Dagblaðið - 26.03.1981, Síða 13

Dagblaðið - 26.03.1981, Síða 13
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1981. 1.1 STYÐJUM OKKAR MENN Heil íbúðablokk full af vopnum. 35 rúmgóðar íbúðir troðnar með skotum og sprengjum af öllum gerðum. Það er ekki af þrengra taginu sprengjugeymslurýmið á Keflavíkurflugvelli. Þetta er engin ágiskun. Bandaríski sjóherinn birti í september árið 1979 lista yfir fasteignir sínar um heim allan, og þar eru taldar upp allar eignir hersins á íslandi. Sprengju- geymslur í Keflavík í september árið 1979, alls nær 3500 fermetrar að flat- armáli, í alls 10 byggingum. Ekki er fullljóst hvort Ólafur Jóhannesson utanríkisráðherra leyfði Bandaríkjamönnum nýverið að bæta við sig, stækka eða breyta sprengjugeymslum. Þó virðist sem herinn „þurfi” meira pláss fyrir sprengjurnar, og hafi þegar fengið einhverskonar samþykki. Benedikt Gröndal og aðrir slíkir hafa undanfarið haft miklar áhyggjur af bensinflutningum frá Reykjavík til Keflavíkur. Bensín- flutningarnir hafa staðið árum saman, en Benedikt & Co. hafa haft áhyggjur sínar í nokkra mánuði, eða frá því herinn sagðist vilja meira pláss fyrir bensín. Skrítið. Eða kannske er það ekkert skrítið: Á fundi í Norræna húsinu nýlega, sagði Agnar Kofoed-Hansen flug- málastjóri eitthvað á þá leið, að menn skyldu ekki hafa miklar áhyggjur af flugumferð um Reykja- víkurflugvöH. Þeir sem vildu bægja helstu hættum frá, ættu að hugleiða það að um Reykjavikurhöfn færu stundum svo stórar sendingar af sprengiefnum, að fáir ibúar Reykja- víkur yrðu eftir til frásagnar, ef sprenging yrði. Af þessum sprengjuflutningum hafa Benedikt Gröndal og hans lið ekki hinar minnstu áhyggjur. Væntanlega gera slíkar áhyggjur ekki vart við sig hjá þeim fyrr en rétt í þann mund sem Bandaríkjaher þarf að fá nýtt hafnarstæði einhvers staðar við strendur íslands. Staðið á bremsunni Forystumenn Alþýðubandalagsins reyna nú allt hvað af tekur að sann- færa félaga sína og kjósendur um að meginárangur rikisstjórnaraðildar herstöðvaandstæðinga muni felast í þvi að „standa á bremsunni” eða með öðrum orðum að viðhalda óbreyttu ástandi í hermálum. Talsmenn Alþýðubandalagsins segjasem svo, að þar sem Bandaríkin og NATO hyggist stórauka hernaðar- umsvif á íslandi, þá sé hyggilegast að vera áfram i ríkisstjórn og koma í veg fyrir slík áform. Nýjustu boð herma að þótt ekki tækist alveg að viðhalda óbreyttu ástandi, þá megi líta á smá- aukin vigbúnaðarumsvif sem sigur fyrir herstöðvaandstæðinga. Kannske hafa þeir eitthvað til síns máls. Þetta óbreytta ástand í her- málum, hefur raunar aldrei verið til, og allra síst nú undanfarin misseri. Bandaríkjamenn og NATO hafa farið sínu fram. Að vísu virðist utan- ríkisráðherra hverju sinni hafa verið þessu kunnugur, sem er kannske skiljanlegt í því Ijósi að íslenskir utanríkisráðherrar gerast einhvers- konar útlendingar, þegar þeir taka við embætti. Utanríkisráðuneytið er einhvern veginn ekki í tengslum við ríkisstjórnir landsirts. Ráðherrann hefur engin samráð. Ekki nóg með að Bandaríkin og NATO hafi farið sínu