Dagblaðið - 26.03.1981, Side 11

Dagblaðið - 26.03.1981, Side 11
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1981. 11 Laxá í Aðaldal: Vel yfir 2000 laxar komu þar á land og var meðalþyngd þeirra 12,4 pund. Laxá í Aðaldal bezta laxveiðiáin árið 1980 — þar veiddust 2324 laxar. Algert „hrun” varð í ýmsum ám því smálax gekk afar treglega Laxá í Aðaldal reyndist gjöfulasta lax- veiðiá landsins árið 1980. Úr henni voru dregnir 2324 laxar og var meðal- þyngd þeirra 12,4 pund. Önnur í röð- inni var Þverá í Borgarfirði með 1938 laxa og meðalþyngd 9,8 pund. Miðfjarðará reyndist þriðja bezta áin. Þar fengust 1714 laxar og meðalþyngd var 10,3 pund. Fjórða í röðinni var Norðurá í Borgarfirði með 1583 laxa og 7,6 punda meðalþyngd. Víðidalsá ásamt Fitjá i Húnavatnssýslu varð í fimmta sæti. Þar komu á land 1423 laxar og meðalþyngd var 11,6 pund. Aðeins 18 af 101 laxveiðiá, sem um er getið í skýrslu Veiðimálaskrifstof- unnar, gáfu fleiri laxa 1980 en raun varð á árið 1979. Af hinum svokölluðu betri eða dýru ám er Laxá í Aðaldal sú einasta sem er við það að gefa svipaðan afla 1980 og 1979. Þar komu nú á land 2324 laxar móti 2372 1979 en meðalþyngdin 1980 var 12,4 pund móti 9,4 pundum 1979. Mikið „hrun” varð á aflamagni í mörgum ám. Þannig veiddust aðeins 6 laxar á stöng í Ölfusá 1980 móti 503 1979. 299 veiddust í Hvítá í Árnessýslu móti 1028 1979. í Elliðaánum veiddust 938 laxar móti 1336 1979. Þar hefur veiði farið síminnkandi frá 1975 er þar veiddust 2071 lax. í Úlfarsá veiddust 110 laxar 1 fyrra móti 215 1979, 136 í Leirvogsá móti 386 1979, 1938 í Þverá móti 3558 árið 1979, Grimsá gaf 869 laxa 1980 móti 1527 árið áður, Langá á Mýrum 1049 móti 1893 1979, Laxá á Ásum 956 móti 1650 árið 1979 og þannig mætti lengur telja. Heildarstangveiðin varð 52.137 laxar og heildarþungi 248.482 kg, samkvæmt upplýsingum Veiðimálaskrifstofunnar. Veiðin varð 19% minni en meðaltal ár- anna 1970—1979 og er árið 1980 11. bezta ár stangveiði á íslandi. Hlutur stangveiði í heildarveiði varð 58%, sem er lægra hlutfall en um langt árabil. Hlutur hafbeitarstöðva varð 6% í heildarveiði, eða 3138 laxar, en afgangur fékkst í netin eða 36%. Meðalþyngd laxa 1980 reyndist 9,6 pund, eða sú hæsta sem um getur. Mestur meðalþungi fékkst í ám i Norðurlandskjördæmi eystra eða 11,4 pund. Meðalþungi veiddra laxa í Laxá í Aðaldal varð 12,4 pund, 12,3 pund í Botnsdalsá í Húnavatnssýslu. Þriðj- ungur ánna var með lax að meðalþyngd 10 pund eða meira. Stangveiðin var mjög misjöfn eftir árum. Töluvert gekk af vænum laxi, mun minna af smálaxi en venja er. Þannig var hlutdeild ársfisks úr sjó 4— 6 pund að þyngd 28% en sama meðal- tal sl. tíu ára er 55%. Skort á smáfiski má að sögn rekja til hins kalda veður- lags 1979, og veiðitregðu vegna lágrar vatnsstöðu. Léleg veiði var því víðast þar sem smáfisks gætir að ráði, en góð þar sem fiskur er yfirleitt vænni. í Kollafjarðarstöðina gengu úr sjó 2580 laxar, 400 í Lárósstöðina, 120 í fiskeldisstöðina í Botni í Súgandafirði og tæplega 40 laxar skiluðu sér úr haf- beitartilraun í Fossá i Skagafirði. -A.St. „Sjálfsgagnrýni” bæjarráðs í Kopavogi vegna brottreksturs Páls Björgvinssonar