Dagblaðið - 17.01.1981, Blaðsíða 2
Samaíhvaðaflokki:
Þegar stól
amir
em famir
aðylja
7734—9146 skrifar:
Núgetég ekkioröabundiztlengur.
Hve lengi ætla Íslendingar að láta
þessa pólitíkusa vaða yfir þjóðina
með aðgerðir sem virðast hafa þann
tilgang einan að taka frá þeim sem
minnst hafa tii að láta þá hafa á
safúrfati er hafa það bezt. Þaö er alveg
sama hvar í flokki þetta fólk er, um
leiö og stólarnir eru farnir að ylja á
þeim afturendann gefur það dauöann
og djöfulmn í yfirlýsta stefhu og gerist
eiginhagsmunaseggir af verstu sort.
Ég er hér ekki að meina neinn einn
sérstakan stjórnmálamann heldur
alla með tölu. íslendingar, það gerir
ekkert gagn að sitja heima hjá sér eða
á vinnustað og rifast við vinnufélag-
ana eöa fjölskylduna um ástandið.
Við verðum að rísa upp og sýna þessu
fólki að við erum ekki endalaust
reiðubúin aö fórna okkur fyrir
braskara þjóðfélagsins. Hér með
skora ég á alla þá sem hafa manndóm
í sér, að fylkja liði og stofna nýjan
stjórnmálafiokk sem hefur það að
megin markmiði að berjast á móti því
misrétti sem átt hefur sér stað á
undanförnum árum og áratugum.
Það þarf að þrífa rækilega og moka
skítnum úr öllum krókum og kimum.
Ég trúi því ekki að íslendingar séu
slíkar bleyður að þeir taki öllu þegj-
andi og kyssi hönd þessara hræsnara,
sem þykjast vera að berjast fyrir al-
menning. Og ef eitthvað fer aflaga þá
fela þeir sig á bakvið þetta svokallaða
kerfi, sem þeir hafa byggt utan um
sig, svo þeir þurfi aldrei að svara fyrir
gerðir sínar. íslendingar, hvar er nú
bardagaþrekið sem við áttum einu
sinni eða er það bara eintómur skáld-
skapur og ímyndun. Tökum nú
höndum saman allir þeir sem þora aö
rísa á móti þeirri stefnu sem nú ríkir,
rekum þetta sparifólk úr stólunum.
Skíðaskálinn
í Hveradölum
—starfsfólkiþakkað
Atta ferðalangar eru ánægðir með móttökurnar sem þeir fengu i Skiðaskálanum f
Hveradölum.
Átta ferðalangar skrifa:
Sunnudaginn 11. jan. vorum viö
stödd uppi á Hellisheiði og hrepptum
þar hið versta veður. Eftir mikið og
erfitt limaskak á móti ægilegum og
skapilium veðurguðum komumst við
loks að Skíöaskálanum I Hveradöl-
um.
Voru móttökur þar hinar beztu og
þökkum við starfsfólki skálans kær-
lega fyrir góða þjónustu. Sannaði
Skíðaskálinn þarna enn einu sinni
hversu mikilvægur hann er fyrir
hrakið ferðafólk. Auk þess viljum
við koma á framfæri þakklæti til
Hjálparsveitar skáta Reykjavík fyrir
skjót viðbrögð.
I tuttogskýrbr
1 ^onúmer tefum það JaðrJZn
l "otnnúmer. Þetta er lltil r U'
, "« #
‘ LeSendur cru Mnframt minntir á að hrifeiac
1 0 hhreJ um',rða “I oð spara rúm ov
c/m betur „ skila. Bnf a;tu heizt ckkL
lenpnen 200-300 orð.
Sitttatimi lesentladálka DB er milli ,
tmJS tru mánudöKum titfiistu
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1981.
Bréfritara finnst nóg komið af staðlausum fullyrðingum um málefni bænda, m.a. hafi komið fram fuíiyrðing um að þeir fái
sérstakan ollustyrk, sem eigi sér enga stoð. Mvndin minnir á sveitastörf, en þarf ekkert frekar að vera úr sveit.
Fullyrðingar um sérstaka
Olíustyrki til bænda
—eru hrein þvæla og stafa af fáfræði
Ágústa Eirfksdóttir, Eiriksstöðum
Jökuidal, skrifar:
Í lesandabréfi í Dagblaðinu þann
30. des. siðastliðinn var svohljóðandi
klausa: „Vinnustaður bóndans er við
húsdyrnar, hann fær oliustyrk en
ekki Reykvíkingar og nágrannar
ekki”. Það er orðið alvarlegt mál og
ekki iengur hægt að Iáta því ómót-
mælt, þegar svo oft er búið að þylja
gömlu þvæluna um endalausa styrki
til landbúnaöarins, að fólk nennir
ekki lengur að kynna sér málin en
slær þvi föstu aö alit sem heitir
styrkur sé bara fyrir bændur.
