Dagblaðið - 27.02.1981, Síða 3

Dagblaðið - 27.02.1981, Síða 3
ÐAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1981 __ _________■ 3 Flugleiðir hluthafa- fundur i farsastíl Meðeigandi skrifar: Garaan þótti mér að mæta á síð- asta hluthafafund Flugleiða hf. Þar talaði stjórnarformaður félagsins til okkar meðeigendanna. Hann lýsti i löngu máli nauðsyn þess að fá aura skattborgaranna í gagnið hið fyrsta! — Enginn komst við af þeim mál- flutningi. Og svo mikið lá við, að eini lög- fræðingurinn sem sæti á í stjórn fé- lagsins flutti eins konar „frumort ljóð” í nútímastíl. Ljóð hans mátti augljóslega skilja á þann veg, að hann myndi kjósa gegn sannfæringu sinni! Hann sagðist ekki vera hlynntur ríkisafskiptum en myndi þó eindregið styðja framkomna tillögu stjórnar- innar í þá átt að í stjóminni yrði fjölgað um tvo menn, nefnilega frá Ríkissjóði! Engum hrutu tár af hvörmum undir ræðu hins „snjalla” lögfræð- ings, en allflestir brostu. Bros var þó lítt við hæfi undir slíkum málflutn- ingi og hefði hinn góðkunni og land- lægi meðaumkunarsvipur sem menn setja gjarnan upp þegar menn gera sig hlægilega í ræðustól átt betur við. mikil í garð fyrirtækisins að því er varðar rekstur allan og þjónustu. — Þvi fyrr sem aðalfundur verður haldinn þeim mun fyrr úrlausn í mál- efnum Flugleiða hf. Sameining flugfélaganna gekk nú ekld alveg svona vel. Ingemar Stenmark NOTAR AÐEINS ELAN SKfÐI ELAN SKÖTÖSKUR Póstsendum Laugavegi 13 — Sími 13508 ÖRYGGISBINDINGAR ELAN BARNASKIÐASETT Erindi hins þriðja talsmanns stjórnar Flugleiða í ræðustól var að kynna fyrir fundarmönnum hve mikil gæfa það hefði verið fyrir flug- félögin tvö að „sameinast”, einkum Flugfélag íslands, sem hefði verið „mjög illa statt”. Einnig upplýsti hann fundarmenn um að enn væri um kórvillu að ræða meðal starfsfólks varðandi samstarf eða trú þess á stjórnendum, hinir lag- lausu væru á bilinu 1—2%. Fór þessi ræðumaður mikinn í málflutningi sínum og beitti hann jafnt huga og höndum í bókstafleg- um skilningi, til áherzluauka. Þrátt fyrir langar, en tilþrifalitlar ræður stjórnarmanna Flugleiða kom þó að lokum að tillaga stjórnarinnar um bráðabirgðaákvæði til þess að fjölga mætti í stjórn var felld. Kom þar til einkar skeleggur og sannfærandi málflutningur nokkurra hluthafa, sem viröist eiga mjög vax- andi fylgi að fagna meðal hins al- menna hluthafa, sem hingað til hefur mátt sín lítils i þátttöku stjórnunar fyrirtækis síns. Vitað mál er, að allt annað en fjölgun í stjórn Flugleiða verður fé- laginu til framdráttar. Hins vegar eiga þeir aðilar, sem nýlega hafa aukið sinn hlut í fyrirtækinu að fá sína fulltrúa, einn eða fleiri, sam- kvæmt venjulegum kosningaað- ferðum. Slíku mælir enginn gegn. Málamiðlunarhugmyndin um 10 manna stjórn er verri en engin fyrir alla aðila. Ummæli frú Kristjönu M. Thor- steinsson á síðasta hluthafafundi og svo í viðtali við dagbl. Timann 25. þ.m. varðandi rétt hluthafa og vægi atkvæða eru orð í tíma töluð og ástæðan fyrir því, hvernig komið er fyrir Flugleiðum hf. er eingöngu sök núverandi stjórnar og forstjóra. Eðlilegast og affarasælast fyrir alla viðkomandi og flugsamgöngur lands- manna væri sú ákvörðun að flýta nú aðalfundi, þannig að hann yrði í lok marz. Þetta á ekki sizt við, þar sem ekki er vitað hvernig fyrirtækið hefur hugsað sér áframhaldandi rekstur og tíðni ferða. Sumaráætlun er ekki opinber ennþá nema sem fréttatil- kynning frá félaginu. Vitað er, að þeir, sem bezt þekktu til áætlunargerðar hjá félaginu eru þar ekki lengur og vantrú almennings ALPINA SKÍÐASKÓR Hefurðu komið til Frakklands? Halldóra Eyjólfsdóttir afgreiðslum.: Nei, en mig langar þangað. Hreiðar Pálmason btlstjóri: Nei, en ég gæti vel hugsað mér að fara þangað. Kristjana Guðmundsdóttlr vlnnur hjá Rannsóknst. landbúnaðarins: Já, ég var meira að segja við nám þar í einn og hálfan vetur. Það var mjög gaman. Edda Hannesdóttir verzlunarmaður: Nei, þangað hef ég aldrei komið, en svo sannarlega langar mig. Jón Sigurfinnsson bilstjóri: Nei, en ég hefði ekkert á móti þvi. Gunnar Guðmundsson nemi: Nei, jú, það væri gaman að fara þangað.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.