Dagblaðið - 21.01.1981, Side 15
' " - |
*
É»S!*IÍ
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 1981
Sþróttir
iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Hópferð á Evrópu-
leik Víkings
ogLugiíLundi
Samvinnuferðir-Landsýn h/f hafa ákveðið að
efna til hópferðar á leik Vikings og Lugi sem fram
fer i Lundi nk. sunnudag. Tilhögun ferðarinnar er á
þann veg, að fiogið verður til Kaupmannahafnar
laugardaginn 24. Janáar kl. 08:15. Dvalið verður á
hóteli i miðborg Kaupmannahafnar i tvœr nætur.
Farið verður heim mánudaginn 26. janúar kl. 14:25.
Verð ferðarinnar er aðelns 1.890.- og Innlfelur: Flug
til og frá Kaupmannahöfn, gistingu i 2 nsetur ásamt
morgunverði, ferðir til og frá leik i Lundi og
aðgöngumiða á leikinn. íslenzkur fararstjóri. Vegna
mikillar eftirspurnar er fólki ráðlagt að panta sem
fyrst því sætafjöldi er takmarkaður. Allar nánari
upplýsingar gefur sölufólk Samvinnuferða-Land-
sýnarisimum 27077/28899.
Heimsmet
Tékkneska stúlkan Jarmila Kratochvilova setti i
sunnudag nýtt heimsmet i 400 m hlaupi innanhúss á
móti i Jablonec i Tékkóslóvakíu, að sögn frétta-
stofunnar Ceteka. Hún hljóp á 41.02 sek. en eldra
heimsmetlð, 51.14 sek., átti sú fræga hlaupakona
Mariat Koch, Austur-Þýzkalandi. Jarmila er 29 ára
og hlaut sllfurverðlaun i 400 m hlauþl á ólympiulelk-
unum i Moskvu sl. sumar.
Þá mun franski stangarstökkvarinn Philippe
Houvion hafa sett heimsmet i stangarstökki Innan-
húss um helgina en um árangur hans höfum við ekki
öruggar heimildir.
Amarmótið
íborðtennis
umhelgina
Arnarmótið i borðtennis verður haldið i Laugar-
dalshöllinni kl. 14 á laugardag. Er þetta i 10. skiþti
sem mótið fer fram. Mótið er punktamót og er keppt
í meistara- 1. og 2. flokki karla, meistara- og 1.
flokki kvenna.
Þátttaka tilkynnist til Jónasar í sima 26806 og
Sigurðar i sima 81810. Dregið verður um töfluröð á
föstudagskvöld.
Njarðvíkingar
urðu sigursælastir
— á Reykjanessmótinu
íhandknattleik
Suðurnesjamótið i handknattleik var haldið i
nýja iþróttahúsinu i Sandgerði fyrir skömmu og var
keppt i 7 flokkum — 6 flokkum karla og einum
kvennaflokki. Alls voru keppendur 240 og tókst
mótið i alla staði vel. Njarðvikingar unnu meistara-
flokk karla, Viðlr 2. flokkinn, Grindavik þann
þriðja, Njarðvik 4. flokk, Grindavík 5. flokk og
Njarðvik 6. flokk. Viðisstúlkurnar urðu Reykja-
nesmeistarar f meistaraflokkl kvenna.
-emm.
Framarar með
færa þjálfara
fyrir þá yngstu
Það eru ekkl neinlr aukvisar, sem Framarar hafa
ráðið sem unglingaþjálfara hjá sér i knattspyrnunni i
sumar. Annar og fjórði flokkur verður i höndum
Jóhannesar Atlasonar, 3. flokkurinn i umsjá Sigur-
bergs Sigsteinssonar og 5. flokkurinn verður f örugg-
um höndum þeirra Sfmonar Kristjánssonar og Þor-
steins Elnarssonar.
-SSv.
Maria-Theresa Nadig
með langf lest stig
Eftir brunkeppni kvenna i heimsbikarnum i aipa-
greinum um helglna hefur Maria-Theresa Nadig,
Sviss, enn aukið forustu sína. Hún er langefst með
163 stlg og vlrðlst nokkuð örugg að sigra í
keppninni. Hanni Wenzel, Lichtenstein, sem sigraði
f keppninnl i fyrra er hætt keppni.
