Dagblaðið - 30.12.1980, Qupperneq 36
44
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1980
ÍÞfíÓTTAANNÁLL 1980
Júlí:
LandsliðsþjáHarínn hætti
Ólympíuleikarnir í Moskvu stela
senunni í júlimánuði. Til þessa hafa
enn ekki verið haldnir umdeildari
leikar ef Hitlersleikarnir í Berlín 1936
eru e.t.v undanskildir. Leikarnir í
Moskvu tókust afar vel. Þátt-
tökuþjóðir þar urðu á endanum fleiri
en i Montreal 'fyrir 4 árum og afrekin
voru betri í heildina séð. Þrátt fyrir
að búizt hefði verið við að
Moskvuleikarnir snerust upp í einn
allsherjar skrípaleik varð sú ekki
raunin. Björninn stóri fyrir austan
sýndi Vesturlöndum hvers hann er
megnugur og leikanna mun verða
minnzt fyrir fádæmaglæsibrag.
Tveir þjálfarar vöktu athygli er
þeir sögðu starfí sínu lausu. Sýnu
meiri athygli vakti Jóhann Ingi
Gunnarsson, landsliðseinvaldur í
handknattleik, er hann lýsti því yfir
að ný stjórn HSÍ hefði hafnað sér
eftir tveggja ára starfsferil.
Ákvörðunin vakti e.t.v. enn meiri
athygli fyrir það að ekki voru nema 7
mánuðir i B-keppnina mikilvægu í
Frakklandi, sem allur undirbúningur
sl. tvö ár hafði verið miðaður við.
Hinn þjálfarinn var Magnús Jóna-
.tansson, þjálfari KR i knatt-
spyrnunni. Hann hætti um svipað
leyti og taldi sér ei fært að starfa á-
fram þar sem félagiö hefði ráðið
annan þjálfara — beinlínis til höfuðs
sér. Vakti mál þetta mikla athygli.
Þá vöktu tveir dómarar mikla
athygli í 3. deildarknattspyrnunni.
Annar þeirra vildi endilega hefja
einn leikjanna fyrr en gert hafði
verið ráð fyrir svo hann missti ekki af
sjónvarpsþætti um bandarísku
glæpahreyfinguna Ku Klux Klan.
Leikmenn þvertóku fyrir og vesalings
dómarinn varð af stórum hluta þátt-
arins. í hinu tilvikinu varð dómarinn
fyrir þvi óláni að vera ekki með nein
spjöld á sér er leikurinn hófst. Hann
gafst þó ekki upp og mætti til leiks
vopnaður Winston-vindlingapakka
og gulu hasarbláði. Höfðu menn
gamanaf.
Júlíus Hafstein, formaður HSÍ,
var enn í sviðsljósinu, er hann reiddi
fram 2,5 milljónir úr eigin vasa til að
bjarga fjárhag HSÍ fyrir horn. Oddur
Sigurðsson tapaði sínu fyrsta sprett-
hlaupi í meira en ár er hann varð að
lúta í lægra haldi fyrir Sigurði Sig-
urðssyni, sem náði sér verulega á
strik i sumar eftir mögur ár. Njarð-
víkingar hrósuðu happi er þeir
kræktu í „undramanninn” Danny
Shouse fyrir körfuboltavertíðina. Á
sama tíma lýsti Þorsteinn Bjarnason
því yfir að hann væri hættur í at-
vinnumannahugleiðingum um sinn
og gekk til liðs við sitt gamla félag,
ÍBK. Steinunn Sæmundsdóttir lagði
skiðunum og kvaðst í framtíðinni
ætla að helga sig golfleik og námi,
sem allt of lengi hefði setið á
hakanum.
