Dagblaðið - 27.01.1981, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 1981.
i
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
8>
Kvikmyndaleikarinn
í lélegri kúrekamynd.
Árið 1937, þá 26 ára gamall, gerði
Ronald Reagan sinn fyrsta stóra
L kvikmyndasamning, við Warner
& Bros. Var það 7 ára samningur
og fékk Reagan 200 dollara
Bk á viku. Fyrsta árið lék hann
lp|;i i9myndum, m.a. með
Bette Davis. Stjarna hans
fór hækkandi og hlut-
verkin urðu veigameiri. Samt komst
hann aldrei nálægt óskarsverðlaunum.
Samtals lék Reagan í 53 kvikmyndum
áður en hann sneri sér að stjórnmálum.
Ásamt Angie Dickinson I The Killers, sem gerð var eftir sögu Hemingwa.vs.
Kvikmyndir Ronalds Reagan Banda-
ríkjaforseta hafa öðlazt vinsældir á ný.
Kvikmyndir sem hann lék í voru áður
sýndar í sjónvarpi á verstu útsendingar-
tímum en síðustu mánuðina hefur
orðið breyting þar á. Nú keppast sjón-
varpsstöðvar vestra við að auglýsa að
mynd með forsetanum verði sýnd hjá
þeim og að sjálfsögðu á bezta útsend-
ingartíma.
allS ■
FatafeHwdrottningin gælir við Reagan.
í hlutverki nasista ásamt Krrol Flynn.
í kvikmyndinni Bad Man var Reagan
hengdur.
Reagan varð fyrst verulega þekktur er hann lék á móti Bette Davis í Dark
Victory árið 1937.
Forsetinn getur slegið frá sér.
Kvennagullið!
Hvor nældi I stúlkuna? — Auðvitað sjarmörinn til vinstri.
I gamanmynd með Humphrey Bogart.
Hræösla
Hvað hræðist fólk mest?
Tveir bandarískir sálfræð-
ingar, Steven C. Fischer og
Ralph M. Turner, báðir kenn-
arar við læknaháskóla í Penn-
sylvaniu, könnuðu nýlega
hræðslu fólks. Þeir rannsök-
uðu 115 konur og 141 karl-
mann. Það sem mest kom á
óvart var að mjög er misjafnt
hvað kynin hræðast. Karl-
menn hræðast mest að halda
ræðu á opinberum vettvangi
en konur eru hræddastar við
eld. En hér kemur
hræðslulistinn:
Karlar
1. Halda ræðu á opinberum
vettvangi.
2. Geramistök.
3. Særa tilfinningar ann-
arra.
4. Veraálitinn fífl.
5. Detta.
6. Útilokunúrhópi.
7. Skurðaðgerð.
8. Að ekki sé tekið mark á
sér.
9. Fágagnrýni.
10. Leðurblökur.
Konur
1. Eldur.
2. Lík.
3. Útilokunúrhópi.
4. Mýs og rottur.
5. Geramistök.
6. Særa tilfinningar ann-
arra.
7. Vopn.
8. Skurðaðgerð.
9. Halda ræðu á opinberum
vettvangi.
10. Horfa fram af háhýsum.
Sean Lennon leikur sér einn
Sean, hinn fimm ára sonur
John Lennons, verður að
leika sér einn í Central Park í
New York. Áður sáust þeir
feðgar oft saman í garðinum.
Nú er hann í fylgd með barna-
píu. Central Park er steinsnar
frá þeim stað sem John Lenn-
on bjó og var skotinn þann 8.
des. sl. Síðan þá hefur Yoko
Ono kona Lennons ekki sézt
opinberlega.
Sean litli Lennon að leik i Centrál
Park.