Dagblaðið - 21.01.1981, Side 8

Dagblaðið - 21.01.1981, Side 8
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 1981 I Erlent Erlent Erlent Erlent I SUTCUFFE NAUT ÞESS AD VINNA í LÍKHÚSI —Hegðun hansþarfyrir tíuárum styrkir þá skoðun að hann sé Yorkshire-morðinginn. Fullyrt erað SutcTrffe haf i játað á sig tórf af þeim þrettán morðum sem skrrfuð eru á reikning „The Yorkshire-Ripper” Peler Sulcliffe, sem brezka lög- reglan hefur nú handtekið grunaðan um að vera Yorkshire-Ripperinn svonefndi, starfaði fyrir tíu árum í líkhúsi í heimabæ sínum og þar vakti hann athygli fyrir óeðlilega fram- komu gagnvart líkunum. ,,Hann naut þess að vinna innan um líkin. Ég vann með honum sem grafari í kirkjugarðinum. Þar stal hann hringum af líkunum,” segir Eric Robinson, 37 ára gamall glugga- pússari og fyrrum vinnufélagi Sutcliffes í Bradford. ,,Hann hegðaði sér oft þannig að enginn annar hefði hegðað sér á þann hátt. Starf okkar var fólgið í því að taka líkunum grafir. Þegar kistan hafði verið sett í gröfina og ættingjar hins látna voru horfnir á braut, áttum við að moka yfir. En Sutcliffe gat aldrei látið kisturnar í friði. Hann hoppaði ofan í gröfina, opnaði kistuna og tók hringana af fingrum líksins,” sagði Eric Robinson. Sutcliffe gerði ekkert til að leyna þessari iðju sinni. Eitt sinn er hann var dauðadrukkinn á bjórstofu tók Vörubilstjórinn Peter Suteliffe (mcð teppi yfir höfuðið) er lciddur inn í réttarsalinn grunaður unt að vera Yorkshire-morðing- inn. Fullvrt er að hann hafi þegar játað á sig tólf ntorð. hann hnefafylli af hringurn. upp úr vasanum og sýndi þeim, sem vildu sjá. „Þessum hef ég stolið af líkunum sem ég gróf,” sagði hann og hló. „Stundum rákust líkgrafarar á gamlar grafir er þeir voru að taka nýjar grafir. Þegar það gerðist rótaði Sutcliffe alltaf í gömlu gröfinniog krækti sér í nokkur bein. Eitt sinn tók hann hauskúpu og fór með aö stúlkuskóla í nágrenninu og notaði Itana til að hræða smástúlkurnar, sem voru að leik á skólalóðinni,” sagði Eric Robinson. Eftir að hafa starfað um hríð sem líkgrafari fékk Sutcliffe vinnu í líkhúsi bæjarins. Starf hans var fólgið í því að þvo og hreinsa lík fólks sem látizt hafði af slysförum. Hann aðstoðaði einnig við krufningar og naut þess greinilega. Nótt eina er Sutcliffe og Robinson voru úti á gangi spurði Sutcliffe vinnufélaga sinn hvort hann væri ekki til í að koma og kikja á likin. „Ég er með lykilinn að likhúsinu. Við gætum farið upp og kíkt á „þau köldu”,” sagði hann við Robinson sem afþakkaði boðið. Þessi lýsing á Sutcliffe þykir geta komið heim og saman við þá mynd sent lögreglan hefur gert sér af George Oldfield rannsóknarlögreglu- foringi sem lengst af hefur stjórnaö leitinni aó „The Yorkshire-Ripper”. Yorkshire-morðingjanum, sem and- lega vanheilum manni. Enginn annar en brjálaður maður gæti lamið fórnarlömbin í höfuðið allt upp í ellefu sinnum eða stungið hnífi í lík fimmtíu sinnum eins og gert var við fimmta -fórnarlamb Yorkshire-morðingjans, Emily Jackson. Enda er nú fullyrt að Sutcliffe hafi játað á sig tólf af þeim þrettán morðum, sem skrifuð ert. a reikning „The Yorkshire Ripper”, auk þess sem hann hefur játað að hafa framið tvö ntorð á erlendri grundu. Vegna hinna ströngu laga, sem gilda í Bretlandi um sakamál sem þessi hefur