I öðru sæti nú er Perrlne Pelen, Frakklandi, með
114 stig. Erika Hess, Sviss, er þriðja með 105 stig.
Fabienne Serrat, Frakklandi, hefur 104 stlg og Doris1
de Agostlnl, Sviss, hefur 100 stlg. Siðan kom Irene
Epple, V-Þýzkalandi, með 96 stig, Cindy Nelson,
USA, með 86 og Chrlsta Kinshofer, V-Þýzkalandi,
með 71 stlg.
■ ..... a—MBMmawén—aaa—aaa—aa*««—————■
Ingemar Stenmark i brunkeppninni i Kitzbiihel á laugardag
Hjörtu milljóna f Svíþjóð
næstum stöðvuðust
— þegar sænskir sjónvarpsmenn héldu að Ingimar Stenmark hefði fallið illa
í brunkeppninni íKitzbuhel á laugardag
,,Ég þurfti bara að komast niður
brekkuna. Nú hef ég fenglð hin ódýru
heimsbikársstig, sem ég leitaði eftir. Ég
var aldrei hræddur f brautinni — bar
virðingu fyrir hennl. Ég varð hvað eftir
annað að minnka hraðann — beinlfnis
bremsa — áður en ég kom að hættuleg-
ustu stöðunum,” sagði sænski skfða-
kóneurinn. Ingemar Stenmark, eftir að
hann hafði i fyrsta skipti i heimsbikarn-
um keppt i brunl. Það var i Kitzbuhel í
Austurrfki. á laugardag. Hann varð i
34. sæti af þeim 39, sem luku keppni.
Ekki f 27. sæti elns og gefið var f fyrstu
upp i fréttastofufréttum.
Meðan á keppninni stóð stöðvuðust
næstum hjörtu milljóna, Svía, sem
fylgdust með keppninni í beinni sjón-
varpsútsendingu. Það tók sænsku
sjónvarpsmennina um þrjátíu sekúndur
að átta sig á þvi, að það var Austur-
ríkismaðurinn Hans Enn — ekki Inge-
mar Stenmark — sem hafði fallið illa í
Hahnen-kamm brunbrautinni frægu.
Þessir tveir kappar voru í eins búning-
um og Stenmark var með næsta rás-
númer á eftir Austurríkismanninum.
Af því stafaði misskilningur sænsku
sjónvarpsmannanna. Þeir héldu í
nokkrar sekúndur að Ingemar hefði
falliö illa. En þegar hið rétta kom í ljós
gátu hjörtu Svía farið í gang að nýju!
Ekki aftur
„Þetta verður í fyrsta og síðasta
skipti, sem ég keppi í bruni heims-
bikarsins,” sagði Ingemar Stenmark
eftir keppnina og lék við hvern sinn
fingur eftir að hann hafði komizt niður
brautina erfíðu og hættulegu áfalla-
laust. Svigskeppni hafði verið fyrr í
vikunni í Kitzbúhel. Þar varð Stenmark
í öðru sæti. Samanlagt giltu þessi tvö
mót til stiga í keppninni um heims-
bikarinn. Stenmark varð þriðji saman-
lagt á eftir bandarísku tvíburabræðrun-
um Phil og Steve Mahre. Fékk því heil
15 stig fyrir keppnina samanlagt. Þau
geta skipt sköpum um úrslitin, þegar
upp verður staðið i vor.
Lengi vel leit út fyrir aðfaranótt
laugardags að fresta yrði keppninni.
Það snjóaði og það var þoka. En
snemma á laugardagsmorgun létti til.
Framkvæmdanefndin ákvað að láta
keppnina fara fram þó svo undirbún-
ingur væri ekki fullnægjandi. Brautin
var hættuleg — víða svellbungur.
Áhorfendur voru yfir 30 þúsund. Það
var oft mikil spenna. Margir féllu og
það leit stundum illa út. Það er allt
Litli Kanadamaðurinn — Steve
Podgorski eftir sigurinn i Kitzbiihel.
annað en gaman að falla á yfir 100 km
hraða í hinni hættulegu Hahnen-kamm
brunbraut. Af 65 keppendum luku 26
ekki keppni. Margir þeirra féllu enginn
slasaðist alvarlega. ítalinn
Danilo Sbardello viðbeinsbrotnaði þó.
