Dagblaðið - 21.01.1981, Page 1
A
írjálst,
úháð
dagblað
Dómsmálaráðherra Danmerkur lét
af embætti í gærkvöldi og gaf f ranska
flóttamanninum dvalarleyfi
áður en hann yfirgaf skrif stofuna:
Gervasoni
er frjáls
maöur
,,Ég er bæði hissa og ánægður með
þessi málalok,” sagði Ebbe Holm,
danskur lögmaður franska flótta-
"mannsins Patricks Gervasonis,
glaður í bragði í morgun þegar Dag-
blaðið hafði samband við hann.
Lögmanninum bárust í gærkvöidi
boð um að dönsk stjórnvöld hafi
veitt Gervasoni dvalarleyft i Dan-
mörku og skilriki sem i raun veita
honum frelsi og mannréttindi sem
hann hefur leitað eftir árum saman.
Ákvörðun danskra stjórnvalda kom
mjög á óvart og ekki síður það að
dvalarleyfið er ekki veitt Gervasoni
sem pólitískum flóttamanni, heldur
sem vegalausum útlendingi.
„Danska ríkisstjórnin tók mjög
skynsamlega á málinu og hengdi sig
ekki í formsatriði. Málsmeðferðin er
óvenjuleg og fá fordæmi um eitthvað
þessu líkt,” sagði Ebbe Holm.
Dönsk stjórnvöld hafa að öllum
likindum tekið óvænta ákvörðun sína
svo skjótt vegna breytinga sem Anker
Jörgensen forsætisráðherra boðaði á
ríkisstjórn sinni í gærkvöldi. í
morgun settist nýr maður, Ole Esper-
sen, talsmaður jafnaðarmanna á
þingi og fyrrverandi formaður út-
varpsráðs, I stól dómsmálaráðherra
hjá Anker. Henning Rasmussen lét
þá af embætti en hann hefur átt við-
ræður við íslenzka ráðherra og fleiri
um Gervasonimálið. Rasmussen lét
það verða sitt næstsíðasta embættis-
verk sem dómsmálaráðherra að veita
flóttamanninum landvist.
Formlega fær Gervasoni 6 mánaða
dvalarleyfi í Danmörku sem síöan
framlengist um 5 ár hafi hann fengið
vinnu eða leitaö eftir henni á fyrstu 6
mánuðunum. Að 5 árunum liðnum á
hann kost á enn frekari framlengingu
dvalarleyfis og að sögn lögmanns
hans þýðir þetta raunverulegt fram-
tíðardvalarleyfi. Gervasoni á að geta
feröazt til íslands á skilríkjum sínum.
-ARH/IHH
skuggann fyr-
ir gíslamálinu
Frá Slgurði Jenssyni fréttaritara DB i
Seattle:
Dagurinn i gær var einstakur hér (
Bandarikjunum. Það er furðulegt aö
fylgjast með þvf hvernig innsetning
nýs forseta hefur gersamlega fallið i
skuggann fyrir lausn gíslamálsins.
Hér I Seattle hefur rikt almenn
gleöi, kirkjuklukkum var hringt þeg-
ar staöfest haföi verið að flug-
vélarnar væru farnar frá Teheran
með gfslana innanborðs áleíðis til
Alsír og V-Þýzkalands. Menn skutu
töppum úr kampavínsflöskum og
skáluðu fyrir farsælli iausn málsins
og víöa í borginni mátti sjá gula
borða á trjám. Þar er vísaö til
alþekktrar sögu í Bandarikjunum og
frægs dægurlags, „Tie a yellow
ribbon”. Fangi sem var á heimleið
hafði beðið konu sína að binda gulan
borða á eikartré ef hún elskaði hann
enn. Sem nærri má geta voru
Jtundruö gulra borða á trénu.
Sjónvarpið hefur staðið sig frá-
bærlega i þessu máli með stöðugri
dagskrá, þar sem til skiptis er sýnt
frá Teheran, Alsír og V-Þýzkalandi,
inn á heimili aðstandenda gíslanna og
þarframeftirgötunum. .jh.
— sjá nánar um Stjömumessuna og vinsældavalið á bis. 17
7. ÁRG. — MIÐVIKUDAGUR 21. JANÍJAR 1981 — 17. TBL.
RITSTJÓRN SlÐLMÍILA 12. ALGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVF.RHOLTI 1 l.-AÐALSÍMI 27022.
VerHaunagripirnir eru steyptir i málmsmiðjunni Hellu I Slðumúla, sem tvisvar áður hefur levst sllkt verk afhendi. Þarna
virða listamennirnir og starfsmenn Hellufyrir sér einn yripinn. Frá vinstri eru Danlel Kristinsson, Árni Páll Jóhannsson.
Magnús Kjartansson og Birgir Guðlaugsson. Daníel og Birgir steyptu gripina og bjuggu til mótin.
DB-mynd: Sig. Þorri.
St jörnumessa Dagblaðsins og Vikunnar:
Verðlaunastytturnar steyptar
— miðaverð á Messuna hef ur verið ákveðið
Nú er búið að steypa um það bil
helminginn af styttum þeim, sem
afhentar verða á Stjörnumessu DB og
Vikunnar þann 12. febrúar. Ómögulegt
er að segja ennþá hve margar þær
veröa, því kosningu í Vinsældavalinu
lýkur ekki fyrr en um mánaðamót.
Úrslit í einum lið — söluhæsta
hljómplata ársins 1980 — liggja þó
fyrir. Verð hvers aðgöngumiða á
Stjörnumessuna verður 285 krónur.
Miðasala hefst að Hótel Sögu laugar-
daginn 7. febrúar og verða þá jafn-
framt tekin frá borð. Engar
miðapantanir verða teknar i síma. -ÁT-
*
Hverjir eiga rétt á f ríum
leikhúsmiðum?
Persónuleg ékvörðun þjóð-
leikhússtjóra eða ein algild
regla? — sjábis.5
Akureyri:
Tekur Hitaveitan
að sér brúargerð?
— sjá bls. 5
Hefsthandastrax
ídðS -sagðiReagan,
® erhanntókvið
forsetaembættinu í gær
— sjá erl. f réttir bls. 6-7
wKtmata