Dagblaðið - 27.01.1981, Qupperneq 28
Eigendur Landsvirkjunar fjaiia ekki um málin en...
Almenningurá að borga
fyrir stóriðjufyrirtækin
—Jámblendifélagið færbætta lokun semþað óskareftirogíSAL færorku
framleidda méð olíu sem almemingur borgar
„Það eru eigendur Lands-
virkjunar, ríkið (Alþingi) og Reykja-
víkurborg, sem eiga að fjalla um
aukinn kostnað við framleiðslu raf-
orku til stóriðjufyrirtækjanna í
landinu en ekki einhver nefndar-
fundur úti í bæ,” sagði Albert
Guðmundsson á Alþingi í gær er
allur þingtíminn fór í umræður utan
dagskrár um ískyggilegar horfur í at-
vinnumálum íslenzks iðnaðar.
Enginn tók undir orð Alberts.
Albert sagði að ljóst væri að
nánast á lokuðum nefndarfundum
væri nú rætt um hvernig framleiða
mætti aukna orku til handa stór-
iðjufyrirtækjunum og velta stór-
auknum kostnaði af því yfir á lands-
menn alla og m.a. íslenzk iðnfyrir-
tæki sem ættu í vandræðum fyrir.
Stafaði af þessu mikil hætta fyrir
iðnaðinn og atvinnumarkaðinn i
heild. Lagði Albert ríka áherzlu á að
ákvarðanataka varðandi raf-
orkuframleiðslu með dísilvélum væri
tekin af eigendum Landsvirkjunar og
lýsti yfir að hann myndi æskja borg-
arráðsfundar í Reykjavík um málið.
Sá fundur sem Albert vitnaði til
var fundur forráðamanna Lands-
virkjunar og fulltrúa stóriðjufyrir-
tækjanna sem haldinn var í
gærmorgun. í fréttatilkynningu
Landsvirkjunar um fundinn segir að
þar ,,hafí verið samið um að Járn-
blendifélagið loki um tíma algerlega
fyrir rekstur þess ofns sem þar er enn
í notkun. Sú viðbótarbyrði, sem
Járnblendifélagið tekur á sig með
þessu, mun dreifast á Landsvirkjun
og þær almenningsveitur, sem ella
hefðu orðið að draga úr orkusölu eða
afla orku með olíukyndingu, sem
verða mundi a.m.k. tvöfalt
kostnaðarsamara”.
Orkusala til Járnblendiverk-
smiðjunnar minnkar um 23 megavött
og dregið er úr raforkusölu til ísals
um 17 megavött til viðbótar því sem
áðurvar.
Umræddur fundur hefur því á-
kveðið að kostnaður af skerðingu
raforkusölu til stóriðjufyrirtækjanna
lendi á almenningi i hækkuðu
raforkuverði. Á sama tíma hefur
komið fram að Járnblendifélagið
óskaði eftir að losna undan raf-
orkukaupasamningi sínum vegna
sölutregðu á járnblendi og hefur
komið fram að afkoma verk-
smiðjunnar er betri með engum
rekstri en fullri kaupgreiðslu til
starfsfólks heldur en með fullum
rekstri verksmiðjunnar. -A.St.
frfálsf, óháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 27. JAN. 1981.
Bfldudalur:
Snjóskriða
félláað-
veitustöð
ogeyði-
lagði spenni
— bráðabirgðaviðgerð
lýkurídag
, .Spennirinn er ónýtur, en við eigum
annan spenni, minni, sem tengdur
verður til bráðabirgða og því verður
lokið í kvöld,” sagði Runólfur Ingólfs-
son hjá Orkubúi Vestfjarða á Bíldudal í
morgun.
í gærkvöld féll snjóskriða á
aðveitustöð á Bíldudal og ruddi um
spenni fyrir þorpið á Bíldudal en
búnaður sem sér um dreifingu raforku
til Tálknafjarðar og Patreksfjarðar
slapp óskemmdur. Einnig ruddi
skriðan um girðingunum umhverfis
aðveitustöðina.
Almannavarnarnefnd Bíldudals
sendi í gærkvöldi út tilkynningu til
fólks að vera ekki á ferli nálægt spenni-
stöðinni vegna lausra rafmagnslína og
ef haetta væri á fleiri skriðum. Við
nánari könnun reyndist hættan vera
minni en í upphafi var áætlað.
Núna er rafmagn fyrir Bíldudal
framleitt með dísilvél og hefst
undan.ef fólk sparar og hlýindin hald-
ast. Með varaspenninum, sem tengdur
verðu í dag, og keyrslu á dísilvélinni
ætti þetta að bjargast fyrir horn, að
sögn Runólfs Ingólfssonar. -JR.
Mikið hvassviðri var er unnið var við að bjarga heyinu af fjósioftinu. Það gekk þó von-
um framar. Á myndinni sést heim að Króki.
DB-myndirSit>urður Þorri.
