Dagblaðið - 21.02.1981, Blaðsíða 24
r *
Sjálfstæðismenn taka af skarið í kjördæmamálinu:
Kjördæmakjömum þing-
mönnum fjölgi um sex
— sem verði f rá Reykjavík og Reykjanesi
Kjördæmakjömum þingmönnum
verði fjölgað um sex og verði nýju
þingmennirnir frá Reykjavík og
Reykjanesi til að rétta hlut þessara
kjördæma. Þetta eru tillögur sem
sjálfstæðismenn hafa nú lagt fram og
hyggjast viðra við aðra flokka á
næstunni.
Samkvæmt tillögunum fjölgar
kjördæmakjörnum þingmönnum
þannig úr 49 í 55. Síðan er ætlunin að
kjörnir verði 5 uppbótamenn hið
minnsta en náist ekki jöfnuður með
því má kjósa allt að 6 uppbótarmenn
til viðbótar úr Reykjavík og Reykja-
nesi. Tala þingmanna verður þannig
breytileg frá 60 upp í 66, eftir þvi hve
marga þarf til þess að jöfnuður fáist.
Þetta eru meginhugmyndir sjálf-
stæðismanna en aðrir valkostir koma
einnig til greina að þeirra mati. Á
þeim grundvelli vilja þeir nú ræða við
aðra flokka og stefna að einingu um
kjördæmamálið.
Matthias Bjarnason alþingismaður
sagði í viðtali við DB í gær að nefnd,
skipuð þingmönnum, formönnum
kjördæmisráða og 5 fulltrúum
öðrum, hefði komið sér niður á um-
ræðugrundvöll við aðra flokka um
málið. Þrír voru skipaðir til að ræða
við hina flokkana, Geir Hall-
grímsson, Matthías Bjarnason og
Matthías Á. Mathiesen. Matthías
Bjarnason vildi ekki skýra frá í
hverju tillögurnar fælust fyrr en þær
hefðu verið kynntar fulltrúum ann-
arra flokka. Þær viðræður hefðu enn
ekki farið fram.
-HH.
Samvinnutryggingar:
Kaskó-
trygging
látin ná til
t jóna af
foki
Samvinnutryggingar hal'a breytt
skilmálúm kaskótrygginga bila í kjöl-
far fárviðrisins sl. mánudag og að-
faranótt þriðjudags. Tjón á bilum
vegna áfoks, þ.e. þegar hlutir fjúká á
bíla og skemnta þá, hefur hingað til
ekki verið bætt með kaskótryggingu.
Sýnileg sé þörf á slíkri vátrygg-
ingarvernd og því hefur félagið
ákveðið að bæta slík tjón úr kaskó-
tryggingu. Breytingin á skilmálunum
nær til þeirra tjóna sem urðu af völd-
um fárviðrisins 16. og 17. febrúarslr
Á blaðamannafundi félagsins í gær
kom það fram að bifreiðaeign lands-
ntanna heföi ekki notið Viðlagatrygg-
ingar Íslands og væri það nokkur
þröngsýni. Viðlagatrygging á að ná
til allrá brunatryggðra eigna og
kaskótrygging bíla er brunatrygging.
Félagið telur að nteð brcytingu
skilmála kaskótryggingarinnar séu nú
fáanlegar fulltiægjandi foktryggingar
á allar almennar eignir manna, þ.e.
hús, innbú og bíla.
- JH
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur staðfesti frétt DB um músagang í bakaríishveiti:
Frægteiknimynd
íDagblaðsbíói
I Dagblaðsbiói i dag verður sýnd
mjög fræg teiknimynd sem heitir Bær
dýranna (Animal Farm), gerð eftir
hinni frægu sögu Georges Orwells.
Sýningin hefst I Borgarbiói klukkan
þrjú. Myndin hefur verið sýnd við
mikla aðsókn undanfarnar helgar.
Starfsmaður i birgðageymslu Sam-
bandsins í Holtagörðum rótar í hveiti-
pokunum sem mýs hafa hreiðrað uir
sig í. Á minni myndinni má sjá músar
unga í einum pokanum. Þetta hveiti vai
flult úr bakaríi í Reykjavík í gær eftii
að DB hafði vakið athygli á málinu.
DB-myndir Sig. Þorri
Brauðgerð í bakaríinu stöðvuð
— vörulager Sambandsins kannaður
„Málið var kannað og þetta reyndist
rétt. Mýs voru í hveitinu,” sagði Þór-
hallur Halldórsson hjá Heilbrigðiseftir-
liti Reykjavíkur þegar DB sló á þráðinn
til hans síðdegis i gær. I frétt á baksíðu
í gær greindi DB frá hveitisendingu frá
Sambandinu til ákveðins bakarís í
Reykjavik. Þegar átti að losa farminn
af bílnum við dyr bakarísins skutust úr
honum mýs. Sáust göt á pokunum sem
greinilega voru eftir mýsnar en engu að
síður fór hveitið inn í bakaríið. Þór-
hallur sagði í samtali við blaðið í gær-
morgun að kvörtun hafi borizt vegna
þessa tiltekna bakarís en hann tók fram
að „mýs voru ekki nefndar”. Fulltrúi
Heilbrigðiseftirlitsins fór svo í heim-
sókn i bakaríið i gær og kom í ljós að
frásögn blaðsins var í alla staði sann-
leikanum samkvæm: Mýs voru í hveit-
inu.