þetta þó ekki enn verið staðfest opinberlega. (Dagbladet) Mörg alþjóðleg olíufélögeru bjarl- sýn á að finna megi nýjar olíulindir i hinum danska hluta af Norðursjón; um þegar danska ríkisstjórnin hefur fengið ný lög um olíuvinnsluna sam- þykkt. Búizt er við að það verði áður en þingið fer í sumarfrí. Mobil Oil, sem hefur reynslu af olíuvinnslu bæði í enska og norska hluta Norðursjávarins, hefur lýst áhuga sinum á að vera með í hinum danska hluta olíuleitarinnar. Gulf Oil, sem fram til 1975 tók þátt i hinni dönsku olíuleit sem samstarfs- aðili A.P. Möller, sem haft hefur einkarétt á olíuvinnslu í danska hluta Norðursjávarins, er reiðubúið að hefjast handa á ný árjð I982 þegar ríkið fær með nýrri lagasetningu nokkur svæði til baka frá A.P. Möll- er. „Það eru möguleikar á nýjum olíu- fundum í hinum danska hluta Norðursjávarins,” segir stjórnarfor- maður Gulf í Danmörku, Desmond Keep, í samtali viö Politiken. Frumvarp ríkisstjórnarinnar varð- andi oliuvinnsluna byggir á hinum þekktu aðstæðum í Noregi og Eng- landi og tekur auk þess tillit til að út- litið í danska hluta Norðursjávarins er ekki eins gott og í öðrum hlutum hans. ,,Ef nýju lögin fylgja þessu mynztri þá hræðir þaö okkur ekki. Við munum meta það hvort hagstætt Mestan hug á að fá rétt til olíuvinnslu í danska hluta Norðursjávarins hafa þau olíufélög, sem þegar hafa öðlazt reynslu við að vinna oliu úr Norður- sjónum. Einkaréttur A.P. Möller á olíuvinnslunni skertur með nýrri lagasetningu ríkisstjómarinnar: Olíufélögin slást um að fá að bora — Eru bjartsýn á að nýjar olíulindir finnist í hinum danska hluta Norðursjávarins sé fyrir okkur að taka þátt í oliuleit- inni og fyrirfram höfum við áhuga,” segir Desmond Keep. Um skattalöggjöfina hefur hann það að segja að samanlagður skattur á olíu og gas upp á 80 prósent sé að- gengilegur. Sú skattálagning er að enskri og norskri fyrirmynd. „En ríkisstjórnin verður að gera sér grein fyrir að danska olían er á litlum svæðum. Það gerir kröfu til sveigjanlegrar skattheimtu. Annars verður olían einfaldlega ekki unnin,” segir Desmond Keep. Gulf dró sig út úr dönsku olíuleit- inni árið I975 vegna þess að fjárfest- ingamar að loknu þrettán ára starfi voru mjög miklar en ábatinn hins vegar mjög takmarkaður. En síðan hafa fundizt miklar olíu- lindir og olían hefur margfaldazt í verði þannig að fjárfestingarnar ættu nú að borga sig jafnvel þótt reglurnar séu strangari en áður. Mestan áhuga þeirra 10—15 olíu- félaga, sem þegar hafa sett sig í sam- band við danska orkumálaráðuneytið hafa þau olíufélög sem þegar eru með starfsem i Norðursjónum, til dæmis Mobil. Þau hafa þegar öðlazt þekkingu á landfræðilegum aðstæðum, löggjöf, veðurfari o.s.frv. Þau eru þannig í stakk búin að þau geta með hjálp nýrrar tækni á skömmum tíma gert sér grein fyrir þeim möguleikum, sem eru fyrir hendi. Það er því ekki útlit fyrir að lát verði á dönsku olíuleit- inni. Upplýsingar um undirjarðveginn ganga kaupum og sölum milli olíu- félaganna og þau olíufélög sem reynslu hafa af olíuvinnslu í Norður- sjónum ættu að hafa alla möguleika á að auka við olíuvinnslu sína á þeim svæðum sem danska ríkið mun með nýrri lagasetningu svipta A.P. Möller og úthluta öðrum olíufélögum. (Politiken)

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.