Dagblaðið - 26.03.1981, Blaðsíða 18
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1981.
Veðrið
Gert er ráö fyrir hvassri austanótt
um allt land, stormur sunnanlands. Él
verfla á Austur- og Norflausturlandi
og á annesjum vestanlands. Einhver
snjókoma sunnanlands.
Klukkan 6 voru austan 8, slydda og
2 stig í Reykjavik, austan 8, skaf-1
ronningur og -1 stig á Gufuskálum, '
norflaustan 1, skýjað og 0 stig á Galt-
arvita, suflaustan 2, skýjafl og -1 stig
ó Akuroyri, austan 7, skýjafl og -2 stig
á Raufarhöfn, suðaustan 3, snjóól og
0 stig ó Dalatanga, norflaustan 9,'
snjókoma og -1 stig á Höfn og austan
12, rigning og 2 stig á Stórhöffla.
I Þórshöfn var skýjafl og 4 stig,
skýjafl og 1 stig í Osló, snjókoma og
1 stig í Stokkhólmi, skýjafl og 11 stig
í London, skýjafl og 11 stig í
Hamborg, skýjafl og 11 stig í París,
lóttskýjað og 7 stig ( Madrid,
þokumófla og 11 stig ( Lissabon og
léttskýjafl og 3 stig í New York.
Halldór Sigurjónsson flugvirki, sem
lézt 6. marz sl., fæddist 4. desember
1917. Halldór nam flugvirkjun árin
1943—44 á Spartan school of aero-
nautics í Tulsa, Oklahoma í Bandaríkj-
unum. Að námi loknu hóf hann störf
hjá Loftleiðum og síðar hjá Flugleiðum
þar sem hanr. larfaði allt til dauða-
dags. Halldór ..r einn af stofnendum
Flugvirkjafélags íslands, einnig kenndi
hann á fjölmörgum námskeiðum innan
Loftleiða.
Magnea G. Ólafsdóttir, sem lézt 20.
marz sl., fæddist 4. apríl 1895 á Ólafs-
völlum á Skeiðum. Foreldrar hennar
voru Guðrún Gísladóttir og Ólafur
Árnason. Árið 1918 fluttist Magnea til
Reykjavíkur og fór að vinna fyrir sér,
m.a. viðýmis þjónustustörf. Árið 1920
giftist hún Ferdinand Eirikssyni og áttu
þau 7 börn. Magnea verður jarðsungin
í dag, 26. marz, kl. 13.30 frá Hall-
grímskirkju.
Guðmundur Jónsson, Kríuhólum 4,
áður Brimhólabraut 37 Vestmannaeyj-
um, verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju föstudaginn 27. marz kl. 16.30.
Guðrún Ingvarsdóttir frá Markar-
skarði verður jarðsungin frá Breiðaból-
staðarkirkju 1 Fljótshlíð laugardaginn
28. marz kl. 14.
Guðmundur J. Jóhannesson, Miðbraut
32 Seltjarnarnesi, verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju föstudaginn 27.
marz kl. 15.
Sigríður Guðmundsdóttir, Kleppsvegi
34, sem lézt 20. marz sl., verður jarð-
sungin frá Fossvogskirkju föstudaginn
27. marzkl. 10.30.
Friðrik Guðmundur Jón Guðmunds-
son múrarameistari, Hlaðbrekku 7'
Kópavogi, verður jarðsunginn frá Að-
ventkirkjunni föstudaginn 27. marz kl.
10.30.
Bergsteinn S. Björnsson, Hafnarfirði,
sem lézt 18. marz sl., fæddist 6. júlí
1912 í Hafnarfirði. Foreldrar hans voru
Guðbjörg Bergsteinsdóttir og Björn
Bjarnason. Bergsteinn stundaði nám í
Flensborg í einn vetur og lauk síðan
prófi frá Iðnskólanum í Hafnarfirði.
Framan af stundaði Bergsteinn ýmiss
konar verkamannavinnu en rak síðan
um hríð fiskbúð. Seinna gerðist hann
viktarmaður á bryggjunni í Hafnarfirði
og því starfi gegndi hann um árabil.
Bergsteinn verður jarðsunginn frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag, 26. marz,
kl. 14.
Hermann Hákonarson, Bólstaðarhlíð
36, lézt i Borgarspítalanum 24. marz sl.
Unnar Brynjarsson, Eiðum, lézt 21.
marz sl.
