Dagblaðið - 21.01.1981, Qupperneq 4
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 1981
\
Gleðileikurinn
PLÚTUS
efftir Aristof anes
Frumsýning i kvöld kl. 20 i Fellaskóla.
2. sýning sunnudag kl. 20.30.
Miöapantanir frá kl. 13 alla virka daga
i síma 73838. Miðasala i Feliaskóla
opin frá kl. 17 sýningardaga.
-
Einbýlis eða raðhús
Höfum fjársterkan kaupanda að einbýlis- eða raðhúsi í
Reykjavík, Kópavogi eða Seltjarnarnesi. Útborgun allt að
ein milljón nýkróna.
Eignanaust
Laugavegi 92, sími 29555
Breiðholts-
leikhúsið
Verzlunarhúsnæði og íbúð
óskast í skiptum fyrir stórt þriggja hæða einbýlishús í
yesturbæ.
Eignanaust
Laugavegi 92, sími 29555.
Höfum mikið úrval eigna á söluskrá og
kaupendur að öllum stærðum eigna.
Eignanaust
Laugavegi 92, simi 29555.
Fasteignaþjónustan auglýsir
— Laust starf —
Viijum ráða sölufulltrúa
Sérlega lifandi og skemnitilegl starf.
„Ráðherralaun" fyrir þann sem er úrræðagóður. lipur,
ólatur og fylginn sér. — Vinna og aftur vinna.
Viðtalsbeiðnum veitl móttaka í síma 26213 þriðjud. og
miðvikud.
FASTEÍGNAÞJÓNUSTAN gjg)
AUSTURSTfiÆTI 17 - REYKJAVÍK
Sedrus húsgögn
Iðnvogum
Súðarvogi 32, sími84047
Nú er tækifæri að gera góð kaup. Litið notuð húsgögn á
tækifærisverði. Sófasett frá 1100,00 kr. 2ja manna sófi og
tveir stólar á 3850,00, sófaborð á 700,00, sófasett með
póleruðuni örmum á 2500,00. Hillur, svefnbekkir, stakir
sófar, innskotsborð og margt fleira. Einnig ný sett frá kr.
5355,00 og tveggja manna á 3195,00, eins manns frá 1560.
Hvíldarstólar á 2295,00 krónur.
Lítið inn hjá okkur eða hringið. Það borgar sig.
qftarskóli
OLAFS GAUKS
SÍMI 27015 KL.5-7
Innritun í skólanum, Háteigsvegi 6, dagiega kl. 5—7 síðdegis, sími
27015. Upplýsingar á öðrum timum í síma 85752.
Kvöldtímar fyrir fullorðna.
Hljóðfæri á staðnum.
Eldri nemendur sem halda áfram hafi samband sem
fyrst.
Senn líður að útfyllingu eyðublaða fyrir manntal:
Heilög skylda hvers
einstaklings að fylla
út skýrsluna
—skýringaþáttur í sjénvarpi föstudaginn 30. janúar
I gxr voru manntalsskýrslur k.vnntar frcttamönnum af þcim Ingimar Jónassyni
dcildarstjóra Þjóöskrár, Klemcns Tr.vggvasyni hagstofustjóra, Guðna Baldurs-
syni dcildarstjóra og Magnúsi Guðjónssyni framkvæmdastjóra Sambands
islcn/.kra svcitarfélaga. DB-mynd Bj. Bj.
Landsmenn allir eiga von á gesti
inn á heimili sín sunnudaginn 1.
febrúar, en þann dag eiga allir þeir
sem orðnir eru 12 ára gamlir að vera
þúnir að fylla út manntalsskýrslu
sína. Manntalið sjálft fer fram
laugardaginn 31. janúar. Föstu-
daginn 30. janúar verður 30
mínútna langur þáttur í sjónvarpi,
þar sem skýrt verður nákvæmlega
hvernig útfylling manntalsskýrsl-
unnar fer fram. Er ætlazt til að sem
flestir landsmenn geti fylgzt með
sjónvarpsþætti þessum og fyllt út
manntalsskýrslu sína um leið.
A milli 3500 og 4000 einstaklingar
munu ganga i hús 1. febrúar og
innheimta skýrslurnar auk þess sem
þeir aðgæta að hún sé rétt gerð. Þá
munu þessir svokallaðir teljarar fylla
út íbúðaskýrslu eftir upplýsingum
manna. Þá veita þeir hússkýrslu við-
töku sé þess óskað. Aðeins ein hús-
skýrsla fer í hvert hús á landinu og
hafa ábyrgðarmenn þeirrar skýrslu
frest til 5. febrúar að koma henni til
skila.
Manntalíð sem nú fer fram er hið
22. í röð svokailaðra almannatala á
íslandi. Síðast var manntal gert árið
1%0. I manntalinu er spurt um
búsetu manna, hjúskaparstétt,
menntun, atvinnu, húsakynni og
ýmislegt fleira. Er þetta gert til að fá
upplýsingar um tölu landsmanna og
margt fleira sem snýr að ástandi
þjóðarinnar á hverjum tíma og fram-
þróun.
Manntalið er talið nauðsynlegur
grundvöllur ýmiss konar hagnýtra og
fræðilegra rannsókna svo og aðgerða
á hvaða sviði þjóðlífs sem er. Hver
einstaklingur er skuldbundinn við að
fylla út eyðublaðið samkvæmt lögum
og liggur sekt við ef hann neitar því.
