Dagblaðið - 30.05.1981, Side 2
2
Kvennaskólinn í
Reykjavík
Innritun fer fram í skólanum dagana 1.—5. júní kl. 9—14.
1. og 2. júní verður einnig innritað í Miðbæjarskólanum kl.
9—18.
Við Kvennaskólann er starfrækt uppeldissvið og geta
nemendur valið um 3 brautir: menntabraut sem leiðir til
stúdentsprófs eftir 3—4 ár, fóstru- og þroskaþjálfabraut og
félags- og íþróttabraut sem ljúka má á tveimur árum en
einnig geta leitt til stúdentsprófs eftir 4 ár. Upplýsingar um
uppeldissvið og starfrækslu þess fást í skólanum í síma
13819 og þar er tekið á móti umsóknum.
Skólastjóri
HÓTEL NORÐURLJÓS
Við opnum aftur 4. júní.
Bjóðum gistingu í eins og tveggja manna her-
bergjum.
Einnig svefnpokapláss.
Barnaafsláttur.
Veitingar allan daginn.
Fyrsta flokks heimilismatur og grillréttir.
Verið velkomin.
HÓTEL
IMORÐURLJÓS
RAUFARHÖFN
Smurbrauðstofan
BJORNINN
NjóSsgötu 49 - Sími 15105
FJÖLBRAUTASKÖLINN
Á AKRANESI
vill vekja athygli á því að umsóknarfrestur um
skólavist skólaárið 1981-1982 er til 5. júní.
í skólanum starfa þessi námssvið:
HEILBRIGÐISSVIÐ:
Heilsugæslubraut, (4 annir) bóklegt nám sjukraliða.
Heilsugæslubraut, (8 annir) stúdentspróf.
MATVÆLASVIÐ:
Matvælatæknabraut, (4 annir) (verknámsbraut).
Fiskvinnslubrautir, aðfararnám fiskiðnskóla ogfisktæknináms:
LISTASVIÐ:
Tónlislarbraul, (8 annir) stúdentspróf.
RAUNGREINASVIÐ:
Eðlisfræðibraut, (8 annir) stúdentspróf.
Náttúrufræðabraut, (8 annir) stúdentspróf.
Sjávarútvegsbraut, (4 annir).
Sjávarútvegsbraut, (8 annir) stúdentspróf.
Tæknibraut, (8 annir) stúdentspróf.
SAM FÉLAGSSVIÐ:
Félagsfræðabraut, (8 annir) stúdentspróf.
Fjölmiðlabraut, (8 annir) stúdentspróf.
Iþróttabraut, (4 annir).
íþróttabraut, |8 annir) stúdentspróf.
Málabraut, (8 annir) stúdentspróf.
Uppeldisbraut, (4 annir) aðfararnám að ýmsuni sérskólum.
Uppeldisbraut, (8 annir) stúdentspróf.
TÆKNISVIÐ:
Iðnbrautir, samningsbundið iðnnám.
Verknámsbrautir. (ósamningsbundið iðnnám) málmiðn. rafiðn, tréiðn,
hársnyrting.
Verknámsbrautir, framhaldsdeildir i málmiðn, rafiðn og tréiðnum.
Vélstjórnarbraut, l.stig.
Vélstjórnarbraut, 2. stig. Athygli skal vakin á því að um þetta nám geta
þeir sótt sem hafa lokið vélstjóraprófi I. stigi og þeir sem lokið hafa
sveinsprófi i vélvirkjun.
Skipstjórnarbraut, 1. stig verður starfrækt ef næg þátttaka fæst.
Aðfararnám að tækniskóla.
VIÐSKIPTASVIÐ:
Verslunar- og skrifstofubraut, (4 annir) verslunarpróf.
Viðskiptabraut, (8 annir) stúdentspróf.
Sjá nánar námsvísi fjölbrautaskóla.
Upplýsingar eru veittar á skrifstofu skólans, sími
93-2544, virka dagakl. 9.00—15.00.
Skólameistari.
Frá hjólreiðadeginum i Rvik sl. sunnudag.
DB-mynd Sig. Þorri.
