Dagblaðið - 25.04.1981, Side 4
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 25. APRlL 1981.
DB á neytendamarkaði
Þrátt fyrír verðstöðvun:
SÍfcLLDAR
VERÐHÆKKANIR
,,Ég skil þetta hreinlega ekki. Allt
hækkar og hækkar og samt áað heita
verðstöðvun”. Þessa setningu og
aðrar likar höfum við sem sjáum um
þessa siðu heyrt svo oft síðustuj
daga og vikur að við höfum hreinlega!
ekki tölu á. Og okkar reynsla bendir1
til þess að þama sé engu bætt við.
Allt hækkar og hækkar, jafnt inn-
lendar vörur og erlendar svo ekki sé
talað um þjónustuna. Þ6 rikið hafi'
skammtaö sinum aöilum 10% siðasta
dag gamla ársins eru þeir aðilar samt
búnir að biðja um meiri hækkun svo
og fleiri. Fyrir verðlagsráði lá núna
um siðustu helgi „all nokkuö” af
beiðnum um hækkanir á verði vöru
og þjónustu eins og Jóhannes
Gunnarsson starfsmaöur stofnunar-
innar komst að orði. Við báðum
Jóhannes aö gefa okkur yfírlit yfír
það sem búið var þá að leyfa af
hækkunum sföan um áramót. Listinn
sem er langur og grimmur fer hér á
eftir.
Brauð 4,6—8,7%
smjörliki 6,8%
gosdrykkir 10%
kvikmyndahúsmiðar 9,3%
far með Landleiðum 11 %
far með sérleyfisbilum 11 %
fargjöld og farmgjöld i innanlands
flugi 11 %
saltfiskur 20%
gasolia 11 %
svartolía21%
útseld vinna 5,95%
neyzlufiskur2,3%
fískur til niðursuðu 6,8%
harðfiskur9%
unnar kjötvörur 8%
far með leigubUum 6%
Við þetta má síðan bæta land-
búnaðarvörum sem hafa hækkað um
8,8% að meðaltaU, þó misjafnt sé
innan flokka hvaö hækkunin hefur
verið mikil.
Hið opinbera hefur heldur ekki
verið aögerðalaust. Þannig hefur
ýmislegt af þvi sem það selur verið
hækkað 1 verði.
Áfengi6%
tóbak6%
simiuml0%
rafmagn 9,6 (Rarik) tíl 10,6 (rafveitur
sveitarfélaga).
Allt það útlenda eftir
Þrátt fyrir þessa löngu upptalningu
er þó eftir það sem liklega snertir al-
menna neytendur mest. Það er hækk-
un á öllum þeim aragrúa af vörum
sem fluttar eru inn. Þó gengið eigi aö
heita stöðugt breytist gengi einstakra
ianda dag frá degi og verð á vöru í
heimalandi hennar hækka. AUt þetta
má færa sjálfkrafa inn i verðlagið hér
án þess að spyrja kóng eða prest.
Verðlagsstofnun á að hafa eftirUt
meö þvl að ekki sé hækkaö um
meira en þessu nemur og er það reynt
núna en það segir sig sjálft að slíkt er
erfitt þegar búið er að hækka sumar
vörur aUt að 4 sinnum frá áramótum.
Þaö er ekki fyrir neytendur sem
verzla á hverjum degi að fylgjast
með þessu hvað þá stofnun sem er
jafn fáliöuð og Verðlagsstofnun. Þvl
er hætt við að einhverjar vörur sé of1
dýrar í búðum og þvi borið við að um,
nýja sendingu sé að ræða. En hvar,
eru áramótaheit ríkisstjórnarinnar ef:
vara hækkar i hverjum mánuði og
neytendur standa ráðalausir með ’
tóma budduna J)vi kaupið hefur
sannarlega lækkað?
-DS.
