Dagblaðið - 21.02.1981, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 21.02.1981, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 21. FEBRUAR 1981. 7 Menningarverðlaunin 1981: Úrslitin liggja brátt fyrir — matseðillinn til reiðu Nú hafa dómnefndir vegna þriðju Menningarverðlauna DB unnið kappsamlega að því að vinna úr öllum tillögum sem komið hafa upp og brátt munu úrslit liggja ljós fyrir. Á miðvikudaginn munu verðlaunin verða veitt þeim útvöldu við hádegis- verð í Þingholti og eins og áður hefur verið getið hefur Kolbrún Björgólfs- dóttir keramíkhönnuður gert verð- launagripina sem verða opinberaðir nú eftir helgina. Hér skal skýrt frá helztu hugmynd- um sem dómnefndirnar hafa verið að velta fyrir sér í hverri grein, en þó er ekki fullvíst að endanleg úrslit verði örugglega i samræmi við þær. í arki- tektúr hefur nefndin verið að velta fyrir sér eftirtöldum byggingum: Skólahúsi á Þingeyri (arkitekt Úlrík Arthúrsson), Osta og Smjörsölunni (arkitektarGunnarGuðnason og Há— kon Hertervig) og leiguíbúðum á Pat- reksfirði (arkitekt Alena Anderlova Norðfjörð). Kvikmyndanefndinni fundust eft- irfarandi verk og listamenn helzt koma til greina: Land og synir, Oöal feðranna, Ágúst Guðmundsson, Hrafn Gunnlaugsson, Þrymskviða, Sigurður Sverrir Pálsson (kvikm.taka). í myndlistinni reyndist erfitt að gera upp á milli margra ágætra listamanna. Meðal þeirra voru: Svavar Guðnason, Leifur Breiðfjörð, Tryggvi Ólafsson, Níels Hafstein, Sigurjón Ólafsson, Kristj- án Daviðsson. Leiklistarnefndin átti einnig í erfið- leikum með að velja sitt fólk. Þar var m.a. rætt um Odd Björnsson, Blindisleik og nokkra unga leikara sem ekki skulu nafngreindir á þessu stigi. í bókmenntum komu til greina bæði skáldsagnahöfundar og ljóð- skáld. Þar á meðal voru Hannes Pét- hún þurfti aðgera upp á milli Kamm- ersveitar Reykjavíkur (sérstaklega fyrir Pierrot Lunaire), Jóns Ásgeirs- sonar (Blindisleik), Hjálmars Ragn- arssonar (v. Myrkra músíkdaga), Ragnars H. Ragnar (v. tónlistar- starfa), Rutar Magnússon (Pierrot Lunaire) o.fl. Eins og venjulega munu þeir snilld- arkokkar á Hótel Holti leggja sig alla fram í matreiðslu þennan dag sem Menningarverðlaunin verða afhenl í húsakynnum þeirra. Ásamt Jónasi Kristjánssyni ritstjóra gerðu þeir Holtsmenn tillögu að máltíð sem verður í þessa veru: Lystauki (Tio Pepe), Strasburger lifrarpaté, karfi smjörsteiktur í konjaki ásamt með GewUrztraminer hvítvíni, kaffi og púrtvín (Quinta do Noval) á eftir. Fyrri máltiðir í tengslum við menn- ingarverðlaun hafa heppnazt með miklum ágætum og má fullyrða að þessi verðurekki síðri. -AL ursson (Heimkynni við sjó), skógi),Hreiöar Stefánsson (Grösin i Guðlaugur Árason (Pelastikk), Þor- glugghúsinu). steinn frá Hamri (Haust í Skíris- Loks er það tónlistarnefndin, en Frá afhendingu Menningarverólaunanna 1980, borðhaldið I Þingholti. Hér má sjá bæði verðlaunahafa og dómnefndir. DB-mvnd Hörður. Seltimingar neituðu Kaupmannasamtökunum Líkan að f.vrirhugaðri verzlunarmiðstöð á Seltjarnarnesi. DB-mvnd Ari. Stjórn Kaupmannasamtaka íslands kallaði nýverið á bæjarstjóra og forseta bæjarstjórnar Seltjarnarness til við- ræðna um afgreiðslutíma verzlana á Seltjarnarnesi. Afgreiðslutími verzlana á Seltjarnarnesi er frjáls og verzlanir því opnar þar á kvöldin og um helgar. Ýmsar hömlur eru aftur á móti á af- greiðslutíma verzlana í Reykjavík. Kaupmannasamtökin fóru fram á það við bæjarstjóra og forseta bæjar- stjórnar að á Seltjarnarnesi yrði tekið upp sama kerfi og í Reykjavík. Stefna bæri að því að samræma afgreiðslu- tíma verzlana á Stór-Reykjavikursvæð- inu. I Mosfellssveit hefur gilt það sama Gunnar Snorrason formaður Kaupmannasamtakanna: Svipaðar reglur ættu að gilda á öllu Stór- Reykjavíkursvæðinu — Kaupmannasamtökin leggja til að landslögum verði breytt og samræmdur afgreiðslutími