Dagblaðið - 27.02.1981, Qupperneq 24

Dagblaðið - 27.02.1981, Qupperneq 24
fijálst, óháð daghlað FÖSTUDAGUR 27. FEB. 1981. „Höfum okk- arvaldfrá Alþingi —erum ó- háðir ríkis- stjórninni” — sagði stjórnarmaður Framkvæmdastofn- unar eftir nýja ákvörðun ríkis- stjórnarinnarítog arakaupamálinu „Við liöfum okkar vald frá Alþingi og crum ekki háðir duttlungum einstakra ráðherra um ákvarðanatöku sem varðar Fram- kvæmdastofnun rikisins,” sagði cinn af stjórnarmönnum stofnunarinnar í samtali við DB í morgun. ..Hugsanlega keniur sú staða upp á fundi stjórnar stofnunarinnar kl. 10 áraegis í dag, að fjórir stjórnarmenn sitji hjá við atkvæöagreiðslu um tiliögu sem gengur i sömu átt og tiliaga rikisstjórnarinnar. Pá fellursú tillaga á ónógri þátttöku. Greiöi hins vegar cinn af þessum fjórum atkvæði á móti tillögunni, þá er þátttakan næg og tillagan nær fram að ganga.” Tillagan á fyrirfram atkvæði frani- sóknarmanna og fulltrúa Alþýðu- bandalagsins I stjórn Framkvæmda- stofnunar rikisins. Rikisstjórnin tók i gær þá ákvörðun i hinu landsfræga togara- kaupamáli fyrir Þórshöfn og Rauf- arhöfn, að ítreka samþykkt sína frá I. ágúst unt kaup og innflutning tog- arans. Taldi hún jafnframt eðlilegt að Framkvæmdastofnun kæmi þeirri ákvörðun í höfn. Fyrir þvi voru rn.a. færð þau rök að stofnunin hefði áður samþykkt kaupin, fyrir sitt leyti, for- stjóra hennar hefði verið kunnugt um þær breytingar, sem gera þurfti á skipinu og hann (forstjórinn), og starfsmenn Framkvæmdastofnunar hefðu haldið tiða fundi með kaupendum skipsins unt kaupin. Rikisstjórnin lét þann vilja i Ijós i gær að Framkvæmdastofnunin út- vegaði 20% af kaupverði togarans eins og það var upphaflega skráð, þ.e.21 milljón n. kr. en ekki 10% af siðara kaupverði togarans, þ.e. 28 milljón n.kr., eins og rlkisstjórnin hafði áður lagt til og stjórn Frant- kvæmdastofnunar fallizt á á þeim grundvelli að með þvi væri unt lægri ábyrgðarhlut að ræða fyrir stofnunina en ef miðað væri við 20% af2l milljón norskra kr. Rikisstjórnin getur þó fallizt á þá niðurstöðu Framkvæmdastofnunar sem siðar var samþykkt, þ.e. 10% af 28 millj. n.k. Hvort sem er vantar þó nokkuð tipp á að tryggt sé fjármagn til kaupanna, en Ragnar Arnalds tjáði fréttamönnum í gær ,,að sá mismunur yrði tekinn af sérstakri fjárveitingu sent rikissjóður ætlar að tryggja Byggðasjóöi.” Þaö er fé úr sjóði sem þingmenn hafa ýmist kallað „sælgætis-” eða „mútusjóð” og var ltugsaö til innlendra skipasmíða. — allir vilja gæta Vigdísar Tveir fílefldir óeinkennisklæddir lög- reglumenn hafa það hlutverk með höndum að gæta Vigdísar Finnboga- dóttur forseta við hvert fótmál i Kaup- mannahöfn. Á nóttunni er það svo að sjálfsögðu lífvörður drottningar sem stcndur vörð við íbúð gestanna. Lif- verðirnir segja það létt verk og skemmtilegt að gæta íslenzka forset- ans. Þegar erlendir þjóðhöfðingjar koma til Danmerkur er leitað eftir sjálfboðaliðum í röðum lögreglu og líf- varða til að fylgja þeim. Yfirleitt eru fremur fáir sem sækjast eftir að ráða sig lífverði þjóðhöfðingjanna en sagt er að nú bregði svo við að menn standi í röðum og vilji gæta Vigdísar! Eða eins og lífvörður sagði við fréttamann Dag- blaðsins: „Vigdís is something to guard, I want to be her bodyguard!” -ARH/DB-mynd: R.Th. i Khöfn. Ekki gekk andskotalaust að komast til Krfsuvíkur: Þrír vörubílar út af DB-mynd: S. Það gekk ekki andskotalaust að koma vörubílum til Krísuvíkur í gær. Svo sem DB greindi frá fauk þakið af svínabúinu í Krísuvík i fárviðrinu 17. febrúar sl., þannig að flytja varð svínin í Krísuvíkurskóla. í gær fóru þrír vöru- bilar með efni til endurbyggingar i mikilli hálku og snjó. Fyrstur fór bíll með járn á þakið. Er hann var kominr. langleiðina