Dagblaðið - 21.01.1981, Page 3

Dagblaðið - 21.01.1981, Page 3
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. JANUAR 1981 .1 Búum vel að gamla fólkinu — látum það ekki skorta Guðbjörg hríngdi: Mér varð hugsað til þessa marg- umtalaða Víðishúss um daginn þeg- ar ég var að lesa um þær miklu hörmungar, sem margt gamalt fólk í Rvik býr við. Þetta fólk hefur unnið hörðum höndum allt sitt líf og á skilið að vel sé fyrir því séð á ævikvöldi þess. Ef til vill ættu þeir sem enn sitja heima hjá sér í jólafríi og hugsa um hýruna sem þeim var rétt á dögunum, þ.e.a.s. þingmenn, aðeyða einum föstudegi til að ræða þessi mál. Mér er spurn, liggur ekki meira á að hjálpa þessu fólki en að ausa fé í glæsiskrifstofur með sána og ljós- böðum fyrir fólk á bezta aldri, með bezta aðbúnað heima fyrir. Og athugið það, þið sem ráðið þessum málum, tíminn líður ög fyrr en varir eruð þið ef til vill komin í sömu aðstöðu og þetta fólk nú. En það er ef til vill óþarfi að minna ykkur á það, því þó að þið virðist ekki hafa haft tíma til að afgreiða ýmis þjóðþrifamálþáhafið þið alltaf haft tima til að sjá ykkar eigin hag borgið. Eða hvað kostar þingfararveizlan, sem við höldum þingmönnum árlega, mætti ekki koma upp aðstöðu fyrir einhverja í Víðishúsinu fyrir þá peninga? 2J® ésh Viflishúsið margfræga. HAHD HEMIL ÁHUNDUNUM Mismun- andi próf Á. J. hringdi: Hvernig getur þetta verið? Konan mín er í fjölbrautaskóla, byrjaði í Ármúlaskóla og lýkur þar þremur árum af fjórum. Síðan ætlaði hún núna i vetur að skipta yfir í Fjöl- brautaskólann i Breiðholti þar sem við erum flutt upp í Breiðholt. En þá getur hún það ekki þar sem þeir í Fjölbrautaskólanum i Breiðholti taka ekki gild þau próf sem hún hafði tekið i Ármúlaskóla. Hún hafði sam- band við menntamálaráðuneytið og þar fékk hún þau svör að mennta- skólarnir réðu því alveg hvernig nám væri uppbyggt og hvaða inntökuskil- yrði þeir settu. Mér finnst skrítið hvernig þessir skólar geta verið svona mismunandi. Svo er það annað, þegar sótt er um inngöngu i þessa skóla, fæst hún ekki fyrr en maður hefur greitt svokallað inntökugjald sem er víðast 15 þús. en það rennur síðan til hinna ýmsu klúbba, sem sárafáir taka svo þátt í. Unnur hringdi: Miðvikudaginn 7. janúar sl. var ég að vitja leiða í gamla kirkjugarðinum við Suðurgötu. Meðan ég var þarna bar að konu með hund í bandi. Það var allt í lagi ef hún hefði ekki leyft hundinum að krafsa í leiðin. Þarna gerði hundurinn sig heimakominn, fór upp á leiðin og rótaði í moldinni. Mér fannst þetta ekki nógu sniðugt. Það er óskemmtilegt fyrir ættingjana að koma að leiðunum öllum upprót- uðum og það ætti fólk að vita jafnvel þótt það þurfi að viðra hundana sína. GnP* gerið góð kaup Smáauglýsingar BIADSINS 'i Þverholtitl sími 2 70 22 Opið til kl.10 í kvöld Va Ertu farin(n) að hugsa ínýjiam krónum? Rósa Björg ►orstelnsdóttlr húsmóflir: Já og nei, ég breyti stærri upphæðum oft í gamlar krónur. Annars er þetta mikið að koma. Spurning dagsins Sigríður Gunnarsdóltir húsmóðir: Nei, ég umreikna alltaf. Méi finnst voðalega erfitt að átta mig á upphæðum í nýjum krónum. Elias Jóhannsson, vinnur i Járnblendi- verksmiðjunni á Grundartanga: Já, ég er farinn aðgera það. En til öryggis breytir maður stærri upphæðum i gkrónur. Daníel Jónasson verkamaður: Nei, ég breyti flestum upphæðum i gamlar krónuríhuganum. Magnús Jensson byggingameistari: Að hálfu leyti. Þegar verðið er farið yfir viss mörk þá breytir maður í gamlar krónur. Ólafur Vilbertsson bóndi: Ég er ekki farinn að hugsa i nýjum krónum. Ég snara þessu yfir í gamlar krónur þegar ég igrunda kaup áeinhverju.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.