AA-samtökin
! dag. I numuclag. verða fundir á vcgum AA-sam
lakannu som hcr segir: Tjarnargata 3c kl. 21; Tjarnar
gata 5b (Ungt lolk) kl. 21 og 14; Laugarneskirkja kl.
21; Kópavogskirkja kl. 21; Ólafsvik, Safnaðarhcimili.
kl. 21; Sauödrkrókur. Aðalgata 3, kl. 21; Akureyri.
Gcislagala 39. (s. 96-22373) kl. 21; Scyðisfjörður.
Safnaðarlicimili. kl. 21; Vcstmannaeyjar. Hcimagata
24 (s. 98-1140). kl. 20.30; Sclfoss. Selfossvegi 9. kl. 21;
Keflavik. Klapparstígur 7 (s. 92 1800). kl. 21; Patrcks
fjörður kl. 21: Blöiuluóv Kvcnnaskóli. kl. 21: Dalvik
kl. 21. Grundarfjörður kl. 21.
I hádcginu .i m«»icíiii. IiMiuI.ii*. vcn\i fundir scm
hér segir: Tjarnargata 3c kl. 12; Tjarnargata 5b kl. 14;
Akureyri. Geislagala 39 (s. 96-22372). kl. 12.
Hafa kvennabókmenntir
sórstöðu innan bókmennta-
fræðinnar?
Umraeðufundur um kvennabókmenntir verður hald-
inn í stofu 301 Árnagarði í kvöld kl. 20.30. Fram-
sögumenn verð: Helga Kress, ólafur Jónsson og
Guðbergur Bergsson. Gengið verður út frá spurning-
unni hvort kvennabókmenntir hafi sérstöðu innan
bókmenntafræðinnar. Á eftir framsöguræðum
verða almennar umræður.
Allir sem áhuga hafa eru hvattir til að mæta.
Aðaifundir
Aðalfundur
í Húsmæðrafélagi
Reykjavíkur
Aðalfundur Húsmæðrafélags Reykjavíkur, haldinn
19. marz 1981 lýsir undrun sinni með óstöðugt og sí-
hækkandi verðlag á undanförnum mánuðum, þrátt
fyrir yfirlýsingu stjórnvalda um herta verðstöðvun.
Síauknar verðhækkanir á neyzluvörum og allri
opinberri þjónustu eru komnar í þann farveg að full
ástæöa er til þess að hvetja neytendur til þess að
spyrna við fótum og taka höndum saman við það að
gæta sinna eigin hagsmuna.
Fundurinn hvetur til þess að fólk almennt gefi sér
tíma til að bera saman verð og vörugæði og veita
þannig nauðsynlegt aðhald. Þá hvetur fundurinn
fólk sérstaklega til þess að aðgæta verðlag með hlið-
sjón af myntbreytingunni, þar eð nú skiptir krónan
máli.
Aðalfundurinn tekur eindregið undir áskorun frá
aðalfundi Ba ndalags kver.na í Reykjavík varðandi
„skrefateljaramáliö” svonefnda. Fundurinn leggur
sérstaka áherzlu á að gætt sé hagsmuna ellilífeyris-
þega og öryrkja í því máli.
Áskriftartónleikar
hjá Sinfóníunni í kvöld
Næstu áskriftartónleikar Sinfóníuhljómsveitar
íslands verða í Háskólabíói í kvöld, fimmtudag, kl.
20.30.
Efnisskrá tónleikanna er eftirfarandi: Brahms:
Akademiski forleikurinn; Bartok: Píanókonsert nr.
2; Beethoven: Sinfónía nr. 3 (Eroica).
Stjórnandi er Gilbert Levine. Einleikari er David
Lively.
Tónleikar að Hótel Borg
í kvöld
Hljómsveitin Mezzoforte ásamt Kristni Svavarssyni
saxófónleikara heldur tónleika að Hótel Borg í
kvöld, 26. marz.
Einnig koma fram söngvararnir Haukur
Morthens og Ellen Kristjánsdóttir. Ellen mun m.a.
kynna efni af hljómplötu sinni, sem væntanleg er
innant íðar.
Stjórnmáfðfundir
Árnesingar
Alþingismennirnir Þórarinn Sigurjónsson og Jón
Helgason verða til viðtals í félagsheimilinu Aratungu
Biskupstungum í kvöld kl. 21.