Sigurður Gunnarsson fylgdi í fót-
spor fyrrum félaga sinna, Viggós
Sigurðssonar, og gekk til liðs svið v-
þýzka Bundesligu-liðið Bayern
Leverkusen. Sebastian Coe og Steve
Ovett létu ekki deigan síga og settu
hvor sitt heimsmetið á Bislett
leikvangnum í Noregi. Coe í 1000
metrum en Ovett í míluhlaupi. Ingi
Þór Jónsson og Ingólfur Gissur-
arson enn í sérflokki á meistaramóti
íslands í sundi.
Knattspyrnulandsliðið lék fjóra
landsleiki í mánuðinum. Sigraði
Færeyjar 2—1, Grænland 3—0,
gerði jafntefli við Svia I—1, en
tapaði óverðskuldað fyrir Noregi,
I—3 I Osló. Jafnteflið við Svía var
minna en Island átti skilið en í lokin
mátti landinn leljast heppinn.
Jóhann Ingi Gunnarsson lands-
liösþjálfari sagfli starfi sinu lausu
mjög á óvart.
Marteinn Geirsson hampar hér sigurverðlaununum i bikarkeppninni eftir 2—1 sigur
áíBV.
Cflntmihar1
Glæsilegur sigur lands-
fiðsins gegn Tyrkjum
Glæsilegur 3—1 sigur á Tyrkjum í
undankeppni HM og jafnframt eitt
mesta íþrótaafrek íslands á síðari
árum er vafalítið það sem stendur
upp úr i septembermánuði. í
steikjandi hita og brennandi sól
börðust íslenzku leikmennirnir eins
og hetjur og uppskáru glæsilegan
sigur. Fyrst þrumufleygur Janusar
Guðlaugssonar, þá negling Alberts
Guðmundssonar og loks fallegt mark
Teits Þórðarsonar færðu landanum
glæsilegan sigur, sem mun lengi
verða minnzt. Fyrsti útisigur Islands i
HM staðreynd.
Valsmenn urðu Islandsmeistarar í
knattspyrnu og verðskulduðu það.
Matthías Skagamaður Hallgrímsson
varð markahæstur i 1. deildinni með
15 mörk — langt á undan næsta
manni. Matthías lék með Val i sumar
og reyndist Hlíðarendaliðinu stór-
kostlega. Keflavik og Þróttur féllu
niður og Keflavík leikur í fyrsta sinn í
tæpa tvo áratugi í 2. deild. Reynir og
Skallagrfmur fluttust upp í 2. deild og
Borgarnesliðið leikur nú þar í fyrsta
skipti.
Kraftlyftingamenn Iyftu grettis-
taki. Þeir héldu á NM kraftlyftinga-
manna í Noregi og sneru þaðan með
tvenn gullverðlaun og tvenn brons-
verðlaun. Skúli Óskarsson og Jón
Páll Sigmarsson sigruðu i sinum
flokkum, en þeir Sverrir Hjaltason
og Ólafur formaður Sigurgeirsson
hlutu bronsverðlaun. Árangur Ólafs
kom mjög á óvart, þar sem hann
hafði hætt keppni en hóf átök á
lóðunum skömmu fyrir NM.
Badmintonlandsliðið gerði góða
reisu til Austurríkis og Ungverjalands
og gerði sér lítið fyrir og sigraði Ung-
verja 6—5. Það eru merk tíðindi.
Island hefur t.d. aldrei unnið Finna
og Finnar ávallt tapað fyrir Ung-
verjum þannig að greinileg sókn er í
greininni.
Islenzku félagsliðunum gekk mis-
jafnlega í Evrópumótunum þremur.
Skagamenn fengu verstu útreiðina.
Töpuðu 0—4 og 0—5 fyrir Köln.
Eyjamenn stóðu sig hins vegar
manna bezt. Náðu jafntefli hér
heima, 1—1, við Banik Ostrava, en
töpuðu úti 0—1. Fram lék við dönsku
bikarmeistarana Hvidovre og mátti
þola 0—3 tap, samanlagt — þar af
0—2 hér heima.
