Dagblaðið - 27.01.1981, Blaðsíða 10
10.
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 1981.
DB á ne ytendamarkaði
í
Dóra
Stefánsdóttir
Ólíkt hafast þeir að tannlæknirinn og bifvélavirkinn:
TANNLÆKNIRINN NEITAR
UM SUNDURUÐAÐA KVITTUN
Hjördis Þorlelfsdóttir skrifar:
Hér fær neytendasíðan matarupp-
gjör frá einstaklingi búsettum í Kópa-
vogi. Ég hef þann háttinn á að ég læt
alla strimla sem ég fæ í matarbúðum í
krukku sem ég hef uppi á hillu í eld-
húsinu og síðan reikna ég út, oftast
mánaðarlega. Ef ég nenni ekki að
tæma krukkuna á réttum tíma er
huggun að vita að flestallar kvittan-
irnar eru dagsettar svo ekki skakkar
miklu þegar ég loksins hef mig í að
reikna út. Litli seðillinn með útkomu
mánaðarins er geymdur í krukkunni
líka, allan tímann. Ekki þýddi að
hafa hann annars staðar en við hönd-
ina, annars var ekki skrifað á hann,
eins og vel sést á uppgjörinu. Fyrir
letingja eins og mig er þetta eina
lausnin sem hefur dugað í gegnum
árin. Allar fyrirmyndaráætlanirnar
hafa farið í vaskinn.
Liðurinn annað er fljótreiknaður.
Hver einasta króna sem afgangs var
af kaupinu mínu. Ég get nefnt sem
dæmi um útgjöld að ég var hjá tann-
læknum og það kostaði mig rúmar
tvær milljónir. Ég slapp víst vel, því
þetta var í enda ársins 1979 og fram
íeftir ári 1980. Seinni helming ársins
hefði viðgerðin orðið mun dýrari
skilst mér. Auðvitað þurfti ég að taka
vaxtaaukalán, því tannlæknir lánar
ekki krónu. Það er nógu erfitt að fá
hjá þeim kvittun, ég tala nú ekki um,
ef hún á að vera að einhverju leyti
sundurliðuð, svo maður viti hvað
maður er að borga fyrir, þeir ákveða
blessaðir að maður hafi ekki vit á því
og þess vegna sé það óþarfi. Ég hef
heldur ekki vit á því þegar verið er að
gera við bílinn minn, en ætli bæði
mér og tannlækpinum þætti það ekki
skrítið að fá kvittun, fyrir viðgerð á
bíl, ekkert annað skrifað á blaðið.
Bara borga tvær milljónir takk.
Ég þarf að borga 100 kr. (1 nýkr.)
fyrir hvern einstakan kafftbolla og
3—400 kr. fyrir brauðsneið í vinn-
unni, en þar sem ég á engar kvittanir
á lager fyrir þessi viðskipti, þá eru
þau ekki með í mínu ófullkomna
mataruppgjöri, ekki það að ég hafi
fundið þessa töfrapeninga sem aðrir
virðast eiga til að borga með mat,
sem þeir ekki matreiða sjálfir í eld-
húsinu sínu, og telja því ekki með
sem matarpeninga. Ég verð að borga
þetta sjálf úr sömu buddu, af sama
kaupi, með nákvæmlega sams konar
peningum og í matarbúðinni.
Mér sýnist á mánaðaruppgjörun-
um að verð á matvælum hafi hækkað
talsvert á árinu, mínar matarvenjur
hafa lítið breytzt. Satt að segja finnst
mér ég ekkert sérlega eyðslusöm og;
fæ ekki fleiri gesti en annað venjulegt
fólk, og ég kaupi ekki tóbak, ég er
sjálf hætt að reykja og læt tóbaks-
þræla reykja sínar eigin sígarettur.
Stundum hef ég verið að velta fyrir
mér þessum stóru upphæðum, sem
fólk gefur upp i liðnum annað. Það
samræmist illa þeim kauptöxtum sem
maður les um í blöðum að séu tíðk-
aðir í landinu, og ég og mínir líkar
verðum að lifa af. Ég þykist þó hafa
sæmileg laun sem ríkisstarfsmaður,
að minnsta kosti finnst þeim það hjá
skattinum. í öllum mínum óreiðubú-
skap hef ég þó eina góða reglu sem
mig langar að segja öðrum frá. Ég á
gamla meðalstóra möppu, sem ég hef
við höndina. í hana hef ég sett nokk-
ur umslög opin að ofan. I hana sting\
ég öllum kvittunum sem ég fæ (og ég
bið oftast um kvittun). Umslögin eru
merkt. Nr. 1 Laun, skattar, banka-
viðskipti. Nr. 2 Bíllinn. Nr. 3 íbúðin.