Gamalt fjósloft með 40 hestum af heyi skemmdist mikið í bruna í gæn
„HEFÐIVERID VERRA EF SLYS
HEFDU ORDID Á FÓLKI”
—sagði Guðbjartur Hólm bóndi á Króki á Kjalarnesi
,,Er ég kom út um tíuleytið í morgun
sá ég hvar allt logaði í gömlu fjóslofti
sem er hérna. Ég geymi þarna hey og ég
býst við að þarna hafi verið um 35—40
hestar af heyi. Það er misskilningur að
þetta hafi verið hlaða. Þettai gamla fjós
er sambyggt hlöðunni, fjósinu og
íbúðarhúsinu svo þarna hefði getað
farið mjög illa,” sagði Guðbjartur
Hólm bóndi á Króki á Kjalarnesi i sam-
tali við DB í gær.
,,Ég gat ekkert við eldinn ráðið og
hringdi þvi strax á slökkviliðið. Þeir
voru komnir á staðinn svo fljótt að ég
var ekki einu sinni farinn að gá að
þeim. Ég vildi gjarnan að það kæmi
fram þakklæti til þeirra. Gamla fjós-
loftið stóð austast í húsabyggingunni
og þar sem vindur var af austri hefði
þettaalltgetaðfarið.
Það er slökkviliðinu að þakka að
ekki fór verr, þeir gerðu allt til að
bjarga hinum húsunum. Nei, ég get nú
ekki sagt að þetta hafi komið mér neitt
úr jafnvægi. Þetta hefði hins vegar
væntanlega gert það ef einhver slys
hefðu orðið. Það getur svo sem allt
skeð hjá manni en þetta er töluvert
tjón. Ég vil nú sem minnst tala um elds-
upptök vegna þess að ég er að bíða eftir
rannsóknarlögreglunni og það er bezt
að þeir rannsaki þetta. Annars gæti ég
trúað að þetta hafi stafað af rafmagni.
Eða að snjór hafi komizt inn á loftið og
i heyið og þannig myndað hita. Maður
veit þaðekki,” sagði Guðbjartur Hólm
ennfremur. - ELA
Flugleiðafokker
hlekktistáílendingu
íLíbýu:
Vélin lenti á
stalli á
flugbrautinni
— engin slys á mönnum
„Flugvöllurinn þarna er í endur-
byggingu og það mun hafa verið stallur
á brautinni sem orsakaði skemmdirnar
á vélinni,” sagði Sveinn Sæmundsson
blaðafulltrúi Flugleiða í morgun.
Annarri Fokkervél Flugleiða, sem nú
eru í leiguflugi í Líbýu, hlekktist á í
lendingu í siðustu viku er nefhjól
vélarinnar lenti á stallinum. Vélin var
full af farþegum en engan sakaði.
„Við fengum í fyrstu mjög óljósar
fréttjr af atburðinum,” sagði Sveinn.
■Sagt var að vélin hefði lent í sandskafli
í eyðimörkinni, en það reyndist vera
rangt. Við vitum ekki hve skemmdirnar
eru miklar. Varahlutir voru fengnir frá
Trípóli og gert við vélina í sandstormi
og henni síðan flogið til Tripolí. Þessi
vél átti að koma fljótlega heim í skoðun
og önnur að fara i hennar stað, en ekki
er vitað hvort því verður flýtt.
íslenzkur flugstjóti var með vélina.
-JH.
.....
Orkunýtingartilraun á Grenivík:
Eigendur frystihússins Kaldbaks
hf. á Grenivík við Eyjafjörð hyggjast
leggja sitt af mörkum til orkusparn-
aöar á tímum þegar góð og mikil
orkaergulli betri. Kaldbaksmenn eru
að stækka frystihúsið og taka við-
bygginguna f notkun með vorinu. En
um leið verða tekin í notkun ný tæki
til upphitunar hússins, þau- einu
sinnar tegundar á íslandi. Varmi sem
verður til í vinnsluvélum hússins er
notaður til að hita loft sem síðan er
blásið um húsið og það þannig hitaö
upp. Með því móti verður til orka
sem jafngildir 140 kílóvöttum og þarf’
aðeins 15—20 kílóvött til aö hita
loftið. Kaldbakur kaupir umrætt
orkunýtingartæki frá Noregi og
borgar fyrir það 300 þús. nýkrónur
(30 milljónir).
„Hliðstæð tæki eru i notkun í
mörgum löndum en hérlendis eru þau
óþekkt,” sagði Knútur Karlsson
framkvæmdastjóri Kaldbaks í gær.
„Við réðumst i þetta þar sem við
erum úrkula vonar um aðfá hitaveitu
hér.
Einnig vildum við nota tækifær-
ið þegar hvort sem er þúrfti að kaupa
ný tæki og breyta frystikerfinu vegna
staékkunar hússins.”
Ekki er vitað um aðra forráða-
menn fiskvinnsluhúsa hérlendis sem
hafa í hyggju að fara út á braut Gren-
vikinga í orkusparnaði. Vitað er þó
um nokkra sem fylgjast með tiiraun-
inni og munu ef til vill stíga skrefið
takist hún vel.
- ARH