 3 mörk hvor. Franska landsliðið leikur hér i Laugardalshöll 27. jan. landsleik við ísland og einnig daginn eftir. Í B- keppni heimsmeistarakeppninnar, sem hefst i St. Etienne i Frakklandi 21. febrúar eru Svíar og Frakkar i sama riflli og tsland—B-riðlinum. Þar íeika einnig Austurriki, Pólland og Holland. island leikur vifl Sviþjófl 24. febrúar i Grenoble en við Frakkland 25. febrúar i Besancon. Illa farið með úrvalslið Hafnar Úrvalslið Kaupmannahafnar i hand- knattleik fékk stóran skell gegn Sovét- rikjunum f sfðustu viku. Leikið var f i- þróttahöllinni f Helsingör og sovézka landsliðifl vann með 31 marki gegn 15. í fyrri hálflelknum skoruðu sovézku leikmennirnir 19 mörk en Danir aðeins sex. Það var þvi ekki furða, afl dönsku blöðin skrifuðu um jólagjafir eftir leikinn. Sovézka landsliðið lék sjö leiki i keppnisför sinni til Danmerkur. DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1980 29 íþróttir _____________íþróttir__________________íþróttir________* » íþróttir }; Það eru ekki aliar ferðir til fjár i brunkeppni heimsbikarsins. Það fékk bandariski brunmaðurinn John Eneguess að reyna i St. Moritz nýlega. Hentist út úr brautinni á yfir 100 km hraða. Myndin að ofan er af atvikinu og það merkijega var, að sá banda- riski slapp ómeiddur úr þessum hildarieik. Kanadamaðurinn Steve Podgorski sigraði í brunkeppninni i St. Moritz — 10/100 úr sekúndu á undan Peter Winsberger, Austurrfki. „Litla heimsmeistarakeppnin” hefst íkvöld: Riðíaskipan gefur Uru- guay vissa möguleika —Er í riðli með Hollandi og Ítalíu „Litla heimsmeistarakeppnin” f knattspyrnu hefst i kvöld i Uruguay. Þar leika sex af beztu landsliðum heims í dag. Keppnin er háfl i tilefni þess, að fimmtíu ár eru frá þvf fyrsta heims- meistarakeppnln var háð. Það var i Uruguay 1930 og keppninni lauk mefl sigri Uruguay. Heimaliðið ‘ sigraði Argenginu 4—2 f úrslitaleiknum. Þrettán lönd tóku þátt i keppninnl f Uruguay. f tilefni afmælisins bauð knatt- spyrnusamband Uruguay fyrrverandi heimsmeisturum í knattspyrnu til keppninnar i Uruguay nú um ára- Enska bikarkeppnin á laugardag: Ipswich-Aston Villa stórleikur 3. umferðar Þriðja umferfl ensku bikar- keppninnar verflur háfl á iaugardag — 3. janúar. Í þeirri umferfl hefja liðin úr 1. og 2. umferfl keppni. 32 leildr verfla háflir f þriflju umferðinni og þessi lið leika saman. Barnsley-Torquay Utd. Bir mingham-Sunder land. Bury-Fulham Colchester-Watford Derby Co.-Bristol C. Everton-Arsenal Hull City-Doncaster Ipswich-Aston VUla Leeds. Utd.-Coventry Leicester-Cardiff Liverpool-Altrincham Maidstone-Exeter City Mancheste C.-Crystal Palace Manchester U.-Brighton Mansfield-Carlisle Newcastle-Sheffield W. Norwich City-Cambridge Nottingham F.-Bolton Wand. Notts County-Blackbum R. Orient-Luton Town Peterborough-Chesterfield Plymouth Argyle-Charlton Athl. Port Vale-Enfield Preston N.E.-Bristol Rovers Queens ParkR.-Tottenham H. Southampton-Chelsea Stoke Cith-Wolverhampton Swansea City-Middlesbrough West Bromwich-Grimsby Town West Ham Utd.