Nr. 4 Ég sjálf (föt, skemmtanir,
V
Reyðarfjörður:
800 króna munur á nautahakki
Verókönnunin er framkvxmd af Revóarfjarðardeild Neytendasamtakanna, Verólagsstofnun annaðist gagnaúr-
vinnslu.
VERÐKÖNNUN. 4.12.80.
Kjörbúö Verslun Verelunin Pöntunarféleg Keupfélegiö
KH Gunners Brettahlli Eskflrélnga. Frem
Reyöarfirði HjaltasonarSey&isfirói Neskaupstaó.
Sykur 2 kg. 2155,- 2026,- . — 2106,- 1958,-
Fl6r«ykur 1/2 kg. — 595,- 585,- 613,- 629,-
Sirkku molasykur 1 kg. 1391,- 1185,- — 1365,- — •
Pilltburys hveiti 5 lbs. 1215,- 1160,- 1240,- — —
Robin Hood hveiti 5 lbs. 1238,- — — 1182,- 1009,-
Pama hrísmjöl 350 gr. 314 ,- 515,- 472,- 350,- 392,-
River rice hrfsgrj&n 454 gr. 412,- 440,- 440,- 444 ,- 420,-
Solgryn haframjöl 950 gr. 966,- 1020,- 950,- 980,- —
Kellogs corn flakes 375 gr. 1190,- — 1395,- 15B8,- —
fslenskt matarsalt Katla 1 kg. — — — 470,- —
Reykjanessalt ffnt 1 kg. 407,- — — — —
Royal lyítiduft 450 gr. 821,- 865,- 1145,- 1050,- 956,-
Golden Lye's sýr&p 500 gr. 2305,- 2515,- 2420,- 1648,- 2311,-
Royal vanillubuCingur 90 gr. 230,- 170,- 179,- 210,- —
Maggi sveppasupa 65 gr. 284 , - — 297,- 289,- 289,-
Vilko sveskjugrautur 185 gr. 614,- 670,- 296,- 596,- 614,-
Meíroses te 40 gr. 400,- 445,- 245,- — 488,-
Fr&n mj&lkurkex 400 gr. — 680,- — — 670,-
Ritr saltkex rauCur 200 gr. 715,- 715,- 700,- — 1110,-
Korni flatbröd 300 gr. — — — 563,- 563,-
Fr&n kremkex 673,- 700,- 675,- 659,- 1170,-
Ora graenar baunir 1/1 d&s 839,- 740,- 900,-~ 853,- 896,-
Ora rauOkál 1/2 d&E 743,- 935,- 907,- 928,- 898,-
Ora bakaOar baunir 1/2 d&s 885,- 810,- — 790,- 830,-
Ora fiskbGCingur 1/1 d&s — 1780,- 1403,- 1536,- 1535,-
Ora lifrarkaefa 1/8 d&s 468,- — — — —
Ora mafskorn 1/2 d&s 831,- 810,- 890,- 925,- 880,-
T&mats&sa Valur 430 gr. 755,- .755,- 748,- 688,- 717,-
T&mats&sa Libbys 340 gr. 660,- 660,- 670,- — 706,-
. Kj&klingar 1 kg. 4863,- 4870,- 4305,- 4980,- 4980,- V
Nautahakk 1 kg. 5642,- 5642,-' 4860,- 5642,- 5642',-
Kindahakk 1 kg. 2500,- — 3860,- 4450,- 3663,-
Gunnars majones 250 ml. 580,- — 575,- 556,- 592,-
Egg 1 hg. — — 2820,- 3036,-
Sardfnur f olfu K. J&nsson 106 gr. — — 516,- 505,- 512,-
Regin WC pappfr 1 rGlla 238,- 270,- — 223,- 240,-
Melitta kaffisfur No. 102 40 pokar 427,- — — 424,- 488,-
C-ll þvottaefni 3 kg. 3285,- — — -- 1 3799,-
Þvol uppþvottalögur 2,2 ltr. 1733,- 1734,- — —— —
Hreinol grsenn 0,5 ltr. 510,- 575,- — 528,- 560,-
Lux handstpa 90 gr. 338,- 370,- 3?*.- 200,- 350,-
D&n mýkingareíni 1 ltr. — 1003,- 1070,- • 1175,-
Colgate tannkrem fluor 90 gr. 636,- 695,- 665,- r 524,- 696,-
£plaajamp& Sjöfn 295 ml. 983,- 965,- 1035,- 955,- ,
Nivsa- krem 60 ml. 725,- 755,- 664,- . “- 620,-
Tannlæknarnir hafa ákveðið að maður hafi ekkert vit á þvi sem við mann er gert
og þurfi þvi enga kvittun, segir Hjördis 1 bréfi sínu. Þessi börn eru heppin að því
leyti að enn eru þau svo ung að rikið greiðir fyrir þau tannlækningar að mestu
leyti. Við hinir fullorðnu verðum hins vegar að punga út með peningana fyrir okk-
ar ten nur.
ferðalög, viðhald, s.s. lækniskostn-
aður, hárgreiðsla o.þ.h.). Nr. 5
Ýmislegt. Nr. 6 Gögn, þar í set ég alla
miða sem fylgja fötum, áhöldum
o.þ.h. sem keypt er yfir árið, s.s.