verzlana líkt og nú gerist í Reykjavík „Kaupmannasamtökin eru að reyna að koma því til leiðar að svipaðar regl- ur gildi um afgreiðslutima verzlana á öllu Stór-Reykjavíkursvæðinu,” sagði Gunnar Snorrason formaður Kaup- mannasamtakanna í gær. ,,Það er óeðlilegt að aðrar reglur gildi á Sel- tjarnarnesi, i Mosfellssveit og Kópa- vogi en Reykjavík. Á Seltjarnarnesi er opið öll kvöld og um helgar og það sama á við í Mosfellssveit. Kópavogs- búar komu hins vegar í kjölfar Reyk- víkinga eftir að reglugerð var sett 1971 en vörulistar í söluturnum i Kópavogi eru rýmri en í Reykjavík. Við ræddum því við forráðamenn á Seltjarnarnesi en það er ekki útlit fyrir að samræming náist milli Seltjarnar- ness og Mosfellssveitar og Reykjavíkur en við höfum enn ekki talað við yfir- völd í Kópavogi. Það er á valdi bæjar- stjórna á hverjum stað hvernig þessum málum er háttað. Kaupmannasamtökin hafa verið með nefnd i gangi sem vinnur að tillögum um það að landslögum verði breytt þar sem samræmdur verði afgreiðslutími verzlana með svipuðum hætti og nú gerist í Reykjavík. I þessari nefnd eru auk fulltrúa Kaupmannasamtakanna fulltrúar launþegafélaga og kaupfélag- anna. Síðan yrðu frávik frá þessu, t.d. varðandi ferðamenn á sumrin. I Reykjavik er reglan sú að lokað er kl. 18 á kvöldin en menn mega hafa opið tvö kvöld í viku til kl. 22, valtími. t.d. föstudagskvöld og siðan annað valið kvöld. Þá er heimilt að hafa opið til kl. 12 á laugardögum. Þá er það ný- mæli að sækja má um að hafa opið frá kl. 12—16 á laugardögum en þó er gert ráð fyrir því að ekki séu opnar fleiri en ein til tvær verzlanir þá í hverri grein. Þá eru einnig leyfðar sýningar, t.d. húsgagnasýningar um helgar, en ekki er gert ráð fyrir sölu samtímis. Sölulistar söluturna verða bættir og þá tekið mið af hollustuháttum, t.d. verða ávextir áboðstólum. Lögð er mikil áherzla á að löggjafar- valdið fylgist með þvi að reglugerðinni sé framfylgt en brögð voru að því að ekki var farið eftir gömlu reglugerð- inni,” sagði Gunnar. -JH. og á Seltjarnarnesi og verzlunarhættir hafa einnig verið rýmri i Kópavogi en í Reykjavík. Bæjarstjóri og forseti bæjarstjórnar neituðu að verða við tilmælum Kaup- mannasamtakanna og sögðu að áfram yrði sami háttur á afgreiðslutíma og verið hefur. Bæjarstjórn mun einhuga um málið. Þar skipta menn sér ekki af því hve lengi kaupmenn hafa opið. Sagan segir enda að níu af hverjum tíu bilum sem sjást fyrir utan Seltjarnar- nesverzlanirnar á kvöldin og um helgar séu með R-númeri. Dagblaðið ræddi við Magnús Er- lendsson forseta bæjarstjórnar Sel- tjarnarness og Gunnar Snorrason for- mann Kaupmannasamtakanna og fara þau viðtöl héráeftir. -JH. Kaupmanna- samtökin vildu samræmaaf- greiðslutíma verzlana íReykjavík og áNesinuen bæjarstjóri ogforseti bæjarstjórn- arneituðu Magnús F.rlendsson: „Það þvðir ekki að tala unt frelsi aðeins í nrði, það verður lika að vera á borði.” DB-mynd Rattnar Th. Magnús Erlendsson forseti bæ jarstjórnar Seltjarnarness: Styðjum þá kaupmenn sem vilja leggja á sig vinnu og fyrir- höfn umf ram aðra — og stuðla um leið að betri þjónustu við bæjarbúa Gunnar Snorrason: „Landslögum verði breytt og samræmdur verði af- greiðslutími verzlana með svipuðum hætti og nú gerist í Reykjavik.” „Við í bæjarstjórn Seltjarnarness viljum vera sjálfum okkur samkvæm, sem sé að hjálpa þeim sem hjálpa sér sjálfir,” sagði Magnús Erlendsson for- seti bæjarstjórnar Seltjarnarness í gær. ,,í þessu tilfelli viljum við styðja þá kaupmenn sem vilja leggja á sig vinnu og fyrirhöfn um kvöld og helgar, langt umfram aðrar stéttir. Um leið er ekki minna um vert að stuðla að betri þjón- ustu við íbúa bæjarfélagsins. Það þýðir ekki að tala um frelsi að- eins í orði, það verður líka að vera á borði,” sagði Magnús. -JH.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.