I
GÆRKVÖLDI
4T
I
GÆRKVÖLDI
„Vekjaraklukka Reykjavík
— góðan dag!”
Útvarp og sjónvarp má nota á ýmsa
vegu. Það er hægt að gerast þræll
þessara miðla eða velja og hafna. Dag-
skrá dagsins í gær gerði fyrri kostinn
óneitanlega freistandi.
En þar sem þrælahald er ólöglegt
var ekki hægt að leggja allt annað á
hilluna og hlusta bara og horfa.
Flestir gera reyndar hvorugt, þeir
láta hendingu ráða. Þrennt í dagskrá
dagsins í gær vakti svo athygli mína að
ekki dugði að láta hendingu ráða
heldur varð ég að hlusta og horfa
markvisst. Ef ég hefði ekki gert það
hefði ég misst af meistara-Vöku Björns
Baldurssonar um leikmyndir. Vaka er
oft góð, en svei mér þá, ef þetta var
ekki sú besta.
Öðru máli gegnir um fréttir. Ef satt
er, sem sagt er, að íslendingar séu
fréttasjúklingar, þá rækta þeir
sjúkdóminn vel. Nær öruggt er að ef
maður ætlar að gleyma fréttum er
einhver nærri til að hafa vit fyrir
manni. Fréttastofa útvarps hefur hlotið
mikið lof á undanförnum árum og
kvöldfréttirnar í gærkvöldi voru skóla-
dæmi um það hvers vegna hún fær allt
hrósið. Þær voru lifandi, áhuga-
vekjandi og reglulega vel unnar.
Nokkur innskot í Vettvang voru|
góð. Sjónvarpsfréttum finnst mér alltaf
slæmt að missa af og jafn slæmt 1 gær-
kvöldi sem önnur kvöld.
Það þriðja sem ég vil ekki missa af
er bamaefnið. Útvarpssagan Á flótta
með farandleikurum er orðin
æsispennandi og maður hugsar með
skelfingu til þess að missa af lestri.
Barbapapi er kominn aftur — húrra!
Merkilegt með veðurfréttirnar — ég
hlustaði þrisvar á þær en heyrði aldrei.
Það er kannski þess vegna sem
miðvikudagssyrpa Svavars Gests kom
manni í sumarskap.
Áfangar voru faldir bak við gott
sjónvarpsefni að vanda og illt að missa
af þessum áfanga.
Að lokum eitt: Útvarp er til margra
hluta nytsamlegt, annarra en að miðla
manni fróðleik og skemmtun. Það er
fullkomin vekjaraklukka — ef maður
skilur það eftir á að kvöldi. 6,55:
Leiðinlegur tónn vekur mann. 7.00:
veðurfréttir svæfa mann. 7.05: Fréttir
vekja mann. 7.10: Bæn — hættumerki
— klukkan er orðin svo margt! 7.15:
Leikfimi, sem sættir mann næstum við
leitina að týnda sokknum. Síðan
Morgunpóstur og fréttir sem koma
manni inn í vökuheiminn, og leiðara-
lestur sem kemur mann út úr honum
aftur. Annars hlusta ég oft á leiðarana
— af illkvittni. Nýt þess að hneykslast
á illa orðuðum málsgreinum og óskýrri
hugsun. Þó er haft fyrir satt að
leiðararnir séu þýddir á íslenzku á
hverjum degi.
Anna Björnsson.
Hverjar eru horfur um sættir
í Sjálfstæðisflokknum?
Hvert stefnir í efnahags-
málum?
Gunnar Thoroddsen forsætisráðherra flytur ræðu á
almennum fundi að Seljabraut 54 í kvöld kl. 20.30.
Fundarstjóri Kristján Guðbjartsson. Fundarritarar
Dóra Gissurardóttir og Ásgeir Hannes Eiríksson.
Fundurinn er öllum opinn. Ókeypis Pepsi Cola-veit-
ingar á fundinum.
Alþýðubandalagið
Hafnarfirði
Almennur fundur verður haldinn í kvöld kl. 20.30 í
Skálanum. Svavar Gestsson, heilbrigðis- og félags-
málaráðherra og formaður Alþýðubandalagsins,
kemur og ræðir stjórnmálaviðhorFið.
AUir velkomnir.
Herstöðvaandstæðingar:
Opið hús
í kvöld kl. 20.30 flytur Bernharður Guðmundsson
erindi um misskiptingu lífsgæða í þróunarlöndun-
um. Húsið opnað kl. 20.00.
