Dagblaðið - 17.01.1981, Síða 6

Dagblaðið - 17.01.1981, Síða 6
6 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1981. TRAKTORSGRAFA TIL SNJÓMOKSTURS Traktorsgrafa,,mjög vel útbúin.til leigu, einnig traktor með loftpressu og framdrifstraktorar i með sturtuvögnum. Upplýsingar í síma 85272 og j 30126. LAUS STAÐA Staða styrkþega við Stofnun Árna Magnússonar á íslandi er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu um vísindastörf þau er þeir hafa unnið, ritsmíðar og rannsóknir svo og námsferil sinn og störf. Umsóknir skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfis- götuö, 101 Reykjavík, fyrir 14. febrúar nk. Menntamálaráðuneytið, 14. janúar1981. Torfusamtökin Með samningi við fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs frá 20., nóvember 1979 fengu Torfusamtökin umráðarétt yfir Bernhöftstorfu til 12 ára með fullum framleigurétti. Um nokkurt skeið hafa staðið yfir endurbætur á gamla landlæknishúsinu að Amtmannsstíg I. Þeim framkvæmd- um er að fullu lokið. Þar eru til húsa Veitingastofan Torfan, Gallerí Langbrók, Listahátíð, auk þess sem Torfu- samtökin hafa þar aðsetur. Torfusamtökin vinna nú að heilddaráætlun um frekari endurbætur og uppb.vggingu þeirra húsa sem hafa orðið eldi og vanhirðu að bráð. Hér er um að ræða húsnæði á milli 500 og 600 ferm að gólffleti. Gert er ráð fyrir að! húsnæði þetta verði tekið í notkun í tveimur til þremur áföngum og verði næsta áfanga — það er endurbótum áj liúsi Bernhöfts bakara að Bankastræti 2 — að fullu lokið á þessu ári. Torfusamtökin auglýsa hér með eftir aðilum er kynnu að hafa áhuga á afnotum á áðurnefndu húsnæði og lýsa sig reiðubúna til viðræðna eftir nánara samkomulagi. Skrif- legum umsóknum óskast skilað til Torfusamtakanna fyrir 25. janúar. Eldri umsóknir óskast góðfúslega endurnýjaðar. Allar frekari upplýsingar veita Torfusamtökin. Amt- mannsstíg I Reykjavík.sími I I148. ÞYRILL SF. Hverfisgötu 84 105 Reykjavík Sími 29080 platínulausar transistor- kveikjur fyrir allar gerðir bifreiða. Amerísk gæðavara. Gamlar krónur eða nVjar? Fimm þúsund eða fimmtiu? Ja, nú er um að gera að rcikna rétt! Myndin er tekin i einu útibúa Iðnaðarbankans. DB-mynd: F.inar Ólason. Myntbreytingin hefur gengið mjög vel: Of háar ávísanir taf- ariaust leiðréttar þjóðsögur um hið gagnstæða virðast ekki eiga við rökaðstyðiast Ýmsar sögur ganga nú manna á meðal á höfuðborgarsvæðinu um fólk sem í gáleysi hafi eftir áramótin gefið út tékka í gömlum krónum en. þær síðan verið leystar út sem nýjar. Sögur þessar eiga yfirleitt að hafa gerzt í viðskiptum við leigubílstjóra eða matvöruverzianir og lýkur þeim venjulega með því að rangsleitnin sigrar. Sú ólánsama persóna, sem gefið hefur ávísunina út, situr eftir með sárt ennið og hálfri eða heilli milljón gamaila króna fátækari, meðan þrjóturinn sem við henni tók hefur auðgazt á að sama skapi. Sennilega spegla þessar sögur þá skoðun sem virðist talsvert útbreidd hjá almenningi, sumsé að þegar slík ávisun hefur einu sinni verið gefin út /sé hún óafturkallanleg. Rannsóknarlögregl- unni hafa engar kærur borizt En þetta er algjör misskilningur., Af hálfu yfirvalda og fyrirtækja verður allt gert til að leiðrétta fljót- færnisskekkjur í ávísanakerfinu. DB hefur haft samband við banka- gjaldkera og bókhaldara á bifreiða- stöðvum og fullvissuðu þeir okkur um að öll slík mál yrðu leiðrétt þegar í stað. Við töluðum einnig við lögfræði- kennara í háskólanum sem tjáði okkur að ólögmæt meðferð ávisana gæti verið refsiverð, til dæmis fyrir þann sem gegn betri vitund reyndi að auðgast á slíkum viðskiptum. Aðai- reglan í slíkum málum er sú að sá, sem gefur út ávisunina, á kröfu á hendur þeim sem hagnazt hefur ólög- lega á viðskiptunum. Lögfræðingurinn hvatti þó til var- úðar. „Þaðgetur farið svo í reynd að slík bótakrafa nái ekki