Dagblaðið - 30.05.1981, Page 13
Sigurður
Sverrisson
Viltu verða brún(n)?
5. f lokkurinn af stað í vikunni:
KR-ingar hóf u
mótið með 10-0
sigri gegn ÍR
íslandsmótið í 5. flokki hófst í vik-
unni með heijarmiklum litum og þá
fóru fram 11 leikir. Einum, leik
Ármanns og Stjörnunnar, var ekki
hægt að Ijúka þar sem Ármenningar
tefla ekki fram neinum liðum i yngri
fiokkunum í ár. Erfiðleikar hafa verið
undanfarin ár hjá Ármenningum meo
að smala saman i lið, svo miklir i ár að
þeir hafa séð sig neydda til að hætta
með yngri flokkana.
Fimm leikir fóru fram í A-riðli 5.
flokksins, en núverandi íslandsmeistar-
ar þar eru Akurnesingar. Úrslitin urðu
sem hérsegir:
Akranes — Víkingur
Leiknir — Fram
Keflavík — Fylkir
KR — ÍR
Breiðablik — Valur
2—1
1—1
2—0
10—0
1—3
KR-ingar ku hafa einn leikmanna
mikinn að burðum í sínum röðum og
að sögn heimildarmanns okkar gerir
hann mikinn mun, þó e.t.v. ekki út-
slagið. KR-ingar hafa góðu liði á að
skipa og það er vafalítið ár og dagur
síðan ÍR hefur fengið slíka útreið í
yngri flokkunum eftir frábært ungl-
ingastarf undanfarin ár. Bergþór Berg-
mundsson skoraði mark Fram gegn
Leikni enjsað dugði ekki til sigurs.
I B-riðlinum fóru sex leikir fram. Ur-
slitin þar urðu sem hér segir:
Týr-ÍK 1-5
Þór —Þróttur 1—3
Týr—Þróttur 1—1
Þór — ÍK 0—8
Haukar — Selfoss 8—1
Afturelding — FH 1—2
Vestmannaeyjaliðin fengu ljóta út-
reið úr sínum leikjum og virðist vanta
töluvert upp á að þau séu eins sterk og
þau hafa verið. ÍK virðist hins vegar,
rétt eins og ÍR, vera með öflugt ungl-
ingastarf og byrjunin hjá þeim í sumar
er geysilega góð. Þá kom stórsigur
Hauka á Selfyssingum nokkuð á óvart
en þeir fyrir austan fjall virðast oft eiga
1 erfiðleikum með yngri flokkana.
- SSv.
lætur gull sitt skína
prýða fegurðardrottningu Islands í
auglýsingatíma sjónvarpsins í kvöld.
mun fást í flestum apótekum og
snyrtivöruverslunum um land allt.
fyrir sólarlandaferðina, fyrir sólar-
lampann, fyrir sundlaugina, fyrir skíðaferðina,
eitt sér.
Naumur sigur KR-inga á
Akranesi í fyrsta leik
— sigurmarkið skorað snemma í síðari hálfleik en jaf ntefli hefði verið réttlátast
KR-ingar unnu nauman sigur á
Akumesingum er liðin mættust i 2.
flokknum i vikunni. Gylfi Aðalsteins-
son skoraði eina markið fyrir KR fljót-
lega i siðari hálfleik. Skagamenn voru
sizt lakari aðilinn og undir lokin gerðu
þeir nokkuð harða hrið að marki KR
án þess þó að skapa sér nein umtalsverð
færi. í liðum beggja aðila eru nokkrir
skemmtilegir leikmenn og sanngjörn-
ustu úrslitin hefðu verið jafntefli.