Útivistarferðir
Þórsmerkurferð um helgina. Fararstjóri Jón I.
Bjarnason. Upplýsingar og farseðlar á skrif-
stofunni. Lækjargötu 6 a, s. 14606.Gullfoss íklaka-
böndum sunnudag kl. 10.
Námskeið fyrir
fjallgöngufólk
Ferðafélag íslands heldur námskeið fyrir fjallgöngu-
fólk nk. sunnudag, 29. marz. Leiðaval verður með
tilliti til snjóflóðahættu og kennd verður notkun á
ísöxi og göngubroddum. Leiðbeinendur verða Torfi
Hjaltason og Helgi Benediktsson. Farið verður frá
Umferðarmiðstöðinni kl. 9 f.h. og gengið á Skarðs-
heiðina, þar sem kennslan fer fram.
Þátttakendur verða að vera vanir fjallgöngumenn
og ennfremur að hafa þann útbúnað, sem að ofan
getur.
Verð kr. 70.
Skemvntifundir
Átthagafólag Snæfellinga
og Hnappdæla
heldur skemmtikvöld í Sjálfstæðishúsinu Ytri-
Njarðvík laugardaginn 28. marz nk. Til skemmtunar
verður spiluð félagsvist og stiginn dans og hefst
skemmtunin kl. 20.30. Allir eru velkomnir.
þ.e. KFUM og K í Reykjavík, Samband ísl. kristhi-
boðsfélaga, Kristileg skólasamtök og Kristilegt
stúdentafélag.
Félög þessi eru öll leikmannahreyfingar innan
islenzku þjóðkirkjunnar og stóðu þau haustið 1977
að svipaðri ráðstefnu sem fjallaði um nokkur grund-
vallaratriði kristinnar trúar.
Ráðstefna þessi er öllum opin en meginmarkmið
hennar er að veita þátttakendum nokkra fræðslu um
ýmis grundvallaratriði kristinnar trúar og siðfræði
og vekja þá til umhugsunar um stöðu sína.
Efni, sem tekin verða til meðferðar, eru m.a. hvað
er kristileg siðfræði, helgi mannlegs lífs, fjölskyldan
og hjónabandið, að vera kristinn í nútímaþjóðfélagi
o.fl. Meöal ræðumanna eru sr. Guðmundur Óli
Ólafsson, sr. Karl Sigurbjörnsson, sr. Gísli Jónas-
son, Gunnar J. Gunnarsson guðfræðingur, Kristin
Sverrisdóttir kennari og Sigurður Pálsson náms-
stjóri. Ráðstefnan hefst föstudagskvöld 27. marz kl.
20.30 og lýkur á sunnudagskvöld kl. 20.30 með sam-
komu þar sem Ástráður Sigursteindórsson skóla-
stjóri talar. Ráðstefnan fer fram í húsi KFUM og K
við Amtmannsstíg i Reykjavík og skal tilkynna þátt-
töku þangað eigi siðar en föstudag 20. marz á skrif-
stofutima. Nánari upplýsingar má fá á skrifstofu
KFUM og K, s. 17536, eða hjá Gísla Jónassyni
skólapresti s. 28710.
Út er komið heftið Níu sönglög Ingunnar Bjarna-
dóttur með píanóundirleik eftir Hallgrímn Helga-
son. Útgefandi er útgáfufélagið Hraunteigur, Akra-
nesi. í heftinu eru lög við ljóð eftir örn Arnarson,
Kristján frá Djúpalæk, Jóhannes úr Kötlum,
Böðvar Guðlaugsson, Garcia Lorca og höfundinn
sjálfan.
Um Ingunni Bjarnadóttur segir Hallgrimur
Helgason á plötunni Amma raular í rökkrinu frá
1975: ,,Við fyrstu kynni mín af Ingunni sá ég fljót-
lega að hún var gædd óvenjulegri gáfu, lagvisi sem
vert var að örva með nauðsynlegri aðstoð, ekki sízt,
þar sem hún hefur farið á mis við allt tónmenntalegt
uppeldi. Hún bara söng eflir hjartans lögmáli, sem
henni var meðfætt.”
CPM-áætlanir —
Framhaldsnámskeið
Stjórnunarfélagið efnir til framhaldsnámskeiðs um
CPM-áætlanir og verður það haldið í fyrirlestrasal
félagsins að Síðumúla 23 dagana 26. og 27. marz kl.