Það liggur við að beðið sé inn við Gustshúsin i Kópavogi eftir þvi að hestunum
verði mál. Þá er hinum verðmæta úrgangi mokað upp i börur eða eitthvert annað
ilát og hann siðan borinn á garða.
DB-mynd: Sigurður Þorri.
Nýr rauðmagi á nýjan hátt
Rauðmaginn er kominn, að
minnsta kosti hér í Reykjavik. Hann
má fá jafnt i fískbúöum sem á götu-
homum þar sem trillukarlar hafa lagt
bilum sinum með rauðmaga i kerrum
við. Verðið er nokkuð misjafnt eftir
stöðum en svona um 10 kr. heill og 20
krónur hausaöur og hreinsaður er
algengt. Flestum þykir gott að bragða
rauðmaga á vorin þó að ást Reykvík-
inga á honum komist ekki i hálfkvisti
við það sem hún er annars staðar á
landinu. Það er til dæmis ekki mikiö
um það i Reykjavik að gráslqjpa sé
látin siga og borðuð þannig. En komi
maður til dæmis til Húsavikur hanga
þar fískar við nær hvert hús. En
flestir fá sér þó á vorin nýjan rauð-
maga i matinn að minnsta kosti einu
sinni.
Flestir sjóða ugglaust rauðmagann
og borða hann með kartöflum og
ediki. Hægt er að fá hann hamflettan
að minnsta kosti i verzlunum, hvað
sem um fisksalana á bilunum má
segja. En það er enginn vandi að
hamfletta eða skrápdraga fískinn
sjálfur. Skrápurinn er einfaldlega
rifínn utan af fiskinum.
Rauðmagann má ekki sjóða nema i
stuttan tíma. Ef hann er smár er bezt
að sjóða hann heilan en sé hann of
stór til þess að komast þannig i
pottinn má taka hann i tvennt.
Suðutfmi er 5—15 mín. eftir stærð.
En það má gera fleira við
rauðmagann en að sjóða hann.
heimabökuðu, hrísgrjónum eða
kartöflum. í stað vermútsins má nota
hvitvin vilji menn það heldur.
-DS
Þannig segir Sigrún Davíðsdóttir i
bók sinni Matur, sumar, vetur, vor
og haust frá því að hún hafí góða
reynslu af þvi að matreiða rauðmag-
ann á nýjan hátt. Sé hann vel krydd-
aður, fái jafnvel þeir sem litla ást hafi
haft á honum fyrir, hrifningu á
honum. Við birtum uppskrift frá
Sigrúnu af rauðmaga með ansjósum
og ólffum. 3 stórir eða 4 litlir,
glænýir, hveljuflettir rauðmagar
(lifrin úr rauðmaganum ef vill)
4 ansjósuflök úr niðursuðudós (með
kapers)
3 tsk timian
4 msk þurrt vermút, gjarnan franskt
eða 2 mskt sftrónusafl.
nýmalaður plpar
20 steinlausar ólffur, gjarnan grænar,
fylltar.
Hitið ofninn i 200 gráður. Skerið
öðrum megin niður með hryggnum af
rauðmaganum að endilöngu án þess
þó að skera hann sundur. Eftir það er
hægt að opna fiskinn likt og bók.
Leggið hann opinn á smurt, ofnfast
fat. Skerið ansjósurnar i litla bita og
raðið á fískinn. Stráið timiani yfir og
dreypið vökvanum á. Malið svolik-
inn pipar yfir en ekki of mikinn.
Bakið fiskinn, e.t.v. ásamt lifrinni í
15 mín. í miðjum heitum ofninum.