Hvað Hans Enn viðkom fékk hann
minni háttar taugaáfall eftir fall sitt —
fall, sem margir héldu að væri Inge-
mars Stenmark.
Kanadamaðurinn
langbeztur
Hinn smávaxni Kanadamaður Steve
Podgorski, sem aðeins er 1.72 m á
hæð, sigraði með nokkrum yfir-
burðum. Þriðji sigur hans í röð i bruni
heimsbikarsins. Meðan margir keppi-
nauta hans féllu úr keppninni flaug
Kanadamaðurinn beinlínis niður
brekkuna. Tækni hans virtist fullkom-
in og hann dró ekkert úr hraðanum á
hættulegustu stöðunum. Siðan Franz
Klammer, Austurríki, var upp á sitt
bezta 1975—1977 hefur ekki sézt betri
brunmaður en hinn 23ja ára Kanada-
maður. Sigraði í St. Moritz í Sviss,
Garmisch-Partenkirchen i Vestur-
Þýzkalandi og nú í Kitzbilhel. Þrir
sigrar i röð. Það hefur enginn leikið frá
veldisdögum Klammers.
„Hahnen-kamm brunið er það fræg-
asta. Þar vilja allir sigra. 1 fyrra var ég
með bezta brautartimann framan af en
féll, þar sem ég var oft „villtur” í neðri
hluta brautarinnar. En í dag náði ég
fram hefndum,” sagði Podgorski eftir
keppnina og var mjög glaður. Hann
talaði um hefnd og hefur þar átt við
grein i svissnesku blaði, þar sem helzti
keppinautur hans, Peter Múller, hafði
látið þau orð falla, að Podgorski væri
ekki sigurvegaratipa. Sigrar hans hefðu
byggzt á heppni. Podgorski lét skíði sín
svara. í annað skipti í röð varð Sviss-
lendingurinn MUller að sætta sig við
annaö sætið. -hsim.
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. JANUAR 1981
15
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
I
Jafntefli við heimsmeistara V-Þjóðverja í Hamborg:
Þýzku leikmennimir réðu
ekkert við Sigga Sveins!
—Hann skoraði sjö mörk í leiknum og var þó tekinn úr umferð nær allan leikinn. Eitt vítakast mistókst hjá
Axel Axelssyni. ísland með knöttinn síðustu mínútuna án þess að ná að skora sigurmark.
Jafntefli 15-15. Jens Einarsson f rábær í marki
„Þetta gekk miklu betur en við
höfðum þorað að vona. Við lékum
mjög sterkan varnarleik allan tímann
og hættulegasti leikmaður þýzku
heimsmeistaranna, Klaus Wunderlich,
Gummersbach, var tekinn úr umferð
allan leikinn. Það kom þýzka liðinu i
opna skjöldu. Við hefðum sigrað i
þessum leik — og reyndar tel ég þetta
jafntefli á við fimm marka sigur —
með hlutlausri dómgæzlu. Hollenzku
dómararnir, sem dæmdu ieikinn,
dæmdu öll vafaatriði þýzka liöinu í
hag. Og þá voru um 4000 áhorfendur,
sem studdu vel við bakið á þýzka
'llðinu. Það hafði ekki svo litið að segja
fyrir það,” sagði Ólafur H. Jónsson,
fyrirliði íslenzka landsliðsins í hand-
knattleik, sem i gær lék við vestur-
þýzku heimsmeistarana í Hamborg
með þeim árangri að jafntefli varð,
15—15. ísland var með knöttinn loka-
minútuna án þess að það tækist að
skora sigurmark I leiknum enda mikil
átök hjá varnarmönnum Þjóðverja.
