Dagblaðið - 30.05.1981, Qupperneq 14
14
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 30. MAÍ1981.
Andlát
Árni Jónatansson trésmiður frá Akur-
eyri, Kötlufelli 3 Reykjavík, sem lézt
22. maí sl., verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju mánudaginn 1. júní kl.
13.30.
Fuiuiir
AA-samtökin
í dag, laugardag, veröa fundir á vegum AA-samtak-
anna sem hér segir: Tjarnargata 5 (s. 91-12010),
grænahúsið, kl. 14 og 16 (sporafundur)Tjamargata
3 (91-16373), rauða húsið, kl. 21, Langholtskirkja
kl. 13, ölduselsskóli Breiðholti kl. 16.
Akureyri (96-22373) Geislagata 39, kvennadeild, kl.
14.00
Akureyri (96-22373) Geislagata 39, kl. 16.00.
Höfn Hornafirði, Miðtún 21, kl. 17.00.
Staðarfell Dalasýslu (93-4290), Staðarfell, kl. 19.00.
Tálknafjörður, Þinghóll, kl. 13.00.
Vestmannaeyjar (98-1140), Heimagata 24, opinn, kl.
17.00.
Á morgun, sunnudag, verða fundir sem hér segir:
Tjarnargata 5, græna húsið, kl. 11, 14, 16 (spora-
fundur) og 21 (framsögumaður). Tjarnargata 3,
rauða húsið, kl. 21.
Akureyri (96-22373), Geislagata 39, kl. 11.00.
ísafjöröur, Gúttó við Sólgötu, kl. 14.00.
Keflavík (92-1800), Klapparsíg7, kl. 11.00.
Keflavík, ensk spor, kl. 21.00.
Grindavik, barnaskólinn, kl. 14.00.
Grundarfjörður, safnaðarheimili, kl. 17.00.
Egilsstaðir, Furuvellir 10, kl. 17.00.
Fáskrúðsfjörður, félagsheimilið Skrúður, kl. 11.00.
Reyðarfjörður, kaupfélágshúsið, kl. 11.00.
Selfoss (99-1787), Selfoss^ egur 9, kl. 11.00.
Staðarfell, Dalasýsla (93-4290j, Staðarfell, kl. 21.00.
Vopnafjörður, Heimabyggð4, kl. 16.00.
Fundur um hlutverk
bókasafnsstjórna
Vorfundur um málefni almenningsbókasafna verður
haldinn í Reykjavík 10.—12. júní nk.
Aðalefni fundarins verður HLUTVERK BÓKA-
SAFNSSTJÓRNA og verða framsögumenn úr
röðum bókavarða, bókasafnsstjórnarmanna og
sveitarstjórnarmanna. Flutt verða erindi um þátt
bókasafnanna í menningarlín þjóðarinnar, sveitar-
stjórnarmál og bókasöfn, bókasafnalög og bóka-
safnsstjórnir.
Fjallað veröur að mestu um islenzkar aöstæður en
þó veröur einnig umræða um tilhögun mála á
Norðurlöndum: Danmörku, Finnlandi, Noregi og
Sviþjóð. Eru það bókafulltrúar þessara landa sem
hafa framsögu um það efni en þeir veröa staddir hér
á landi og halda árlegan fund sinn 9. júni hér i
Reykjavik. Bókafulltrúi Norðmanna, Else Gran-
heim, er nú forseti alþjóðasamtaka bókasafna.
Með bókafulltrúunum kemur norskur bókasafns-
fræðingur, Lis Byberg, sem hefur sérhæft sig í bóka-
safnsþjónustu við börn á sjúkrahúsum, og mun hún
halda almennan fyrirlestur um það efni og sýna
skuggamyndir á vegum Norræna hússins og
islenzkrar deildar úr Nordiska föreningen för sjuka
barns behov. Fyrirlesturinn verður í Norræna hús-
inu9. júníkl. 20.30.
Bókavaröafélag íslands og Deild starfsfólks i al-
menningsbókasöfnum gangast fyrir fræðslu- og
skemmtikvöldi fyrir þátttakendur vorfundarins og
aðra sem áhuga hafa á málefninu börn og bókasöfn.
Verður það haldið 11. júní og hefst klukkan 20 að
Borgartúni 6.
Föstudagskvöldið 12. júní verður svo haldið af
stað í árlega skemmtiferð Bókavarðafélags íslands
og er ferðinni að þessu sinni heitið til ýmissa merkis-
staða i Skagafirði. Ferðinni lýkur aö kvöldi sunnu-
dags.