ábyrgðarskirteini, notkunarreglur og
happdrættismiða. Þessa möppu geri
ég upp um leið og ég geri skattfram-
talið. Meiriparturinn af pappírsmið-
unum fer i ruslakörfuna, en ég sting
afganginum í umslag merkt árinu.
Þetta geymi ég í sérstökum kassa, og
ennþá hef ég ekki hent úr kassanum,
en myndarskapurinn hefur reyndar
ekki staðið i nema um áratug.
Ég er með tillögu til neytendasíð-
unnar. Matvæli, s.s. landbúnaðar-
vörur, fiskur o.fl., eru háð verðlags-
ákvæðum, en mjög sjaldan verð-
merkt í búðum. Hvernig væri nú að
fá þessar vörur prentaðar í einn dálk í
blaðinu, skýrum stöfum og vel skipu-
lagt. Til dæmis algengar mjólkur-
vörur fyrst, þar fyrir neðan einhver
annar vöruflokkur og áfram niður
dálkinn. Þennan dálk gæti maður
síðan klippt út og hengt upp á vegg
og losnaði þar með við ergelsi þegar
maður ætlar að aðgæta og yfirfara
strimla úr matarbúðum. Ef verð-
breytingar verða er hægt að endur-
prenta þann hluta dálksins með sama
letri og formi og er þá einfaldlega
hægt að líma nýja verðið yfir það
gamla og úrelta.
Svo þakka ég skemmtilega og fróð-
lega neytendasíðu.
Eitt enn ...
svona íkyrrþey
Viltu vera svo væn að skila til
þeirra sem sjá um þann hluta blaðsins
að athuga að texti sem fylgir mynd af
góðborgara sé allur fyrir neðan
myndina og sé ekki að óþörfu fluttur
í annan dálk. Margir klippa þetta úr
blöðumefþeirkannastvið fólkið.
í guðanna bænum, hættið að stað-
setja afmælismyndir og texta um
góðborgara við hliðina á dánartext-
um og myndum. Ég vorkenni alltaf
afmælisbörnum sem sjá myndir af
sér við hliðina á þeim dánu. Það er
heldur vandræðaleg afmælisgjöf frá
Dagblaðinu. Þessir mjög svo bráð-
nauðsynlegu dálkar ættu helzt að
vera sinn á hvorri opnunni.
Svar:
Þakka þér fyrir langt og skemmti-
legt bréf, Hjördís. Hugmynd þín með
bókhaldsmöppuna er ein af þeim
betri sem ég hef heyrt lengi og þyrfti
ég sjálf að nota mér svipað skipulag.
Það er ótrúlegt hvað safnast að
manni af alls konar kvittunum á einu
ári.
Hugmynd þinni um myndir af góð-
borgurum (sem og öðru fólki) hefur
verið komið á framfæri við þá sem
um síðurnar sjá. Ég vonast eftir að fá
mánaðarlega seðil frá þér í framtíð-
inni því þrátt fyrir þína skoðun á
eigin óreiðu i bókhaldinu sýnist mér
að flestu sé til haga haldið. Dóra.
Fréttabréf Neytendasamtakanna komið út:
Fróðleikur úr héraði
og f rá aðalstöðvum
Fréttabréf Neytendasamtakanna er
komið út í 11 þúsund eintaka upp-
lagi. Að þessu sinni er það ögn öðru-
•vísi en það hefur verið undanfarið.
Því hver deild birtir sína forsíðu og
baksíðu á fréttabréfinu. Miðjusíð-
urnar eru hins vegar sameiginlegar. Á
þeim er greint frá merkingum á dilka-
kjöti, öryggi í eldhúsum, heimilis-
bókhaldi, póstþjónustu og fleiru
ásamt því að formaður Neytenda-
samtakanna, Reynir Ármannsson,
ávarpar lesendur. í ávarpinu segir
hann meðal annars að á síðasta ári
hafi félagsmönnmum í Neytenda-
samtökunum fjölgað um 30% og
verði haldið áfram við félagasöfnun í
ár. Aukin félagatala þýðir aukin
áhrif samtakanna.
Á útsíðunum, sem hver deild hefur
síðan unnið héima hjá sér, eru verð-
kannanir, ýmis fróðleikur úr héraði,
áskoranir til fólks um að ganga í
samtökin og fleira í þeim dúr. Á síð-
unni á næstunni mun birtast ýmislegt
af þeim fróðleik.
öll vinna við blöðin var unnin í
sjálfboðavinnu. -DS.