Þetta er í fyrsta sinn, sem íslenzkt
landslið í handknattleiknum nær
jafntefli í Vestur-Þýzkalandi. Níundi
leikur Vestur-Þýzkalands og Islands í
Þýzkalandi og Þjóðverjar unnu alla þar
til nú. Minnsti munur tveggja marka
tap. Hins vegar hefur ísland einu sinni
unnið V-Þýzkal. á erlendri grund. I
Zúrich í Sviss, 18—15, 1974 og tvívegis
hafa Vestur-Þjóðverjar verið sigraðir i
Reykjavik. Leikurinn í gær var
tuttugasti landsleikur þjóðanna og
fyrsta jafnteflið.
Talsverð forföll voru hjá báðum
liðum i gær vegna Evrópuleikja í hand-
knattleiknum. Þannig voru íslands-
meistarar Víkings ekki með ísl. liðinu
— heldur ekki leikmenn frá Þýzka-
landsmeisturunum Grosswallstadt eða
Nettelstedt í vestur-þýzka liðinu. Það
hefði því átt nokkurn veginn að jafna
sig út.
Höfum góða möguleika
„Við gerðum okkur grein fyrir þvi
fyrir leikinn að við hefðum hugsanlega
möguleika á þvi að geta staðið okkur
vel gegn liði heimsmeistaranna, þar
sem nokkuð var um forföll hjá þeim.
Við gengum til leiksins með það í huga
að standa okkur sem bezt og reyna að
ná sigri. Með smáheppni hefði — og
var reyndar — tveggja til þriggja marka
sigur verið innan seilingar. Smáheppni
og við hefðum sigrað Þjóðverjana í
fyrsta sinn á þeirra heimavelli,” sagði
Þórður Sigurðsson, annar af farar-
stjórum islenzka liðsins, þegar DB
ræddi við hann eftir leikinn í
Hamborg.
„Fyrir leikinn var lögð upp sú
leikaðferð, að Steindór Gunnarsson
léki mjög framarlega í vörninni.
„Klippti” á sóknarmenn Þjóðverja og
þetta heppnaðist vel hjá honum. Hann
stóð sig mjög vel eins og reyndar allir
leikmenn liðsins. Þetta var sigur
liðsheildarinnar. Jens Einarsson, sem
nú Ieikur með Tý í Vestmannaeyjum,
en hefur ekki leikið með landsliðinu
síðustu mánuðina, stóð sig frábærlega í
markinu. Varði í allt 18 skot. Oft á
glæsilegan hátt. Einar Þorvarðarson,
HK, kom eitt sinn I markið til að reyna
að verja vítakast en tókst ekki. Þeir
Bjarni Guðmundsson, Val, og Gunnar
Einarsson, Haukum, gátu ekki tekið
þátt í leiknum vegna lasleika. Bjarni er
að verða góður og getur örugglega
leikið á fimmtudag. Þá leikum við
annan landsleik við Þjóðverja i
„Lúbecke”, sagði Þórður ennfremur.”
Mest sömu leikmennirnir
„Auk Jens markvarðar léku þeir
Ólafur H. Jónsson.Brynjar Harðarson,
Siggi Sveins, Steindór Gunnarsson,
Axel Axelsson mestan hluta leiksins.
Þorbjörn Guðmundsson var oftast í
vöminni. Skipti þar við Axel, en svo
komu þeir af og til inn á Jóhannes
^Vusturrfkismaðurinn Hans Enn fellur i brautinni og hjörtu Svia stöðvuðust.
Stefánsson, KR, Páll Ólafsson, Atli
Hilmarsson og Stefán Halldórsson.
Þeir Brynjar og Jóhannes léku þarna
sína fyrstu Iandsleiki i handknatt-
leiknum. Hinn ungi Brynjar, sem enn
leikur í 2. aldursflokki, komst mjög vel
frá þessum fyrsta landsleik sínum.
Leikurinn fór mjög rólega af stað.
Þjóðverjar skoruðu fyrsta markið en
ísland jafnaði á 16. mín. Siggi Sveins.
Bæði lið léku varlega en heldur var illa
farið með tækifæri á báða bóga. Vlado
Stenzel, þýzki landsliðseinvaldurinn,
var með tvo nýliða í liði sínu. Notaði þá
báða i byrjun, en ekkert gekk hjá þeim
og eftir það voru þeir lítið með. Síðan
kom góður kippur hjá íslenzka liðinu.
