Dagblaðið - 17.01.1981, Síða 1

Dagblaðið - 17.01.1981, Síða 1
t Flak DC—8 þotT^fíatÉ flugskyli Cargolux eftir brunann mikia aðfaranótt 'fimmtudagsins. Búkur '» þotunnar er brunninri en slókkvitiðsmenn unnu mikið afrek með því að þjarga vængjum þotunnar, þar gem voru 40 þúsund pund af eldsneyti. Litla myndin sýnir stól vélarinnar en þegar eftir brunann var málað yfir skjaldarmerki Saudi Araba, sem hafa viljað halda þvi leyndu hvaðan vélin er. DB-myndir Vafgeir Siqurðsson. Bruni Cargolux-þotunnar í Luxemborg: Slíkur bruni ætti Suðureyri við Súgandafjörð: BJARGAÐIST MEÐ NAUMINDUMÚRÍS- KÖLDUM SJÓNUM Hafnarverkamaður á Suðureyri við Súgandafjörð bjargaðist naum- lega eftir að hann féll í höfnina í fyrrakvöld. Unnið var víð uppskipun úr skipi Skipaútgerðar rlkisins, Coaster Emmy. Þegar maðurinn féll í sjóinn var mjög kalt í veðri, 12—14 stiga frost og sjórinn ískaldur. Mikill is var í höfninni. * Bjarghringur fannst ekki á bryggj- unni en bandi var kastað til manns- ins. Bílstjóri, sem var á bryggjunni, klifraði niður dekk sem hanga á bryggjunni og náði að draga mann- inn að. Þaðan var manninum bjargað en hann var þá við að gefast upp vegna kuldans. Þykir hin mesta mildi að ekki fór verr. Maðurinn var þegar fluttur heim og er hann nú að hressast eftir volkið. -JH/ÞT, Flateyri. ekki að geta orðið —sé allrar eðlilegrar varkárni gætt „Mér var hrint til og frá, öryggis- verðir voru alveg vitlausir og vaktfor- maður lét loka mig inni. Síðan var hringt á lögreglu og mér hent út af svæðinu,” sagði Valgeir T. Sigurðsson fréttaritari Dagblaðsins í gærkvöldi. Valgeir fór á vegum DB í gær og myndaði flak DC-8 þotunnar., sem brann í flugskýli Cargolux í Luxem- borg , aðfaranótt fimmtudagsins. Eins og lýsing Valgeirs ber með sér gekk það ekki andskotalaust, en í myndirnar náði hann. „Það er verið að rannsaka upptök ^brunans,” sagði Valgeir. „Það hefur ekkert nýtt verið látið uppi opinber- lega, en meðal manna hér 1 Luxemborg er mikið rætt um hvort um skemmdar- verk hafi verið að ræða. Þær tilgátur byggjast á því að þetta er þriðja þotan frá Saudi-Arabian Airlines, sem brennur á tiltölulega skömmum tíma. Rætt er um að eitthvað hafi verið fiktað við rafmagn vélarinnar, en ekk- ,ert liggur fyrir í þeim efnum.” Þess h var getið í útvarpi í Luxemborg í gær að allar líkur væru á því að eldurinn hefði kviknað á salerni vélarinnar fram við flugstjómarklefa. Valgeir sagði að engir íslenzkir flug- virkjar hefðu verið að vinna við vélina er eldurinn kom upp. Luxemborgarar og Bretar voru á vakt. Talið er að slikur bruni eigi vart að geta átt sér stað ef eðlileg varkárni er viðhöfð. „Það er rosalegt að sjá skrifstofu byggingu Cargolux. Þykkt sótlag er innan á veggjum og lofti og allt starfs- fólk er notað við þrifin. Þá er flug- skýlið mikið skemmt og mikill burðar- biti úr stáli, sem var yfir vélinni, er kengboginn. Slökkviliðið gekk mjög vasklega fram en talið er að slökkviliðs- mennirnir hafi ekki gert sér grein fyrir því hvílik hætta var á ferðum vegna eldsneytisins í vængjum vélarinnar,” sagði Valgeir. I -JH. Leikaradeilan: Samningar í sjónmáli „Þetta virðist allt stefna í rétta átt,” sagði Hörður Vilhjálmsson fjármálastjóri Rikisútvarpsins síðdegis i gær er DB spurði hvernig samningar útvarpsins við leikarai gengju. „Við vorum á löngum fundi í dag og síðan verður haldið áfram aftur á miðvikudaginn. Málin eru óðum að skýrast og útlinur samninga ættu að liggja fyrir fljótlega. Ég vona 'að málið verði leyst fyrir mánaða- mótin.” Leikarar hafa, sem kunnugt er, átt i vinnudeilu við útvarpið i langan tíma. Verkfall hefur staðið yfir frá þvi í haust þannig að engin leikrit hafa verið tekin upp eða önnur vinna leikara við útvarpið verið innt af hendi. „Stóra vandamáliö er,” sagði Hörður að leikurum finnst að ekki sé hægt aö sinna innlendri dagskrárgerð nógu mikið. Þetta finnst nú raunar mörgum öðrum. En málið er að þetta er mjög dýr framleiðsla og verður_ sennilega alltaf.” -JH.’

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.