Dagblaðið - 26.03.1981, Page 17

Dagblaðið - 26.03.1981, Page 17
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1981. 21 Sjálfstæðismenn í Reykjavík hafa úr nógu að moða í kvöld: BOÐK) UPP A SATTA- OG RAFORKUSPJALL —á almennum fundum hverfafélaga í Valhöll og Breiðholti Þeir hafa úr nógu að moða sjálf- stæðismennirnir í Reykjavík, sem vilja út á lífið í kvöld að sækja sér andlega upplyftingu. Tveir stórfundir eru boðaðir á sama tíma í borginni á vegum Sjálfstæðisflokksins, báðir opnir al- menningi. í Breiðholtinu, nánar tiltekið í húsnæði Kjöts og fisks að Seljabraut 54, ræðir Gunnar Thorodd- sen forsætisráðherra um sáttahorfur i Sjálfstæðisflokknum og stefnuna í efnahagsmálum. Það er félag Sjálf- stæðismanna í Fella- og Hólahverfi sem stendur að fundinum. í Valhöll er boðaður fundur um virkjunarmál með fjórum framsögu- mönnum: Pálma Jónssyni land- búnaðarráðherra, Sverri Hermanns- syni þingmanni og Steinþóri Gestssyni þingmanni, auk Jónasar Elíassonar prófessors. Þar má búst við metingi þeirra flokksbræðra um virkjanir. Pálmi heldur trúlega fram kostuni Blönduvirkjunar, Sverrir kostum Landimálatélagið Vörður og Félag sjáltstæðiflmsnna i Hliða- og Hoitahverti boða til almenns stjórnmálafundar um virkjunarmál Fljótsdalsvirkjunar og Steinþór sér um Sultartangann. Félag sjálfstæðismanna í Hlíða- og Holtahverfi, og Landsmála- félagið Vörður standa að fundinum. Aðstandendur Breiðholtsfundarins eru þungbúnir yfir fundarboðuninni í Valhöll og segja að það sé allt á eina bókina lært í flokknum: um leið og boðað sé til fundar með forsætis- ráðherranum rjúki Geirsmenn til og boði fund á öðrum stað á sama tíma. Því er haldið fram að menn úr Gunnarsarminum sem sitja í stjórn Varðar hafi ekki vitað um að félagið væri skrifað fyrir fundinum — fyrr en hann var auglýstur. Það bendir því fátt til þess að menn séu í þann veginn að failast í faðma í Sjálfstæðisflokknum, nema þá innbyrðis í skoðana- fylkingunum! Og þá er bara að sjá hvort hefur meira aðdráttarafl í kvöld, sáttaspjallið eða raforkuspjallið. -ARH. Gunnlaugur Snævarr formaður Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta: Ekki krafa um full- trúa í stjórninni - Vaka bauð umbótasinnum í viðræður en þeir treystu sér ekki strax „Vaka hefur aldrei krafizt þess undirritáður velvirðingar á því. aðeiga fulltrúa i stjórn Stúdentaráðs, Enn er óljóst hvernig og hvenær en hins vegar höfum við talið að í sér fyrir endann á stjórnarkreppunni stjórn Félagsstofnunar stúdenta eigi j Stúdentaráði, sem skapaðist þegar að velja fulltrúa stúdenta með hlul- vinstrimenn misstu meirihluta sinn í fallskosningu. Á það hafa vinstri- kosningunum fyrr i þessum mánuði menn ekki hlustað, þrátt fyrir að lög- og umbótasinnar komust í odda- fróðir menn telji okkar skilning aðstöðu. réttan,” sagði Gunnlaugur Snævarr Umbótasinnar vilja halda opnum Gunnlaugsson formaður Vöku, möguleikum til samstarfs bæði við félags lýðræðissinnaðra stúdenta í Vöku og vinstrimenn. Að sögn gær. Hann vildi koma á framfæri formanns Vökú gerði félag hans athugasemd vegna fréttar í DB á umbótasinnum tilboð um formlegar þriðjudaginn um ástandið í stúdenta- viðræöur um myndun meirihluta í pólitikinni. Þar var m.a. sagt að í 6 . Stúdentaráði, en umbótasinnar manna stjórn Stúdentaráðs hat i sögðust ekki reysta sér í viðræður hingað til setið eingöngu fulltrúar strax. Umbótasinnar hafa hins vegar vinstrimanna, meirihlutans i ráðinu. gert vinstrimönnum tilboð um Hafi Vaka talið það óeðlilegt og viðræður og var búizt við að krafizt að eiga fulltrúa i stjórninni. vinstrimenn tækju afstöðu til En að sögn Gunnlaugs Snævarrs er boðsins á fundi I gærkvöidi. hér farið með rangt mál og biðst -ARH. Drifahreggiö kaf- færöi Dalvíkinga öll él styttir upp um síðir, jafnvel slotaði illviðrinu sem geisaði undan- farna daga þó sumir væru farnir að efast um að sjá út úr augum fyrr en um páska! í gær og fyrradag fóru menn að hugsa sér til hreyfings að ryðja helztu ökuleiðir, i bæ og sveit , til að koma mjólk frá bændum, alls kyns varningi á milli staða og fólki. Flugið fór í gang lika. Jórunn Jóhannsdóttir gerir hreint fyrir sínum dyrum. En það er meira en að segja það að ryðja snjónum af vegum þar sem skafiarnir eru þykkastir og ófá hand- tökin eru við að ryðja snjó frá gluggum og dyrum hýbýlanna. Jón Þ. Baldvinsson fréttaritari Dag- blaðsins á Dalvik fór á stúfana með tæki og tól og festi vetrarríkið á filmur á þriðjudagsmorguninn. Þá hafði loks stytt upp eftir linnulausa stórhríð I viku. í gær hafði enn ekki tekizt að opna leiðina milli Dalvíkur og Akureyrar til fulls, þó jarðýtur og veg- hefiar ólmuðust í sköfiunum. Skaf- renningur á Árskógsströnd tafði verkið. Þó tókst að sækja nauðsynja- vaming á fiutningabílum til Akureyrar til að setja i tómar búðarhillur á Dalvík. Póstbáturinn Drangur hafði þó bjargað miklu með því að koma tvisvar til Dalvíkur óveðursdagana með mjólk, póst og ýmsar vörur. Götur á Dalvík voru í gær ófærar, nema aðalgöturnar. Bílarnir héldu því kyrru fyrir í sköfiunum, en menn brugðu sér á gönguskíðin í staðinn. -ARH. Vetrarrikið á Dalvik: séð yfir höfnina. í baksýn er Hrisey fannbarin, eins og risastór snjóskafl á sjónum. DB-myndir: Jón Þ. Baldvinsson. : K venskór: Litur: Brúnt leður Stæröir: 36 40 Verðltr. 266.60 Failey bartdavinna Hár hælkappi veitir öruytja stoð Mjúkt leðurfóður Herraskór Litur. Svart leður Stærðir: 41 46 Verðkr. 285,40 Ath.: Nýkomið / karlmannastærðum POSTSENDUM KiRKJUSTRÆTi8 - SIM/ 14181 LA UGA VEGi 95. - SiMi 13570

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.