Það komst i 3—1 eftir 19. mín. og lék
mjög sterkan varnarleik. Þjóðverjar
minnkuðu muninn í 3—2. Síðan komst
ísland aftur þremur mörkum yfir. 5—2
eftir 24. mín. Siggi Sveins var þýzku
leikmönnunum ákafiega erfiður.
Skoraði geysifalleg mörk og Stenzel
greip til þess ráðs, að láta taka Sigga
úr umferð. Þjóðverjar minnkuðu
muninn i 5—4. j þriðja sinn komst
ísland þremur mörkum yfir, 7—4.
Næstu tvö mörk voru þýzk, 7—6.
Síðan skiptust liðin á að skora, 8—6,
8—7 og fsland skoraði siðasta mark
hálfleiksins 9—7 fyrir Island.
Siggi Sveins skoraði fyrsta markið í
síðari hálfleiknum, 10—7. Síðan 10—
8, 11—9 og Brynjar skoraði ellefta
markið mjög fallega úr horninu. Siðan
komst ísland í 13—10 en Þjóðverjar
fóru að saxa á forskotið. ísland fékk
vítakast, sem Axel tók. Ætlaði að vippa
knettinum yfir markvörðinn en tókst
ekki. Sá þýzki varði. Þjóðverjar
jöfnuðu svo í 13—13, þegar fimm
mínútur voru til leiksloka. Komust
síðan yfir 14—13 og það var i eina
skiptið, sem þýzku heimsmeistararnir
höfðu yfir i leiknum. En Siggi Sveins
og Stefán Halldórsson svöruðu með
góðum mörkum og ísland hafði aftur
náð forustu, 15—14. Þjóðverjar
jöfnuðu í 15—15, þegar tvær mínútur
voru eftir. Eitt upphlaup hjá hvorri
þjóð misheppnaðist. íslenzku leik-
mennirnir með knöttinn næstum alla
síðustu mínútuna en fundu ekki glufu á
þýzku vörninni. Leiktiminn rann út og
jafntefii staðreynd,” sagði Þórður
Sigurðsson ennfremur.
Mörk lslands skoruðu Siggi Sveins 7
— tvö vítaköst — Axel 3/1, Ólafur H.
2, Brynjar, Steindór og Stefán eitt
mark hver. Wunderlich var
markhæstur Þjóðverja með fimm
mörk — þar af 3 vítaköst. Voik skoraði
2 mörk en hin mörkin dreifðust á
fjölmarga leikmenn.
Mjög vel hefur verið tekið á móti
íslenzku landsliðsmönnunum í
Hamborg en ferðalög hafa verið
þreytandi. Síðari landsleikur þjóðanna
verður svo á fimmtudag og þá má telja
víst að Bjarni Guðmundsson geti
leikið. íslenzku leikmennirnir eru
ákveðnir i að gera sitt bezta þar. Leikið
var í glæsilegri íþróttahöll í Hamborg í
gær, sem rúmar um sex þúsund áhorf-
endur. Þar voru hátt í fjögur þúsund
manns og voru Þjóðverjarnir mjög
ánægðir með þá aðsókn.
Eftir leikinn hrósaði Vlado Stenzel
islenzku leikmönnunum mjög fyrir
leikinn. „ísland er alltaf erfiður
keppinautur. Þaðer ekki skömm fyrir
okkur að gera jafntefli við íslenzka
landsliðið. Liðið lék góðan varnarleik
og var með góðan markvörð,” sagði
Stenzel.
-hsim.
Jafntefli KR
ogVíkings
Einn leikur var háður í 1. deiid
kvenna á íslandsmótinu i handknatt-
leik i gærkvöld. KR og Vikingur gerðu
jafntefli 10—10 i LaugardalshöII.
FH-INGUM BÆTIST
GÓÐUR LIÐSAUKI
— margir leikmenn líta Hafnarfjarðarliöiö hýru auga
Eins og komið hefur fram munu
FH-ingar njóta góðs af liðsstyrk
Tómasar Pálssonar í sumar og má því
segja að einn komi er annar fer. FH
missti nefnilega Valþór Sigþórsson
aftur út i Eyjar eftir mjög góða
frammistöðu hans hjá Hafnarfjarðar-
liðinu sl. sumar.