Að vorfundinum standa Menntamálaráðuneytið,
Samband isienzkra sveitarfélaga, Bókavarðafélag
íslands og Deild starfsfólks í almenningsbókasöfn-
um.
Ferðalög
Kvenfólagiö
Fjallkonurnar
Farið verður í ferðalag laugardaginn 30. maí. Þátt-
taka tilkynnist fyrir 26. maí. Upplýsingar eru veittar
í síma 74897, Ágústa; Brynhildur, s. 73240, og
Hildigunnur, s. 72002.
Ferðafólag fslands
Dagsferðir sunnudaginn 31. maí: 1. kl. 09: Frá Vala-
hnjúk meðfram ströndinni til Staöarhverfís
v/Grindavik (löng ganga). Verð kr. 70. 2. kl. 13:
Þorbjarnarfell (230 m). Verð kr. 50. Farið frá Um-
ferðarmiðstöðinni, austanmegin. Farm. v/bíl.
Ferðir um hvítasunnu: 5.—8. júní kl. 20: Þórsmörk
— Eyjafjallajökull. 6.-8. júní kl. 08: Skaftafell —
Kirkjubæjarklaustur. 6.-8. júní kl. 08: Snæfellsnes
— Snæfellsjökull.
Allar upplýsingar á skrifstofunni, Öldugötu 3.
Kvenfólag Óháða
safnaðarins
Kvöldferðalagið verður nk. mánudagskvöld 1. júní.
Mæting við kirkjuna kl. 20. Farið verður í Hvera-
gerði, kaffi veitt 1 Kirkjúbæ á eftir. Safnaðarfólk og
gestir velkomnir.
Iþróttir
Lokadagur norrænu lands-
keppninnar í trimmi fatlaðra
Framkvæmdanefnd trimmkeppni fatlaðra í Hafnar-
fírði hvetur alla Hafnfirðinga til að mæta á lokadegi
trimmkeppninnar á morgun. Lagt verður af stað frá
Lækjarskóla kl. 11. Gerum hlut íslands sem
stærstan í þessari keppni og mætum öll.
íslandsmótiö í
knattspyrnu 1981
Laugardagur 30. mai
Kópavogsvöllur
UBK — ÍA, 1. deild, kl. 16.
Melavöllur
Fram — Þór, 1. deild, kl. 14.
Vestmannaeyjavöllur
ÍBV — KR, 1. deild, ki. 14.
Borgarnesvöllur
Skallagrímur — Haukar, 2. deild, kl. 14.
Keflavikurvöllur
ÍBK — Völsungur, 2. deild, kl. 14.
Neskaupstaðarvöllur
Þróttur N — ÍBÍ, 2. deild, kl. 14.
Sunnudagur 31. maí
Melavöllur
Vikingur — Valur, 1. deild, kl. 20.
Sývtingar
Keramfk íLangbrók
í gær, föstudag, opnuðu nokkrir nýútskrifaðir nem-
endur úr Myndlista- og handíðaskólanum sýninguá
keramík i Galleri Langbrók við Amtíhantfsstíg 1.
Þetta eru þær Ragna Ingimundardóttir, Rósa Gisla-
dóttir og Sóley Eiríksdóttir.
Sýna þær ilát, skúlptúra, platta og fleira sem þær
hafa gert á undanförnu ári. Sýningin stendur til 12.
júní og veröur opin alla virka daga frá kl. 12—18 og
um helgar frá 14—18.
DB-mynd Slg. Þorri.
Myndlistarklúbbur
Hvassaleitis
A uppstigningardag, 28. mai, opnaði Myndlistar-
klúbbur Hvassalcitis sýningu á 136 myndum i
Hvassaleitisskóla en þar hefur klúbburínn haft aö-
stööu fyrir starfsemi sina þau þrjú ár sem hann hefur
starfað.
Klúbbfélagar eru um 25 talsins, áhugafólk sem
hittist vikulega yfír vetrarmánuðina til starfs og
fræðslu.
Sýningin verður opin daglcga frá kl. 15—22 til
sunnudagsins 31. maí. DB-mynd Sig. Þorri.
Ásgrímssafn
Árleg sumarsýning Ásgrimssafns verður opnuð á
morgun, sunnudaginn 31. mai.
Á sýningunni eru verk frá ýmsum tímabilum á list-
ferli Ásgríms Jónssonar. Á neðri hæð Ásgrimssafns,
þar sem heimili Á.J. var, eru nær eingöngu sýndar
vatnslitamyndir, þ.á m. myndir frá Þingvöllum og
Hornafiröi. I vinnustofunni á efri hæðinni eru til
sýnis olíu- og vatnslitamyndir, fíestar landslags-
myndir frá ýmsum stööum á landinu, en einnig upp-
stillingar. Þá eru líka nokkrar þjóðsagnamyndir á
sýningunni.