Þessi leikur var í A-riðlinum og í
þeim riðli fóru einnig fram þrír aðrir
leikir. Úrslit þeirra urðu sem hér segir:
KA-Valur 2—1
Þróttur-Þór, Ak. 1—0
ÍBV-Fram 1—3
Framarar voru nokkuð heppnir til að
byrja með i Eyjum en náðu síðan ágæt-
is sóknarlotum. Það var hins vegar
ÍBK leikur
íNjarðvík
Leikur ÍBK og Völsungs, sem átti að
vera i Keflavik kl. 14 i dag, hefur verið
færður á grasvöllinn f Njarðvik og
hefst þar kl. 14.
gamall Framari, Róbert Vilhjálmsson,
sem skoraði eina mark Eyjamanna.
Það dugði skammt gegn mörkum
þeirra Valdimars Stefánssonar, Viðars
Þorkelssonar, sem er reyndar þekktari
sem landsliðsmaður í körfuknattleik,
og Einars Björnssonar.
Það voru þeir Haraldur Haraldsson
og Ólafur Harðarson sem tryggðu KA
sigur gegn Vai með tveimur mörkum
sínum.
í B-riðlinum voru aðeins tveir leikir
af fjórum fyrirhuguðum leiknir. Vík-
ingur vann Stjömuna 4—0 og Keflavík
vann ÍR 5—1. Það voru þeir Óli Þór
Guðmundsson, Sigurður ísleifsson,
Ingvar Guðmundsson, Páll Þorkelsson
úr vítí og Unnar Stefánsson, sem skor-
uðu mörk Keflvíkinganna.
Leik KS og Selfoss var frestað fram
tíl 26. júní en leik Völsungs og Fylkis
var frestað af öðrum ástæðum. Hús-
víkingar telja sig ekki geta teflt fram 2.
flokks liði í sumar þar sem margir leik-
manna liðsins séu einnig í meistara-
flokki. Slíkt sé of mikið álag. -SSv.
Strax í upphafi vakti þetta framlag
DB verðskuldaða athygli og naut mik-
illar hylli hjá yngri kynslóðinni um land
allt. Samstarf við forráðamenn félag-
anna hefur verið mikilvægasti þáttur-
inn í að koma þessum upplýsingum á
framfæri og það er von undirritaðs að
það megi verða gæfuríkt sem og áður.
Við munum á hverjum laugardegi í
sumar birta öll þau úrslit sem við
höfum náð í hverju sinni. Miðað er við
þá leiki sem lokið er á fimmtudags-
kvöidi í viku hverri. Þannig mun á
næstá laugardag verða sagt frá leikjum
sem fóru fram frá og með deginum í
gær og fram til fimmtudagskvölds í
næstu viku.
Það er stefna okkar hér á blaðinu að
reyna að vera með nýja mynd úr yngri
flokkunum á hverjum laugardegi og
jafnvel fleiri en eina ef svo ber undir.
Viljum við hvetja liðin úti á landi til að
senda okkur myndir, sem þeim munu
svo að sjálfsögðu verða endursendar á
eftir. Við fengum sárafáar myndir í
fyrra en það hljóta að vera ótal mynda-
efni á landsbyggðinni-rétt eins og hér á
höfuðborgarsvæðinu.
Hér á síðunni í dag eru úrslit fyrstu
20 leikja sumarsins en einungis var
leikið í 2. og 5. flokki í vikunni. Hinir
flokkarnir fara í gang í næstu viku og
að sjálfsögðu munum við fylgja þeim
eftirlíka.
- SSv.
Kampakátir KR-ingar fagna sigri gegn Skagamönnum eftir að hafa „tekið hrínginn” að lcikslokum.
DB-mynd SSv.
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1981.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
DB með
yngri
flokkana
í sumar
— úrslit vikunnar birt
á hverjum laugardegi
Eins og tvö undanfarin sumur er
Dagblaðið nú með laugardagssiðu fyrir
yngri flokkana i knattspyrnu. í fyrra
datt þessi fasti þáttur reyndar niður síð-
ari hiuta surnars af óviðráðanlegum or-
sökum en nú er ætlunin að taka upp
þráðinn þar sem frá var horfið af full-
um krafti.