Skolið ólífumar aðeins með þvi að
bregða þeim augnablik undir kalt
vatn. Þerrið þær. Skerið þær í tvennt
langsum og setjið yfir og hjá
fískinum þegar hann hefur bakast i
15 min. Þá hafa ansjósumar bráðnað
og nú smyrjið þið þeim jafnt inn í
fiskinn. Bakið hann enn i 5—10
min. eða þar til hann er bakaður í
gegn en ekki ofsoðinn. Berið hann
fram með soðinu, grófu brauði, helzt
Uppskrift
dagsins
Húsdýraáburður á garðana:
Kostar 100-200 kr.
eftir stærð garða
Dragirðu djúpt að þér andann nær
þvi hvar sem þú ert staddur á landinu
fínnuröu strax iykt sem er órjúfan-
lega tengd vorinu. Hrossataðslykt.
Garðeigendur og bændur em nú sem
óöast að bera skit á grasbletti og tún
og verða að þvi eftir þvi sem jörð
kemur undan snjó. Bændur standa
yfirleitt i þessu sjálfir en garðeig-
endur fá oft menn til þess að minnsta
kosti að útvega sér húsdýraáburðinn
og jafnvel að bera hann á.
í smáauglýsingum Dagblaðsins á
mánudaginn vom tveir aðilar sem
auglýstu að þeir tækju að sér slíka
þjónustu fyrir fólk. Gáfu þeir báðir
upp simanúmer, sögðust útvega og
Héiinilisbákhald vikuna:
til
Mat- og drykkjarvörur, hreinlætísvörur ogþ.h.:
Sunnud Mánud Þridjud Miðvikud Finimtud Föstud Laugard
SaznL SaznL SamL SamL SamL SamL SamL
Önnur útgiöld:
Sunnud Mánud Þriöjud Miövikud Funmtud Föstud Laugard
Saznt SainL SamL SamL SamL SamL SamL.
bera á eftir þörfum og lofuðu sann-
gjömu verði. Við höfðum samband
við þessa menn og spurðum þá nánar
út i húsdýraáburðinn.
Sá fyrri sem við höfðum samband
viö kallaði sig einfaldlega Guðmund i
auglýsingunni. Þegar hringt var i
hann kom í ljós að hann var Birgis-
son. Hjá honum kostar áburður á
meðalgarð svona 150 krónur. Ef
dreift er út skitnum kostar það
180—240 krónur eftir stærð
garðsins. Guðmundur sagðist nota
hrossaskít sem hann blandaði stund-
um með örlitilli mykju ellegar þá
kalki. Hann sagði að nú væri einmitt
rétti timinn fyrir hrossaskitinn, alveg
fram i mai. Bezt væri að bera hann á
strax og jörð kæmi undan snjó og
áður en gróður tæki að lifna. Þá
gengi hann vel niður i jörðina. Kúa-
mykju væri aftur betra að bera á á
haustin þvi það tæki hana lengri tíma
að brjóta sig. Guðmundur vildi ráð-
leggja fólki aö nota ekki nýjan skit
við að gróðursetja t.d. tré. Bæði væri
hætta á þvi að þá brynni plantan og
eins á illgresi. Bezt er að nota af-
rakstur af blettinum sem væri búinn
að standa nokkuð.
Hinn aðilinn sem auglýsti gerði
það undir nafninu Garðaprýði. Þegar
haft var samband kom i ljós að þar
var einnig Guðmundur i forsvari,
Guðmundur T. Gislason. Hjá honum
kostar 105 krónur aö fá áburð á 150
fermetra stóran blett. Kallast það
einn skammtur en menn með stærri
garð þurfa jafnvel 2—3 skammta. Ef
dreift er úr skítnum kostar það 135
krónur á skammt. Guömundur
sagðist nota hrossatað og reyndi að
fá þaö hreint af öllu sagi og heyi.
Hann sagði erfitt fyrir borgarbúa að
komast yfír slikt tað þar eð oft væri
örtröð á sunnudögum við hesthús
borgarbúa og heföi það valdið
slysum að fólk væri að reyna að ná
sér i skit. Enda sagöi Guðmundur
nóg að gera i þjónustu sem þessari og
oftmeiraenþað.
-DS.