Dagblaðið - 30.05.1981, Page 6

Dagblaðið - 30.05.1981, Page 6
6 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 30. MAÍ1981. Fyrsti vinningshaf inn í áskrif endaleik DB: Brátt baöar hann sig í sól- argeislum Miðjarðarhafsins — Einar Ingvarsson og kona hans hyggja á Mallorca-ferð í lok júlí Fyrsti vinningshafinn í áskrifenda- leik Dagblaðsins, „DB-vinningur i viku hverri”, Einar Ingvarsson, vél- stjóri á togaranum Bjarna Herjólfs- syni, hlaut, eins og lesendum er ef- laust kunnugt, ferðavinning til Lign- ano á Ítalíu með ferðaskrifstofunni Útsýn. Einar reyndist vera sá heppni áskrifandi sem fékk kost á að svara léttri spurningu úr smáauglýsingum Dagblaðsins í siðustu viku. Nafn hans birlist undir dálkinum ,,At- vinnuhúsnæðt” i'siðu 24 fimmtudag- inn 21. maí sl. Strákurinn sem ber út Dagblaðið í hverfinu lét Einar vita af því að hann væri sá heppni um leið og hann afhenti blaðið. Skömmu síðar hafði Einar tryggt sér utan- landsferð að verðmæti 8.000 krónur. Einar og kona hans, Borghild Steingrímsdóttir, stefna að því að notfæra sér vinninginn í lok júlí. Þau hyggjast skipta á Lignano-ferðinni og fara til Mallorca og dvelja þar í þrjár vikur. Einar hefur áður komið bæði til Mallorca og Ítalíu. Segist hann kunna betur við Miðjarðarhafseyj- una enda hefur hann komið þangað þrisvar áður. „Það eru komin fimm ár síðan ég fór síðast út þannig að það er kominn tími til að fara aftur. Ég var ekkert farinn að ákveða sumarleyfið en þessi vinningur gerði'útslagið,” sagði Einar. Hann hefur verið áksrifandi að Dagblaðinu í þrjú ár en keypti það alltaf áður í lausasölu. Hann býr nú á Seltjarnarnesi en er fæddur og uppal- inn í Reykjavík. -KMU. Rögnvaldur Ólafsson, aðalgjaldkeri Útsýnar (t.v.), afhendir Einari Ingvarssyni ávísun á sólarlandaferð að vcrðmæti 8.000 krónur. Borghild Steingrímsdóttir, ciginkona Einars, er með þeim. Bruninn íhús- næði Sjafnar á Akureyri: Eitraðan reyk lagði yfir forvitna áhorfendur Eldsvoði varð í svampgerð Efna- verksmiðjunnar Sjafnar í Kaupvangs- gili á Akureyri á miðvikudaginn um kl. 18.30. Svampgerðin er rétt ofan við hús KEA sem brann fyrir nokkrum dögum, aöeins eitt hús aðskilur þau. Mikill reykur gaus upp af brennandi svampinum og stórskemmdist húsið af sóti, það varð allt kolsvart að innan á öllum hæðum þrátt fyrir að eldurinn væri á einni hæð hússins. Blíðskapar- veður var þegar bruninn varð og hóp- aðist fjöldi fólks á staðinn til að fylgj- ast með slökkvistarfinu. Var hálfgert umferðaröngþveiti í Kaupvangsgili á tímabili og varð einn árekstur þar. Reykinn lagði um stund vfir fólkið og kallaði slökkviliðið aðvaranir í gjall- arhorn um að hann væri eitraður og fólk varað við að anda honum að sér. Þrátt fyrir það stóð fólkið sem fastast en slökkviliðsmenn notuðu sérstakar reykgrímur við slökkvistarfið með yfir- þrýstingi til að koma í veg fyrir reyk- eitrun. Það tók slökkviliðið rúmlega þrjá stundarfjórðunga að ráða niður- lögum eldsins. Fyrir skömmu var samþykkt í bæjar- stjórn Akureyrar tillaga frá Tómasi Búa Böðvarssyni sem fjallaði um teng- ingu aðvörunarkerfa við slökkvistöð- ina. í þeim húsum sem brunnu í Kaup- vangsgili voru ekki slík aðvörunarkerfi og var haft eftir slökkviliðsstjóra að ef þau hefðu verið væru mjög miklar líkur á að það hefði komið í veg fyrir það tjón sem varð. Það hefði jafnvel verið hægt að uppgötva eldinn svo fljótt að unnt hefði verið að slökkva hann með handslökkvitækjum. -GM, Akureyri. Valur Arnþórsson kaupfélagsstjóri var á staðnum og fylgdist með slökkvistarfinu. Hér sést hann ásamt tveimur slökkviliðs- mönnum. DB-mynd G.Sv. Fjöldi manns kom til að fylgjast með slökkvistarfinu þegar svampgcrð Efnaverksmiðjunnar Sjafnar á Akureyri brann. DB-mynd GM Þrír nýir prestar vígðir á morgun Þrír nýir prestar taka vígslu í Dóm- kirkjunni í fyrramálið. Þar vígir biskup íslands guðfræðikandidatana Döllu Þórðardóttur, Torfa Stefáns- son Hjaltalfn og Ólaf Þór Hallgríms- son til prestþjónustu. Vígsluvottar verða séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir, séra Bernharður Guðmundsson, séra Lárus Þ. Guð- mundsson prófastur og dr. Kjell Ove Nilsson frá norrænu kirkjustofnun- inni í Sigtuna í Sviþjóð, auk séra Þóris Stephensens dómkirkjuprests sem þjónar fyrir altari. Fylgt verður prestvígsluformi hinnar nýju hand- bókar. Dalla Þórðardóttir vígist til Bíldu- dalsprestakalls. Hún er 23 ára gömul og lauk guðfræðiprófi sl. föstudag. Foreldrar hennar eru Þórður örn Sigurðsson og séra Auður Eir Vil- hjálmsdóttirí Þykkvabæ. Torfi Stefánsson Hjaltalín vígist til Þingeyrarprestakalls. Hann er 28 ára Reykvíkingur, sonur Stefáns Hjalta- líns Illugasonar og Marsibilar Bern- harðsdóttur. Hann lauk guðfræði- prófi í fyrravor. Ólafur Þór Hallgrímsson er 42 ára Austfirðingur, sonur Laufeyjar Ólafsdóttur og Hallgríms Helgasonar að Droplaugarstöðum 1 Fljótsdal. Olafur lauk guðfræðiprófi nú í vor og vigist til Bólstaðarhlíðarpresta- kalls. -ÓV

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.