Oliustyrkur er eingöngu greiddur
vegna upphitunar íbúðarhúsa. Hans
njóta þvi ekki aðrir bændur en þeir
sem hita hús sin með oliu og auk þess
allir þéttbýlisbúar sem hiö sarna er
um að segja. Olíustyrkurinn er auk
þess í þvi formi aö greidd er ákveðin
upphæö á hvern heimilismann og
skiptir þar engu máli stærð íbúðar-
húsnæðisins eða olíumagn sem eytt
er, hvað þá bíla- eða dráttarvélaeign
bænda.
Þetta er gert til að jafna aðstöðu-
muninn milli þeirra sem hafa tiltölu-
lega ódýra hitaveitu eða rafmagns-
upphitun og þeirra sem kynda hús sín
enn með rándýrri olíu.
Fjöldi bænda hefur nú rafhitun í
húsum sínum og fær því engan olíu-
styrk eða neinn styrk í öðru formi.
Fullyrðingar um styrki til bænda i
sambandi við bíla og önnur ökutæki
eru hrein þvæla og stafa af hreinni
fáfræði og benda til aö viökomandi
fylgist alls ekki með hvað gerist í
þjóðfélaginu.
Ég skal verða siöust til að efast um
það að það sé orðiö dýrt fyrir Reyk-
víkinga, sem eiga Iangt á vinnustað
að komast að og frá vinnu.
En það er líka teygjanlegt þetta
með vinnustaöinn við bæjardyrnar.
Bezt væri nú að kynna sér dálítið
störf til sveita, áður en slíku er slegið
fram. Og hvað er langt í verzlun úr
mörgum sveitum landsins og hvernig
eru vegirnir? Ég á t.d. 90 km leið að
fara til næstu verzlunar- og þjónustu-
miöstöðvar, ég þarf sem sagt að ferð-
ast eina 180 kilómetra til þess að
kaupa allar nauðsynjar heimilisins,
leita til læknis eða komast í banka,
svo eitthvað sé nefnt. Vegurinn er
þannig að menn verða aö eiga jeppa.
Hvað skyldi nú verzlunarferðin kosta
bara í venjulegu góðu leiði? Og
bensínið komið í 595 kr. Vegagerð
ríkisins er heldur ekki hér á ferð viku-
lega á veturna. Hún sést ekki hér fyrir
jólin þótt vegir væru hálfófærir
vegna snjóa. Þá voru dæmi til að
bændur sem fóru í verzlun fyrir jólin
þyrftu 90 lítra af bensíni til að
komast þessa vegalengd. Geta ekki
allir verið sammála um að það hljóti
að vera lágmarks mannréttindi hér á
landi aö komast í kaupstað fyrir jól.
Væri svo rétt að vita hvað fólk
utan Reykjavíkur á við að búa áður
en skrifaðar eru fullyrðingar i blöð
um misréttiö í þjóðfélaginu? Styrkja-
söngurinn mætti lika fara aö lækka,
ég er búin aö búa í sveit milli 20 og 30
ár og hef ekki hingað til fengið aðra
styrki en framlag til jarðræktar. Ég
skora nú á aörar bændakonur og
bændur að svara næstu fjarstæðu
sem fáfróðir menn skrifa um okkar
stétt. Réttmæta gagnrýni eigum við
aftur á móti að þola og læra af henni.
Nafnnúmer finnst mér sama og dul-
nefni.
Flytjið inn plötur Joan Baez
Joan Baez aðdáandi skrifar:
Mig langar til aö kvarta yfir því að
það fást bara gamlar plötur með
Joan Baez í Reykjavfk. Einn vinur
minn keypti snældu með síðustu
plötu hennar, sem heitir „Honest
lillabye” úti í Bandarikjunum.
Snældan er frábær svo ég skil ekkert i
þvi að hún skuli ekki fást í Reykja-
vík.
Hverjir eiga að flytja hana inn?
Hún er gefín út undir merkinu CBS
Inc. Portrait. Vill einhver segja mér
hver er með umboðið fyrir Joan Baez
á Islandi. Mig langar svo í þessa
plötu, eins og allar plötur hennar því
hún er min uppáhalds söngkona.
SVAR:
Steinar hf. er með umboð fyrir CBS
Inc. Portrait á íslandi.
I
Joan Baez syngur fallega, hún nýtur
einnig mikillar virðingar fyrir ósér-
hlifni sina i baráttu fyrir friði.