Dagblaðið - 26.03.1981, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1981.
I
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
D
Geimfararnir Robert Crippen og John Young sjðst hér stiga út úr þessu tilvonandi
farartæki sfnu. Í gær var hafizt handa við að fylla eldsneytisgeyma geimskutlunnar
og er áfyllingin gerð i tilraunaskyni. Nýverið lézt einn maður og fimm aðrir slös-
uöust er þeir voru að störfum við geimskutluna. Varð það til þess að fresta fyrir-
hugaðri brottför geimskutlunnar.
Kynsvall um borð
ískipi drottningar
Elísabet Englandsdrottning á í erfið-
leikum með starfsliðið um borð í hinni
konunglegu skútu Britanniu. Alls
hafa ellefu manns úr starfsliðinu fengið
tiltal fyrir að hafa hegðað sér ,,á ósið-
legan og hneykslanlegan hátt”, eins og
segir í tilkynningu brezka varnarmála-
ráðuneytisins.
Ráðuneytið hefur ekki viljað skýra
nánar hvað átt hafi sér stað en málið
mun verða tekið fyrir í rétti eftir um
það bil mánuð. Aðrar heimildir greina,
meðal annars heimildir innan lögregl-
unnar, að mikið kynsvall hafi átt sér
stað í skútunni og komið hafi í ljós að
hluti áhafnarinnar var kynvilltur.
Erlendar
fréttir
REUTER
Ófriðlegt
i Uganda
Skæruliðar andsnúnir Miiton
Obote, forseta Uganda, hafa gert
öfluga árás gegn stjórn hans, þá
öflugustu til þessa. Þeir hafa
ráðizt á raforkuver, rofið út-
varpssendingar og gert árásir á
höfuðstöðvar flokks Obote.
„Við munum beita öllum til-
tækum ráðum til að uppræta
harðstjórn Obotes þannig að lýð-
ræðislega kjörin stjórn verði
kosin i löglegum kosningum í
landinu,” sagði einn talsmaður
skæruliðanna.
Fjórar neðanjaiðarhreyfingar
hafa látið til sin taka í Uganda
eftir að Obote vann kosninga-
sigur sinn í desembermánuði
síðastliðnum.
Jaf naðarmannaf lokkurinn brezki stof naður í dag:
„Áhætta til bjarg-
ar brezku þjóðinni”
— segir Shirley Williams, einn af leiðtogum f lokksins
í dag verður formlega gengið frá
stofnun hins nýja brezka Jafnaðar-
mannaflokks og er það í fyrsta skipti
í áttatíu ár sem nýr flokkur er stofn-
aður i Bretlandi, ef miðað er við
flokka sem byggjá á fylgi um allt
land.
Hinn nýi flokkur mun hasla sér
völl sem miðjuflokkur í brezkum
stjórnmálum. „Sú tilraun sem við
gerum í dag er áhætta en ef sú áhætta
er ekki tekin er líklegt að það leiði til
ófarnaðar þjóðarinnar,” skrifar einn
af leiðtogum flokksins, Shirley Willi-
ams, fyrrum menntamálaráðherra
Verkamannaflokksins, í The Times í
dag.
Fjórtán þingmenn í brezka þinginu
hafa þegar gengið til liðs við hinn
nýja flokk og er hann þar með orðinn
þriðji stærsti flokkurinn á þingi. flokkurinn fengi mest fylgi allra
Skoðanakannanir sýna hins vegar að flokka í Bretlandi ef kosið yrði núna.
Fjórmenningaklíkan svonefnda sem stendur að stofnun hins nýja flokks. Frá
vinstri William Rodgers, Shirley Williams, Roy Jenkins og David Owen.
VORLAUKAURVAL
Dahlíur.................... lOkr. stk.
Begoníur................7.50 kr. stk.
Gloxcniur.................. lOkr. stk.
Anemónur.................1.50 kr. stk.
Asíusóleyjar.............1.50 kr. stk.
Bóndarós.................. 20 kr. stk.
Liljur 6 teg.............. 10 kr. stk.
Amarýllis ................ 45 kr. stk.
Fuglamjólk..................... 17 kr. pk.
Fresíur........................ 17 kr. pk.
Montbretia................ 17 kr. pk.
Gladíólur.................. 17kr. pk:
Iris........................... 17 kr. pk.
Fjölærar — plönturætur
Lúpjnur ...................15 kr. stk.
Brúðarslör ................15 kr. stk.
Mustcrisblóm...............15 kr. stk.
Glóðarblóm ................15 kr. stk.
Írís.......................15 kr. stk.
Daglilja................. 15 kr. stk.
Jólarós....................15 kr. stk.
Vatnsberi .................15 kr. stk.
Garðrósastilkar..............17 teg.
Leiðbeiningabæklingar fylgja öllum laukum
Opið kl. 9—21 — Sendum um allt land.
S VERÐLAUNAGRIPIR OG FÉLAGSMERKI ^
4* JÁ
fr V
Magnús E. Baldvinsson ^
L.uflavegi 8 — Raykjavik — Simi 22804
*S0í7////iiii\ mwwwsss#
Áskriftarsími
Eldhúsbókarinnar
24666
ELDHÚSBÓKIN
Frevjugölu 14
FILMUR OG VÉLAR S.F.
SKÓLAVÚRDUSTÍG 41 - SÍMI2023S.
Bráðskemmtileg frásögn Ómars Ragnarssonar
afSvíþjóðarförþeirra bræðra.
íslenzk Jystisnekkjaff—sjómennska/
byrjendur.
Minnisstæður reynsluakstur vélsleða.
Erlendar fréttir—Fornbílar.
Upprifjun skyndihjálpar
Reynsluakstur Volvo Lapplander og
Mazda626.
Allt þetta ásamtýmsu öðru skemmtilegu
efnifinnurðu
i nýjasta Mótorsport-blaðinu.
Komið á blaðsölustaði um allt land.
Áskriftar- og
auglýsingasími34351 kl. 3-6 virka daga