Dagblaðið - 21.01.1981, Page 10

Dagblaðið - 21.01.1981, Page 10
10 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 1981 DB á neytendamarkaði Áriðandi er að ekki sé of mikið frost i kistunni, þá eyðir hún meiri orku en nauð- synlegt er. DB-mynd Einar Ólason. TRYGGINGAEFT1R- UT RÍKISINS MED Spörum orkuna: Ekki of kalt f 1. Fimm gráða hiti nægir til geymslu matvæla. Lægra hitastig eykur raforkunotkunina. Mælum hita- stigið. 2. I frystinum er átján gráða frost hæfilegt. Fyrir hverja gráðu sem frostið fer niður fyrir það eykst raforkunotkunin um 5%. Við — 25°C í frystinum er raforkunotk- unin um 40% meiri en við — 18°C. Mælum hitastigið. Frysti- kistan er bezt geymd í kaldri geymslu. Fyrir hverja gráðu sem hitastigið í geymslunni lækkar minnkar orkunotkunin um 5%. 3. Kæligrindin er á bakhlið ísskáps- ins og frystisins. Filutverk hennar er að flytja varmann úr skápnum til umhverfisins. Ryk og óhrein- indi einangra og geta aukið orku- notkun um 5%. Nauðsynlegt er þvi að halda kæligrindinni' hreinni. Sama gildir um loftristina sem þarf að ryksuga nokkrum sinnum á ári. 4. Frystirinn og ísskápurinn flytja varma til umhverfisins. Til að þeir starfi eðlilega þarf loft að eiga greiða leið um kæligrindina. Ef ísskápurinn er inni í eldhús-, innréttingu þarf að vera 10—15 sentimetra bil ofan við isskápinn. 5. Þéttilistinn á hurð ísskápsins og loki frystikistunnar þarf að falla þétt. Þetta má athuga í ísskápnum með þvi að stinga pappírsblaði milli skáps og hurðar, blaðið á að 8, sitja fast ef hurðin er þétt. í frysti- kistum má athuga hvort hægt sé að stinga pappirsblaði milli þétti- listans og kistunnar, ef það er hægt er kistan óþétt. 6. Opnum ísskápinn og frystikistuna 9. ekki oftar en þörf krefur og látum dyrnar aldrei standa opnar lengur en nauðsynlegt er. Ef rafmagns- laust verður á alls ekki að opna frystikistuna heldur að reyna að einangra hana eins vel og unnt er, einkum lokið. 7. Fryst mátvæli er bezt að þíða í ís- skápnum. Það er betra fyrir mat- inn því þá ganga þær breytingar til baka sem urðu við frystinguna. Kuldinn sem 1 kg af frystu kjöti svarar frá sér svarar til rafmagns- kæli og f rysti notkunar ísskápsins í um eina klukkustund. Það sparar einnig orku og tíma við matreiðsluna. Athugum þó að frosið grænmeti er bezt að matreiða beint. Á sama hátt er bezt að láta matinn kólna áður en hann er frystur eða settur í kæliskápinn. Þegar hrim safnast í frystihólf ísskápsins eða frystikistuna einangrar það frystirýmið frá kælikerfinu og raforkunotkunin eykst. Þíðum þvi hrímið þegar það er orðið 5 millimetra þykkt. Undirbúningsnefnd laganema ásamtformanni Orators.félags laganema. Frá vinstri eru Erla Árnadóttir, Tómas Þorvaldsson formaður nefndarinnar, Andri Árnason og Lilja Ólafsdóttir formaður Orators. DB-mynd Bj.Bj. Laganemar veita ókeypis aðstoð: Upplýsingar símleiðis um alla lagakróka Tóm frystikista þarf jafnmikla orku og full. Við kaup á frysti- kistum er mikilvægt að hafa nýt- inguna í huga, því 150 lítra frystir notar um 500 kWh á ári en 300 lítra frystir notar um 750 kWh á ári. Mismunurinn, 250 kWh, kostar um 140—180 krónur eða 14—18 þús. gkr. Ástæðulaust er að vera bæði með frystikistu og ísskáp með frystihólfi. ísskápur með frystihólfi tekur um 250 kWh meira rafmagn á ári en ísskápur án frystihólfs. Lögfræðinemar sem langt eru komnir í námi hófu síðasta fimmtu- dag ókeypis aðstoð við almenning. Er ætlun þeirra að halda þeirri aðstoð’- áfram á fimmtudagskvöldum og verður hún í annað skipti annað kvöld. Þá geta menn hringt í síma 21325 milli klukkan hálfátta og tíu um kvöldið og spurt út í hina ýmsu lagakróka sem þeir verða fyrir barð- inu á. Til aðstoðar nemum verður fullnuma