Landsliðið lék við Sovétmenn i
mánaðarbyrjun og tapaði 1—2.
Munaði ekki nema hársbreidd að
landinn næði að jafna í lokin.
Erlendis frá var það helzt títt að
Pétur Pétursson varð að gangast
undir skurðaðgerð í septemberlok og
á sama tima meiddist fyrrum félagi
hans af Skaganum, Karl Þórðarson,
svo illa að skera varð hann í
desember. Stór sigur Watford á
Southampton, 7—1, var það sem
mesta athygli vakti i Englandi
Leikurinn var í deildabikarnum og
hafði Southampton unnið fyrri
leikinn 4—1.
Matthias Hailgrimsson lék með Vals-
mönnum i sumar eftir afl hafa leildð
alla sina ævi mefl Skagamönnum.
Honum likafli raufli búningurinn
greinilega engu siflur en sá guli og
skoraði 15 mörk fyrir Val.
Ágúst:
Dómarinn og forráðamaður slógust
Slagsmál eftir leik ÍA og Vals síðla í
agúst komust i brennidepil. Ástæðan
var sú að þar áttu í hlut einn forráða-
manna Akranessliðsins og dómari
leiksins. Enduðu ósköpin með þvi að
dómarinn tók forráðamanninn
„hengingartaki” og linnti ekki fyrr en
hann lá í öngviti. Varð uppi fótur og fit
á eftir og var gerður aðsúgur að
dómaranum. Eftir nokkra daga tókust
sættir á milli deiluaðilanna og var
málið látið niður falla.
Bikarsigur Framara, sem var um
sömu helgi, féll í skuggann af þessu at-
viki á Akranesi en Framarar sigruðu
Eyjamenn 2—1 í fjörugum leik.
Mörkin þrjú voru hvert öðru fallegra
og flestir voru á þeirri skoðun að
sanngjarnara hefði verið ef Eyja-
skeggjar hefðu haldið heim með
bikarinn.
Framarar voru einnig í sviðsljósinu
skömmu áður en FH-ingar kærðu þá
og töldu Trausta Haraldsson, sem
hafði verið dæmdur í leikbann
skömmu áður, ólöglegan í 1—0 sigri
Fram yfir Hafnarfjarðarliðinu í undan-
úrslitum bikarsins. Eftir mikið þóf og
stapp voru Framarar sýknaðir af
kærunni og málið látið niður falla.
Kæran varð þó til þess að ákvæði um
gildistöku leikbanna voru betur af-
mörkuð.
Glæsilegur sigur íslands í Kalott-
keppninni í ágúst var vafalítið mesta
afrekið af hálfu landans. Þar kom vel í
ljós að á góðum degi eiga hinar
þjóðimar sem þátt taka í mótinu enga
möguleika gegn okkur.
Hannes Eyvindsson varð tslands-
meistari í golfi i ágústbyrjun í þriðja
sinn í röð. Sólveig Þorsteinsdóttir
sigraði i kvennaflokki. Þá varð Fram
íslandsmeistari í karla- og kvenna-
flokki í handknattleik utanhúss.
Breiðabliksstúlkurnar sigruðu í
Islandsmóti kvenna í knattspyrnu en
þvímiður voru þátttökuliðin aðeins 3
talsins. Akureyrarliðin KA og Þór
tryggðu sér bæði keppnisrétt i I. deild
á næsta sumri og það aðeins 6 ámm
eftir að þau hófu bæði að Ieika í 3.
deild eftir að ÍBA ákvað að tefla ekki
lengur fram sameiginlegu liði KA og
Þórs.
Jens Einarsson kom verulega á
óvart, er hann tilkynnti félagaskipti úr
Víking yfir í Tý í Vestmannaeyjum.
Tók hann að sér þjálfun Týrara en
fyrirgerði um leið landsliðssæti sínu.
Nokkuð á óvart hafnaði ísland neðst á
NM í golfi en vonir voru bundnar við
aðnálengra.