Nýlega kom út veggspjald með teikningu úr sög-
unni af Búkollu og fæst þaö í safninu. Lítið upplýs-
ingarit með æviágripi Á.J. á ensku, dönsku, þýzku
og íslenzku er látið gestum safnsins í té endurgjaids-
laust.
Ásgrimssafn, Bergstaöastræti 74, verður opið alla
daga nema laugardaga I júní, júlí og ágúst kl. 1.30—
4.00. Aðgangur er ókeypis.
Bjarni Jónsson með mól-
verkasýningu á Eskifirði
Bjarni Jónsson listmálarí opnaði málverkasýningu i
gær, uppstigningardag, í Barnaskólanum á Eski-
firði. Þar sýnir hann 122 verk; olíumálverk, vatns-
litamyndir, blýantsteikningar, pastelmyndir og túss-
teikningar.
Sýningin stendur yfir í fjóra daga, til sunnu-
dagsins 31. mai. Er hún opin frá kl. 14 til 22 alla
dagana.
Bjarni Jónsson hefur haldiö fjöldann allan af
einkasýniogum, bæöi hérlendis sem erlendis.
Ungmennabúðir hjá USAH
Ungmennasamband Austur-Húnvetninga hefur
undanfarin ár staðið fyrir ungmennabúðum að
Húnavöllum. Búðirnar hafa alla tíð verið vel sóttar
og kornust t.d. í fyrra færri að en vildu.
Nú í ár verða búðirnar starfræktar dagana 3 .— 13.
júní og er ætlunin að hámarksfjöldi þátttakenda
miöist við 40 að þessu sinni. Aldurstakmörk eru 9 til
12 ár, þó þannig að möguleiki er á frávikum 1 báða
enda.
Dagskrá búðanna verður svipuð og undanfarin
sumur: sundkennsla, frjálsar íþróttir, knattleikir,
trampolínstökk, áhaldaleikfimi, glíma, leiksund,
fjallganga, leikir, frjálsir tímar niður við Svínavatn
(prammasmíði o.fl.), helgistundir, kvöldvökur, dans
o.fl. Auk þess verður farið í eins dags kynningar- og
skemmtiferð um hvitasunnuna að öllum líkindum að
Sólborg við Akureyri.
Kostnaður vegna dvalarinnar fyrir þátttakanda er
kr. 850. Systkin fá 10% afslátt.
Hver þátttakandi þarf að hafa meðferðis rúmföt
eða svefnpoka, 3—4 handklæði, snyrtiáhöld,
íþróttafatnað, tvenna æfingaskó, vaöstígvél, tvenna
ullarsokka, hlýja vettlinga, hlýjan útifatnað og regn-
kápu. öll föt þurfa að vera rækilega merkt.
Leiðbeinendur ungmennabúðanna veröa séra
Hjálmur Jónsson, Svava Svavarsdóttir og Karl Lúð-
víksson íþróttakennari sem einnig annast innritun í
síma 95-4416 eða 95-4643.
Eyjaprent f nýtt húsnæði
Eyjaprent í Vestmannaeyjum, sem hóf rekstur sinn i
október 1973 að Bárugötu 9 í tæplega 60 fermetra
húsnæði, hefur nú flutt í eigið húsnæði að Strand-
vegi47, 2. hæð.
Þegar fyrirtækið var stofnað, var vélakostur þess
smár, en á þeim árum sem liðin eru hefur nýjum vél-
um verið bætt við, þannig að nýjustu tækni er beitt
við prentunina. Texti er tölvusettur og síðan offset-
prentaður, þó er prentað enn með gömlu blýaðferð-
inni.
Eyjaprent gefur út vikublaðið Fréttir sem kemur
út hvem fimmtudag og flytur lesendum bæjarfréttir.
Blaðinu er dreift ókeypis 1 rúmlega tvö þúsund ein-
tökum í allflestar verzlanir bæjarins og er það snar
þáttur i lifi bæjarbúa.
Eyjaprent hefur teygt arma sína til fastalandsins
og prentar t.d. bæjarblað fyrir Þorlákshafnarbúa,
auk margvislegra prentverka víða út um landið.
Nýja húsnæðið er tæplega tvö hundruð fermetrar
aö flatarmáli og er vinnuaðstaða mjög góð.
Á myndinni eru Guðlaugur Sigurðsson fram-
kvæmdastjóri til hægri og Elvar Skarphéðinsson til
vinstri.
