Dagblaðið - 15.01.1981, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15, JANÚAR 1981.
y
D
G
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
Svo bregðast krosstré sem önnur tré:
Fyrsta rauðsokkan fyrir
rétt í Sovétríkjunum
— kann að verða dœmdtil þrœlkunarvinnu eða útlegðar
í Síberíu
Brezk blöö hafa skýrt frá því, að
sovézka leyniþjónustan, KGB, beiti sér
nú gegn kvenréttindakonum. Nú
standa fyrir dyrum þar í landi réttar-
höld yfir Nátalyu Lazarevu og mun það
vera í fyrsta sinn sem kona í Sovétríkj-
unum er ákærð vegna baráttu fyrir
jafnrétti.
önnur kona, Natalya Maltseva,
hefur verið handtekin. Húsleitir og
yfirheyrslur yfir kvenréttindakonum
eru í fullum gangi, ekki sízt í Lenin-
grad, þar sem kvenréttindahreyfmgin
hefur haft aðalbækistöð sína.
Natalya Lazareva er upphaflega leik-
hússtjóri. En vegna jafnréttisskoðana
sinna hefur hún undanfarið ekki fengið
vinnu við leikhúsið og þurft að hafa
ofan af fyrir sér sem kyndari. Hún á
enga nána ættingja. Síðan í september
hefur hún setið í varðhaldi, trúlega
vegna þátttöku sinnar í svokölluðum
Maríuklúbbi, sem er stjórnvöldum í
Rússlandi þyrnir í augum. Þar er mið-
stöð kvenréttindabaráttunnar.
Kvenróttindabókmenntir
gerðar upptœkar
Natalya Lazareva er ákærð fyrir að
„ófrægja stjórnkerfi Sovétríkjanna af
ásettu ráði”. Hún á yfir höfði sér að
verða dæmd annaðhvort til þriggja ára
þrælkunarvinnu eða fimm ára útlegðar
í Síberíu. Við húsleit heima hjá henni
fundust kvenréttindabókmenntir sem
lögreglan gerði upptækar.
Sovézka kvenréttindahreyfingin kom
fram í sviðsljósið 1979 þegar hún hóf
útgáfu á fjölrituðu neðanjarðartímariti
sem nefnt var „Konan og Rússland”.
KGB reyndi strax að skjóta útgefend-
unum skelk í bringu með húsrannsókn-
um, likamlegum árásum og handtöku-
hótunum. Fjórar af forgöngukonum
tlmaritsins voru sendar úr landi rétt
áður en ólympíuleikarnir hófust.
Þrjár þessara kvenna hafa nú sent
frá sér yfirlýsingu, þar sem þær biðja
um stuðning frá vestrænum löndum.
Þær fullyrða í yfirlýsingunni að í byrj-
un síðasta árs hafi KGB oftar en einu
sinni ætlað að höfða mál gegn kven-
réttindakonum.
„En þeir létu alltaf undan síga vegna
ótta við almenningsálit heimsins . . .
Þeir hættu sér ekki lengra en senda
nokkrar konur úr landi. ”
Óskað eftir stuðningi frá
vestrœnum kynsystrum
„Maríuklúbburinn,” segja hinar út-
lægu konur ennfremur, „var stofnaður
meðan á umfangsmiklum hreinsunum
rétt fyrir ólympíuleikana stóð. Þess
vegna urðum við flestar að starfa
neðanjarðar.”
Þær eru hræddar um að nú hafi
KGB komizt yfir nafnalista og önnur
gögn sem geri kleift að hefja herferð
gegn rússneskum kvenréttindakonum,
„sem heyja göfuga og hættulega bar-
áttu”.
Fleiri en þessar útlægu konur heita
nú á allar kvennahreyfingar og lýð-
ræðisöfl að veita kvenréttindabaráttu i
Sovétrikjunum stuðning.