fram, og þannig breytt ástandinu að vild. Her- stöðvaandstæðingar hafa átt aðild að rikisstjórnum, sem gefið hafa fyrirheit um óbreytt ástand. En — hvert er svo þetta ástand? Undanfarið hafa herstöðvaand- stæðingar þurft að sporðrenna æ stærri bitum í hermálinu. Sífellt koma í ljós nýjar upplýsingar um hvað raunverulegt ástand er í her- málum. Eðlisbreytingin hefur þegar farið fram í herstöðinni, og nú eigum við herstöðvaandstæðingar að fram- kvæma eðlisbreytinguna í hugum okkar, með því að samþykkja „óbreytt ástand” — hvernig sem það er í raun og veru. Þannig lítur hið raunverulega samþykki við óbreytt ástand út: Bandaríkjamenn fá samþykki utan- ríkisráðherra fyrir stórfellt auknum vigbúnaði á íslandi, og þegar fram- kvæmdum er lokið eða þær í það minnsta hafnar, þá er fengið yfirlýst eða þegjandi samþykki landsmanna eða fulltrúa þeirra. Styðjum við þingmenn okkar, en eltum þá ekki Herstöðvaandstæðingar á þingi viðurkenna fyrstir manna slæma aðstöðu sína. Og þeir reyna skiljanlega að fá stuðningsmenn sína til að sjá málin með augum þess sem á þingi situr. Við getum skoðað málin frá sjónarhóli herstöðvaandstæðinga í áhrifastöðum, en við megum alls ekki halda að það sé eina sjónarhornið. Þvert á móti — við verðum að taka afstöðu óháð valda- Kjallarinn Jón Ásgeir Sigurðsson aðstöðu hverju sinni. Við eigum að segja okkar mönnum fyrir verkum! Raunar fer styrkur okkar manna á þingi (þeir eru ekki bara í Alþýðubandalaginu), alls ekki nauðsynlega eftir höfðatölu þeirra. Standi herstöðvaandstæðingar saman og sýni styrk sinn í fjölda- aðgerðum, svo sem á fundinum í Há- skólabíói næstkomandi sunnudag, þá hafa okkar rnenn á þingi sterkan bakhjarl. Enn væntum við þess að þing- ræðisleiðin sé ekki gjörsamlega lokuð okkur herstöðvaandstæðingum. Enn teljum við að ekki sé réttmætt að helmingur íslensku þjóðarinnar geti kúgað hinn helminginn gjörsamlega ogkallaðþað lýðræði. Jón Ásgeir Sigurðsson blaðamaður. A „Undanfarið hafa herstöðvaandstæð- ^ ingar þurft að sporðrenna æ stærri bitum í hermálinu. Sífellt koma í ljós nýjar upplýsingar um hvert raunverulegt ástand er í hermálum.” Kjallarinn Ferðamál: ~ ~ SNEITT HJAISLANDI „Reykjavík kom ekki til greina í hlutkestinu”, er haft eftir forseta FIDE, Alþjóðaskáksambandsins, þegar hann var inntur eftir, hvort Reykjavík hefði ekki komið til álita, þegar hlutkesti var varpað um það, hvar einvígið um heimsmeistara- titilinn í skák yrði haldið. Ennfremur sagði forseti FIDE: „Það voru þarna ákveðin atriði, sem varð að taka tillit til, og ég vegna minnar aðstöðu, verð að láta kyrrt liggja að greina frá”. Vitað er, að hvorugur keppend- anna í þessu heimsmeistaraeinvígi vildi keppa hér i Reykjavík, enda höfðu báðir bent á aðra staði, sem þeir töldu æskilegri. Þetta er mjög skiljanlegt, þegar litið er á núverandi aðstæður og reynslu útlendinga af fundahöldum, stórmótum eða öðrum manna- mótum, sem útheimta dvöl þeirra hér, á iandi einangrunar og fátæktar í öllu, er lýtur að afþreyingu og dægradvöl, utan þess tíma, sem takmarkast af fundahöldunum sjálfum eða