Dagblaðið - 26.03.1981, Blaðsíða 4
4
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1981.
Sykur um fjórðungur af
heildarneyzlu skólabama
— Um rannsókn á mataræði skólabama í Reykjavík
Manneldisráð gekkst fyrir könnun
á mataræði skólabarna á aldrinum
10—14 ára í Reykjavík árin 1977 og
’78 á vegum landlæknisembættisins.
Niðurstöður könnunarinnar urðu
þessar:
Heildarneyzla fisks og brauðmetis
hefur minnkað um 30% frá því á
árinu 1938 og kjötneyzla hefur heldur
aukizt. Síðasta könnun af þessu tagi
var gcrð árið 1938.
Sykurneyzla hefur aukizt gífur-
lega, aðallega vegna þess að neyzla
sælgætis, sætabrauðs og gosdrykkja
hefur aukizt og samsvarar um l/4 af
heildarneyzlunni. Árið 1938 var
neyzla jressara tegunda um 5% af
heildarneyzlu.
Grænmetis-, ávaxta- og mjólkur-
neyzla hefur aukizt mikið.
Fæðan er rýr af járni, D-vítamíni
og B-vítamíni.
Allt að fjórðungur daglegrar
neyzlu kemur frá söluskálum.
Breyttar
félagslegar aðstæður
Um orsök þessarar þróunar segir
m.a. svo í skýrslunni: Skipun máltíða
á heimilum hefur riðlazt, m.a. vegna
breyttra félagslegra aðstæðna, vax-
andi útivinnu húsmæðra og minnk-
andi utanaðkomandi aðstoðar. Mun
meira er keypt af tilreiddum matvæl-
um en áður til heimilisins. Unglingar
hafa mun meiri fjárráð en áður.
Mikið er leitað á fund söluskála í
fæðuleit, en þar eru nær eingöngu
seldar tilbúnar vörur.
Þar býðst fólki nær eingöngu sæl-
gæti og vítamínsnautt, litað sykur-
vatn. Fólk er beinlínis blekkt með því
að hafðir eru á boðstólum svo-
kallaðir svaladrykkir undir alls kyns
ávaxtaheitum. Þeir innihalda í raun-
inni eingöngu sykur, rotvarnarefni og
vatn.
Mataræði okkar hefur verið
umdeilt og telja margir að neyzla
harðra fitutegunda sé meiri en góðu
hófi gegnir. Án þess að taka
frekari afstöðu til þeirra deilna er
sjálfsagt að mæla með því að magurt
kjöt og fitusnauðari mjólk verði á
markaðinum, því offita er algengur
kvilli.
Ekki má draga athyglina frá
höfuðvandamálinu sem er að æska
þessa lands elst upp á járn- og víta-
mínrýru fæði og temur sér gallaðar
neyzluvenjur.
Ráð til úrbóta
Talin eru upp fimm ráð, sem til úr-
bóta mega verða: Rekinn verði meiri
áróður fyrir heilnæmum neyzluvenj-
um á heimilum. Mötuneytum verði
komið upp í heimangönguskólum.
Þar sem söluskálar eru að verða ein
aðaldreifingarstöð matvæla, verður
að gera þær kröfur að þar séu á
boðstólum sæmilegar fæðutegundir
eins og brauð. grænmeti, ávextir og
mjólk. Ef éigendur söluskálanna axla
ekki þá ábyrgð, sem rekstri þeirra er
samfara, ætti að vanda betur til
úthlutunar söluleyfa.
Lagt er til að matvæli verði víta-
mínbætt í stærri stíl en verið hefur og
eru nefndar í því sambandi korn-
vörur og smjörlíki, sem selt er til
brauðgerðarhúsa. Jafnframt er talið
nauðsynlegt að vítamínbæta mjólk
sem á boðstólum er.
Loks ber að efla starfsemi Mann-
eldisráðs og Manneldisfélags íslands
með fjárframlögum. Nauðsynlegt er
að halda áfram næringarefnafræði-
rannsóknum, sem nú eru hafnar, sbr.
töflur sem fylgja með umræddri
skýrslu.
-A.Bj.
Vi
Jutta, Sigríður, og Albcrt, öll með sina skreytinguna hvert. Skreytingin sem Jutta heldur á er unnin úr lifandi blómum
og kostar 120 krónur. Sigríður heldur á skreytingu sem kallast „floral objekts". Hún kostar 330 krónur og Albert er
með veizluborðsskreytingu sem kostar 380 krónur.
