Dagblaðið - 21.02.1981, Síða 4

Dagblaðið - 21.02.1981, Síða 4
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 1981. DB á ne ytencfamarkaði Diskur og bolli tekin af markaði: Innihéldu hættu- lega þungmálma Taka varð af markaði nýlega barnadiska og bolla þar eð þeir gáfu frá sér meira magn af kadmíum en leyfilegt er. Kadmíum er þung- málmur sem getur valdið eitrun í mönnum sé hans neytt í of miklum mæli. Kadmíum ásamt þungmálminum blýi er oft notað við gerð mataríláta og því hafa verið settar reglur um það Diskurinn og bollinn sem fjarlægð voru af markaði. hversu mikið magn ílátin mega gefa frá sér þannig að ekki valdi skaða. Heilbrigðiseftirlit ríkisins rannsakaði nýlega 32 hluti í verzlunum til þess að kanna hve mikið þeir innihéldu af þessum málmum. Allir hlutirnir nema diskurinn og bollinn reyndust innihalda málmana innan hættu- marka. Nokkuð kom fram af blýi en þó ekki talið hættulegt. Fyrirtæki það sem flutti inn disk- inn og bollann fjarlægði þá þegar í stað að beiðni heilbrigðiseftirlitsins. Blý og kadmium eru einkum notuð sem hjálparefni við framleiðslu í gler- og leiriðnaði, svo og plastiðnaði. Blý er oftast i gljábrenndum hlutum og gleri og er einnig notað til þess að gera liti „dýpri”. Kadmium er einnig notað í sama tilgangi. Helzt er hætt á að þessir málmar leysist upp í miklum hita eða ef geymd eru matvæli í ílát- unum. Á það einkum við um súi mat- væli, t.d. ávaxtasafa og slátur. Er því full ástæða til þess að vara fólk við að geyma matvæli i skærlitum plast-, gler- eða leirílátum og sérlega þó ef á þeim eru upphleyptar myndir. - DS Jafnt vöruverd í Djúpinu: Ávextir og grænmeti til í miklum mæli Vöruverð á helztu nauðsynjum virðist vera mjög áþekkt í verzlunum við ísafjarðardjúp. Þetta kom fram í könnun sem Magnús Hauksson gerði og skýrt er frá í nýjasta tölublaði Vestfirzka fréttablaðsins. Þar segir að Magnús hafi gert þessa könnun sér til dundurs og sé hún ákaflega vís- indalega unnin. Könnunin var gerð dagana 5., 6. og 9. febrúar. Kannaðir voru 70 flokkar vara og voru 52 þeirra til í öllum þeim fimm verzlunum sem Magnús leit inn í. Þær eru Verzlun Einars Guðfinns- sonar, verzlun Bjarna Eiríkssonar (Bjarnabúð), Ljónið, Kaupfélag ís- firðinga og Björnsbúð. Mest var úr- valið hjá Einari Guðfinnssyni og í Ljóninu en gott einnig hjá Kaup- félaginu. Magnús tók það sérstaklega fram við Vestfirzka fréttablaðið að ekki munaði nema sáralitlu á vöru- verðinu þó Kaupfélagið væri með auglýst svonefnt grunnverð. Magnús kannaði i sömu ferðum úrval af ávöxtum og grænmeti í sömu verzlunum. Reyndist það vera furðu gott, jafnvel eins gott og í Reykjavik. Sem dæmi má nefna að kókoshnetur fást bæði í Ljóninu og hjá Einari Guðfinnssyni. Allar algengustu teg- undir af ávöxtum og grænmeti fást í öllum verzlununum. -DS Ungverskur pylsuréttur Uppskrift dagsins er að ungversk- um pylsurétti. í hann þarf: 2 lauka 2 hvítlauksrif 1 græna papriku 1 rauða papriku 2 msk. olíu 1 tsk. paprikuduft salt og pipar 1/2 tsk. þurrkað dill 1 dós (425 g) tómata 450 g soðnar kartöfiur 450 g feita pylsu 450 ml sýrðan rjóma (rúmar 2 dósir) Laukurinn er skrældur og saxaður. Hvítlaukurinn marinn. Kornin tekin úr paprikunum og þær saxaðar. Oli- an er hituð í djúpum potti og laukur- inn og hvítlaukurinn kraumaðir í henni í 5 mínútur. Passið að ekki brenni við. Paprikunni er bætt i og látið krauma í aðrar 5 mínútur. Tekið af hitanum og paprikunni, dillinu og tómötunum hrært í. Kart- Uppskrift dagsins Heiinilisbökhald vikuna: tU n ir 4 í i 1 • •_• . i • i j • . • • ... i Mat- og di’yklqarvorur, hremlætisvorur ogþ.n.: Sunnud Mánud Þridjud Miðvikud FLmmtud Pöstud Laugard SamL SamL Samt Samt Samt Samt Samt önnur útgjold: Sunnud Mánud Þriðrjud Miðvikud Fimmtud Föstud Laugard flmt Ramt Samt Sarnt Samt flmnt Samt. öflurnar skornar niður ásamt pyls- unni og bætt í pottinn ásamt sýrða rjómanum. Hitað í 5 minútur án þess að sjóði. Borið fram með snittu- brauðí. Þessi uppskrift er fremur dýr, kostar líklega upp undir 100 krónur þegar allt er með talið. En það má nota ými í stað sýrða rjómans og þá fer verðið nokkuð niður. Pylsan er reiknuð á 40 krónur rúmar sem er verð á Dala- og Óðalspylsum frá Sambandinu. Paprikan er fremur dýr á þessum árstima og niðursoðnir tómatar eru alltaf dýrir. Miðað við fjóra kostar rétturinn 25 krónur á mann. - DS FILMUR DG VELAR S.F. SKÓLAVÖRDUSTÍG 41 - $IMI 20235. | I

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.