keppninni. — En um slíka agnúa fjalla fáir af fullri hreinskilni, láta kyrrt liggja að greina frá. Slæm reynsla Það þarf ekki að leiða neinum getum að því, að'sú afstaða, sem varð þess valdandi, að keppendur í heims- meistaraeinvíginu kusu fremur aðra staði til keppnishalds en ísland, hefur öðru fremur markast af því, að þeir þekkja landið og aðstæður hér mjög vel og vita sem er, að ísland er ekki i samkeppnishæfu ástandi. Telja verður ólíklegt, að þeir íslendingar, sem ætluðu sér að vera viðstaddir einvígið gráti ákvörðun forseta FIDE. Þeim gefst nú kostur á að sameina orlof sitt dvöl á keppnis- staða eða í nágrenni hans, sem er einstæður dvalarstaður fyrir ferða- menn og allt þar til reiðu, sem ferðamenn sækjast helzt eftir. Margir munu því hugsa sér til hreyfings. Hvarvetna erlendis eru menn sjálfráðir um það, hvernig þeir eyða fé sinu. Svo dæmi sé nefnt er algengt, að í sambandi við keppnir séu settir upp veðbankar, þar sem menn geta lagt fé undir, varðandi vinnings- möguleika þess eða þeirra, er þeir veðja á. — Hér er slíkt ekki leyfilegt. Afþreyingarstaðir, svo sem golf- vellir, útisundlaugar við hótel, setu- stofur, veitingastofur og barir eru II! ■ ekki æskilegir, heldur nauðsynlegir á öllum stöðum, sem auglýsa aðstöðu til alþjóðlegra ráðstefna að ekki sé nú talað um heimsmeistarakeppni. Lítið af þessu, sem hér er upp talið er til staðar hérlendis og aðgangur mjög takmarkaður eða annmörkum háður, svo að jafnvel er verra en ekki. Og hvað svo sem útlendingar láta i ljós við heimamenn, fyrir kurteisis- sakir, þá er aðstaða öll til móttöku ferðamanna, að ekki sé nú talað um ráðstefnur, þar sem menn koma ekki eingöngu til þess að sitja ráðstefnuna sjálfa eða fylgjast með keppni, langt að baki öðrum þjóðum. Og svo mikið er víst, að Islendingar myndu sjálfir aldrei láta sér detta í hug að eyða stórfé til dvalar erlendis, þar sem allt, sem hér að framan er talið vantar. — Og hvers vegna skyldu íslendingar ætla, að útlendingar flykktust hingað í alls- leysi og einangrun! Sá er þetta ritar hefur með einum eða öðrum hætti haft bein samskipti og viðskipti við erlenda ferðamenn hér á landi og erlendis síðastliðin 30 ár. — Af viðtölum við mikinn fjölda erlendra ferðamanna, sem hér hafa verið má ráða, að reynsla ferðafólks af íslandi sé slæm, hvað varðar aðbúnað, útivistar- og skemmtistaði. Verðlagning á þjónustu og neyzluvöru er og mun hærri en í dýrustu nágrannalöndum, miðað við magn og gæði þjónustunnar. Tilraunir missa marks Tilraunir á tilraunir ofan hafa verið gerðar, til þess að auka ferða- mannastraum til landsins. Sumar þessar tilraunir hafa verið bráðsnjallar. Loftleiðir stóðu að þeirri merkustu og þeirri er mestu skitaði. Þessu frumkvæði Loftleiða voru valin ensku einkunnarorðin „step off — stopover”, vegna gildis þeirra í hinum enskumælandi heimi, aðallega í Bandaríkjunum. Ferðamenn höfðu viðdvöl hér á leið sinni til og frá Ameríku. Þetta dugði vel, og með mark- vissu átaki þeirra hjá Loftleiðum, ekki sízt fyrrverandi blaðafulltrúa jteirra, var svo komið, að ýmsir þjónustuaðilar