Tllkyimingar
Nefnd kanni stöðu
æskulýðsmála
Menntamálaráðherra Ingvar Gíslason skipaði nýlega
nefnd til þess að kanna stöðu æskulýðsmála í land-
inu. Skal nefndin fjalla um skipulag æskulýðsmála
og starf að þeim málum, svo og hlutverk félags-
hreyfinga, sveitarfélaga, skóla og annarra aðila á
þeim vettvangi. Þá er nefndinni einnig ætlað að.
fjalla um kostnað viö æskulýðsstarf og fjáröflunar-
leiðir, um félagsstörf i skólum og félagsmála- og
leiöbeinendamenntun.
í nefnd þessa skipaði ráðherrann eftirtalda menn:
Reyni G. Karlsson æskulýðsfulltrúa og er hann jafn-
framt formaöur nefndarinnar, Guðmund Guð-
mundsson fræðslufulltrúa, Amfinn Jónsson skóla-
stjóra, Kristján Valdimarsson skrifstofumann,
Arnald Bjamason sveitarstjóra. Af hálfu Sambands
islenzkra sveitarfélaga eiga sæti i nefndinni þeir
Unnar Stefánsson ritstjóri og ómar Einarsson fram-
kvæmdastjóri varamaður hans.
Nefndin hefur þegar hafið störf og er gert ráð
fyrir því að hún leggi álitsgerð sina fyrir mennta-
málaráðherra eigi síðar en 1. sept. 1982.
Ráöstefna um
öldrunarfræði
Dagana 30.5—2.6. '81 stendur yfir ráðstefna i
Reykjavík um öldrunarfræði. Að ráðstefnunni
standa öldrunarfræðafélag íslands 1 samvinnu við
samtök öldunarfræðafélaga á Norðurlöndum sem
nefnasig „Nordisk Gerontologisk Förening”.
öldrunarfræöin (eða Gerontologian) er fræði-
grein sem spannar yfir þær margvíslegu breytingar
sem verða á lífi og háttum einstaklingsins á efri árum
ævinnar, likamlegar, sálrænar og félagslegar, og
viðbrögð einstaklingsins svo og þjóðfélagsins við
þessum breytingum.
Á ráðstefnunni verða flutt u.þ.b. 56 erindi, sem
skiptast í allmarga flokka, svo sem öldrunarlækn-
ingar, endurhæfingu aldraðra, geðræn vandamál og
heilasjúkdóma, félagslega aðstöðu og aðbúnað aldr-
aðra í nútíma þjóðfélagi, svo og öldrunarþjónustu
bæöi á heimilum og á stofnunum.
Góðgjöftil
Krabbameinsfálags íslands
Kvenfélagiö Hringurinn, Vinahjálp (handavinnu-
klúbburinn) og Kiwanisklúbburinn Elliði í Reykja-
vík söfnuðu fé til að kaupa tæki sem auöveldar
greiningu á brjóstakrabbameini. Þessir þrir aðilar
gáfu Krabbameinsfélagi íslands eitt slikt tæki, ,,dia-
phanoscope”, sem staösett er í Leitarstöð félagsins
við Suðurgötu, og er þegar byrjað að nota það.
Tækið samanstendur af Ijósgjafa sem beint er að
brjóstinu í myrkvuðu herbergi og myndavél sem
tekur mynd á mjög Ijósnæma infra-rauða filmu.
Sé um að ræða illkynja breytingar koma þær fram
sem dökkur, brúnleitur skuggi á myndinni og þannig
er hægt að greina lítil æxli, sem ekki verða fundin
með þreifingu.
Stjóm félagsins hefur rætt þann möguleika að
boða vissa aldursflokka kvenna til slíkra brjósta-
rannsókna, ef árangur reynist góður af þessum
fyrstu tilraunum.
Aðalfundir
Aðalfundur Fólags dráttar-
brauta og skipasmiðja
Aðalfundur Félags dráttarbrauta og skipasmiöja var
haldinn í Reykjavík laugardaginn 23. mai sl. Á fund-
inum var ályktað um fjölmörg atriði varðandi hags-
munamál íslenzks skipaiðnaöar.
Á fundinum var vísað á bug þeim málfiutningi
vissra aðila þess efnis, að innlendar skipasmíða-
stöðvar stæðust ekki samkeppni við erlenda keppi-
nauta um verð og gæði skipaiðnaðarþjónustunnar,
þ.e. viðgerðir, breytingar og nýsmíðar skipa.