til Krísuvíkur fór haim út af veginum. Næstur fór bíll með refa- fóður og fór hann sömu leið er hann nálgaðist Krisuvík. En allt er þegar þrennt er. Síðastur fór stór sendibill með þilplötur í svinahúsið. Er hann var kominn á slóðir hinna bílanna fór allt á sömu leið. Tveir bílanna náðust upp í gær en skilja varð bílinn með refafóðr- ið eftir. En vonandi komast svinin bráðlega á sinn stað. Halldór Júlíusson veitingamaður og eigandi svínanna vill koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem aðstoðuðu við flutning svin- anna óveðursnóttina. -JH Sjópróf vegna strands Heimaeyjar: Um „algjöra björgun” heföiveríö að ræöa — ef aðstoð varðskips hefði verið þegin og mjög há b jörgunarlaun. Sindri metinn jafnhæfur varðskipi Sjópróf hófust í gær i Vestmanna- eyjum vegna strands Heimaeyjar VE 17. febrúar sl. Vitni sem voru kölluð fyrir réttinn í gær voru Gísli Garðars- son skipstjóri á Heimaey, Helgi Ágústsson skipstjóri á togaranum Sindra og Þórður Rafn Sigurðsson skipstjóri á Ölduljóni. Það var sam- dóma álit þeirra að aðstoð varðskips væri afturkölluð af tveimur meginá- stæðum: í fyrsta lagi var togarinn Sindri nálægur Heimaey eftir að skipið hafði fengið net í skrúfuna. Sindri er mjög lipurt og vel útbúið skip og var vel i stakk búið til að aðstoða Heimaey. Það kom fram að togarinn var með nýja 3,5 tommu togvíra og hugmyndin var sú að hafa tvo víra á milli skipanna sinnihvort spilið á Sindra. Tvivegis tókst að koma línu á milli skipanna. í fyrra skiptið slitnaði línan, en I hið síðara rak hana frá vegna fárviðrisins. Ekkert kom fram í máli skipstjórnarmanna í réttinum sem benti til þess að varðskipið Þór væri hæfara til þess að fást við þetta verkefni. f öðru lagi kom það fram að ef aðstoð varðskipsins hefði verið þegin hefði verið um „algjöra björgun” að ræða en það hefði þýtt mjög há björgunarlaun. Sjóprófum er haldið áfram í dag og þá mætir m.a. fyrir dóm Garðar Ásbjörnsson útgerðarstjóri Heima- eyjar en hann hafði milligöngu um fjarskipti milli skipanna frá landi. -JH/FÓV, Vestmannaeyjum. Albert á f undi með sjálf stæðismönnum í Breiðholti: „Gef ekki kost á mér tiI forystu” „Fólkið í flokknum er ekki klofið en það vantar kraft úr aðalstöðvun- um,” sagði Albert Guðmundsson al- þingismaður og borgarráðsmaður á fjölmennum fundi með sjálfstæðis- mönnum úr Fella- og Hólahverfi í Breiðholti i gærkvöldi. Hann sat fyrir svörum. „Það er mikið starf framundan í flokknum en menn mega ekki ætla öðrum að vinna það sem gera þarf. Þá skreppur flokkurinn saman í stað þess að opnast eins og rós sem springur út,” sagði Albert. „Það þýðir ekki að bjóða upp á krakka nýkominn af skólabekk, heldur reyndan mann. Tíminn fram að landsfundi er of stuttur til að búa til formann fyrir flokkinn,” sagði Albert. „Ragnhildur Helgadóttir hefur hæfileika til að gegna forystustöðum innan flokksins. Ég vil ekki gefa kost á mér til þessara starfa,” svaraði Albert spurningu, sem til hans var beint. „Ég mun ekki styðja ópólitískan borgarstjóra,” sagði Albert. Vegna spurningar um Davíð Oddsson sagði Albert: „Davíð er kjörinn formaður borgarmálaflokksins út þetta kjör- tímabil og síðan kemur hann þar til greina eins og aðrir.” sSjálf stædis- flokknum styðekki ópólitískan borgarstjóra Um vegaframkvæmdir og orkumál sagði Albert meðal annars: „Við þurfum hraðari uppbyggingu. Hægt er að fá erlend lán til 50—100 ára. Útvegsbankinn fékk tilboð um 100 milljónir svissneskra franka til 30ára með 7,5% vöxtum. íslendingum er ekki gefið að hugsa I svona stærðar- gráðum. Við viljum heldur pukra í smámálum sem við höfum af per- sónulegan hag.” -BS. LÍFVERÐ- IR í BIÐ- RÖÐUM

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.