úr starf i: „Amælisvert hvemig að málum er staðið” tillaga um að veita starf smanni tæknideildar áminningu felld „Bæjarráði er ljóst að ámælisvert er hvernig að umræddu máli hefur verið staðið af hálfu bæjaryfirvalda og starfsmanna bæjarins og átelur slík vinnubrögð harðlega,” segir í bókun bæjarráðs Kópavogs á fundi á þriðjudaginn. Tilefnið er uppsagnar- mál Páls Björgvinssonar húsasmiðs sem áður starfaði á trésmíðaverk- stæði bæjarins. Honum var sagt upp störfum hjá bænum svo sem DB hefur skýrt frá. Á fundinn á þriðju- daginn barst harðort bréf stéttar- félags hans, Trésmíðafélags Reykja- víkur, þar sem uppsögnin var for- dæmd og þess krafizt að hún verði afturkölluð. Innihald bréfs Tré- smiðafélagsins var rakið frekar í forsíðufrétt DB í gær. Bæjarráð samþykkti ennfremur að allar ráðningar, uppsagnir og önnur sérstök vandamál er snerta starfs- menn „skuli vera undir umsjón starfsmannastjóra.” Svo mun ekki hafa verið í Páls-tilvikinu. Bæjarráð segir að Páll hafi fengið í hendur uppsagnarbréf með eðlilegum upp- sagnarfresti. Hafi verið fullt sam- komulag aðila um að heppilegast væri að hann ynni ekki uppsagnar- frestinn. Ennfremur að bæjaryfir- völd séu ekki reiðubúin að segja upp starfsmanni á verkstæðinu til að skapa svigrúm til endurráðningar Páls, enda séu ekki verkefni fyrir fleiri trésmiði. Mótmælt er sjónar- miði Trésmiðafélagsins um að hægt sé að „þvinga bæjaryfirvöld til þess að hafa tilgreinda menn í vinnu.” Bæjarráðsmennirnir Björn Ólafs- son og Guðmundur Oddsson fluttu tillögu um að bæjarráð samþykkti að fela bæjarstjóra að „veita Sigurði Gíslasyni, sem framkvæmdi fyrir- varalausa og tafarlausa brottvísun Páls Björgvinssonar úr starfi, skrif- lega áminningu.” Sigurður er starfs- maður tæknideildar bæjarins og hafði ' frumkvæði að brottrekstri Páls. Tillaga tvímenninganna var felld, en Jóhann J. Jónsson, Guðni Stefánsson og Richard Björgvinsson létu bóka að þeir teldu „ekki efni standa til að veita þessum starfs- manni skriflega áminningu, enda vitum við engin fordæmi þess að bæjarráð hafi gert slíkt með opin- berum bókunum.” -ARH dlisön PLATÍNULAUS TRANSISTORKVEIKJA KkVDII I HVERFISGÖTU 84 PYnlLL SMI 29080. Lögmenn Munið aðalfund Lögmannafélags íslands að Hótel Sögu, hliðarsal, 2. hæð, á morgun, föstudag, kl. 14.00. Árshóf félagsins að kvöldi sama dags að Hótel Sögu, Átthagasal. Stjómin. Til sölu er fíugvéttn TF-KRÁ, Piper Warrior 1976 TT 1490. Nýi vængurinn, ADF VOR, Transponder. Uppi. ísíme 96-22220 eða 96-21500. FX-310 BÝÐURUPP Á: • Algebra og 50 vísindalegir möguleikar. • Slekkur á sjálfri sár og minn- ið þurrkast ekki út. • Tvær rafhlöður sem endast i 1000 tima orkunotkun. • Almenn brot og brotabrot. • Aðeins 7 mm þykkt i veski. • 1 árs ábyrgð og viðgerðar- þjónusta. Verð: 487,- B-811 BYÐUR UPP Á: • Klukkutima, mín., sek. • Mánaðardag, vikudag. • Sjálfvirka dagatalsleiðréttingu um mánaðamót. • Rafhlöðu sem endist í ca 5 ár. • Er högghelt og vatnshelt. • Ljóshnappur til aflestrar í myrkri. • Ryðfritt stál. • 1 árs ábyrgð og viðgerðarþjón- usta. Verð: 544,50 CASIO-EINKAUMBODIÐ BANKASTRÆTI8, SIMI27510.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.