14—19 og 28. marzkl. 09—12 og 14.—18.
Tilgangur námskeiðsins er að kynna frekari
notkunarmöguleika CPM-áætlana við gerð fram-
kvæmdaáætlana, m.a. varðandi kostnaðar- og.
framkvæmdaeftirlit.
Fjallað verður um:
— Upprifjun á CPM-áætlanagerð frá fyrra nám-
skeiði, örvarit, timaútreikninga, kostnaðarmat.
— Presidence örvarit.
— Kostnaðareftirlit og greiðsluáætlanir.
— Lykilatriði 1 framkvæmdaeftirliti.
— Raunverkefni og tölvuvinnslu.
Námskeiðið er ætlað stjórnendum, skipuleggj-
endum og eftirlitsmönnum meiriháttar verka.
Undirstöðuþekking í CPM-áætlanagerð er nauðsyn-
leg.
Leiðbeinendur á námskeiðinu verða Tryggvi
Sigurbjarnason raforkuverkfræðingur og Eiríkur
Briem rekstrarhagfræðingur.
Þátttaka tilkynnist til Stjómunarfélagsins, sími
82930.
Vestmannaeyjar:
Þórarar lágu
fyrirTýrurum
Týr varð Vestmannaeyjameistari i
meistaraflokki karla í handknattleik í
gærkvöldi með stórum sigri yfir Þórur-
um, 23—13. Eins og tölurnar gefa til
kynna var Týr sterkari aðilinn en
Þórarar léku illa og áttu aldrei glætu.
Markahæstir hjá Tý í leiknum i gær-
kvöld voru Kári Þorleifsson, 7 mörk,
Magnús Þorsteinsson, 5 mörk. Marka-
hæstur i liði Þórs var Andrés Bridde,
sem skoraði sex mörk. Jens Einarsson
markvörður var hetja liðsins og varði
stórvel.
Vestmannaeyjamót yngri flokkanna
er nú langt komið og stendur Þór þar
mun betur að vígi. -FÓV.Vestm.
Borgfirðingafélagið
Félagið heldur basar til ágóða fyrir Borgarsel að
Hallveigarstöðum laugardaginn 28. marz nk. kl. 14.
Tekið verður á móti kökum og munum á sama stað
frá kl. 11 þann 28. marz. Uppl. eru veittar 1 símum
41979,43060 og 86663.
Hvað er Bahaí-trúin?
Opið hús öll fimmtudagskvöld frá kl. 20.30. Allir
velkomnir.
Stórbingó
Hvöt, félag sjálfstæðiskvenna, heldur stórbingó í
Sigtúni í kvöld.
Líf ítrú
Síðustu helgina í marz verður haldin í Reykjavik
ráðstefna um nokkur atriði kristinnar siðfræði og
ber hún yfirskriftina ,,Líf í trú”. Að ráðstefnu þess-
ari standa aðildarfélög Starfsráðs kristilegra félaga,
GENGIÐ
GENGISSKRÁNING Ferflamanna-
Nr. 59 - 25. marz 1981 gjaldeyrir
Einingkl. 12.00 Kaup Sala Sala
1 Bandaríkjadollar 6,488 6,506 7,157
1 Steriingspund 14,689 14,730 16,203
1 Kanadadollar 5,481 5,496 6,046
1 Dönskkróna 0.9880 0,9907 1,0898
1 Norsk króna 1,2079 1,2112 1,3323
1 Sœnsk króna 1,4190 1,4229 1,5652
1 Finnsktmark 1,8107 1,6152 1,7767
1 Franskur franki 1,3190 1,3228 1,4549
1 Belg. franki 0,1895 0,1901 0,2091
1 Svissn. f ranki 3,4102 3,4197 3,7617
1 Hollanzk florina 2,8060 2,8138 3,0952
1 V.-þýzkt mark 3,1065 3,1152 3,4267
1 ítölsk l(ra 0,00623 0,00625 0,00688
1 Austurr. Sch. 0,4391 0,4403 0,4843
1 Portug. Escudo 0,1150 0,1154 0,1269
1 Spánskur pesoti 0,0765 0,0767 0,0844
1 Japansktyen 0,03107 0,03115 0,03426
1 Irskt Dund 11,325 11,356 12,492
SDR (sérstök dráttarróttindí) 8/1 8,0110 8,0332 -
* Breyting frá síðustu skráningu. Simsvari vegna gengisskráningar 22190.