lögfræðingur sem er um- sjónarmaður aðstoðarinnar og ber endanlega ábyrgð á henni. Nefnd á vegum lögfræðinga hefur undanfarnar vikur unnið að undir- búningi þessarar aðstoðar. Aflað hefur verið gagna frá nágrannalönd- um okkar, þar sem slík aðstoð er veitt, og leitað til eldri og reyndari lagafræðinga. Friðjón Þórðarson dómsmálaráðherra hefur meðal ann- arra verið unga fólkinu til aðstoðar og sá hann svo um að það fékk styrk á fjárlögum til þess að greiða kostnað og laun umsjónarmanns. Laganem- arnir sjálfir fá aðeins vinnu sína greidda að hluta en fá auðvitað í staðinn hagnýta menntun sem þeim hefur fundizt nokkuð á skorta í skól- anum. Tveir hópar skiptast á um síma- vaktina og verða 4 menn í hvorum hópi. Öll símtöl verða skráð á sér- stakt skýrsluform og þau síðan geymd til þess að hægt verði að taka síðar saman skrá um hvers konar mál það eru sem fólk á helzt i erfiðleikum með. Allir þeir sem nokkurn tíma komast í kynni við skrána eru bundnir þagnareiði. Reynt verður að veita allar þær upplýsingar sem hægt er í gegnum síma. Oft verður þó líklega ekki hægt að veita svar í sama símtali og spurt er heldur verður að afgreiða málið með öðru símtali eða jafnvel bréft. í einstaka tilfellum getur reynzt nauðsynlegt að kalla til þann sem í vandanum á til frekari útskýringar eða framvísunar gagna. Laganemarnir bjuggust við því að nóg yrði að gera fyrir þá í þessari grein því þeir vissu af reynslu annarra að fólk á við hin ótrúlegustu vand- ræði að etja 1 hinum flókna skógi lag- anna. Þeir sögðust ekki hræddir um það að fullmenntuðum lögfræðing- um fyndist að hinir ungu væru að taka viðskiptin frá þeim. Þvert á móti gæti þetta orðið til þess að auka málafjöldann sem 1 gangi væri því oft væri það svo að fólk væri feimið að leita til lögfræðinga með það sem því fyndist smámál. Fengi það hins vegar hvatningu frá laganemum horfði málið öðruvísi við. Laganemarnir hyggjast aðeins vgita upplýsingar en vísa á fullnuma lögfræðinga sé ein- hverra frekari aðgerða þörf sem fólkið treystir sér ekki í eitt síns liðs. - DS Reykt svínakjöt og kaffi Desembermánuður dýr M. á Sauðáirkróki skrifar: Ég sendi hér seðilinn fyrir desem- ber ’80. Hann hljóðar upp á 56.752 krónur á mann eða 567,52 nýkrónur. 1 þessari upphæð er reykt svínakjöt á 50 þúsund gamlar krónur og 5 kíló af kaffi á 24 þúsund. Kaffið dugar okkur í 2—3 mánuði, og enn er eftir af svinakjötinu. Við þökkum M. fyrir bréfið. Des- embermánuður virðist dýr fyrir fleiri heimili en hennar og sjáum við ekki betur svona í hendi okkar en að hún sé undir meðaltali, enn sem komið er. En greinilegt er að enn eiga eftir að berast margir seðlar. Sjálfsagt eru margir að herða upp hugann að reikna öll ósköpin saman. En það er áriðandi að við fáum sem fyrst alla seðla frá liðnu ári svo við getum reiknað út meðaleyðslu ársins 1980. Hvetjum við því fólk tii þess að bregða fljótt við. - DS Raddir neytenda 0KEYPIS NEYT- ENDAÞJÓNUSTU Sértu óánægð eða óánægður með þær bætur sém tryggingafélagið þitt býður þér upp á vegna tjóns eða fram komu þess að öðru leyti getur þú leitað endurgjaldslaust til Trygginga- eftirlits ríkisins. Það rekur neytenda- þjónustu klukkan 10—12 á miðviku- dögum, fimmtudögum og föstudög- um. Er þá hægt aðhringja í síma 85188 eða 85176 eða koma aðSuður- landsbraut 6 eða jafnvel skrifa og bera fram kvörtunina. Það sem Tryggingaeftirlitið gerir er síðan að kanna málið og reyna að koma á sátt- um. Það er hins vegar ekki aðili sem úrskurðað getur hvort heldur þú eða tryggingafélagið þitt hefur á réttu að standa. Slikt er aðeins á valdi dóm- stóla. En það getur veitt mikilsverðar upplýsingar. - DS

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.