En það eru fleiri en Tómas, sem
hafa gengið til liðs við FH-ingana. Þeir
hafa fengið tvo unga Ólafsvíkinga,
Sigurþór Másson og Magnús Stefáns-
son, til liðs við sig svo og markvörðinn
örn Bjarnason, sem lék með Haukum í
fyrra en var áður í FH.
Fleiri leikmenn eru volgir og má
nefna t.d. Gunnar Bjarnason, sem Iék
með Fram í fyrra, en áður með FH,
Andrés Kristjánsson, sem | fyrra lék
með ísafirði en var áður í FH og
Hreggvið Ágústsson, unglingalands-
liðsmarkvörð úr Eyjum sem hafa allir
mætt á æfingar hjá FH-ingum og eru
að íhuga að ganga til liðs við Kapla-
krikafélagið.
Heimir Bergsson, Selfyssingurinn
eldsnöggi, byrjaði í fyrra með FH en
brotnaði síðan illa og hélt heim á ný.
Lék með Selfossi undir lok keppnis-
tímabilsins. Hann hefur nú áhuga á að
snúa aftur til FH og þá höfum við það
fyrir víst að Sighvatur Bjarnason, sem
Framarar töldu sig öruggan með að fá,
hafi hugsað sér að reyna fyrir sér hjá
FH. Sighvatur þarf jafnvel að fara í
skurðaðgerð vegna skemmds liðþófa
og ef af henni verður mun hann verða í
Eyjum i sumar. Sleppi hann hins vegar
við hnífinn er næsta víst, að eitthvert
félaganna á Reykjavíkursvæðinu mun
hreppa hann.
-SSv.
r Forkeppni í B-riöli HM íkvennahandknattleik:
Island og Noregur leika um
sæti í úrslitakeppninni
— Leikið heima og að heiman á tfmabili 31. marz til 15. apríl
íslanzka kvennalandsliðið i hand-
knattleik þarf að leika tvo leiki við
það norska um réttinn til að komast I
B-keppni heimsmeistarakeppni
kvenna f handknattleik. Leikir
íslands og Noregs verða á timabillnu
31. marz til 15. april. Leikið heima
og helman. Ekki hefur enn verið
ákveðlð hvar fyrri leikurinn verður
— hvort hann verður á íslandi eða i
Noregl.
1 norska Dagblaðinu er skýrt frá
þvi sl. laugardag, að norska hand-
knattleikssambandið hefði fengið um
það tilkynningu daginn áður hvernig
riðlakeppninni fyrir HM-kvenna yrði
háttað. Lengi vel hafði sambandið
reiknað með að Noregur, ísland og
Spánn yrðu saman í riðli. Sú riðla-
keppni jafnvel háð í Noregi. Nú er
hins vegar niðurstaöan að Island og
Noregur leika saman. Heima og
heiman. Norömenn eru ekki allt of
hrifnir af þeirri ráðstöfun
Norska dagblaðið segir að undir
eðlilegum kringumstæðum eigi
íslenzka kvennalandsliðiö að vera
léttur mótherji — en bætir við, að
slíkir leikir, sem nú er stefnt að, geti
aldrei verið léttir.
Alþj óða-hand knattléikssambandið
sér um framkvæmd B-riðils heims-
meistarakeppninnar. Það tók lands-
lið Búlgaríu framyfir lið íslands,
Noregs, Sviss, Austurríkis, ítaliu og
Spánar. Búlgaria kemst beint, án for-
keppni, í úrslitakeppni B-riðilsins.
Ísland-Noregur eru saman í riðli.
Auk þess Ítalía-Spánn og svo
Austurriki-Sviss i þriðja riðlinum.
Sigurlöndin í þessum leikjum komast
i B-keppnina. Þá getur norska blaðið
iþess, að kvennalandslið Noregs í
handknattleiknum hafi áður lent í
slíkri riðlakeppni. Reyndar þá fyrir
A-riðil heimsmeistarakeppninnar.
Leikið gegn Spáni og norsku stúlk-
urnar sigruðu í heimaleik sinum með
6-3. Það virtust ekki alltof hagstæð
úrslit en norsku stúlkurnar sigruðu
einnigáSpáni 19-12.