Dagblaðið - 21.02.1981, Síða 16

Dagblaðið - 21.02.1981, Síða 16
16 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 21. FEBRUAR 1981. Toyota Hi-Lux4WD FISKSALABÍL BREYTTÍ LÚXUSJEPPA Ein er sú gerð bíla sem til skamms tíma hefur notið lítilla vinsælda hér á landi, en það eru pallbílar (pick-up bílar) eða fisksalabílar, eins og þeir voru kallaðir hér áður fyrr. Fisksöl- um þótti þeir henta vel starfsemi sinni og voru varla aðrir sem notuðu pallbílana svo að þeir voru kenndir við þá. Á síðustu árum hafa vinsæld- ir þessara bíla aukist stöðugt og þá einkum ef þeir hafa verið útbúnir með fjórhjóladrifi. Fyrir rúmu ári byrjaði Toyota um- boðið að flytja til landsins Hi-Lux pallbila sem urðu strax eftirsóttir, einkum eftir að menn byrjuðu á því að smíða hús yfir pallinn á þeim. Hi-Luxinn er lítill miðað við amer- íska pallbíla og er það að mörgu leyti kostur. Bíllinn er hugsaður sem vinnuþjarkur og hann byggður í sam- ræmi við það, enda er burðargeta hans 1090 kg. Fjöðrunarkerfið er því mjög stíft og bíllinn frekar hastur, a.m.k. þegar hann er óhlaðinn. En stíf fjöðrunin hefur líka sína kosti því bíllinn hallast lítið, þótt hár sé, sé honum ekið hratt í krappar beygjur. Margir grípa þó til þess ráðs að taka eitt eða tvö blöð úr fjöðrunum til þess að mýkja fjöðrunina. Undir bílnum eru blaðfjaðrir að framan og aftan, demparar við öll hjól og auk þess ballansstöng að framan. Fram- drifið er með fljótandi öxlum en afturdrifið með hálffljótandi öxlum og er drifhlutfallið i báðum hásingum 4,87:1. Gírkassinn er fjögra gíra og alsamhæfður, með skiptinn í gólfinu. Millikassinn býður upp á hátt og lágt fjórhjóladrif auk þess sem einnig er hægt að nota einungis afturdrifið í háa. Vélin er fjögra strokka og er rúmtak hennar 1968 cc. Er hún með yfirliggjandi kambás og gefur 85 hestöfl við 5000 sn/mín. en sveifarás- átakið (torque) er 14.2 kg-m/ við 3600 sn/mín. Fyrir stuttu gerði ég mér ferð inn í Dugguvog 23 í Bílasmiðju Sturlu Snorrasonar en Sturla fæst meðal annars við að breyta pallbilum í lúxusjeppa. Var Sturla með þrjá bíla í smíðum þegar ég kom til hans og voru þeir allir á sinn hverju stiginu. Einn þeirra var tilbúinn og tókum við Sturla hann og fórum í prufuakstur. Mikil ófærð var á götunum, snjór og ís, en það háði Hi-Luxinum ekkert. Bíllinn var þægilegur í keyrslu og alls ekkert hastur enda hjálpaði hvort tveggja til, búið var að byggja yfir bilinn og þyngja hann með því að setja undir hann breiðar felgur og dekk sem voru tiltölulega mjúk. Utan vega reyndist bíllinn yfirleitt vel en þó var eitt sem háði honum töluvert en Þessi Hi-Lux er einn sá fyrsti sem Sturla smiðar yfir og eins og sést á myndinni er billinn óneitanlega glæsi- legur. F.igandi Hi-Luxins er Haukur Pálsson bóndi á Röðli i Austur-Húnavatnssýslu en hætt er við að rollurnar hans verði feimnar þegar Haukur fer að elta þær upp um fjöli og firnindi á jeppanum. Að siðustu eru smiðaðir nýir stólar I bilinn og hann klæddur að innan. Getur þá hver valið efni og áklæði eftir eigin höfði en það er Bjarni Guð- mundsson bólstrari sem sér um þá hlið málanna. DB-mynd Jóhann Rristjánsson. það var kraftleysi. Einkum urðum við varir við það þegar við lögðum bílinn i hæðarklifur upp bratta brekku. Hjörleifur Hilmarsson hjá Toyota umboðinu sagði að nokkrir Hi-Lux eigendur hefðu í hyggju að setja pústforþjöppur á bíla sina til að auka kraft þeirra og væri gaman að prófa einn slíkan í torfærum. En kraftleysið má að nokkru leyti afsaka með sparneytni, því H-Luxinn eyðir einungis að meðaltali 12 lítrum á hundraðið í innanbæjarakstri, og bú- ast má við enn minni eyðslu í lang- keyrslum. Hægt er að fá Hi-Luxinn með tveimur lengdum af palli, 1,80 m og 2,18 m. Kostar styttri bíllinn um 102.000 kr. efi sá lengri 105.000 kr. kominn á götuna. Sturla sagði að kostnaður við að breyta bílnum væri frá 35.000 krónum og upp úr. Færi kostnaðurinn eftir því hversu mikið væri lagt í útbúnað i bílinn og innrétt- inguna. í prufuferð okkar Sturlu vakti Hi- Luxinn óskipta athygli vegfarenda og gláptu þeir flestir á eftir þessum stór- glæsilega jeppa sem áður hafði ein- ungis verið venjulegur fisksalabill. Jóhann Kristjánsson. Við brevtinguna er byrjað á þvi að l'jarlægja sætin úr bilnum og skera afturhlið hússins úr. Þessi á að verða með aftursæti sem má leggja niður og breyta i rúm. DB-mynd Jóhann Kristjánsson. Síðan er smíðuð grind úr prófiljárni yfir pallinn og er hún klædd með boddlstáli.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.