fram að ganga. Til dæmis ef sá seki er ekki borgunarmaður, kannske eignalaus, eða ef ekki tekst að finnahann.” Samkvæmt upplýsingum rann- sóknarlögreglunnar hefur engin kæra borizt þangað um svik af þessu tagi. Þeim var þó kunnugt um eitt tilfelli þar sem ávísun, hugsuð í gömlum krónum, var seld i banka sem nýkrónur. Útgefandi hennar ætlaði að reyna að fá leiðréttingu sjálfur í góðu, áður en hann legði fram kæru. Leigubílstjórar eru heiðarlegustu menn Það hefur einnig komið fyrir að fólk hefur í fljótfærni greitt leigubíl- stjórum með of háum ávísunum. Kannske hefur það orðið til að ýta undir sögusagnirnar. En leigubíl- stjórarnir hafa jafnan leiðrétt það um leið og þeir hafa áttað sig á því, enda heiðarlegustu menn. Okkur er kunnugt um einn bílstjóra sem þurfti að standa í miklu þrasi við viðskipta- vin sem endilega vildi skrifa handa honum ávísun upp á tíu þúsund krónur. Það jafngildir milljón sam- kvæmt gamla genginu og tókst bíl- stjóranum á endanum að sansa manninn á að við því fé vildi hann alls ekki taka. Á skrifstofu Hreyfils fengum við þær upplýsingar að örfáar of háar ávísanir hefðu borizt þangað — en útgefendur þeirra þurfa engu að kvíða. „Við leiðréttum allt slíkt á stund- inni,” sagði gjaldkerinn. Sönn saga af slfkum viðskiptum Eitt þessara mála var þannig vaxið að föstudaginn 2. janúar tók ung kona, af erlendu bergi brotin, leigu- bíl heim úr vinnu því hún þurfti að sækja barnið sitt á dagheimili. Barnið hafði beðið hennar með óþreyju, fannst vikan orðin meira en nógu löng, og hlakkaði til að fá móður sína algjörlega fyrir sig. Hún var því að flýta sér og þegar bílstjór- inn sagði að sér væri alveg sama hvort hún skrifaði ávísun i gömlum eða nýjum krónum skrifaði hún í gömlum 4.100 kr. en setti ekki Gkr. fyrir framan eins og maður á að gera. Á mánudeginum fékk hún bak- þanka og fór í bankann sinn og sagði frá málinu. Afgreiðslumaður- inn tók henni eitthvað fálega og hefur sennilega viljað undirstrika að bank- inn gæti náttúrlega ekkert gert í málinu fyrr en ávísunin bærist þangað. Hugsanlegur möguleiki væri að einhverjum tækist að innleysa hana annars staðar og er þó ólíklegt að nokkur banki mundi greiða sem samsvarar tæpa hálfa milljón í gömlu virði, án þess að kanna málið með upphringingu, þó ekki væri nema til að vita hvort útgefandi ávisunarintiar væri borgunarmaður fyrir henni. Nema hvað, konan hafði samband við Hreyfil, en þaðan var billinn. Kom ávísunin þar fljótlega í leitirnar og hún fékk hana aftur gegn greiðslu rétts fargjalds, enda var viðkomandi bilstjóra sízt í hug að hafa af henni fé, nema síður væri. Ár nízkunnar Það er hægt að ruglast á fleiru en ávísunum. Sumir gefa vitlaust til baka, færa ekki kommuna nema um eitt núll. Oftast er það af algjörum misskilningi. Þannig vitum við um leigubílstjóra einn sem krafði stúlku, sem hann ók, um 500 krónur nýjar fyrir aksturinn. Stúlkunni þótti það of mikið, en hann sat við sinn keip þangað til hún dró upp úr tösku sinni spjaldið góða, sem allir ættu að eiga, og fæst í bönkunum. Þar stendur svart á hvítu hvernig krónurnar breytast. Bílstjóranum varð mikið um, því hann hafði verið i góðri trú, en ruglast í núllunum. Þannig getur allt mögulegt komið upp á en mistök verða leiðrétt umyrðalaust. í rauninni hefur þetta allt gengið furðuvel, miðað við hvað breytingin er stór. Er það sjálfsagt því að þakka, að flestir reyna að hugsa sig vel um. Þeir gætnustu leggja ávísanaheftin alveg á hillunaþessa daga. Margir segjast vera farnir að spara núna þegar hver seðillinn hefur hundraðfaldazt í gildi. Ríkisstjórn- inni verður ef til vili að einhverju leyti að ósk sinni um að minnka neyzluna í landinu og þar með verð- bólguna. Eða eins og einn vinur minn orðar það: „Þettaverðurárnískunnar.” -IHH.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.