Allar þær upplýsingar sem fram
koma á manntalinu verður farið
með sem trúnaðarmál og þess gætt að
það komist ekki í óviðkomandi
hendur.
Mikil undirbúningsvinna hefur
farið fram við gerð manntalsins og er
kostnaður Hagstofunnar áætlaður í
kringum 20 milljónir gamalla króna.
Þá er ekki reiknað með kostnaði
sveitarfélaga.
Manntalsframkvæmd verður ekki
lokið fyrr en niðurstöður eru komn-
ar á prent, aðgengilegar fyrir al-
menning, en búizt er við að það verði
árið 1984. Þó munu ýmsar upplýs-
ingar verða til allnokkru áður.
Eyðublöðin verða borin í hús mið-
vikudaginn 28. janúar og fimmtu-
daginn 29. janúar, Þar til verður
ítarleg kynning á manntalinu í fjöl-
miðlum og ættu því allir að vera til-
búnir að fylla út blöð sín ekki seinna
en 31. janúar.
-ELA.
Gísli Jónsson svarar Hitaveitunni:
„Verða að gefa tölu-
legar upplýsingar til að
losa sig við gruninn”
— heldur bágborin grein hjá Hitaveitunni
,,Ég saknaði þess að sjá ekki neinar
tölur í greininni. Þá er rangt hjá þeim
að segja að mínar forsendur hafi verið
rangar. Ég gaf fullan fyrirvara á mínar
forsendur. Auk þess var það tekið fram
í forsíðutiivísun að ef þessir 13 notend-
ur gæfu rétta mynd væri útkoman
þessi. Ég vissi vel að þetta úrtak var
ekki marktækt, en ég hef ekki aðstöðu
til að taka stærra úrtak. Hins vegar
hefur Hitaveitan heildarmynd af
hverju munar á áætlun og ef hún vill
losa sig við þennan grun verður hún að
birta þær tölur,” sagði Gísli Jónsson
prófessor er hann var inntur eftir svari
Hitaveitunnar og Rafmagnsveitunn-
ar við kjallaragrein hans er birtist í DB
8. janúar. Þar sagði Gísli að Hitaveita
Reykjavíkur „snuði” notendur sína
um allt að 360 milljón gkr. miðað við
heilt ár. Hitaveitan svarar ásökunum
Gisla í DB 16. janúar og telur forsend-
ur hans rangar og gefi ranga niður-
stöðu.
„Hitaveitan verður að gefa upp
sönnun fyrir því að mínar forsendur
séu rangar. Hitaveitan er búin að iiggja
undir þeim grun hjá fólki að ná sér í
vaxtalausar tekjur og hún hefur sjálf
komið þeim grun á kreik. Ef hún ætlar
að hreinsa þennan grun af sér verður
hún að gefa tölulegar upplýsingar. Ég
vil helzt ekki standa i að munnhöggvast
við þessa aðila, en þessi grein þeirra
fannst mér heldur bágborin.
„Að uppgjör skuli fara fram í okt.—
des. hlýtur að verða til þess að ofáæti-
að er og það er alveg út í hött að segja
annað. Eða er það barnasjúkdómur
sem veldur þessu? Þeir skýra sem svo
að uppgjörsaðferð þessi sé einfaldari
og skiljanlegri öllum notendum heldur
en gildandi reglugerð segir til um, þrátt
fyrir að hún brjóti í bága við gildandi
rcglugerðj” sagði Gisli Jónsson
prófessor.
Austff irðingar af la vel
— Hólmanesið með 175 tonn
Skuttogarinn Hólmanesið kom til
Eskifjárðar í morgun með 175 tonn
af þorski, eftir 9 daga útivist. Að
sögn Sigurðar Magnússonar skip-
stjóra eru Austfirðingar óvanir að fá
svona góðan afla í janúarmánuði.
Venjulega fer fiskiríið ekki að glæð-
ast hér fyrir austan fyrr en í
febrúar/marz. Ennfremur sagði Sig-
urður skipstjóri á Hólmanesinu að
þrátt fyrir góðan afla hefði verið
ruddaveður allan tímann, vindhraði
frá 8 og upp í 12 vindstig.
Minni bátar hafa einnig fiskað hér
vel, t.d. kom Votabergið inn í gær úr
þriðja róðri sínum síðan 7. janúar. í
þessum þrem róðrum hefur Vota-
bergið samtals fengið 18.5 tonn. Þeir
róa með línu.
Sl. fjórar vikur hefur verið geysi-
mikil hálka hér á Eskifirði og fólk
ekki farið út nema á broddum eða á
bílum sínum. Óvenjulega margir
Hólmanesið kom með 175 tonn eftir
9 daga vciðiferð.
bílar hér á staðnum hafa farið illa og
sumir skemmzt mikið og kostar of-
fjár að gera við suma þeirra. Það er
óvenjulegt að bílum lendi svona
mikið saman en hálkan er svo mikil
að bílstjórarnir virðast ekki ráða við
bila sína þrátt fyrir að þeir séu vel út-
búnir með nagladekk og keðjur.
-Regina, Eskifirði.
-ELA.