$ ■■ Tí'xí i i /4 \ * JTjá
w llliyiafi
I, Vi -3
iri '
Sérhæfa sig í borðskreytingum:
DB-mynd: Einar Ólason.
„Látum hugmynda-
flugið
„Reksturinn hefur gengið framar
öllum vonum. Það er greinilegt að
íslendingar eru mjög opnir fyrir
öllum nýjungum,” sagði Sigríður
Ingólfsdóttir, eigandi Borgar-
blómsins, í samtali við Neytenda-
síðuna. Borgarblómið er sérverzlun
með blómaskreytingar, bæði
borðskreytingar og „floral objekts".
Um síðustu helgi var Sigríður með
sýningu í verzlun sinni, sem hún á-
samt starfsfólki sínu, Þjóðverjunum
Juttu Zernikov og Albert Hofer, hef-
ursett upp.
„Þetta er eina verzlunin sem
sérhæfir sig í skreytingum. Við látum
hugmyndaflugið ráða og reynum að
hafa hlutina sérstæða sem við erum
að vinna. Þess vegna tekur oft lang-
an tima fyrir okkur að gera eina
skreytingu,” sagði Sigriður
ennfremur.
Verðið á skreytingunum er mis-
munandi, allt eftir því hvort
skreytingin er með afskornum blóm-
um eða þurrkuðum blómum. Á
sýningunni er ódýrasta skreytingin á
120 krónur, en hún var unnin úr lif-
andi blómum.
„Verzlanir hafa sýnt þessum
skreytingum okkar áhuga og eins
hefur eftirspurn eftir skreytingum á
veizluborð aukizt. Við hjálpum þá
gjarnan viðskiptavininum að velja
borðdúka, munnþurrkur og
borðbúnað í stíl við skreytinguna ef
j
hann kærir sig um. Skreytingin nýtur
sín alltaf bezt, þegar litir fara
saman,”sagði Jutta. „Einnig
skreytum við skálar sem komið er
með, nema plastskálar, þær
skreytum við ekki.”
Á sýningunni var sýnishorn á
tveimur langveizluborðsskreytingum.
Önnur skreytingin kostaði 820
krónur en hin rúmlega 1000 krónur.
Efni sem notað er í skreytingarnar er
nánast allt sem fyrirfinnst i
náttúrunni, meðal annars kórallar
sem setja skemmtilegan svip á þær.
Sigríður sagði að þetta væri
önnur sýningin sem verzlunin væri
með • og mætti búast við fleirum
seinnameir. -ELA.
Ekkert vítamín
í gosi og svala-
drykkjum með
appelsínubragði
— Litað sykurvatn til sölu undir
ávaxtaheitum er ekkert nema
blekking
Eftirfarandi næringarefnafræðirannsókn fylgdi með í skýrsiunni um könnun
Manneldisráðs á mataræði skólabarna í Reykjavík sem framkvæmd var á
vegum landlæknisembættisins. Rannsóknin var gerð af nemendum i matvæla-
fræði við Háskóla íslands undir umsjón dr. Öldu Möller.
Athugun á svaladrykkjum, endum í matvælafræði við gosdrykkjum og Háskóla íslands appelsínudrykkjum, gerð af nem- undir umsjón Dr. Öldu Möller.
Svaladrykkir með appelsínubragði (djús)
Drykkjartegund Sykur g/100 ml Bensóat % ' Sorbat % C-vítam£n
Egils 48,6 0,067 0,010 Ekkert
Ald in 59,6 Mældist ekki Mældist ekki
Flóra 47,9 0,095 -
Sanitas 52,3 0,071 0,026
Sval i 42,7 0,011 0,016
Thule 26,5 0,075 0,005
Valur 32,5 0,131 0,006
Gosdrykkir
Drykkjartegund Sykur g/100 ml C-v£tamín
Appelsín 10,3 , Ekkert
Sinalco 10,6 -
Mirinda 11,0 -
7-up 8,4 -
Pepsi 8,7 -
Kók 10,6 -
Appelsínusafar
Drykkjartegund Sykur g/lOO ml C-vítamín
Tropicana 11,1 40 mg/100 ml
Floridanax) 9,3 40 mg/100 ml
x) Tilbúið til drykkjar \
✓