Framleiðslan í bakaríinu var stöðvuð
að ósk Heilbrigðiscftirlitsins og kallað
á meindýraeyði. Skömmu síðar kom
vörubíll frá Sambandinu til að ná í
hveitið margumrædda. Jafnframt
sendi Heilbrigðiseftirlitið fulltrúa sína
til að kanna lager Sambandsins í vöru-
skemmum. Niðurstaða könnunarinnar
lá ekki fyrir í gær.
Þórhallur var spurður um hvor væri
ábyrgur fyrir því að hafa músahveitið í
umferð, bakarinn sem keypti vöruna
eða Sambandið sem seldi hana.
„Sá er ábyrgur sem hefur vöruna í
húsnæði sínu,” svaraðt hann, í þessu
tilfelli bakarinn. Þórhallur sagði að
kaupmönnum eða bökurum væri
óheimilt að taka við hveitisekkjum sem
göt væru á.
Ekki er vitað hvort músakvikindin í
hveitinu voru.íslenzk eða innflutt um
leið og hveitið en meindýraeyðirinn
greinir væntanlega músaþjóðerni
þeirra. Þrjár mýs sluppu úr hveitifarm-
inum á vörubílnum við bakaríið á
fimmtudaginn. Ein slapp en viðsiaddir
káluðu tveimur. -ARH
frjálst, úháð dagblað
LALGARDAGUR21.FEB.1981.
Örin bendir á gluggann hjá Landsvirkj-
un sem járnplatan fauk inn um. Hún
losnaði af ibúðarblokk í nágrenninu.
DB-mynd Sig. Þorri.
Miklar
skemmdir
hjá Lands-
virkjun
— þegar jámplata fauk
inn um glugga á
sjöundu hæð
,,Ég hélt að sprenging hefði orðið
hér á skrifstofunni um nóttina þegar ég
mætti til vinnu á þriðjudagsmorgun-
inn. Veggir og hillur voru allar á ská og
skjön og möppur og pappírar lágu eins
og hráviði um alit,” sagði Haukur
Leósson aðalbókari hjá Landsvirkjun
þegar DB hitti hann að máli i gærdag.
Haukur sagði að bárujárnsplata af
þaki næsta fjölbýlishúss hefði brotið
glugga hjá Landsvirkjun á sjöundu
hæð við Háaleitisbraut í Reykjavík.
Afieiðingarnar urðu þær að dýr tæki á
borð við telex og tölvuskerm eyðilögð-
ust og mikið rask varð á skrifstofum
fyrirtækisins.
Taldi Haukur að ósköpin hefðu átt
sér stað um kl. 23 á mánudagskvöldið.
Öll innrétting á hæðinni skekktist
meira og minna og gluggar i milliveggj-
um á hæðinni voru þaktir seltu.
„Hér hafa sex smiðir og einn rafvirki
unnið að viðgerðum nær látlaust síðan
á mánudag og er þeirri vinnu ekki lokið
enn,” sagði Haukur Leósson. -SÞS
Áfram unnið að
björgunHeimaeyjar
— óákveðið hvenær
sjóprófverða
Unnið er með stórvirkum vinnu-
vélum við að grafa frá Heimaey VE-1 á
strandstað í Þykkvabæjarfjöru til að
freista þess að ná bátnum á fiot.
Tilraun sem gerð var í gær mistókst og
ekki er ákveðið hvenær þykir tími til að
reyna aftur. Sjópróf vegna strandsins
voru enn ekki ákveðin í gær en þau
verða haldin innan fárra daga.
Miklar umræður hafa átt sér stað í
fjölmiðlum í kjölfar strandsins um að-
draganda þess, aðallega þá ákvörðun
útgerðar Heimaeyjar að afturkalla
hjálparbeiðni til varðskips. Höskuldur
Skarphéðinsson skipherra hefur gagn-
rýnt þá ráðstöfun og sagt að þar hafi
„bezta kostinum verið hafnað”. Hann
telur afskipti tryggingafélaga af því
hvað gera skuli til bjargar skipum í
sjávarháska óeðlilega mikil. DB bar
ummæli Höskuldar undir Sigurð Ein-
arsson forstjóra Hraðfrystistöðvarinn-
ar í Vestmannaeyjunl. Hann færðist
undan því að ræða málið frekar og
sagði að nóg væri komið af skrifum um
það. -ARH.