Rithöfundurinn Galina Grigoreva,
sem býr í Leningrad og er meðlimur 1
Marfuklúbbnum, hefur sent frá sér
hjálparbeiðni í sama dúr. Hún óttast
handtöku og æskir verndar gegn því
sem hún kallar „harðstjórn yfirvald-
anna”.
Menn velta þvi nú fyrir sér hvort
snaggaraleg viðbrögð rússnesku leyni-
þjónustunnar stafi af því að valdamenn
í landinu telji að skoðanir þeirra
mundu skjótt öðlast mikið og útbreitt
fylgi.
||p;
Kynlífy
svejh og
kímni-
gáfa
— er allt sem konur
þutfa til að halda
sér unglegum,
segir Joan Collins
Leikkonan Joan Collins, sem við
sáum m.a. leika á móti John Alder-
ton i siðustu mynd um Óvænt enda-
lok, hefur uppskriftina að því
hvernig bezt sé fyrir konur að halda
sér unglegum. Sjálf er Joan Collins
orðin 47 ára gömul.
En hér kemur uppskriftin: Nægi-
legur svefn, kynlíf og góð kímnigáfa.
Sjálf leggst hún í sitt tvíbreiða rúm
um niuleytið á kvöldin, gjarnan með
góða bók til lestrar eða horfir á sjón-
varpiðviðrúmstokkinneða. . . .?
Joan Collins með John Alderton i
Óvæntum endalokum.
Reynist ratsjáin vel munu möguleikar á notkun þyrla við t.d. erfiö björgunar-
störf enn aukast.
Ratsjá í
spaðanum
Brezkir vísindamenn eru þessa í myrkri og við slæm veðurskilyrði.
dagana að gera tiiraunir með nýja Þessi nýja tegund af ratsjá er byggð
gerð af þyrluspöðum sem gegna eiga inn í þyrlublaðið og síðan tengd við
tvöföldu hlutverki. í fyrsta lagi því ratsjárskerm í flugmannaklefanum.
að láta þyrluna fljúga en einnig að Tilraunir hingað til hafa gefið góða
virka sem ratsjár og þá aðallega við raun og næst mjög skýr og nákvæm
biindlendingar. mynd á ratsjárskerminn. M.a. getur
Þyrlur hefur lengi skort fullkomið ratsjáin greint bíla á ferð og mann-
tæki til aö tryggja öruggar lendingar verur þegar þyrlan er i lítilli hæð.
Brando með
kínverskri
Marlon Brando er í góðu skapi
þessa dagana. Hann er kominn í
ástarsamband við 19 ára kín-
verska stúlku, Niki Ling að
nafni.
Vinir hans segja að hann sé
orðinn nokkuð breyttur og far-
inn að hegða sér hálfeinkenni-
lega síðan hann kynntist
þessari kínversku stúlku. Hegði
hann sér eins og rómantískur
ungsveinn í ítölsku œvintýri þvi
hann geri lítið annað en að
syngja serenöður fyrir ástmey
sína við eigin undirleik á bongó-
trommu.
m .....-■>
Marlon Brando.
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njálsgötu 49 — Simi 15105
AUGLÝSING
um próf fyrir skjalaþýðendur
ogdómtúlka
Þeir, sem öðlast vilja réttindi sem skjalaþýðendur og dóm-
túlkar, eiga þess kost að gangast undir próf, er haldin verða
í febrúar nk., ef næg þátttaka fæst.
Umsóknir skal senda dóms- og kirkjumálaráðuneytinu
fyrir 31. janúar á sérstökum eyðublöðum, sem þar fást.
Við innritun í próf greiði próftaki gjald, er nemur helmingi
gjalds fyrir löggildingu til að verða dómtúlkur og skjala-
þýðandi. Gjaldið, sem nú er nýkr. 200,00, er óafturkræft,
þó próftaki komi ekki til prófs eða standist það ekki.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið,
29. desember 1980.