bjuggu sig undir hverja „vertíð”, sem hæst stóð að sumrinu, en var allt eins í gildi árið um kring. Þetta „program” ef svo mætti kalla féll niður, markvisst, eftir áð sameiningar flugfélaganna var farið að gæta. Nú er svo komið, að ferðum til og frá Bandaríkjunum hefur fækkað, vegna heimatilbúinna erfiðleika og svartsýni forráðamanna hinna „sameinuðu” flugfélaga. Allir vita, að um ókomin ár verður flogið yfir Atlantshafið, milli gamla og nýja heimsins, og raunar aldrei sem fyrr. Það er því nánast fjármálalegur glæpur að kasta fyrir borð þeirri verðmætu uppbyggingu, sem átt hefur sér stað gegnum árin og sem stuðlað hefur að byltingu í samgöngum þjóðarinnar og tekjuöflun. — Tíðar samgöngur milli gamla og nýja heimsins um ísland eru forsenda þess að hér geti þróast aðstaða til ferðamannamót- töku í einhverjum mæli. Nokkrar tilraunir hafa og verið gerðar til þess að gera isalnd að „ráðstefnulandi”. Erlend félaga- samtök kunna að telja hagkvæmt að halda ráðstefnur á íslandi, sem liggur í miðri leið hópa, sem kæmu frá Evrópu og Ameríku. Tilraun hefur verið gerð og lofaði hún talsverðri þátttöku í byrjun. Raunar varð þetta að veruleika um lirna, en þvi miður allt of stuttan, sérstaklega yfir þann tíma, þegar raunverulega er þörf fyrir ferðafólk, á veturna. Stór ráðstefna fékkst einmitt um vetrartíma fyrir nokkrum árum. Var þar um að ræða virt og heimsþekkt fyrirtæki, sem fyrir henni gekkst. Allur undirbúningur tókst þokka- lega, varðandi móttöku og skipulag sjálfrar ráðstefnunnar. Margir gestanna höfðu þó orð á því, að hér væri ekki aðstaða fyrir hendi, einmitt varðandi aðbúnað og afþreyingu þann tíma, sem ekki er setið á fundum. Töldu þeir alla annmarka á því að halda ráðstefnu í landi, þar sem hvorugt þetta væri til staðar í ríkum mæli. Enþaðþarf ekki vetur til. Þráttfyrir itrekaðar ábendingar aðila, sem að ferðamálum starfa, einstak’inga og samtaka, t.d. Ferðamálaráðs, hefur engum þeim hömlum verði af létt, til þess að ísland verði aðlaðandi staður til dvalar, eða eftirsótt af ferða- mönnum í sumarleyfi. — Þar til þessum hömlum veður aflétt missa allar tilraunir til þess að laða að ferðamenn marks. Geir Andersen Hvaða hömlur Hvað sem líður mismunandi áliti fólks á því, hvort yfirleitt eigi að auglýsa ísland sem ferðamannaland, þá er það staðreynd, að þær hömlur, sem hér gilda, umfram það sem annars staðar þykja hæfa, eru sá þröskuldur, sem kemur í veg fyrir verulegan ferðamannastraum til landsins, og það, að gjaldeyristekjur verði umtalsverðar af ferðamálum. Þessar hömlur eru margvislegar og ótrúlega margslungnar. Þær eru einnig óskiljanlegar borgurum annarra landa, þótt íslendingar hafi sætt sig við þær, og telji þær einungis hluta þeirrar áþjánar annarrar, sem fylgir því að búa í harðbýlu og einangruðu landi. Þessu ætti einmitt að vera öfugt farið, og lega landsins og einangrun ætti að vera grundvöllur þess, að hér ríkti mun meira frjálsræði i viðskiptaháttum og afþreyingar- aðstöðu en víða annars staðar. Stopular samgöngur við umheiminn eru kannske fyrsta og helzta hindrunin, sem