-Wrexham Wimbledon-Oldham Athl. mótin. Boðið þáðu aiiir nema Engiendingar, sem ekki vildu fresta ]keppni heimafyrir vegna þessarar „litlu heimsmeistarakeppni”. í þeirra stað leika Hollendingar, sem á tveimur síðustu heimsmeistaramótum urðu í I öðru sæti. önnur Iðnd eru Uruguay— heimsmeistari 1930 og 1950 — Italía, heimsmeistari 1934 og 1938, Brasilia, heimsmeistari 1958, 1962 og 1970, V- Þýzkaland, heimsmeistari 1954 og ;1974, og Argentína, núverandi heims- meistari, 1978. England sigraði í keppninni 1966. Suður-Ameríku löndin þrjú, Uruguay, Argentína og Brasilía, hagnast á þvi að leikið er í Uruguay. Talið er að keppnin um efsta sætið ikomi til með að standa milli þeirra ;og Vestur-Þýzkalands, Evrópu- meistaranna, sem nú hafa aftur mjög góðu landsliði á að skipa. Það verður þó erfitt fyrir leikmenn evrópsku liðanna, V-Þýzkalands, Ítalíu og Hol- iands, að kóma úr vetrarkuldanum í Evrópu í hitann í Uruguay. Hiti þar er nú um 30 stig og það verða þvi mikil viðbrigði að fara allt i einu að leika i slíkum hita. Hann háir hins vegar ekki leikmönnum Brasilíu og Uruguay en að einhverju leyti leikmönnum Argentínu. Sumir þeirra koma frá liðum sínum í Evrópu til keppninnar eins og Ardiles, Tottenham og Kempes, Valencia. Brasilia á þó i nokkrum erfiðleikum vegna meiðsla tveggja bestu leik- manna sinna, Reinaldo og Zico. Fyrsti leikurinn i keppninni verður í kvöld og hefst kl. 21.00 að íslenzkum tíma. Þáleika Uruguay og Holland i A- riðlinum. Leikurinn verður sýndur beint í sjónvarpi í mörgum Evrópulöndum, m.a. Vestur-Þýzka- landi og Hollandi. I allt verður sjónvarpað frá keppninni í 11 klukkustundir í V-Þýzkalandi. öllum leikjunum sjö sjónvarpað. I A-riðlinum er Italía auk Uruguay og Hollands. Virðist miklu „veikari” en B-riðillinn, sem skipaður er heims- jmeisturunum Argentínu, Evrópu- jmeisturum Vestur-Þýzkaíands, auk imesta stórveldisins í knattspyrnu síð- justu áratugina, Brasilíu. Greinilega „lituð” riðlaskipan — möguleikar Uruguay til að komast í úrslitaleikinn ; 10. janúar virðast talsverðir. Allir sjö leikirnir í keppninni verða háðir á Centenario-leikvanginum í Monte- video. Fyrir þátttökuna fær hver þjóð 300 þúsund dollara og auk þess fá úr- slitaliðin tvö 100 þúsund dollara. Sjónvarps- og útvarpsrétt hefur knatt- jspyrnusamband Uruguay selt fyrir 3 milljónir 250 þúsund dollara. Eins og áður segir hefst keppnin í kvöld með leik Uruguay og Hollands. Dagskráin verður annars þessi: 1. janúar 1980, fimmtudagur, Argentina-Vestur-Þýzkaland. 3. janúar, laugardagur. Uruguay-ftalia 4. janúar, sunnudagur. Argentína-Brasilía. 6. janúar, þriðjudagur. HoUand-ítali. 7. janúar, miðvikudagur. Vestur-Þýzkaland-BrasUia. Úrslitaleikurinn verður svo háður laugardaginn 10. janúar. -hsim. Ámorgun munarum hveija krónu! Það hefur vonandi ekki farið fram hjá neinum að á miðnætti á sér stað gjaldmiðils- breyting hér á landi. Þótt breytingin sé í sjálfu sér einföld og enginn hagnist eða tapi hennar vegna er aðgát samt nauðsynleg því að mistök geta orðið dýrkeyþt. En til þess að breytingin gangi vel og hnökralaust þurfa allir sem einn að sýna þolin- mæði og tillitssemi og best er að fara sér hægt í viðskiptum - því á morgun munar um hverja krónu. GLEÐILEGT NÝÁR! ) '

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.