Hjólreiðadagurinn íReykjavík:
Vel heppnuð og góð skemmtun
full ástæða til að gera hann að árlegum viðburði í
höfuðborginni
Faðir hringdi.
Mig langar til að iáta f ljós ánægju
mína með vel heppnaðan hjólreiða-
dag i Reykjavik sl. sunnudag.
Þarna var verið að vekja athygli á
og safna fyrir þarft málefni.
Styrktarfélag lamaöra og fatlaðra
stóð fyrir þessum hjólreiðadegi og
mættu fleiri félög taka sér þetta til
fyrirmyndar.
SI. sunnudag kom það í Ijós að
menn eiga til þolinmæði ef þeir bara
vilja sýna hana. Þyrfti sá andi sem
ríkti á götum borgarinnar sl. sunnu-
dag að rikja þar oftar.
Þessi hjólreiðadagur var sá fyrsti
sinnar tegundar. Og þar sem hann
heppnaðist svona vel er full ástæða
til að gera hann a.m.k. að árlegum
viðburði í höfuðborginni.
Sjónvarpspáll er ekki rétt hrifinn af austur-þýzku myndinni um Stfnu.
Sjónvarp—Stína
Hvers eigum við að gjalda?
- er útvarpsráð að gera sjónvarpið að andlegu pyndingartæki?
Sjónvarpspáll skrlfar:
Og það var þá helzt þörf á þvi! Að
sýna okkur íslendingum, sem erum á
hægri en öruggri leið til sósíalisma,
segjum frekar kommúnisma Austur-
Þýzkalands, þessa grútfúlu og niður-
drepandi kvikmynd, ef kvikmynd
skyldi kalla, um „alþýöustúlkuna og
piitinn af góðu ættunum” i Austur-
Þýzkalandi.
Myndin var svo ömurleg og laus
við að vekja hinn minnsta áhuga, að
fyrir það eitt að sjá hversu langt er
hægt að ganga i þessum efnum, var
fróðlegt að halda það út og horfa á
myndina til enda.
Þótt myndin ætti að gerast i
Þýzkalandi síðari hluta 19. aldar
mátti glöggt greina ömurleikann í
gegnum leikinn sjálfan. Það var eins
og leikararnir væru þvingaðir til þess
að leika þær persónur sem þeir voru
skipaðir í hlutverk fyrir, jafnvel í
atriðum, sem áttu að vera í glaðvær-
ari stílnum kom fram, hversu leikar-
arnir voru þvingaðir.
Og efnið sjálft. Það hefur auðvitað
verið ritskoðað eins og annað sem
framleitt er á bókmenntasviðinu i
þessuhrjáða landi.
Ungi pilturinn vildi losna undan
þrúgandi andrúmslofti heimahag-
anna, hann vildi fara tii Amerfku og
taka unnustu sína með.
En fyrir þá sök, að hann er látinn
hugsa svo hátt, að vilja fara úr landi,
er hann látinn fremja sjálfsmorð i
lokin. Fólki á að hefnast fyrir að
hugsa til brottflutnings í Austur-
Þýzkalandi nútímans.
Unnustan var hins vegar grandvör
og undirgefin sínum heimahögum.
Hún neitaði að fara til Ameríku! Og
hún hélt líka áfram að vinna í ullar-
verksmiðjunni sinni.Húnvar þjóðholl
og góð stúlka, sem var k>Tr í Austur-
Þýzkalandi! — Svona myndum
eigum við íslendingar að læra af!
Verum staðföst, veljum sósíalism-
ann!
Húrra fyrir útvarps-ráði! Það valdi
mynd, þar sem hlutur konunnar kom
vel fram!
Það er nú eitthvað annað en í
Dallas-þáttunum! Og þökk sé út-
varps-ráði enn og aftur fyrir að
„velja” fyrir okkur. Aldrei gætum
við sjálf valið eins vel myndefni fyrir
sjónvarp og ráðið. Felum því allt
okkar „ráð” i hendur útvarps-ráði
og megi það ráða ráðum sínum,
gagnstætt öllum mannlegum iöngun-
um um margnefnt afþreyingarefni.
En í fullri alvöru. Er útvarpsráð að
gera sjónvarpið að andlegu pynding-
artæki?
Raddir
lesenda
V