Félag dráttarbrauta og skipasmiðja hefur löngum
bent á nauðsyn þess, að innlendum stöðvum verði
gert kleift að raðsmíða skip. Ef slíkt yrði heimilað,
yrði unnt að stytta smíðatímann, stórspara hönnun-
arkostnað, skipuleggja starfsemi stöðvanna ásamt
innkaupum betur, og auka likur á verkaskiptingu
stöövanna í formi hlutasmíði. Allt þetta hefur að
sjálfsögðu i för með sér mikla lækkun á verði skip-
anna. Á fundinum kom t.d. fram, að hönnunar-
kostnaður skuttogara væri 250—300 milljónir gkr.
Hingaö til hefðu islenzkar stöðvar nánast orðið að
hanna ný skip algjörlega frá kili og upp úr með
hverjum nýjum smiðasamningi. Á tímum óðaverð-
bólgu skiptir og miklu að stytta verktímann sem
mest, og má ætla, að fyrir hvern mánuð, sem smíða-
tíminn styttist, megi spara tugmilljónir gkr. í fjár-
magnskostnað. Varðandi óðumefnt samstarfsverk-
efni var samþykkt á fundinum, að fagna ákvörðun
rikisstjórnarinnar um sérstakan stuðning við rað-
smiöi fiskibáta, sem felst i setningu reglna um 5%
viðbótarlán vegna nýsmiði báta innanlands, er falla
undir samstarfsverkefnið.
Stjórn Félags dráttarbrauta og skipasmiðja var
endurkjörin, en hana skipa, Jón Sveinsson, for-
maður, Gunnar Ragnars, varaformaður og með-
stjórnendur þeir Guðmundur Marselíusson, Þórar-
inn Sveinsson og Þorgeir Jósepsson.
Ými$iegl
Kvenfólag Garöabœjar
heldur sína árlegu blómasölu laugardaginn 30. mai í
Garðaskóla. Blómasalan verður opnuð kl. 14.
Tónleíkar
Þeyr og fleiri í Hafnarbíói
Hljómsveitin Þeyr gengst fyrir hljómleikum í
Hafnarbiói við Skúlagötu á laugardagskvöld. Þar
hyggst hljómsveitin með ljúfum leik sínum gera til-
raun til aö seiöa til jarðar eldvagn Elía spámanns,
eins og segir i frétt frá aðstandendum konsertsins.
Auk Þeys koma fram þrjár ungar hljómsveitir.
Þær eru Clitoris, Tóti tikarspeni og Bruni B.B. Þá
mun fjöllistamaðurinn Rúnar Guðbrandsson stýra
fjöldaritúali.
Tónleikarnir hefjast klukkan 8.30.
Grýlarkistuð ó Vestfjörðum
Hljómsveitirnar Aria og Grýlumar sækja Vestfirð-
inga heim um þessa helgi. Hljómsveitirnar skemmta
í Bolungarvik í kvöld og á Suðureyri á morgun,
laugardag. — Hljómsveitin Aría er löngu þekkt
vestra sem og víðar eftir dansleikjahald sitt. Grýl-
urnar er tiltölulega nýstofnuð hljómsveit sem ein-
göngu er skipuð konum. I fararbroddi þar er hin
landskunna söngkona Ragnhildur Gisladóttir.
Grýlurnar og Aría verða aftur á ferðinni á Vest-
fjörðum í júní. Þá skemmta hljómsveitirnar dagana
12., 13. og 14. júní.
Lúðrablástur
í Breiðholtsskóla
Skólalúðrasveit Árbæjar og Breiðholts heldur tón-
leika i Breiðholtsskóla laugardaginn 30. mai kl. 14
og kl. 17. Kemur yngri deild sveitarinnar nú fram í
fyrsta sinn og leikur nokkur lög. Stjórnandi er
ólafur L. Kristjánsson. Á milli tónleikanna sér for-
eldrafélag hljómsveitarinnar um kaffisölu i anddyri
skólans. Hljómsveitin er nú á förum til Noregs og
tekur þar þátt í móti með 40 norskum skólalúðra-
sveitum. Allur ágóði af tónleikunum og kaffisölunni
rennur i ferðasjóð hljómsveitarinnar en svona ferö
er að sjálfsögðu mjög kostnaðarsöm.
T.v.: Guðmundur Jóhanncsson yflrlæknir Leitarstöðvar Krabbameinsfélags íslands, Sigriður Johnson for-
maður Kvenfél. Hringsins, Sæmundur Sæmundsson forseti Kiwanlsklúbbsins EUlða og Doris Briem formaður
Vinahjftlpar, handavinnuklúbbsins.