Dagblaðið - 27.01.1981, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 1981.
3
Fyllumst ekki of metnaði
Islenzki kynstofninn
Þorsteinn Pilsson frnmkvæmda-
stjóri VSt.
Friðrik Sophusson alþingismaður.
SJÁLF-
STÆÐIS-
MENN
— yngi upp forystuna
2935-1957 hringdi:
Mikið hefur verið rætt um
forystumál sjálfstæðismanna. Ég er
hér með eina hugmynd í því sam-
bandi. Ég vil að þeir hætti báðir,
Gunnar Thoroddsen og Geir Hall-
grímsson. Við eigum mjög fram-
bærilega menn sem geta tekið við
forystu í Sjálfstæðisflokknum og eru
þar fremstir í flokki þeir Þorsteinn
Pálsson og Friðrik Sophusson. Þeir
eru báðir mjög einarðir og málefna-
legir menn sem ekki hafa verið
orðaðir við neina flokksklíku. Það er
kominn timi til að flokkurinn verði
drifinn upp úr þeirri ládeyðu sem
hefur einkennt hann að undanförnu.
enaðrir
—ekkert betri
Einar T. Óskarsson (1825-4816)
skrifar:
Síðastliðið þriðjudagskvðld var
umræðuþáttur um flóttafólk á
íslandi. í þættinum skýrði stjórn-
andinn frá því að maður að nafni
Helgi Geirsson hafi komið að máli
við hann áður en þátturinn hófst og
vildi að nokkur atriði eða skoðanir
kæmu fram í þættinum.
Helgi þessi hefur skrifað tvær
kjallaragreinar í Dagblaðið og báðar
fjalla að miklu leyti um nasista. í
þessum greinum reynir hann að verja
nasista, segir það ekki tækni-
lega mögulegt að þeir hafi myrt
6 milljónir gyðinga, reynir að sýna
fram á að þeir hafi ekki verið eins of-
stækisfullir og raun ber vitni og
varpar fram þeirri Sþurningu hvort
Þjóðverjar hafi verið þeir einu sem
gerðu sér grein fyrir sovézku
hættunni og þess vegna ráðizt inn í
Sovétríkin. í annarri þessara greina
hrósar hann Kínverjum fyrir þá kyn-
þáttastefnu sem þeir aðhyllast. Þessi
stefna er að halda kynstofninum
hreinum og leiddi meðal annars til
sjálfsmorðs tveggja ungmenna,
kinverskrar stúlku og afrísks pilts.
Þeim var meinað að giftast og gert
Útrýming nasistaá gyðingum getur varla talizl hrevstimerki. Myndin er úr myndaflokknum Holocaust sem svndur var i
islen/.ka sjúnvarpinu í haust.
erfitt að búa saman og á endanum
sáu þau enga aðra lausn en þessa. Er
þetta rétt stefna? Helgi telur
„íslenzka kynstofninn” svo sér-
stakan, að honum eigi að halda
hreinum. Þessi skoðun, um hreina
kynstofna, var ríkjandi í Þýzkalandi
á nasistatímabilinu og allir vita
hvilíkar hörmungar hún hafði i för
meðsér.
Helgi virðist frekar vilja hafa
„íslenzka kynstofninn’” hreinan,
hversu fánýtt sem það nú er, heldur
en að bjarga fjölda mannslífa frá
Raddir
lesenda
hungri, vesöld og dauða. Hann segir
þetta skoðun meirihlutans, en ég
vona svo sannarlega að það sé rangt.
GISLI SVAN
EINARSSON
Spurning
dagsins
Saknarðu vtsi-
Emil Gislason, húsasmíðameislari:
Víst sakna ég þeirra. Þetta eru aðal
brauðin sem égét.
Eria Guðmundsdóttir, hósmóðir: Það
hefur ekki reynt svo á það ennþá. Ég
hef svo lítið keypt af brauðum að und-
anförnu.
Magnús Sæmundsson, bóndi i Eyjum i
Kjós: Nei, hreint ekki.
Aðalheiður Eliasdóttir, húsmóðir: Já,
ég sakna þeirra. Mér finnst að þeir geti
vel bakað þessi brauð fyrir það verð
sem leyfilegt er. Ég baka sjálf brauð
heima og þykist vita hvað fer i þau.
Guðrún Guðmundsdóttir, húsmóðir:
Já, ég hugsa að ég komi tii með að gera
það ef þau hætta alveg að fást.
Helga Jónsdóttir, húsmóðir: Ég hugsa
ekki út í það, ég kaupi þau brauð sem
mig langar i.