stendur í vegi fyrir verulegu flæði ferðamanna til landsins. En þegar til landsins kemur tekur þó fyrst steininn úr. ísland er t.d. eina landið í heiminum, sem liggur að sjó, sem ekki býður fólki upp á siglingar við og kringum landið með sæmilega búnu farþegaskipi. Fleiri eru hömlurnar. Má þar nefna vínveitingalöggjöfina, sem er orðin að athlægi innlendra og erlendra, og veldur ómældu félags- legu og fjárhagslegu tjóni fyrir allan landslýð. Einnig er sú almenna löggjöf, sem sennilega er ætlað að stuðla að „heilbrigðu siðgæði” landsmanna hótelum mikill fjötur um fót í þá átt að geta veitt gestum sínum af- þreyingar- og dægradvalaaðstöðu, eins og sjálfsagt þykir á svipuðum stöðum erlendis. Hér eru almennt ekki sjónvarps- tæki á hótelherbergjum, svo dæmi sé nefnt. Úr þessu mætti bæta með því að leyfa gestum afnot mynd- segulbanda. Slíkt er ekki talið við hæfi á islandi! Islenzka ríkisútvarpið kemur I veg fyrir svoleiðis munað! Sjónvarp er oft bezta afþreying yngri hótelgestanna, þegar kvólda tekur og kemur sér vel fyrir þá eldri, t.d. foreldra, ef þeir vilja sitja lengur með kunningjum í sölum hótelsins. Leiktækjasalur fyrir yngri sem eldri myndi einnig vera talinn munaður hér á landi, og i raun siðspillandi, ef hann væri staðsettur í hóteli hérlendis. — Einhver líknar- stofnun eða ríkisrekin menningar- stofnun myndi þurfa að hafa umsjón. með slíkum þægindum! „Casino” eða peningaveðmál í einhverri mynd, svo sem víða tíðkast erlendis er líka „glæpur” á íslandi. Sjálfir eru íslendingar einna sólgnastir i slíka afþreyingu á erlendri grund, enda ein mesta „happdrættisþjóð” veraldar — og allt í þágu „menningarinnar”! Það er tómt má! að tala fjálglega um að laða hingað til lands menn sem verja margfalt meira fé en venjulegir ferðamenn gera, undir núgildandi hömlum. — En hömlur er það, sem byggja skal á segja þeir sem ráða, og þar við situr! „Út vil ek" Ferðaskrifstofur auglýsa nú sem ákafast nýja áfangastaði fyrir íslendinga í sumarleyfum. Auglýsingarnar höfða gjarnan til „fagurs umhverfis, beztu hótela” þessa eða hins landsins, „með öllum hugsanlegum þægindum, svo sem golfvöllum, baðströndum, siglinga- klúbbum, heilsurækt, — og and- rúmslofts frjálsræðis, lífsgleði og glæsimennsku.” Þetta síðastnefnda er ef til vill það, sem íslendingar eru helzt að sækjast eftir, ásamt „píanóbar og bar í setustofu”, eins og ein ferða- skrifstofan auglýsir. Allt þetta, ásamt andrúmslofti frjálsræðis og lífsgleði er ekki að finna á íslandi — og verður ekki — meðan hömlulaus sýndarmennska og hræsni situr í fyrirrúmi hjá lands- feðrum, sem leggja allt kapp á að viðhalda úreltum reglugerðum, til að vernda ímyndað siðgæði. Svo lengi sem þessum reglum er fylgt, verða orð Snorra Sturlusonar, sem þó hafði ekki sólarlönd í huga, er hann mælti þau, tömust í munni landsmanna, jafnt og þeirra. erlendu manna, sem ísland gista. — Og skyldi ekki hinn nýbyrjaði „land- flótti” íslenzkra fjölskyldna eiga rætur að rekja til þessara sömu orsaka? Geir R. Andersen.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.